Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
KIRKJAN OG ÞU - Kirkjuvika
Guðsþjónustan er tindurmn sem
stendur upp úr í kirldustarfinu
eftirÞráin
Þorvaldsson
Oft heyrist sú fullyrðing að
kirkjur landsins standi nær tómar
milli jólahátíða en þá komast færri
að í kirkju en vilja. Þeir sem sækja
kirkjur reglulega vita hins vegar
betur. Margar kirkjur eru vel sótt-
ar og aðsókn fer víða vaxandi.
Þeir eru fleiri sem gera sér ekki
grein fyrir því mikla starfi sem á
sér stað innail veggja kirknanna.
Starfið er mun umfangsmeira en
margan grunar. Guðsþjónustan er
aðeins lítill hluti starfsins.
Það var margt sem kom mér á
óvart þegar ég fyrir tveimur árum
var beðinn um að gefa kost á mér
til setu_ í sóknarnefnd Bústaða-
kirkju. Ég þekkti ekkert til kirkju-
legs starfs nema sem kirkjugestur
endrum og eins. Ég hafði ekki
gert mér grein fyrir því um-
fangsmikla starfi sem fer fram í
Bústaðakirkju.
Bústaðakirkja og safnaðar-
heimilið eur mjög vel fallin til
ýmiss konar félagsstarfsemi. Enda
fer þar fram fjölbreytt félagsstarf
eins og í öðrum kirkjum. Það líður
vart sá dagur að ekki sé eitthvað
um að vera í kirkjunni og oft er
um að ræða fleiri en einn atburð
á hveijum degi. Til þess að halda
uppi þessu starfí þarf margt fórn-
fúst fólk. Fjöldi þeirra einstaklinga
sem standa að starfí Bústaða-
kirkju er um 80 manns.
Guðsþjónustan er sá hluti kirk-
justarfsins sem flestir þekkja og
taka þátt í. Kirkjumar standa ekki
auðar á sunnudögum, síður en
svo. Ef við tökum sem dæmi
sunnudaginn 4. október komu 192
í bamamessu í Bústaðakirkju að
morgni og 345 manns í guðsþjón-
ustu eftir hádegi.
Trúaráhugi Islendinga virðist
vera mikill. í skoðanakönnun á
trúarlífi íslendinga sem unnin var
á vegum Guðfræðistofnunar Há-
skóla íslands kom fram að 32%
báðust fyrir daglega og 22% tvisv-
ar til þrisvar í viku. Aðeins 10%
sögðust aldrei biðjast fyrir. í könn-
uninni kom fram að 76% íslend-
inga trúa á Guð og 10% til viðbót-
ar em í vafa. Aðeins 14% sögðust
aldrei biðjast fyrir. í könnuninni
kom fram að 76% íslendinga trúa
á Guð og 10% til viðbótar em í
vafa. Aðeins 14% sögðust vera
trúlausir. Hins vegar var það upp-
lýst að aðeins 10% íslendinga
koma oftar í kirkju en einu sinni
í mánuði.
Fólk getur eðlilega rætt við Guð
sinn, ef það vill, hvar sem er. En
hlutverk messunnar er að leiða
fólk saman til bænaiðkana í sam-
félagi við annað fólk. í guðsþjón-
ustu er slíkt framkvæmt undir
leiðsögn. Eitthvað er samt athuga-
vert við messuformið ef það er
rétt að almennt sæki svo fáir
kirkju reglulega á sunnudögum.
Höfuðþættir guðsþjónustunnar
em þrír. Í fyrsta lagi sameiginleg-
ur undirbúningur safnaðarins með
upphafsbæn og víxlsöng. í öðra
lagi er hlustað sameiginlega á
Guðsorð með því að hlýða á lesna
texta og predikun. í þriðja lagi em
sameiginlegar bænir með sálmum
og bænum. í aðalguðsþjónustu er
Qórði þátturinn hin sameiginlega
kvöldmáltíð með altarisgöngu.
Þetta er sá gmnnur sem messu-
formið gmndvallast á. En aðferð-
irnar til þess að koma því á fram-
færi sem fram fer í messunni geta
verið margvíslegar.
í könnun Guðfræðistofnunar
var spurt um hvaða breytingar
fólk vildi helst sjá á messuform-
inu. Það var athyglisvert að flestir
vildu fá fijálslegri, léttari og líf-
legri guðsþjónustur, næst var tal-
að um meira efni fyrir böm og
unglinga, síðan að söfnuðurinn
yrði betur virkjaður í guðsþjón-
ustum, efnisfjöllun yrði meira um
dagleg vandamál og tónlist í kirkj-
unni verði breytt.
