Morgunblaðið - 12.09.1992, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
Lionessuklúbburinn Ösp
Tæki keypt fyrir ágóð-
ann af plastpokasölu
SJOUNDA starfsár Lionessuklúbbsins Aspar á Akureyri er nú
að hefjast og að venju hefst það með hinni árlegu sölu klúbbsins
á heimilisplastpokum.
Uonessur munu ganga í hús í
bænum vikuna 8. til 14. septem-
ber, í byrjun sláturtíðar, og bjóða
bæjarbúum plastpoka, en allur
ágóði af sölunni rennur til kaupa
á ristilspeglunartæki fyrir spegl-
unardeild Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri.
Plastpokasalan er aðalfjáröfl-
unarverkefni klúbbsins og hefur
ágóðinn ævinlega runnið til líkn-
armála. Fram til þessa hefur klúb-
burinn m.a. styrkt fæðinga- og
svæfingadeild FSA, Heilsugæslu-
stöð Akureyrar og rannsóknarlög-
regluna á Akureyri með tækja-
kaupum og í ár mun speglunar-
deildin njóta ávaxta starfsemi
klúbbsins.
Lionessuklúbburinn Ösp var
stofnaður á Akureyri 22. apríl
árið 1986 og eru félagar nú 40
talsins.
(Úr fréttatilkynningu.)
Slysavarnafélag íslands
Samæfing 120 slysavarna-
félaga í Grímsey tókst vel
Grímsey.
SAMÆFING slysavarnadeilda í
umdæmi 6, sem nær frá
Hvammstanga til Grenivíkur,
var haldin í Grímsey um síðustu
helgi og var þetta ein fjölmenn-
asta landshlutaæfing sem haldin
hefur verið, en um 120 manns
tóku þátt í henni.
Slysavarnafélagsmenn komu til
Grímseyjar um miðnætti á föstu-
dagskvöld, flestir með Sæbjörgu,
skipi Slysavarnaskóla sjómanna, en
liðlega 90 manns komu með skip-
inu. Þá komu menn frá Skaga-
strönd og Sauðárkróki á harðbotna
björgunarbátum til eyjarinnar og
voru þeir átta tíma á leiðinni vegna
veðurs. Slysavarnafélagsmenn
gistu í félagsheimilinu Múla og
höfðu þar aðstöðu.
Æfingin hófst kl. 8 á laugar-
dagsmorgni, en á dagskránni var
m.a. bátaæfing, sig- og kletta-
björgun, skyndihjálp, fluglínuæfing
og eins var aðeins farið út í rústa-
björgun, þ.e. björgun úr hrundum
húsum vegna náttúruhamfara,
sprenginga eða einhverra álíka at-
burða. Rústabjörgun er liður í sam-
starfi Slysavarnafélags íslands og
Álmannavarna ríkisins, en sam-
kvæmt samningi á milli þessara
aðila sér félagið um þennan lið
fyrir Almannavarnir. Aðalæfinga-
svæði félagins vegna rústabjörgun-
Morgunblaðið/Hólmfríður Haraldsdóttir
Einar Sigurbjörnsson, forseti Slysavarnafélags íslands, Guðmundur
Jóhannesson umdæmisstjóri og Henning Jóhannesson, formaður
Slysavarnadeildarinnar Sæþórs í Grímsey.
ar er í Saltvík á Kjalarnesi, en
björgun úr rústum er einnig æfð
út um landið eftir því sem tæki-
færi gefast til.
Þátttakendur voru sammála um
að samæfingin hefði tekist vel og
vildu sjórnarmenn SVFÍ koma á
framfæri þökkum til heimamanna
fyrir frábærar móttökur. Henning
Jóhannesson, formaður slysavarna-
deildarinnar Sæþórs í Grímsey,
vildi einnig koma á framfæri þakk-
læti til SVFÍ-manna fyrir komuna.
