Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 36

Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992 fclk f fréttum WÖNUSTA y* GRAG&SU. ■ Morgunblaðið/Frímann ólafsson Hljómsveitin Hált í sleipu frá Grindavík lék vid góðar undirtektir á rokktónleikum í Grindavík. h fj1 WjXmf f KBKBPII11 p| \ wmm Á wm TONLIST KÆRLEIKAR Vísigreifi á leið upp að altarinu? Ekki eru allar fregnir af breska kóngafólkinu vafasamt slúður þótt slíkt hafí verið fyrirferðarmest í nærfellt allt sumar. Nú ber ekki á öðru heldur en að einn af eftirsótt- ustu piparsveinunum í hópnum, Linley vísigreifi, sonur Margrétar prinsessu, sé á leið í hnapphelduna. Hann hefur verið við urmul kvenna kenndur, en allt þar til nú hafa það verið sambönd sem vöruðu skamma hríð. Hin heittelskaða heitir Serena Stanhope. Vísigreifínn stendur nú á þrít- ugu, en ungfrú Stanhope er aftur á móti aðeins 22 ára. Hún hefur fengist við fyrirsætustörf og sitt- hvað annað. Hún þykir bæði falleg, aðlaðandi og prýðilega greind og ku vart hægt að fara fram á frek- ara atgervi. Samband þeirra hefur varað í allt sumar og þykir hafa færst í aukana fremur en hitt. Hvor- ugt hefur viljað staðfesta trúlofun eða þaðan af meiri tíðindi, en kóngaspekúlantar telja sig heyra í kirkjubjöllunum klingjandi. Linley vísigreifi ásamt unnustunni. Rokktónleikar á M-hátíð M-hátíð á Suðumesjum er nú að nálgast lokapunkt sinn. Fyrir nokkru var unglingum á Suðumesjum boðið upp á rokktón- leika þar sem helstu bflskúrshljóm- sveitir þar léku í íþróttahúsinu í Grindavík. Ætlunin var að hafa útitónleika við Gmnnskóla Grindavíkur en vegna kalsaveðurs var horfíð frá því og þeir fluttir í íþróttahúsið í Grindavík. 5 hljómsveitir léku fyr- ir rúmlega 500 gesti sem komu til að hlýða á og mátti sjá fólk á öllum aldri skemmta sér við hljóð- færaslátt. Hljómsveitirnar Steypa frá Sandgerði, Bölmóður frá Keflavík, Nerður frá Njarðvík, Hált í sleipu frá Grindavík og Hugsjón frá Keflavík léku og sýndu svo ekki verður um villst að unglingar í dag em að gera eitthvað skapandi í frítíma sínum. FÓ KVIKMYNDIN HUS ANDANNA Meryl Streep og Glenn Close í aðalhlutverkum Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíösdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. Kvikmyndaleikstjórinn Bille August hefur ákveðið hveijir verða aðalleikarar í væntanlegri mynd hans sem byggð er á bók Isabellu Allende, Húsi andanna. Tvær víðfrægar bandarískar leik- konur, þær Meryl Streep og Glenn Close, fara með aðalhlutverkin en þær hafa ekki leikið saman í mynd áður. Pernilla August, eiginkona Bille August, leikur einnig í mynd- inni og fjórði leikarinn af þeim sem fara með aðalhlutverkin er Jeremy Irons. Undirbúningur myndarinnar hófst fyrir þremur ámm og August hefur líkt honum við maraþon- hlaup. Sá kvittur komst fljótt á að leikararnir ættu að vera í stór- stjömuflokknum og það hefur gengið eftir. August skrifar sjálfur handritið og fékk strax augastað á Meryl Streep í hlutverk Klöm. August var boðið að gera myndina eftir að hann gat sér gott orð fyrir Óskarsverðlaunamyndina um Pelle sigurvegara. I millitiðinni hefur hann gert Hinn góða vilja sem hef- ur enn aukið orðstír hans. August segir að reynslan frá gerð hennar komi sér nú vel og þekktir leikarar eins og Close og Streep auðveldi mjög dreifingu myndarinnar, ekki síst í Bandaríkjunum. Kvikmyndatökur á Húsi and- anna hefjast í Portúgal um miðjan janúar en innitökur fara fram í upptökusal i Lyngby, rétt við Kaup- mannahöfn. A næstunni fer Bille August til Ítalíu að vinna að gerð enn einnar myndar um hetjuna Indiana Jones en hann hefur ekki fengist áður við has- armyndir. Myndin gerist í seinni heims- styijöldinni og segir frá fundum Jones og bandaríska rithöf- undarins Ernest Hemingway og ást- um þeirra á sömu konunni. Isabella Allende var í fyrstu hikandi við kvikmyndaá- formin en sannfærð- ist um að Bille Aug- ust væri rétti mað- urinn eftir að hún sá mynd hans um Pelle. Eins og kunn- ugt er varð Hús and- anna metsölubók um allan heim. Hún hefur einnig verið þýdd á íslensku. skolasSf Reykhólaskóli settur Reykhólaskóli var settur í Reyk- hólakirkju þriðjudaginn 1. september. í skólanum verða um 50 nemendur í vetur og verður skól- asel á Kiðjabergi í Gufudalssveit. Skólaselið verður lagt niður í Króks- fjarðamesi til reynslu og börnum ekið í Reykhólaskóla. Skólastjóri er Skarphéðinn Ólafsson. Sú nýbreytni verður í vetur að tvö böm úr Flatey á Breiðafirði verða í skólanum og verður komið með þau á hraðbát að Stað á Reykjanesi á mánudagsmorgnum og þau sótt a föstudögum þegar skólinn er búinn. Ein langamma, Unnur Stefáns- dóttir, mætti í skólasetningu með afkomanda sinn, Hilmar Amar Arn- órsson. Hún var aðeins 52 ára þeg- ar hún varð langamma en hún varð sextug 11. september nk. Amma Hilmars er Ingibjörg Marta Páls- dóttir í Búðardal og móðir hans Auður Jónsdóttir í Búðardal. Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson Unnur Stefánsdóttir, sem lengi var matráðskona við Reykhólaskóla, mætir með barnabarnabarn sitt, Hilmar Arnar Arnórsson, til skóla- setningar í Reykhólaskóla. COSPER

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.