Morgunblaðið - 16.10.1992, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
29
AKUREYRI
ir við bæj ar stj órann
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hákarlinn hengdur upp
Það er ekki víst að öllum hafi líkað lyktin sem upp gaus þegar félag-
arnir Ásgeir, Agnar og Steinþór, starfsmenn Utgerðarfélags Akur-
eyringa, voru að taka kæstan hákarl upp úr fiskikerum og hengja upp
í þar til gerðan hákarlahjall í eigu félagsins. En þeir létu sem ekkert
væri og klæddu sig eins og tilefni var til.
Viðræður að undanfömu um starfslok hans
VIÐRÆÐUR hafa að undanförnu staðið yfir milli meirihlutans í
bæjarstjórn Ólafsfjarðar og Bjarna Kr. Grímssonar bæjarstjóra um
starfslok bæjarstjórans. Ágreiningur milli hluta bæjarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórn Ólafsfjarðar og bæjarstjórans leiddi á
miðju síðasta ári til þess að þrír fulltrúanna tóku sér Ieyfi frá störfum
í bæjarstjórn. Þeir tóku þar aftur sæti í janúar síðastliðnum en full-
komnar sættir hafa ekki náðst þannig að viðræður hafa farið fram
að undanförnu milli meirihlutamanna og bæjarstjóra um starfslok
hans.
Óskar Þór Sigurbjörnsson, forseti
bæjarstjórnar Ólafsfjarðar, sagði að
ekki ríkti fullkomið traust milli
meirihlutans og bæjarstjórans, sætt-
ir hefðu ekki að fullu náðst milli
þeirra aðila er deildu á sínum tíma
og útséð virtist vera um að menn
gætu unnið saman af heilindum. Því
hafi að undanförnu verið rætt af
hálfu meirihlutans í bæjarstjórn
Ólafsfjarðar og Bjarna Kr. Gríms-
sonar bæjarstjóra um starfslok bæj-
arstjórns, en niðurstaða væri ekki
fengin í málinu.
„Menn eru að þreifa fyrir sér um
ýmsar leiðir, en við höfum ekki enn
náð endapunkti í þeim viðræðum
sem við höfum átt í. Það er unnið
að því að leiða það til lykta og við
munum þaulkanna hvort ekki finnist
leið sem báðir aðilar sætta sig við,“
sagði Óskar Þór.
Þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Sigurður Björnsson, Krist-
ín Trampe og Þorsteinn Ásgeirsson,
tóku sér leyfi frá störfum í bæjar-
stjórn Ólafsfjarðar á miðju síðasta
ári eftir að tillaga um að víkja Bjarna
frá störfum var felld með atkvæðum
minnihlutans og Óskars Þórs. Vara-
fulltrúar tóku sæti þeirra í bæjar-
stjórn, en aðalfulltrúarnir þrír komu
aftur til starfa um áramót.
Björn Valur Gíslason, fulltrúi
minnihluta í bæjarstjóm Ólafsfjarð-
ar, ræddi þetta mál á fundi bæjar-
stjórnar í vikunni og óskaði minni-
hlutinn eftir að kynnt yrði tilboð það
sem meirihlutinn hefði gert bæjar-
stjóra um starfslokasamning á
næsta fundi bæjarráðs.
Kvikmyndaklúbburinn
Homo Fab-
ersýnd
um helgina
ÞRIÐJA starfsár Kvikmynda-
klúbbs Akureyrar er að hefjast
utn þessar mundir og verður
fyrsta myndin sýnd nú um helg-
ina í Borgarbíói.
Það er myndin Homo Faber eft-
ir Volker Schöndorff. Hún íjallar
um karlmann á miðjum aldri sem
fær vægt hjartaáfall og lendir
skömmu síðar í flugslysi. Þessir
atburðir verða til þess að hann
tekur að endurmeta lífsviðhorf sín.
Myndin verður sýnd í Borgarbíói
laugardag og sunnudag kl. 18 og
mánudaginn 19. október kl. 19.
í Kvikmyndaklúbbi Akureyrar
eru ríflega 60 félagar, en klúbbur-
inn leitast við að útvega og sýna
myndir hvaðanæva úr heiminum.
Á síðasta vetri sýndi klúbburinn
t.d. níu myndir frá sjö löndum.
Næsta mynd sem sýnd verður á
vegum Kvikmyndaklúbbs Akur-
eyrar er Rapsódía í ágúst eftir
Kurusawa og þá mun klúbburinn
væntanlega sýna ítölsku myndina
Mediterrano sem hreppti Oskars-
verðlaunin við síðustu afhendingu.
*<(r>
*?>
Fékk ekkert á fyrsta degi
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Eflaust hafa margir hinna áköfustu meðal veiði-
manna gengið til ijúpna í gær, en þá hófst ijúpna-
veiðitímabilið. Veiðimaðurinn sem sést á myndinni
hélt upp í Hlíðaríjall en kom tómhentur heim, eins
og sjálfsagt einhveijir aðrir, a.m.k. þeir sem voru á
sömu slóðum, en samkvæmt upplýsingum blaðsins
var ekki mikið að hafa í fjallinu.
