Morgunblaðið - 12.09.1992, Page 46
m**+**mm*!tm< .4- >;- «; • 'y, mmm
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1992
KNATTSPYRNA
Hann á afmæli í dag...
Luca Kostic, fyrirliði nýbakaðra íslandsmeistara ÍA, heldur upp 34 ára
afmæli sitt í dag. Það gerir hann með því að mæta gömlu félögunum í Þór,
á Akureyrarvelli. Kostic, sem hér sést í búningi IA, lék með Þór 1989
og 1990 en yfirstandandi keppnistímabil er hans annað með Akurnesing-
um. Kostic er lykilmaður í liði íslandsmeistaranna, hefur leikið frábær-
lega sem aftasti maður í vörn þess í sumar. Hann hyggst sækja um ís-
lenskan ríkisborgararétt, eins og kom fram í Morgunblaðinu á þriðjudaginn.
f
SAMSKIPA
deiEdin
Stórleikur á Hlíöarenda
i dag kl. 14.00:
VALUR - KR
Valsmenn, fjölmennum og styðjum
okkar menn til sigurs.
AEG
Afram
Valurí
AEG
EVROPUKEPPNI BIKARHAFA
Fimmtudaginn 17. september 1992
kl. 1 7.45, 1. umferð:
VALUR - BOAVISTA
Landsmenn, fjölmennum og tryggjum
VAL sæti í 2. umferð.
Síðasta umferð Samskipadeildarinnar á dagskrá í dag:
Hörkubarátta
um Evrópusæti
og á botninum
ÞRÁTT fyrir að Skagamenn hafi
þegar tryggt sér íslandsmeist-
aratitilinn í knattspyrnu — og
fengið bikarinn afhentan sem
kunnugter — er spennunni í
mótinu aldeilis ekki lokið. Átj-
ánda og sfðasta umferðin fer
fram í dag, og enn eru fjögur lið
í fallhættu og tvö berjast um
sæti f Evrópukeppni félagsliða.
Tvö félög sigla lygnan sjó, FH
og Fram, og svo skemmtilega
vill að þau mætast í Hafnarf irði.
Svo einkennilega vill til að tvö
neðstu liðin mætast, og tvö þau
næstu þar fyrír ofan einnig. Það eru
lið ÍBV og KA sem eigast við í Vest-
mannaeyjum og íslandsmeistarar
Víkings frá því í fyrra sem taka á
móti Breiðabliki í Stjörnugrófinni.
Þess má geta að þessir leikir heljast
kl. 16, ekki kl. 14 eins og segir í
mótabók. Vegna jarðarfarar Friðriks
Jessonar, íþróttafrömuðar í Eyjum,
var leiknum þar seinkað og ákvað
mótanefnd KSÍ að hafa hinn á sama
tíma vegna þess hve mikilvægir þeir
eru báðir.
Fyrri leikirnir
ÍBV vann fyrri leikinn gegn KA
fyrir norðan, 3:1. Leifur Geir Haf-
steinsson gerði þá tvö mörk og Tóm-
as Ingi Tómasson eitt úr vítaspyrnu.
Gunnar Már Másson skoraði fyrir
KA, en hann er illa fjarri góðu gamni
í dag — farinn utan til Bandaríkj-
anna þar sem hann situr á skóla-
bekk. Fyrri viðureign Víkings og
Breiðabliks, í Kópavogi, lyktaði með
markalausu jafntefli.
Staðan á botninum er þannig að
nánast allt getur gerst, en Víkingar
standa óneitanlega skárst að vígi
vegna þokkalegustu markatölunnar.
Staðan í deildinni er annars þannig:
Fj. leikja U j T Mörk Stig
ÍA 17 12 3 2 38: 17 39
KR V17 10 4 3 32: 16 34
ÞÓR 17 10 4 3 28: 12 34
VALUR 17 9 4 4 32: 18 31
FRAM 17 8 1 8 25: 24 25
FH 17 4 6 7 22: 29 18
VÍKINGUR 17 4 4 9 22: 32 16
UBK 17 4 3 10 13: 28 15
KA 17 3 4 10 17: 31 13
ÍBV 17 4 1 12 21: 43 13
Möguleikamir margir
Eins og á þessu sést standa Eyja-
menn verst að vígi. Möguleiki þeirra
til að halda sæti í deildinni felst í
því að þeir sigri KA og Víkingar
vinni UBK. Fari leikirnir svo falla
UBK og KA. KA yrði þá áfram méð
13 stig, UBK með 15, ÍBV 16 og
Víkingur 19. KA-menn lifa í sömu
von, sem sagt þeirri að þeir nái að
sigra í Eyjum og Víkingur vinni
UBK. Þá sætu Eyjamenn neðstir
með 13 stig, KA færi upp í 16 og
Breiðablik hefði 15. En endi leikur-
inn í Eyjum með jafntefii falia ÍBV
og KA og þá skiptir ekki máli hver
úrslitin verða í Reykjavík.
Breiðabliki nægir jafntefli í leikn-
um gegn Víkingum til að halda
sæti sínu, með því skilyrði að ÍBV
vinni KA ekki með meira en sjö
marka mun.