„Svona heimsókn verður alltaf til
að örva starfsemina á allan hátt,“
sagði Henning.
-HSH
Rekstur og framkvæmdir bæjarins 1993-1995
Aætlað að verja 1,2 milljörðum
til framkvæmda næstu þrjú ár
AÆTLAÐ er að verja um 1.250
milljónum króna á næstu þremur
árum til framkvæmda á vegum
bæjarins vegna ýmissa verkefna.
Þá er stefnt að því að lækka
skuidir bæjarsjóðs um 5% á ári
á næstu þremur árum og að
rekstrargjöld fari ekki yfir 71%
af rekstrartekjum. Þetta kemur
fram í þriggja ára áætlun um
rekstur og framkvæmdir á veg-
um Akureyrarbæjar sem af-
greidd var á fundi bæjarráðs á
fimmtudag, en áætlunin verður
Kjarnaskógur
Gönguferð í tilefni
af 40 ára afmæli
AHUGAMONNUM um g;öngu-
ferðir og útivist er boðið til eins
til tveggja tíma gönguferðar um
Kjarnaskóg á morgun, sunnudag
kl. 14.
Tilefni þessarar gönguferðar um
skóginn er, að í ár eru liðin 40 ár
frá því byrjað var að gróðursetja tré
í Kjarnaskógi, en fyrstu trén voru
gróðursett þar 22. maí 1952. Geng-
ið verður um svæðið og m.a. farið
á þá staði þar sem fyrst var gróður-
sett.
Þeim sem ætla að taka þátt í
gönguferðinni er bent á að mæting
er við skógarhúsið fyrir kl. 14 á
morgun, 13. september. Að lokinni
gönguferð verður boðið upp á ketil-
kaffi í húsnæði Skógræktarfélags
Eyfirðinga í Kjarnaskógi.
„Það verður boðið upp á leiðsögn,
sagt frá því sem gert hefur verið í
skóginum, þetta verður einhvers
konar ferð í gegnum tímann. Göngu-
ferðin verður ekki erfíð þannig að
flestir ættu að geta tekið þátt í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjörutíu ár eru liðin frá því fyrst
var byijað að gróðursetja í
Kjarnaskógi.
henni," sagði Hallgrímur Indriðason
framkvæmdastjóri Skógræktarfé-
lags Eyfirðinga.
lögð fram til fyrri umræðu á
fundi bæjarstjórnar á þriðjudag.
Sigurður J. Sigurðsson formaður
bæjarráðs sagði að þetta væri í
annað sinn sem þriggja ára áætlun
um rekstur og framkvæmdir á veg-
um bæjarins væri samþykkt og
endurspeglaði hún þær hugmyndir
sem menn gerðu sér um þá fjár-
muni er bærinn hefði til ráðstöfun-
ar til rekstrar og verklegra fram-
kvæmda á árunum 1993 til 1995.
í áætluninni er gert ráð fyrir að
rekstrargjöld bæjarins fari ekki yfir
71% af rekstrartekjum bæjarsjóðs
og einnig er reiknað með óbreyttu
skatthlutfalli, en Sigurður sagði að
hið eina er gæti raskað þeim fqr-
sendum væri ef farið yrði út í átak
til eflingar atvinnulífinu á umræddu
tímabili. Þá er samkvæmt áætlun-
inni stefnt að því að lækka skuldir
bæjarsjóðs árlega um 5%, en þar
er um að ræða skuldir aðrar en þær
sem til eru komnar vegna lána við
félagslegt íbúðarhúsnæði.