Kristján
Guðmundur
Dalvíkurbær og Kaupfélag Eyfirðinga
Möguleiki á fullvimislu sjáv-
arafurða kannaður frekar
KAUPFÉLAG Eyfirðinga og Dalvíkurbær hafa staðið að sameiginlegri
athugun á möguleikum frekari fullvinnslu sjávarafurða í frystihúsi
KEA á Dalvík að undanförnu og liggja nú fyrir niðurstöður úr frumat-
hugunum sem Jón Þór Gunnarsson iðnaðarverkfræðingur hefur gert.
Ákveðið hefur verið að halda áfram þessari könnun. í frystihúsi KEA
á Dalvík hefur fiski um tæplega tveggja ára skeið verið pakkað í neyt-
endapakkningar og er stefnt að fullri nýtingu tækja á næsta ári.
Námskeið
haldið í
heimspeki
NÁMSKEIÐ í heimspeki á veg-
um Endurmenntunarnefndar
Háskólans á Akureyri og Félags
áhugamanna um heimspeki
hefst 27. október næstkomandi.
Innritun fer fram á skrifstofu
Háskólans á Akureyri og er þeg-
ar hafin en henni lýkur miðviku-
daginn 21. október.
Kennarar á námskeiðinu verða
dr. Guðmundur Heiðar Frímanns-
son og dr. Kristján Kristjánsson
heimspekingar.
Farið verður í saumana á tveim-
ur höfuðritum siðfræðinnar að
fomu og nýju; Frumspeki siðlegrar
breytni eftir Immanuel Kant og
Frelsið eftir John Stuart Mill. Ritin
verða lesin og skýrð og sett í sögu-
legt samhengi með sérstakri
áherslu á áhrif þeirra á nútímahug-
myndir manna um siðfræði og
stjórnmál.
Námskeiðið tekur sex vjkur og
verður kennt einu sinni í viku, á
þriðjudögum frá kl. 17.30 til 19.
Námskeiðsgjald er 6.000 krónur,
en helmingi lægra fyrir þá sem eru
félagar í Félagi áhugamanna um
heimspeki eða gerast félagar í því.
Engar kröfur eru gerðar um
fyrirframkunnáttu.
(Fréttatilkynning)
Jón Þór Gunnarsson gerði grein
fyrir athugunum sínum á fundi í vik-
unni og eftir hann var það niður-
staða KEA og Dalvíkurbæjar að
ástæða væri til að kanna frekar
möguleika á framleiðslu og markaðs-
setningu fullunninna sjávarafurða
áður en tekin yrði ákvörðun um hvort
ráðist yrði í frekari fjárfestingar.
„Það er stefnan að vinna hratt að
þessu máli. Ég reikna með að á
næstu mánuðum liggi fyrir ákvörðun
um hvort farið verði út í frekari full-
vinnslu á sjávarafurðum hjá frysti-
húsinu,“ sagði Jón Þór.
Byijað var að vinna að málinu í
ágúst síðastliðnum, en í frystihúsi
KEA á Dalvík hefur um tæplega
tveggja ára skeið verið unnið að því
að pakka físki í neytendaumbúðir.
Keypt var pökkunarlína af Samheija
hf. sem áður var í Hvaleyri í Hafnar-
firði og framleiðsla hófst í janúar
árið 1991. Það ár voru framleidd um
300 tonn af físki í neytendapakkn-
ingar og í ár verður framleiðslan
helmingi meiri, eða um 600 tonn.
Gunnar Aðalbjömsson frystihússtjóri
sagði að stefnt væri að fullri nýtingu
á næsta ári, eða að framleiðslu um
800 til 1.000 tonna.
Að sögn Gunnars eru nú fram-
leiddar 11 tegundir í neytendapakkn-
ingar og eru þær að mestu seldar
til Evrópulanda. „Það virðast vera
bjartir tímar framundan, við höfum
alVeg frá verslunarmannahelgi verið
á fullu í þessari framleiðslu og fyrir-
sjáanlegt að svo verður áfram til
áramóta. Við höfum verið að gera
fleiri samninga um sölu á þessum
afurðum og það er ekki hægt að
segja annað en að þetta hafí gefíð
góða raun. Vissulega hefur þetta
ferli tekið lengri tíma en við áætluð-
um, en við stefnum að því að fullri
nýtingu verði náð á næsta ári,“ sagði
Gunnar.
Pakkning físks í neytendaumbúðir
hefur skapað 12 til 15 störf í frysti-
húsi KEA á Dalvík miðað við að
sama magn sé unnið þar árlega.
Gunnar sagði að nú vantaði konur
til starfa við snyrtingu eftir hádegi
og gæti hann bætt við sig 15 konum
á þeim tíma, en það væri alltaf vin-
sælla að vinna fyrir hádegi. Mjög
lítið væri af atvinnulausu kvenfólki
á Dalvík og því ekki fyrirsjáanlegt
að hægt væri að ráða í þessi störf.
Gildran spil-
ar á1929
Hljómsveitin Gildran leikur
helgina 16. og 17. október á
skemmtistaðnum 1929 á Akureyri.
Þar mun hljómsveitin leika mörg
af sínum þekktustu lögum, s.s.
Chicas og Steggjastuð af hljóm-
plötunni Ut.
Meirihluti bæjarstjórnar Ólafsfjarðar
Ekki hafa náðst sætt-