Sigri KA í Eyjum og vinni Breiða-
blik Víking félli ÍBV með 13 stig,
KA og Víkingur yrðu með 16 og
Breiðablik bjargaði sér — lyki keppni
með 18 stig. Markatala réði því þá
hvort KA eða Víkingur félli. Eins
og staðan er í dag er Víkingur með
tíu mörk í mínus en KA 14. Fari
leikirnir eins og rætt er um í þessu
dæmi þarf það því að vera saman-
lagt með fimm marka mun KA í
hag. KA t.d. að vinna ÍBV 2:0 og
UBK að vinna Víking 3:0 svo dæmi
séu tekin. Staðan er því vissulega
flókin eins og á þessari upptalningu
sést, en hún skýrist þó — klukkan
kortér fyrir sex síðdegis ætti að
liggja fýrir hvaða lið hljóta það leið-
inlega hlutskipti í ár að falla niður
í 2. deild. Því ber þó að bæta við
að verði ekki leikið í Eyjum í dag
vegna ófærðar, eins og stundum
kemur fyrir, hefur verið ákveðið að
leikur Víkings og Breiðabliks fari
ekki heldur fram í dag, heldur verða
báðir settir á kl. 14 á morgun.
Evrópuslagurinn
Og þá er það Evrópuslagurinn.
Skagamenn hafa auðvitað tryggt sér
rétt til þátttöku í keppni meistaraliða
næsta keppnistímabil og Valsmenn
í keppni bikarhafa. Og svo skemmti-
lega vill til að það eru andstæðingar
þessara iiða í dag, sem eru að beij-
ast um eina Evrópusætið sem enn
er á lausu, sæti í UEFA-keppninni.
KR-ingar heimsækja Valsmenn að
Hlíðarenda og Þórsarar taka á móti
Islandsmeisturum ÍA á Akureyrar-
velli. KR og Þór eru bæði með 34
stig, bæði með 16 mörk í plús en
KR telst ofar á töflunni vegna þess
að liðið hefur skorað fleiri mörk.
Geri bæði lið jafntefli eða tapi bæði
fer KR í Evrópukeppni og sigri bæði
með sama mun tryggja KR-ingar
sér einnig Evrópusæti. Til þess að
Þórsarar komist í Evrópukeppni —
sem yrði þá í fyrsta skipti sem þeim
tækist það — verða þeir að ná einu
marki hagstæðari úrslitum en KR-
ingar. Til dæmis að tapa með einu
marki minna en KR, ef bæði tapa,
eða vinna með eins marks meiri mun
en Vesturbæjarliðið.
Fyrri leikirnir í sumar fóru þannig
að ÍA vann Þór 1:0 á Skaganum en
KR og Valur gerðu markalaust jafn-
tefli á KR-velli.
EVRÓPUKEPPNIN
Fram - Kaiserslautem kl. 13.30
FYRSTA umferð Evrópukeppni félagsliða ferfram í næstu viku,
og leika íslensku félögin þrjú þá öll hér heima. Spilað verður á
Laugardalsvelli á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag.
Framarar ríða á vaðið á þriðjudaginn, er þeir taka á móti þýska félag-
inu Kaiserslautern í UEFA-keppninni og athygli skal ’vakin á óvenju-
legum leiktíma: viðureign liðanna hefst kl. 13.30, klukkan hálf tvö, og
er ástæðan bein sjónvarpsútsending til Þýskalands. Á miðvikudag mæt-
ast svo Víkingar og rússnesku meistaramir í CSKA Moskvu og á fimmtu-
dag taka Valsmenn á móti portúgölsku bikarmeisturunum í Boavista.
Hafnfirðingar
Haukaféiagar
Leikja- og íþróttanámskeið fyrir börn fædd 1987 og 1988
hefst í Haukahúsinu v/Flatahraun, 20. september nk.
Skráning og upplýsingar í síma 53712 núna um helgina.
Takmarkaður fjöldi - ókeypis þátttaka - menntaðir kennarar.
Aóalstjórn.
Innritun hjá borðtennisdeild Víkings
Vetrarstarf borðtennisdeildar Víkings er hafið.
Æfingar verða í TBR-húsinu, Gnoðarvogi 1.
Þjólfarar eru kínverski þjálfarinn Ho Dao Ben og Krist-
ján Haraldsson. Innritun í símum 36862, 36717,
35935 (Pétur), 51775 (Sigurður) og 25268 (Hilmar).
Allir unglingar eru velkomnir á æfingar.
FOLK
nn ÁRNI Þór Árnason, sem var
með í 13 leikja Þórs í 1. deildinni
þar til hann fór til náms í Kanada
í síðasta mánuði, er kominn til lands-
ins og verður til taks í leiknum gegn
ÍA í dag. Hann fer svo aftur út á
morgun.
■ SVEINN Pálsson, sem einnig
leikur með Þór, er í námi í Banda-
ríkjunum. Hann kom heim til að
mæta KR um síðustu helgi, hefur
verið nyrðra síðan og verður með
gegn IA í dag. Sveinn fer utan á ný.
■ STUÐNINGSMENN KR ætla
að leggja sitt af mörkum til að liðið
nái settu marki að Hlíðarenda —
Evrópusæti. Þeir sameinuðust á
heimaleiknum gegn Þór og ákváðu
að stilla enn betur saman strengina
fyrir viðureignina gegn Val. Því
ætla þeir að taka daginn snemma,
hittast á hádegi á Rauða ljóninu
og fara þaðan saman í rútum á
Valsvöllinn skömmu fyrir leik.
■ NÓI Björnsson hefur verið end-
urráðinn 3. deildarliðs Magna frá
Grenivík í knattspyrnu. Nói lék einn-
ig með liðinu, og hyggst gera það
áfram ef hann kemst í liðið. Frá
þessu er greint í Degi.