Morgunblaðið - 16.10.1992, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
9
Spádómar Biblíunnar
Daníelsbók
Námskeið um hrífandi spádóma Biblíunnar hefst þriðjudag-
inn 20. október kl. 20 á Hótel Holiday Inn, Sigtúni 38,
Reykjavík. Efni spádómsbókar Daníels verður sérstaklega
tekið til meðferðar.
ÞÁTTTAKA ER ÓKEYPIS, einnig öli námsgögnin.
Leiðbeinandi verður dr. Steinþór Þórðarson.
Ótrúlegir atburðir gerast á okkar dögum, og hafa spádóm-
ar Biblíunnar mikið að segja um þá. Þessir spádómar
boða að stórkostlegir atburðir. eigi enn eftir að gerast,
jafnvel á okkar dögum.
Nánari upplýsingar og innritun í síma 67 92 70 á skrifstofu-
tíma og í síma 68 09 89 utan skrifstofutíma.
MaxMara
Ný sending
afglæsilegum kvenfatnabi
frá ítalska tískuhúsinu
MaxMara.
____Mari_________
Hverfisgötu 52-101 Reykjavík - Sími 91-62 28 62
X
JEAN D'AVEZE
Kynning í dagfrá
kl. 13—18 á nýju
Jouvence Actif
kremlínunnifrá
Jean d’Aveze.
Mikligarður
við Sund.
Verslunin veitir 10% kynningar-
afslátt af öllum Jean d’Aveze
vörum meðan á kynningu stendur.
Færeysk
reynslusaga
Alþýðublaðið segir í
forystugrein:
„Það liggnr í augum
uppi, að samdráttur i
þjóðfélaginu kallar á
aukinn niðurskurð í ríkis-
útgjöldum. Hugmyndir
sljómarandstöðunnar
um aukin rikisútgjöld
myndu gera það eitt að
verkum að halli á ljárlög-
um myndi enn aukast,
grípa yrði til stórfelldra
skattahækkaná, auka er-
lend lán, sem nú þegar
hafa farið yfir hættu-
mörkin, eða fella gengið
til að búa til gervilausn
fyrir útflutningsgrein-
amar; aðgerð sem í raun
þýðir verðbólgu og upp-
lausn á vinnumarkaði.
Velferðin, sem er aðals-
merki jafnaðarstefnunn-
ar, er pólitík til lang-
frama, ekki skyndilausn.
Með því að grafa undan
efnaiiagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar er verið að
grafa undan framtíð vel-
ferðar. Traustur efna-
hagslegur grunnur er
forsenda sjálfstæðis og
afkomu allrar þjóðarinn-
ar. Dæmið frá Færeyjum
minnir okkur Islendinga
illilega á, hve skammt er
milli góðæris og hinna
mögm ára hjá smáþjóð
sem býr við fábrotið at-
vinnulíf. Það er rétt jafn-
aðarstefna að beijast fyr-
ir minnkandi ríkisút-
gjöldum á tímum sam-
dráttar og raunar er allt-
af brýn ástæða að hafa
hemil á ríkisútgjöldum
og sjálfvirkni þeirra;
dæmið frá Færeyjum
sýnir okkur afar vel hvað
gerist þegar þjóð glatar
fjárhagslegu sjálfstæðu
sínu. Fjárhagslega ósjálf-
stæð þjóð er ófrjáls
þjóð.“
EES - ný og
fleiri atvinnu-
tækifæri
Síðan segir Alþýðu-
blaðið:
Jafnaðarstefna á tímum
samdráttar
5að skeið samdráttar og stöðnunar í hagvexti sem nú stendui
yfir á fslandi, hefur orðið mönnum tilefni ýmissa hugleiðinga
Meðal annars hefur verið um það spurt hvoit flokkur sem kenn-
ir sig við jafnaðarstefnuna, geti tekið þátt í umfangsmiklum nið
urskurði á ríkisgjöldum sem rýri velferðarkerfið. Jafnframt ei
þeirri spumingu oft velt upp, hvoit jafnaðarmenn verði ekki að
stuðla að ríkisaðgerðum sem efla atvinnulífið og minnka at
vinnuleysi hérlendis. Spurt er í hnotskum, hvort Alþýðuflokkur
^^ufibmgðistjafhaðarstefnunni átímumsamdráttar.
Hefur Alþýðuflokkurinn
brugðizt jafnaðarstefn-
unni?
Alþýðublaðið veltir fyrir sér í forystugrein
(16. október sl.) hvort Alþýðuflokkurinn,
sem kennir sig við jafnaðarstefnu, hafi
brugðizt þeirri stefnu á tímum samdrátt-
ar í þjóðarbúskapnum.