í æsku minni á Akranesi var
ég vanur að sækja kirkju með for-
eldram mínum. Einkum var það
vegna þess að móðir mín söng í
kirkjukómum. Mér fannst mess-
umar yfirleitt vera langdregnar
og leiðinlegar. Ef sóknarprestur-
inn hefði ekki alltaf sagt eina
dæmisögu í predikun sinni hefði
ég án efa komið mér undan því
að fara í messu. Eftir þessari sögu
beið ég alltaf.
Ég sótti oft samkomur trúfé-
laga sem haldnar vom í kirkjunni.
Það var ekki vegna trúaráhuga
sem ég fór á þessar samkomur.
„Fólk sækir í griösþjón-
ustu af margvíslegu til-
efni en allir hafa það
sammerkt að þeir vilja
þar iðka trú sína í sam-
vistum við annað fólk.
Kirkjan og trúin er
mikilvæg kjölfesta í
þjóðfélaginu. Því er
mikilvægt að starf
kirkjunnar sé eflt sem
mest.“
Tónlistin sem flutt var á þessum
samkomum var afar lífleg og
skemmtileg og ólík tónlistinni í
hinum hefðbundnu messum þjóð-
kirkjunnar. Hið talaða orð hefur
án efa haft áhrif á bamssálina en
það var fyrst og fremst tónlistin
og söngurinn sem ég sóttist eftir.
Fólk sækir guðsþjónustu af
margvíslegu tilefni en allir hafa
það sammerkt að þeir vilja þar
iðka trú sína í samvistum við ann-
að fólk. Kirkjan og trúin er mikil-
væg kjölfesta í þjóðfélaginu. Því
er mikilvægt að starf kirkjunnar
sé eflt sem mest.
Til þess að laða fólk í vaxandi
mæli að starfí kirkjunnar þarf
kirkjan að alaga framsetningu
boðskapar síns svo hann nái til
stærri hóps fólks. Boðskapur kirkj-
unnar breytist ekki þótt hann sé
settur fram á misjafnan hátt. Ytri
umbúnað má laga að breytilegu
áhugasviði fólks til þess að laða
fleiri til kirkju en reglulega koma
þangað. Sumir kirkjugestir vilja
hafa hefðbundnar messur með
hefðbundinni tónlist. Aðrir vilja
hafa messur með léttara yfir-
bragði og hlýða t.d. á léttari tón-
list. Mikil rækt hefur verið lögð
við tónlistarflutning í Bústaða-
kirkju og er t.d. reglulega fluttur
einsöngur eða hafður hljóðfæra-
leikur í messum. Á þetta án efa
sinn þátt í góðri aðsókn að kirkj-
unni.
Sinfóníuhljómsveit íslands tók
þann hátt upp með góðum árangri
að hafa tónleikaraðir þar sem tón-
listarefnið er flokkað niður í nokk-
ur áhugasvið. Því skyldu messur
TIME MANAGER
Á ÍSLENSKU
TÍMASTJÓRNUN,
MARKMIÐASETNING,
FORGANGSVERKEFNI,
MANNLEG SAMSKIPTI
OG AUKNAR HUGMYNDIR.
Stjórnunarft
2.
Haukui
TMI
Upplýsingar í síma 621066
Haukur Haraldsson
▲
Stjórnunarfélag
íslands
ekki á sama hátt geta tekið mið
af mismunandi áhugasviði fólks,
t.d. á sviði tónlistar. I Bústaða-
kirkju verður gerð sú tilraun í
vetur að í einni messu í hveijum
mánuði verður flutt léttari tónlist.
Þess má einnig geta að sunnudag-
inn 18. október verður messa í
Bústaðakirkju þar sem fæmstu
jazzleikarar landsins munu annast
um tónlistarflutninginn. Hér er
verið að fara inn á nýjar brautir
með það fyrir augum að laða fleira
fólk til þess að sækja guðsþjón-
ustur.
Starf kirkjunnar er mikilvægt.
Guðsþjónustan er sá hluti kirkju-
starfsins sem er sýnilegastur fyrir
allan almenning. Én hún er aðeins
sá hluti fjallsins sem stendur upp
úr. Annar hluti starfsins sem er
miklu umfangsmeiri er ekki eins
sýnilegur. En með því að fá fleiri
til þátttöku í guðsþjónustunni
verða fleiri áhugasamir um al-
mennt starf kirkjunnar.
Þráinn Þorvaldsson
Kirkjuvikan sem haldin er þessa
viku er tilvalið tækifæri fyrir alla
að kynna sér betur þá umfangs-
miklu starfsemi sem fer fram inn-
an veggja kirkjunnar. Ég hvet því
sem flesta til að taka þátt í dag-
skrá kirkjuvikunnar þessa viku
sem og aðrar vikur ársins.
Höfundur er formaður
sóknarnefndar Bústaðakirkju.
í dag í kirkjuviku
Árbæjarkirkja: Kirkjan er opin
frá 9-14. Heitt á könnunni. Gest-
ir velkomnir. Fermingarfræðsla
kl. 8-9.30 (opið almenningi).
