Morgunblaðið - 16.10.1992, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
236. tbl. 80. árg.
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vonarsnauð framtíð
Reuter
Cedric Thornberry, háttsettur fulltrúi Sameinuðu
þjóðanna, sagði í gær að líklega væri orðið of seint
að koma í veg fyrir að tugþúsundir Bosníumanna
létu lífið úr hungri og kulda í vetur. Sagði hann að
framundan væru meiri hörmungar en orðið hefðu í
Evrópu frá því á dögum síðari heimsstyijaldar.
Myndin var tekin í flóttamannabúðum í Norður-
Bosníu en til stendur að loka þeim á næstunni.
Fólkið vill þó vera um kyrrt þrátt fyrir ömurlegar
aðstæður enda á það í engin hús að venda.
Enginn árangur í GATT-viðræðum
Aukin kreppa tak-
ist ekki samningar
Hong Kong. Reuter.
VERÐI ekki gengið frá nýjum GATT-samningi fljótlega mun samdrátt-
urinn í efnahagslífi flestra ríkja stóraukast. Kom þetta fram hjá Arth-
ur Dunkel, framkvæmdasljóra GATT, í Hong Kong í gær. George
Bush, forseti Bandaríkjanna, segir í bréfi, sem hann hefur sent leiðtog-
um Evrópubandalagsins, EB, að sljórn sín geti ekki teygt sig iengra
í samkomulagsátt en EB og Bandaríkin deila um hve mikið skuli skor-
ið niður í útflutningsuppbótum á landbúnaðarvörur.
„Ástandið í efnahagslífi heimsins
er nú þannig, að beri viðræðurnar
engan árangur fljótlega blasa við
okkur alvarleg vandamál. Ég trúi
ekki, að nokkur ríkisstjóm vilji axla
þá ábyrgð og kannski, að nýr samn-
ingur verði jólagjöfín til heimsbyggð-
arinnar í ár,“ sagði Dunkel á árlegri
efnahagsmálaráðstefnu ríkja í Evr-
ópu og Austur-Asíu.
Það sem kemur í veg fyrir samn-
ing er ágreiningur Bandaríkjanna og
Evrópubandalagsins, EB, um út-
flutningsuppbætur á landbúnað-
arvörur og raunar vilja Frakkar ein-
ir EB-þjóða ekki fallast á neina
umtalsverða lækkun.
„Ef við nýtum ekki þetta tækifæri
til að hleypa nýju lífi í heimsviðskipt-
in og efla þar með hagvöxt er hætt
við, að afleiðingin verði viðskipta-
stríð þjóða í millum," segir Bush í
Afstaða EB-nefndar danska þingsins tíl Maastricht-sáttmálans
Krefjast sérsamninga
við Evrópubandalagið
bréfínu til EB-leiðtoganna.
Lorenz Schomerus, aðstoðarefna-
hagsmálaráðherra Þýskalands, deildi
hart á afstöðu Frakka á ráðstefn-
unni í Hong Kong en sagði þó, að
þýska ríkisstjómin væri ekki úrkula
vonar um einhvem árangur á leið-
togafundi EB-ríkjanna, sem hefst í
Birmingham á Englandi í dag.
---------------------------
Finnland
Stóráföll
hjá bönkum
Helsinki. Reuter.
GÍFURLEGT tap var á rekstri
þriggja stærstu bankanna í Finn-
landi á fyrstu átta mánuðum
þessa árs samkvæmt uppgjöri,
sem birt var í gær, á „Svarta
fimmtudeginum" eins og Finnar
kalla hann.
Tapið á rekstri tveggja helstu
viðskiptabankanna, KOP og Unitas
Oy, var samtals um 50 milljarðar
ÍSK. og SKOPBank, eins konar
seðlabanki sparisjóðanna fínnsku,
tapaði um 20 milljörðum. Væru
bankarnir um það bil gjaldþrota ef
ekki kæmu til greiðslur úr sérstök-
um tryggingarsjóði en auðsýnt þyk-
ir, að ríkið verði að leggja banka-
kerfinu til enn meira fé á næsta ári.
Kaupmanaahðfn. Heuter.
