Morgunblaðið - 21.10.1992, Blaðsíða 18
MOltGUNIÍLAÐIÐ MIÐVÖCUDAGÍJR 21. OKTÓBER 1992
Sveinn Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Ljóst að tap verður á
rekstri dýrra frystítogara
SVEINN Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. á Skaga-
strönd, segir Ijóst að vegna aflasamdráttar verði tap á rekstri dýrra
frystitogara, og þannig sé fyrirsjáanlegt tap á rekstri hins nýja
frystitogara sem Skagstrendingur fær afhentan í desember næstkom-
andi. „Við erum satt að segja skelfingu lostnir og þess vegna tókum
við þá ákvörðun fyrir hálfum mánuði að se^ja ísfisktogarann okkar
og hætta rekstri á honum. Það verður meira úr fiskinum með því
að frysta um borð og ekki reyndist möguleiki á því að se^ja nýja
skipið nema með stórkostlegu tapi,“ sagði Sveinn.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í gær lýsti Ámi Benediktsson
því yfir á Fiskiþingi í fyrradag að
fyrirsjáanlega yrði 1,8% tap á rekstri
frystitogara á þessu ári, og á næsta
ári yrði hallinn 2,8%. Hann sagði
augljóst að þeir togarar sem héðan
í frá yrði breytt í frystitogara og
þeir togarar sem héðan í frá yrðu
keyptir nýir eða smíðaðir, yrðu með
stórfelldan hallarekstur. Sveinn Ing-
ólfsson sagðist ekki hafa kynnt sér
þessar niðurstöður Áma, en sagði
ljóst að vegna aflasamdráttar og
gengislækkunar sterlingspundsins
yrðu dýrir frystitogarar reknir með
tapi.
„Síðastliðin sjö ár höfum við verið
með 20-25 tonna meðalafla á dag
á tímabilinu maí til ágúst, en í ár
er aflinn hins vegar 12,2 tonn, og
þar að auki hefur pundið lækkað um
tíu prósent. Það er alveg ljóst að
þetta nægir til þess að dýr skip verða
Ótímabær ummæli Kristínar
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalistans, segir að
ummæli þingflokksformanns síns, Kristínar Ástgeirsdóttur, um að
hugsanlegt sé að kallaður verði inn varamaður fyrir Ingibjörgu í
utanrikismálanefnd Alþingis meðan á afgreiðslu samningsins um
Evrópskt efnahagssvæði standi, séu ótimabær. Ingibjörg segir að
sér verði heldur ekki vikið úr nefndinni tímabundið nema í samráði
við sig.
„Mér fínnst þetta ótímabær um-
mæli hjá henni og ótímabært að
svara þeim á nokkum máta,“ sagði
Ingibjörg Sólrún er ummæli Kristín-
ar voru borin undir hana. Kristín
sagði í Morgunblaðinu í gær að
augljóst væri að það gengi ekki upp
að talsmaður Kvennalistans í utan-
ríkismálanefnd túlkaði ekki vilja
meirihluta flokksins í EES-málinu.
Hugsanlegt væri að varamaður
Ingibjargar Sólrúnar tæki við sæti
hennar í nefndinni meðan á af-
greiðslu EES-samningsins stæði.
„Ég er kjörin í nefndina af Al-
þingi. Það yrði ekki hægt að taka
mig út úr nefndinni nema í samráði
við mig og að því tilskildu að ég
samþykkti þá málsmeðferð. Mér
finnst alveg ótímabært að segja
nokkuð um það á þessu stigi," sagði
Ingibjörg Sólrún. „Það verður ekki
tímabært fyrr en eftir landsfund."
Ingibjörg Sólrún var spurð hvort
yfirlýsing hennar um stuðning við
EES-samninginn væri ekki að
skapa harðari deilur en áður hefðu
komið upp innan Kvennálistans.
„Eigum við ekki að segja að þetta
sé ákveðinn taugatitringur, sem
rjátlast af konum þegar fram líða
stundir. Ég hef ekki trú á öðru,“
sagði Ingibjörg Sólrún.
Hætta sunnudags-
verslun í Krínglunni
Kringlukaupmenn eru hættir
að hafa opið á sunnudögum. Þeir
segjast ekki hafa náð nægri sam-
stöðu um verslun þessa daga og
hún hafi sætt harðri gagnrýni frá
launþegasamtökum og víðar að.
Borgarkringlunni hefur líka verið
Forseti
íslands
til Vaasa
FORSETI íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, fer til Vaasa
í Finnlandi í dag, 21. október.
Dagana 22.-24. október
verður sérstök íslandskynning
í Vaasa, sem haldin er í tilefni
þess að Borgarleikhúsið þar
verður opnað á ný eftir gagn-
gerar endurbætur. Verður leik-
húsið vígt með sýningu tveggja
íslenskra leikrita, Banda-
mannasögu í leikgerð Sveins
Einarssonar og Degi vonar eft-
ir Birgi Sigurðsson. Forseti ís-
lands opnar leikhúsið með há-
tíðarræðu.
í fylgd með forseta íslands
verður Sigríður H. Jónsdóttir,
deildarsérfræðingur á skrif-
stofu forseta.
