Morgunblaðið - 12.09.1992, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósm. Rut.
HJÓNABAND Gefín voru saman
hinn 4. júlí Óskar Guðmundsson og
Guðríður Sverrisdóttir af sr. Braga
Friðrikssyni í Garðakirkju. Þau eru
til heimilis í Stuttgart.
Ljósmyndast. Nærmynd.
HJÓNABAND. 8. ágúst sl. voru
gefín saman í Fríkirkjunni af sr.
Hjalta Guðmundssyni Sigrún Guð-
mundsdóttir og Sigþór Einarsson.
Heimili þeirra er á Sólbraut 19,
Seltjamamesi.
Ljósmyndarinn - Þór Gíslason.
HJÓNABAND. 22. ágúst sl. vora
gefín saman í Dómkirkjunni af sr.
Pálma Matthíassyni Ragna Júlíus-
dóttir og Hjálmar Axel. Heimili
þeirra er i Reykjavík.
Ljósmynd Rut.
HJÓNABAND. 8. ágúst sl. vora
gefín saman í Bústaðakirkju af sr.
Pálma Matthíassyni Þóra Sigurðar-
dóttir og Jóhann Hjálmarsson.
Heimili þeirra er í Búðargerði 4,
Rvík.
Ljósmyndarinn - Jóhannes Long.
HJÓNABAND. 15. ágúst sl. voru
gefin saman í Veginum af Bimi
Inga Stefánssyni Emelía B. Sveins-
dóttir og Hörður Halldórsson.
Heimili þeirra er í Hraunbæ 56,
Rvík.
HJÓNABAND. Gefin vora saman
hinn 23. maí sl. Róbert Ó.G. McKee
og Helga Margrét Sveinsdóttir af
sr. Einari Eyjólfssyni í Fríkirkju
Hafnarfjarðar. Þau verða til heimil-
is í Klukkubergi 18, Hafnarfirði.
Þessar telpur heita: Regina Unnur, Auður Agla, Ylfa Rún og Iðunn
Ása. Þær færðu Hjálparsjóði Rauða krossins 2.000 kr. sem þær söfn-
uðu á hlutaveltu.
Hér eru á ferðinni Bjartey Ásmundsdóttir, íris Dögg Harðardóttir,
Svandís Halldórsdóttir og Ásta Björnsdóttir. Þær söfnuðu rúmlega
2.100 kr. til Hjálparsjóðs Rauða krossins.
AUSTFIRÐINGABALL!
■ KOLAPORTSMARK-
AÐURINN á sunnudaginn
verður sérstaklega tileinkað-
ur heimilislist og verður
þetta í annað skiptið sem
staðið er fyrir slíkum heim-
ilislistadegi á markaðstorg-
inu. Fyrst var slíkt gert að
framkvæði listamanna frá
Vestmannaeyjum sem vora
jafnframt heiðursgestir
dagsins en nú koma heiðurs-
gestimir frá Austfjörðum,
nánar tiltekið Stöðvarfirði
og Breiðdalsvík og er það
hópur kvenna sem nefnir sig
Völvurnar. Nú þegar hafa
um 70 aðilar skráð sig til
þátttöku með mikið úrval
alls konar heimagerðra hluta
og koma þeir víða að af land-
inu. Reiknað er með að heim-
ilisfólkið geti orðið á annað
hundrað, en auk þess er
venjulegt markaðstorg í öðr-
um hlutum Kolaportsins
þennan dag.
(Fréttatilkynning)
■ DICK Cepek-sand-
spyrna fer fram sunnudag-
inn 13. september á vegum
Bílabúðar Benna og
Kvarmíluklúbbsins. Keppn-
in er fjórða og síðasta keppn-
in sem gildir til íslandsmeist-
ara. Búast má við geysihörð-
um slag í öllum flokkum.
Margir eiga harma að hefna
frá því fyrr í sumar og ætla
sér að jarða keppinautana
hvað sem það kostar. Keppn-
in hefst kl. 14 en tímatökur
byija á hádegi. Fólk er hvatt
til að mæta tímanlega og
fylgjast með öllum kraft-
mestu képpnistækjum lands-
ins á einum stað.
(Fréttatilkynning)
VAGNHOFÐA 11, REYKJAVIK, SIMI 685090
Vitastíg 3 Sími 6231 37
Laugard. 12. sept. opið kl. 20-03
Aðeins þetta eina sinn!
MAGNÚS &JÓHANN
Mikið fjc
í kvöld
SNIGLABANDIÐ
Gestur kvöldsins:
RUT REGINALDS
Vegna fjölda áskorana gefst eitt tækifæri til að hlýða á þessa
fræbæru tónlistarmenn í kvöld en útgáfutónleikar Magnúsar
& Johanns 27. agúst sl. þottu meiri hóttar.
Hluti kvöldsins verður tekinn upp fyrir sjónvarp en Magnús &
Jóhann byrja kvöldið kl. 23.
Liðveislufélagar fá 50% afslátt i boði sparisjoðanna gegn fram
vísun Liðveisluskírteina.
SiAUMST!
Púlsinn
- eiRstakt kvóid!
IV. IS.iKj 19. íiept. Biúsdrottninqin tra Cnicago
DEifRA FARR & VlNiR DÓRA
Vinsamlega athugið!
£rum farin að bóka arshótiðir. Tökum að okkur stóra
oa smúa hopa með íitlum ívrirvara.
Pdntunarsimcu 6Ö $0 90 og 67 00 5 i.
NYR STA0UR
A GOMLUM GRUNNi
BREYTT OG BETRA DANSHÚS
HLJÓMSVEITIN
BERGMAL
í kvöld mæta allir hressir gestir því
austfirska hljómsveitin Bergmál er mætt til
leiks. Allir hressir austfiröingar eru
sérstaklega boðnir velkomnir.
Aðgangseyrir kr. 800,- Snyrtilegur klæðnaður.
Opið frá kl. 22-03.
Þórs
leikur
fyrir dansi.
Mætum
hress á
góðan
dansleik.
Hreystimannafélagið
Aldur 20 ár.