Morgunblaðið - 12.09.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
með okkur bræðrunum í veiðiferð
í Héðinsfjörð eitt sumarið. Hann
geislaði af gleði allan tímann enda
veiðin og veðrið með besta móti. í
sumar fékk hann síðan tækifæri til
þess að fara með pabba sínum einn
túr á togara, nokkuð sem margra
unglinga dreymir um að prófa. Það
er því óhætt að segja að honum
hafí verið margt til lista lagt og
að hann hafí komið ýmsu í verk á
sínu stutta æviskeiði.
Ég vil með þessum fátæklegu
orðum þakka fyrir að hafa fengið
að verða samferða þessum góða og
blíða dreng. Björgvin Davíð Bjöms-
son mun áfram lifa í minningu okk-
ar og hans verður sárt saknað af
ættingjum og vinum. Elsku Dóra,
Óli og Stelia, Bjöm Valur og fjöl-
skylda á Ólafsfírði. Ég sendi mínar
dýpstu samúðarkveðjur og bið Guð
um að styrkja ykkur í þeirri miklu
sorg sem þið eigið í.
Sigurður Tómas
Björgvinsson.
„Þá fyrst skiljum við dauðann er hann legg-
ur hðnd sína á einhvem sem vér unnum.“
(Madame de Stael)
Mig langar til að minnast frænda
míns og góðs vinar, Björgvins Dav-
íðs Bjömssonar, með fáum orðum.
Margar spumingar vakna þegar
ungt fólk í blóma lífsins er snögg-
lega þrifíð burt frá okkur. Jafnan
verður okkur þó fátt um svör.
Björgvin Davíð var þeim sem
honum kynntust ógleymanlegur.
Það geislaði af honum hvar sem
hann fór og glettnin skein úr augum
hans. Hann var ljúfur 1 umgengni
og hjálpsamur. Hann hafði gaman
af að koma manni á óvart með alls
kyns uppátækjum sem fengu hlát-
urtaugamar til að titra.
Ég varð þess aðnjótandi að eyða
einum degi með Björgvini fyrir
stuttu. Ég náði í hann í Varmahlíð
og síðan þvældumst við saman á
Akureyri áður en við fómm til
Ólafsfjarðar, en þar ætlaði hann
að eyða nokkram dögum hjá pabba
sínum og fjölskyldu.
Á þessum þvælingi okkar spjöll-
uðum við saman um heima og
geima. Honum var ofarlega í huga
skólinn og sá spenningur sem fylg-
ir því að búa á heimavist.
Hann rifjaði upp góðu stundimar
úr sumarvinnunni og lét sig dreyma
um að komast kannski á sjóinn
næsta sumar. í vor fór hann, sem
oftar áður, með pabba sínum einn
túr á togara og var því reynslunni
ríkari.
Björgvini var mikið hugsað til
framtíðarinnar og þess sem hún
myndi bera í skauti sínu.
Hann hafði mikinn áhuga á
íþróttum, þó átti knattspyrnan hug
hans allan. Hann var KS-ingur í
húð og hár, trúr sínu félagi, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir fjölskyld-
unnar á Ólafsfírði um að gera hann
að Leiftursmanni, þó meira í gríni
en alvöra.
Þetta eru þau minningabrot um
Björgvin sem koma fram í huga
minn nú þegar ég kveð hann í hinsta
sinn.
Elsku Dóra, Óli, Bjössi, Þurý,
systur og fjölskyldur. Söknuður
okkar allra er mikill en minningin
um góðan dreng með glettni í aug-
um lifir í hugskotum okkar allra
um aldur og ævi.
Guð styrki ykkur í þessari miklu
sorg.
Stína.
Snemma á sunnudagsmorgni
hringir síminn. Harmafregn. Björg-
vin Davíð er dáinn. Dó af slysför-
um. Tekinn frá okkur svo snögglega
að ómögulegt er að átta sig. Hvers
vegna hann? Hann sem var svo
ungur og átti lífið allt framundan.