♦ ♦ ♦
rekin með tapi. Ég er sannfærður
um að þetta tvennt veldur því að
enginn hagnaður verður á rekstri
frystitogaranna á þessu sumri, og
því miður á ég ekki von á að þetta
ástand batni á næstunni. Ég veit
ekki betur en allir togararnir beijist
við gífurlegan aflasamdrátt," sagði
hann.
Nýr 66 metra langur og 14 metra
breiður fiystitogari er í smíðum fyrir
Skagstrending í Bergen og verður
hann afhentur 18. desember. Sveinn
sagði fyrirsjáanlegt að tap yrði á
rekstri hans vegna aflasamdráttar-
ins, en hann vonaðist til að að það
jafnaðist út með útgerðinni á hinum
frystitogara Skagstrendings, Örvari,
sem væri orðinn nokkuð léttur á fóð-
rum.
„í útreikningum Þjóðhagsstofn-
unar sem teknir hafa verið ár aftur
í tímann hefur meðalfrystitogarinn
verið með 430 milljónir í aflaverð-
mæti. Mánuðimir frá maí til ágúst
hafa haldið uppi meðalafla ársins,
en í ár er um að ræða 40% aflamink-
un á þessum bestu mánuðum ársins.
Og það er enginn sem getur sagt
að þetta verði ekki svona slæmt hina
mánuðina, en við óttumst að fiskur-
inn sé ekki fyrir hendi á þeim slóðum
sem við þekkjum best. Góð útkoma
hjá bestu skipunum byggist því ekki
bara á því að frysta um borð heldur
byggist hún á því að vera með mik-
inn afla. Menn misreikna þetta því
mjög þegar þeir halda að það sé
bara nóg að breyta í frystingu, því
skip sem fiskar illa skilar ekki hagn-
aði þrátt fyrir það,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Þorkell
Strætisvagn á leið yfír hraðahrindrunina á Nesveginum.
Hraðahrindrun á Nesvegi
Áætlun SVR breytt
standi hindrunin
STJÓRN Strætisvagna Reykjavíkur hefur sent bæjarstjóm Seltjam-
araess ályktun þar sem farið er fram á að hraðahindrun á Nesvegi
verði fjarlægð, ella verði SVR að endurskoða þjónustu sina við
Seltirninga.
Sveinn Andri Sveinsson stjóm-
arformaður SVR sagði að hér væri
um að ræða hraðahindrun gerða
úr stálkoppum, sem standa um 12
sentimetra upp úr götunni. Miklar
skemmdir hefðu orðið á vögnum
SVR eftir að þessi hindrun var
sett upp, einkum í fjaðrabúnaði
vagnanna. Tjónið næmi nokkur
hundruð þúsundum króna.
Sveinn sagði að stjóm SVR væri
nauðugur einn kostur að breyta
áætlun leiðar 3, sem ekur um Nes-
veg vestur á Seltjamames, yrði
hraðahindrunin ekki fjarlægð.
Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
á Seltjamamesi sagði að það yrði
tekið til athugunar ef í ljós kæmi
að strætisvagnamir væm ekki
byggðir til að fara yfir þessar ból-
ur. „Bréfið var að berast mér, svo
ég get ekki strax sagt hvort við
fjarlægjum hindrunina. Okkur sem
búum á Seltjamamesi finnst hindr-
unin hafa reynst framúrskarandi
vel og það er gremjulegt að ef eitt-
hvað virkar þá er ekki hægt að
nota það því einhveijum finnst það
ógna sér og sínum. Ég held að
þetta sé sérviska að mestu leyti.
Ég ek þama yfír mörgum sinnum
á hveijum degi og ég hægi vissu-
lega á bflnum, til þess er hraða-
hindrunin. Ég reikna með að við
spyijum stjóm SVR, þó ekki væri
nema til að svala forvitni okkar,
um hvaða tjón það er sem kemur
fram á vögnunum sem ekki kemur
fram á öðmm hraðahindrunum.
Við ætium ekki í neitt stríð út af
þessu, en sá á að vægja sem vitið
hefur meira, og við fömm eftir
því,“ sagði Sigurgeir.
Stofnfundur landssamtaka atvinnulausra í dag
Allir án atvinnu öðlist bótarétt
„VIÐ viljum að allt vinnufært fólk án atvinnu hafí rétt á bótum sem
duga fyrir framfærslu," segir Reynir Hugason verkfræðingur sem
unnið hefur að undirbúningi Landssamtaka atvinnulausra. Stofnfund-
ur samtakanna verður haldinn klukkan 18 í dag, miðvikudag, í Borgar-
túni 6. Reynir segir að atvinnulaust fólk hafí engan málsvara haft
og réttur þess verið fótum troðinn. Þessu verði að breyta og samtök-
in muni vinna að því með ýmsum hætti. Þau vifji eiga hlut að endur-
skoðun laga um atvinnuleysistryggingar sem nú standi yfír.
„Hér er sem betur fer engin hefð samtaka atvinnulausra em níu atriði
lokað aftur á sunnudögum, þótt
undantekning verði gerð um
næstu helgi.