Böm úr Árbæjarskóla koma í
heimsókn kl. 10.00.
Áskirkja: Kirkjan er opin alla
daga frá 15.00. Heitt á könn-
unni. Gestum boðið að skoða sýn-
ingu á skrúða og kirkjumunum í
eigu Áskirkju.
Bústaðakirkja: Kirkjan er opin
allan daginn. Kl. 12.15-12.45
orgelstund í kirkjunni. Kl. 18.15
kyrrðarstund með fyrirbænum.
Fella- og Hólakirkja: Kl. 10-12
opið hús fyrir 6-8 ára börn. Kl.
13.30-15.30 opið hús fyrir 9-12
ára böm úr Hólabrekkuskóla.
Grensáskirkja: Kl. 14.00 heim-
sókn leikskólabama. Kl. 17.00
orgelstund og orðið helga. Kam-
mertónlist. Strengjasveit frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík. Kl.
17.00 TTT-fundur (tíu til tólf ára
börn).
Hallgrímskirkja: Kirkjan er op-
in alla daga.
Kársnesprestakall: Kópavogs-
kirlq'a er opin frá 11.30-12.30
og frá 16.00-18.00.
Langholtskirkja: Opið hús í
kirlq'unni frá 10-18. Starfsmaður
leiðbeinir gestum um húsið og
kynnir það starf sem fer fram í
kirkjunni. Kl. 17-18 er boðið upp
á fræðslu í tengslum við aftan-
söng sem hefst kl. 18.00.
Laugameskirkja: Kirkjan er
opin allan daginn og gestum er
velkomið að fylgjast með starfinu.
Kl. 10.00 feðra- og mæðramorg-
unn. Óformleg samvera í safnað-
arheimili Laugarneskirkju fyrir
foreldra og börn. KL. 12.00 Dúfa
Einarsdóttir syngur einsöng í há-
deginu. Kl. 18.00 bænastund í
kirkjunni. Kl. 20.30 safnaðar- og
kynningarkvöld í safnaðarheimili
Laugameskirkju. Sóknarprestur
kynnir starfið og svarar fyrir-
spumum. Tónlist, söngur og stutt
helgistund. Kl. 20.30 fundur eldri
deildar ÆSKR í kjallara Laugar-
neskirkju.
Neskirkja: Kl. 10.00-12.00
kynning á kirkjuskjóli. Börn á
aldrinum 7-12 ára ásamt að-
standendum velkomin. Boðið
verður upp á hressingu. Kl. 20.30
fundur með aðstandendum ferm-
ingarbama. Einar Gylfi Jónsson
flytur erindi: Hlutverk uppaland-
ans og samskipti kynslóðanna.
Kaffíveitingar.
Kyrrðarstundir verða í Kringl-
unni á þriðju hæð kl. 12.00 og
17.30. Á kyrrðarstund kl. 12.00
mun Tómas Tómasson veitinga-
maður svara spurningunni „Hvers
vegna fer ég í kirkju?“ Kl. 17.00
syngur barnakór Grensáskirkju í
Kringlunni á 2. hæð.
Að auki er bent á Dagbók
Morgunblaðsins þar sem fastir lið-
ir kirkjustarfsins eru kynntir.
Námstefna um sljórnun um-
hverfismála í fyrirtækjum
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla, Félags íslenskra iðnrek-
enda, Gæðastjórnunarfélag ís-
lands og Staðlaráð munu þann
21. október standa saman að
námstefnu. Námstefnan er
einkum ætluð stjórnendum fyr-
irtækja bæði iðnfyrirtælqa og
þjónustufyrirtækja.
Á námstefnunni verður fjallað
um þann ávinning sem íslensk
fyrirtæki geta haft af því að taka
skipulega á umhverfismálum.
Kynntur verður nýr stjómunar-
staðall um umhverfismál og um-
hverfisúttektarkerfi sem nokkur
íslensk fyrirtæki hafa tekið upp.
Stjórnendur úr íslenskum fyrir-
tækjum munu fjalla um reynslu
sína af því að vinna skipulega að
stjórnun umhverfismála.
Fyrirlesarar verða Sveinn
Hannesson, framkvæmdastjóri
FII, Gunnar H. Guðmundsson,
Ráðgarði hf., Guðjón Jónsson, Iðn-
tæknistofnun og frá Eimskipafé-
lagi íslands hf., Thomas W. Möll-
er, frá Plastos hf. þau Sigurður
Oddsson og Jenný Jensdóttir og
frá Vífilfelli hf. þeir Páll Kr. Páls-
son og Pétur Helgason. Skráning
þátttakenda og allar frekari upp-
lýsingar fást hjá Endurmenntun-
arstofnun Háskólans.
(Fréttatilkynning)