Jafnaldri okkar. Hann sem var
alltaf með okkur frá því við munum
eftir okkur á Sigló. Upp í hugann
koma allar stundimar sem við átt-
um saman. Við höfum farið í heim-
sóknir til Sigló á hveiju sumri.
Dóra Sallý og Óli hafa komið suður
til Grindavíkur, Björgvin Davíð og
Stella Dóra eru með. Allar stundirn-
ar fyrir norðan, hjá ömmu, hjá
Björgvini og Dóra, Dóra Sallý og
Óla. Hittast, spjalla, hlæja saman,
labba niður í bæ. Alltaf var gaman
og sjaldan eða aldrei slettist upp á
vinskapinn.
Alltaf var Björgvin Davíð með
okkur, en það kom þó fyrir að hann
væri úti í Ólafsfirði að heimsækja
pabba sinn og fjölskyldu og vinina
þar.
Björgvin Davíð er ljúfur og góður
drengur, vinamargur, duglegur í
fótbolta og öllu sem hann tók sér
fyrir hendur, gat talað við fólk á
öllum aldri. Björgvin Davíð átti
stóra og góða fjölskyldu, bæði á
Siglufirði og Ólafsfírði og öllum
þótti mjög vænt um hann.
Elsku Dóra Sallý, Óli og Stella
Dóra og þið öll á Sigló, Bjöm og
fjölskylda Ólafsfírði, við sendum
ykkur samúðarkveðjur og biðjum
til Guðs að hann styrki ykkur í
sorginni. Minningin um góðan
dreng veitir huggun á erfíðri stund.
Þeir sem guðirnir elska deyja ungir.
Villi, Nonni,
Gígja og Harpa.
Kveðja frá Knattspyrnu-
félagi Siglufjarðar
Og því varð allt svo hljótt við helfrep þína
sem hefði klökkur gígjustrenpr brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna,
sem horfðu á eftir þér í sárum trega,
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hupm vina þinna.
Sem sjálfur Drottinn mildum lófa lyki
um lífsins perlu í pllnu aupabliki.
(Tómas Guðmundsson)
Fyrir hönd Knattspymufélags
Siglufjarðar votta ég foreldrum og
öðram aðstandendum dýpstu sam-
úð, um leið og við þökkum Björg-
vini Davíð fyrir allar ánægjustund-
irnar sem við áttum með honum,
jafnt á knattspymuvellinum sem
utan vallar.
Tæp sextán ár er ekki langur
tími. Minningamar era margar og
ánægjulegar sem við geymum í
hjörtum okkar um góðan og lífs-
glaðan KS-ing.
Megi góður Guð veita aðstand-
endum hans huggun og styrk í sorg-
inni. Minning um góðan dreng lifír.
Oddný H. Jóhannsdóttir,
ritari KS.
Kveðja frá árgangi 1976
á Siglufirði
Björgvin, vinur okkar og skóla-
bróðir, er dáinn. Það er sárt að
hugsa um það. Hann var vinur okk-
ar allra, góður félagi, sem lét sig
aldrei vanta þegar bekkurinn ætlaði
að gera eitthvað í sambandi við
skólaskemmtanir og annað félags-
líf. Hann var traustur vinur og fé-
lagi. Við eigum eftir að sakna hans
mjög mikið. Hann mun alltaf vera
í huga okkar allra. Hann var mikil-
vægur í félagsskap okkar og lífí.
Þannig er fráfall hans mikill missir
fyrir okkur öll.
Björgvin stóð sig vel í íþróttum
eins og öllu öðra sem hann tók sér
fyrir hendur. Þegar eitthvað bjátaði
á hjá einhveijum í hópnum gat
Björgvin alltaf komið manni til að
brosa með léttleika sínum og
fýndni. Við vitum að lífíð er ekki
alltaf eins og við viljum hafa það.
Við söknum hans sárt. En þá hugs-
um við til fjölskyldu hans, sem miss-
ir svo mikið. Foreldrar hans vora
Björn V. Gíslason og Halldóra
Björgvinsdóttir. Fósturfaðir hans
var Ölafur Þór Ólafsson. Við vottum
þeim og systkinum Björgvins og
öðram nánum ættingjum hans
dýpstu samúð okkar.