„Efling atvinnulífsins
er nauðsynleg til að auka
hagvöxt og fá hjól at-
vinnulífsins til að snúast
hraðar en nú er. Sú efl-
ing er ekki bezt fram-
kvæmd með þvi að
pumpa ríkisfé í atvinnu-
greinarnar. Innspýting
ríkisfjár í atvinnulífið
skapar oft meiri vand-
ræði en hún leysir. Dæm-
in úr fiskeldinu og loð-
dýraræktinni segja sína
sögu. Þvert á móti er það
hlutverk ríkisvaldsins að
skapa réttar aðstæður til
að atvinnulífið megi
dafna. Það er í anda jafn-
aðarstefnunnar að
standa vörð um atvinnu
almennings. Það gerir
jafnaðarflokkur ekki
með því að blása til and-
stöðu við vinnuveitendur
sem nú eiga i rniklum
erfiðleikum. Þjóðarsátt
er nauðsynlegri en
nokkru sinni fyrr. Jafn-
aðarflokkur í ríkisstjórn
á að beijast fyrir minnk-
andi álögum á atvinnulíf-
ið til að skapa því betri
rekstrarskilyrði. Það
hefur Alþýðuflokkurinn
gert. EES-samningurinn
veitir einnig ný og fleiri
tækifæri fyrir atvinnulíf-
ið. Samþykkt samnings-
ins getur haft úrslitaþýð-
ingu, hvort við náum að
byggja upp fiskvinnsluna
heima fyrir og höslum
okkur völl erlendis með
unnar sjávarafurðir.
Þetta hefur Alþýðuflokk-
urinn lengi skilið og bar-
ist fyrir EES-samningun-
um, tilurð hans og sam-
þykkt. Sterkt atvinnulíf
er forsendan fyrir at-
vinnu og velferð á Is-
landi. Þess vegna beijast
ábyrgir jafnaðarmenn
fyrir fijálsu og sterku
atvinnulifi. Samdráttur
og kreppuástand í þjóð-
lífinu á ekki að vera
merki inn afturhvarf til
jafnaðarstefnu kreppu-
áranna, heldur þvert á
móti; samdrátturinn í
þjóðfélaginu á að vera
hvatning til að fram-
kvæma nútímalega jafn-
aðarstefnu svo þjóðfélag-
ið vinni sig út úr vandan-
um án þess að missa sjón-
ar á samhjálpinni og
leggja drögin að varan-
legri framtíð."
Sænska for-
dæmið
Forystugrein Alþýðu-
blaðsins, sem hér er vitn-
að til, kemur heim og
saman við stefnu og
starfsáætlun rikissljórn-
ar Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins: VeJ-
ferð á varanlegum
grunni. Þar er tekið und-
ir þá eðlilegu kröfu skatt-
greiðenda, sem eru þorri
þjóðarinnar, að ráðdeild
ráði ferð í ríkisbúskapn-
um, ekki sizt á samdrátt-
artímum þegar fólk og
fyrirtæki verða að rifa
seglin.
Það ber að fagna þvi
að Alþýðublaðið tekur nú
orðið undir þau sjónar-
mið, að atvinnulifið —
fyrirtækin — eigi að hafa
skilyrði til arðs og vaxt-
ar, en á það skortir í
þrengingum líðandi
stundar. Þetta viðhorf til
atvinnuveganna er rök-
rétt. Atvinnulífið, verð-
mætasköpunin í þjóðar-
búskapnum, hefur verið,
er og verður kostnaðar-
leg undirstaða lifskjara
og velferðar, þar á meðal
félagslegrar þjónustu
hvers konar á vegum rík-
is og sveitarfélaga.
Ríkisstjórnin má
gjaman ganga betur
fram í þeirri viðleitni að
búa atvinnulífinu betri
starfsskilyrði. Stjómar-
andstaðan ætti einnig að
láta af neikvæðu nöldri,
sem fólk er orðið lang-
þreytt á, og fara að for-
dæmi sænsku stjómar-
andstöðunnar um sam-
átak stjómmálaflokka
gegn vandanum í ríkis-
og þjóðarbúskapnum.
Það væri í anda þjóðar-
sáttarinnar frá 1990, sem
aðilar vinnumarkaðarins
gerðu að veruleika. Það
er meginmál að skapa
atvinnulíflnu betri skil-
yrði til vaxtar; til að
fjölga störfum á tímum
atvinnuleysins og til að
stækka skiptahlutinn á
þjóðarskútunni, sem
skroppið hefur saman
síðustu fimm, sex árin.
Hirschmann
Rétt loftnet tryggir
góða móttöku!
HIRSCHMANN loftnetin eru viðurkennd gæðavara og
hefur áratuga reynsla hérlendis sannað gæði þeirra og
endingu.
Enginn býður meira úrval af öllum gerðum loftneta,
gervihnattadiskum, fylgihlutum, mögnurum og lagnaefni
en HIRSCHMANN!
Borgartúni 22
® 61 04 50
SlMINN ER
689400
BYGGT & BUIÐ
KRINGLUNNI
FÖSTUDAGUR T1L FJÁR
STRAUJÁRN
«1
I DAG
Á KOSTNAÐARVERÐI
byggtÖbÖiö
I KRINGLU.NNI