Sigurður sagði að í áætluninni
væri gert ráð fyrir að atvinnutekjur
vaxi á tímabilinu og fasteignum
fjölgi. Reiknað væri með að bæj-
arbúum fjölgaði um 1% árlega á
tímabilinu. „Við erum þenkjandi á
þeim nótum, að þrátt fyrir erfiðleika
í atvinnulífi sé ekki ástæða til ann-
ars en að bjartsýni eigi að ríkja um
framtíð bæjarfélagins við gerð
áætlunar af þessu tagi og það eru
engin þau teikn á lofti sem benda
til annars en full ástæða sé til að
búa sig undir áframhaldandi stækk-
un bæjarins og ný atvinnutæki-
færi, þó þau láti á sér standa í
augnablikinu,“ sagði Sigurður.
Samkvæmt áætluninni er gert
ráð fyrir að veija um 150 milljónum
króna á ári næstu þrjú ár í gjald-
færðan stofnkostnað, s.s. eins og
gatnagerð og fleira. Þá er einnig
ráðgert að vetja 265 milljónum ár-
lega á tímabilinu til eignabreytinga,
eins og nýbygginga. Samtals er því
áætlað að veija röskum 1,2 millj-
arði til framkvæmda ýmiskonar í
bæjarfélaginu á næstu þremur
árum.
Litlar líkur
á heysölu til
Svíþjóðar
MINNKANDI líkur eru á að ey-
firskir bændur muni selja hey til
Svíþjóðar í haust, en fyrirspurn
þess efnis barst til Búnaðarsam-
bands Eyjafjarðar í sumar.
Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur
hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar,
sagði að Svíar hefðu ætlað að hafa
samband fyrri hluta september
mánaðar er þeir ætluðu sér að
kaupa hey héðan, en þar sem ekk-
ert hefði heyrst frá mönnum þar
ytra teldu menn litlar líkur á að
nokkuð yrði af heysölunni.
Um tíma í sumar leit illa út með
heyskap í ákveðnum landshlutum í
Svíþjóð og kom fyrirspurnin í kjöl-
far þess, en Ólafur sagði að aðstæð-
ur hefðu lagast og taldi að menn
hefðu bjargað sér með því að miðla
heyi á milli landshluta.
Amtsbókasafnið
Um 25 tonn prentmáls
flutt í Víðilund 24
UM 25 TONN af bókum, tímaritum og skjölum ýmis konar verða
á næstunni flutt frá Amtsbókasafninu og í eignarhluta Akureyrar-
bæjar í kjallara hússins nr. 24 við Víðilund, þar sem eru íbúðir
aldraðra. Bæjarráð hefur samþykkt að lagfæringar fari fram á
húsnæðinu í Víðilundi svo af flutningnum geti orðið, en Vinnueftir-
litið hafði gert athugasemdir við burðarþol gólfs í safninu, sem
ekki þolir þann þunga sem því er ætlað að bera.
Sigurður J. Sigurðsson formað-
ur bæjarráðs sagði að í framhaldi
af samþykkt bæjarráðs yrði leitað
tilboð í lagfæringar á húsnæðinu,
en m.a. ætti eftir að múra það
og mála. Um er að ræða 140 fer-
metra húsnæði sem vonast er til
að verði komið í gagnið fyrir ára-
mót.
Hólmkell Hreinsson bókavörður
á Amtsbókasafninu sagði að um
25 tonn af prentuðu efni, bæði í
eigu safnsins sem og Héraðs-
skjalasafns Eyjaíjarðar, yrðu flutt
í kjallarann í Víðilundi. „Við
reyndum að velja til flutnings það
efni sem minnst er beðið um,“
sagði Hólmkell, en það verða eldri
erlendar bækur, aukaeintök af
íslenskum bókum og varaeintök
af akureyrskum blöðum auk eldri
árganga erlendra tímarita.
Starfsfólk safnsins er þegar
byijað að flokka og skrá bækur
og blöð ofan í kassa og eru eitt-
hvað á annað hundrað kassar til-
búnir til flutnings. Þá sagði Hólm-
kell að beðið hefði verið um að-
stoð við flokkun og skráning þess
efnis sem flutt verður frá fólki
er fær vinnu í atvinnuátaki er
stendur yfir.