I Spámanninum segir um vinátt-
una: „Vinur þinn er þér allt. Hann
er akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin
... vertu glaður með vini þínum
og njóttu með honum lífsins. Því að
í dögg lítilla hluta fínnur sálin
morgun sinn og endurnærist."
Okkur þótti vænt um Björgvin
og við söknum hans sárt. Við mun-
um aldrei gleyma öllum góðu stund-
unum sem við áttum með okkar
ástkæra vini.
MUHIfl!
Minningarkort Styrktarféiags
krabbameinssjúkra barna
Seld í Garðsapóteki,
sími 680990.
Upplýsingar einnig veittar
í síma 676020.
Sérfræðingar
í blóiiiiislii‘4‘yliiigiini
(«11 lil-liÍliITÍ
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaöastrætis,
sími19090
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR,
Skeiðháholti,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi, að morgni 10. september.
Ólafur Jónsson,
Bjarni Jónsson,
Gunnlaugur Jónsson,
Vilmundur Jónsson,
Sigriður Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Jóhanna Jónsdóttir,
Kristín Skaftadóttir,
Bergþóra Jensen,
Kristín Hermannsdóttir,
t
Systir mín,
GUÐLAUG MARGRÉT BJARNADÓTTIR
frá Hraunkoti í Lóni,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Skjólgarði á Höfn þann 6. septem-
ber sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Helga Bjarnadóttir
og aðrir vandamenn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
KRISTINN EINARSSON
hæstaróttarlögmaður,
Ránargötu 17,
Reykjavík,
sem lést 3. september, verður jarðsunginn mánudaginn 14. sept-
ember kl. 15 frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
Guðrún Leifsdóttir,
Hrönn Kristinsdóttir, Behnan Valadbeygi,
Einar Kristinsson,
Hrund Kristinsdóttir,
Eva Egilsdóttir,
Þór Egilsson,
Sara Nassim Vaiadbeygi,
Egill Rúnar Björgvinsson.
Margrét Tómasdóttir,
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tek-
in til birtingar framort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til-
vitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar. .
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins era birtar
greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar era birtar afmæl-
isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð
og með góðu línubili.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls móður okkar,
LÁRU MAGNÚSDÓTTUR,
sem lést á Hrafnistu 24. júlí sl.
Oddný Dóra Jónsdóttir, Þórir H. Konráðsson,
Helga Jónsdóttir, Hilmar Haraldsson,
Sigurður Jónsson, Sigríður Oddsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem veittu okkur aðstoð og sýndu
samúð og vinarhug við fráfall eiginmanns míns,
EINARS MAGNÚSSONAR
frá Leirubakka,
sem lést í Borgarspítalanum þann 20. ágúst sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þuríður Árnadóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Við þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu og samúð við andlát
og útför
AÐALBJARGAR HARALDSDÓTTUR,
Laugarvatni,
Sérstakar þakkir sendum við til starfsfólks Ljósheima á Selfossi
Ásrún Magnúsdóttir, Skúli Guðjónsson,
Böðvar Magnússon, Sigrún Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
HERMANNS BJÖRNS KRISTJÁNSSONAR,
Hlíð,
ísafirði.
Elín Kristín Bjarnadóttir,
Þorsteinn Guðbjartsson,
Hermann Þorsteinsson,
Helgi Þorsteinsson,
Elín Skarphéðinsdóttir,
Sigrún Nilsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
KJARTANS GUÐMUNDSSONAR
stórkaupmanns.
Dagbjört Sigurðardóttir,
Birgir Adolf Kjartansson,
Hermann Kjartansson,
Jóna Kjartansdóttir,
Auður Kjartansdóttir,
Guðmundur Kjartansson,
Bryndis K. Vane,
Kristján Kjartansson,
Valgerður B. Eiríksson,
Sigurður Sigurðsson,
Gunnar Kr. Finnbogason,
Peter Vane,
Vernharður Eiríksson,
barnabörn og barnabarnabörn.