D ANIR kynntu í gær tillögur sínar
um hvernig höggva beri á þann
hnút sem þjóðaratkvæðagreiðslan
í Danmörku um
Maastricht-sáttmálann olli og
sögðust vilja vera undanskildir
ákvæðum sáttmálans um sameig-
inlega varnarstefnu Evrópu-
bandalagsins (EB), sameiginlega
Treuhand-stofnunin, sem sér um
að selja og endurskipuleggja fyrir-
tæki í austurhlutanum með einka-
væðingu í huga, hefur farið ofan í
saumana á þúsundum þeirra og met-
ur þau nú í mesta lagi á 81 milljarð
marka en upphaflegt mat var 625
milljarðar marka. Var það byggt á
upplýsingum frá fyrrverandi stjórn-
völdum í austurhlutanum en komið
hefur í ljós þær voru að miklum hluta
út í hött eða beinlínis falsaðar.
mynt og þegnréttindi. „Okkur
verður að takast að tryggja okkur
sérstakan samning ef Danmörk á
að vera aðiU að Evrópubandalag-
inu áfrarn," sagði Poul Schliiter,
forsætisráðherra Danmerkur.
Schlúter lét þessi orð falla eftir
fund EB-nefndar danska þingsins,
þar sem samkomulag náðist um til-
Einkavæðingunni í austurhluta
Þýskalands á að vera lokið árið 1994
og er búist við, að hún kosti Treu-
hand-stofnunina að minnsta kosti
250 milljarða marka en kostnaðurinn
felst að mestu í endurskipulagningu
fyrirtækjanna og í bótum vegna
eigna, sem kommúnistar þjóðnýttu.
„Þennan arf verðum við öll að axla,
alríkisstjómin og fylkin," sagði Wa-
igel.
lögumar, sem verða kynntar á leið-
togafundi EB í Birmingham í dag.
Hann sagði ennfremur að Danir
þyrftu líka hugsanlega að vera und-
anskildir áformum EB um samvinnu
á sviði löggæslu og myndu áskilja
sér rétt til að hafa eigin félagsmála-
stefnu. Danir vildu aukið lýðræði
innan bandalagsins og að íhlutun
framkvæmdastjómarinnar yrði sem
minnst við ákvarðanatöku.
Forsætisráðherrann tjáði sig ekki
um hvemig stjórnin hygðist bregðast
við ef önnur EB-ríki héldu þeirri af-
stöðu til streitu að ekki væri hægt
að hefja samningaviðræður um
breytingar á Maastricht-sáttmál-
anum. Dönsku flokkarnir, sem
studdu sáttmálann í þjóðaratkvæða-
greiðslunni, vilja viðamiklar breyt-
ingar á honum eða viðauka, sem
hafi lagagildi, til að ömggt verði að
Danir samþykki hann í næstu þjóðar-
atkvæðagreiðslu, sem ráðgerð er á
næsta ári. Danska stjómarandstaðan
hefur krafíst þess að Danir fái sér-
stakan samning sem hafí lagagildi.
Schluter sagði þetta æskilegt og
kvað slíka lausn mögulega án þess
að hefja samningaviðræður að nýju.
Stjómarerindrekar í Brussel sögð-
ust efins um að önnur EB-ríki léðu
máls á því að Danir yrðu undanskild-
ir því sem næst öllum helstu ákvæð-
unum í sáttmálanum, óháð því hvort
sá samningur hefði lagagildi eða
ekki.
A-þýskur iðnaður
stórlega ofmetinn
Berlín. Reuter.
IÐN- og atvinnufyrirtæki í Austur-þýska alþýðulýðveldinu voru miklu
minna virði en áætiað var þegar þýsku ríkin sameinuðust. Skýrði Theo
Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, frá þessu í gær og þykir þetta
skýra gífurlegan kostnað þýska ríkisins við uppbygginguna í austur-
hlutanum.
Reuter
Clinton á kosningaskokki
Forseta- og þingkosningarnar í Bandaríkjunum nálgast óðum og það
er hart barist á síðasta sprettinum. Hér er Bill Clinton, frambjóðandi
demókrata, að skokka í Williamsburg í Virginíu en bærinn er eitt þjóð-
minjasafn þar sem flest er með sama sniði og á nýlendutímanum, þar
á meðal klæðaburður íbúanna. í gærkvöld eða nótt að okkar tíma
reyndu frambjóðendumir, Clinton, George Bush forseti og Ross Perot,
með sér öðm sinni en þriðja og síðasta viðureignin verður næstkom-
andi mánudagskvöld.
Sjá „Ásakanir um_“ á bls. 22.