Kringlan var opin fimm sunnu-
daga og átti að láta reyna á fyrir-
komulagið til áramóta. En milli 20
og 25 kaupmenn höfðu lokað og seg-
ir Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri
Hagkaups að andstaðan hafi verið
meiri en menn áttu von á, bæði inn-
an húss og að utan. Jafnframt hafi
minna verið verslað en svo að sunnu-
dagamjr hafi borgað sig. Gert er ráð
fyrir að verslanir í Kringlunni hafi
aftur opið á sunnúdögum þegar dreg-
ur að jólum.
Borgarráð
Stækkun á
leikskóla
BORGARRAÐ hefur samþykkt,
að tillögu framkvæmdasjóra
Dagvistar baraa, að kaupa fast-
eignina Njálsgötu 11, sem er
ákjósanleg tíl stækkunar á leik-
skólanum á Njálsgötu 9. Kaup-
verð hússins er 9,2 miiyónir.
Borgarráð samþykkti kaupin
með 4 atkvæðum gegn einu. Ólína
Þorvarðardóttir, bókaði mótmæli,
þar sem fagleg umfjöllun um húsið
hafi ekki farið fram í stjóm Dag-
vistar bama.
fyrir atvinnuleysi," segir Reynir. „En
þeir sem ekki hafa vinnu reka sig
líka á marga veggi, kerfið gerir ekki
ráð fyrir nema sumum þeirra og
skilningur hinna sem eru í vinnu er
oft fjarska takmarkaður. Atvinnu-
lausum fjölgar sífellt og við sem
höfum verið að undirbúa stofnun
þessara samtaka síðustu vikur vitum
að þeir eru mun fleiri en fram kemur
á opinberum skrám.
Hér eru stórir hópar sem engar
bætur geta fengið þótt þeir missi
vinnu,“ segir Reynir. „Ég var að
tala við mann sem hefur rekið eigið
fyrirtæki í þijátíu ár en neyddist til
að hætta. I ofanálag var hann að
missa konuna sína og situr nú og
étur upp eignir þeirra. Hann getur
engar bætur fengið frekar en aðrir
atvinnurekendur, þótt þeir greiði í
atvinnuleysistryggingasjóð, eða
skólafólk til dæmis. Annað dæmi er
um mann sem missti vinnu þegar
hann var milli stéttarfélaga þar sem
hann hafði nýlega skipt um starf.
Hann fær engar bætur af því stéttar-
félagsaðild er skilyrði."
Reynir segist telja að hérlendis
hljóti að vera hægt að fara svipaðar
leiðir og annars staðar á Norðuriönd-
um. Láta fólk ekki mæta vikulega
til að skrá sig án vinnu, heldur einu
sinni og hætta bótagreiðslum um
leið og skattskýrslur sýni að viðkom-
andi hafi fengið starf. Þá þurfi að
veita bótaréttinn mun breiðari hópi
en nú tíðkist og endurskoða íjárhæð
bótanna. Hér miðist bætur við laun
fiskverkafólks, 43.000 krónur á mán-
uði, en Svíar greiði 90% launa í at-
vinnuleysisbætur og Danir og Norð-
menn 60%.
í drögum að stefnumiðum lands-
nefnd:
•Að reynt verði að bæta atvinnu-
skilyrði í landinu til að auðvelda fójki
að fá vinnu við sitt hæfi. • Að skrán-
ing atvinnulausra verði bætt. •Að
lögum um atvinnuleysisbætur verði
breytt þannig að allir vinnufærir eigi
rétt á þeim.
•Að tekin verði upp samræmd
tölvuskráning atvinnulausra á land-
inu og vinnutilboða. ®Að stuðla að
endurmenntun og þjálfun atvinnu-
lausra tii nýrra starfa. ®Að efna til
starfsemi til að styrkja andlegt og
líkamlegt þrek félagsmanna. ®Að
vinna að meiri og vandaðri umfjöllun
um atvinnuleysi. ®Að ýta undir
bætta framkomu og jákvæðari við-
horf í garð atvinnulausra. ®Að
standa fyrir söfnun fyrir félagsmenn
í neyð.
Ólíkt ýmsum sem ætla að setja á
fót samtök vonast Reynir ekki eftir
langlífri starfsemi, heldur þvert á
móti. „Vonandi mætum við skilningi
og getum lagt samtök atvinnulausra
niður sem fyrst.“
Þorsteinn Sigurðsson
trésmíðameistari látinn
Selfossi.
ÞORSTEINN Sigurðsson tré-
smíðameistari á Selfossi er lát-
inn. Hann lést 19. október síðast-
liðinn á heimili sínu að Birkivöll-
um 18 á Selfossi, 79 ára að aldri.
Hann var fæddur í Víðinesi á
Kjalarnesi 21. apríl 1913, sonur
hjónanna Sigurðar Einarssonar
frá Hoitahólum og Sigríðar Jóns-
dóttur frá Kalastöðum.
Þorsteinn starfaði sem trésmíða-
meistari á Selfossi, fyrst hjá Kaup-
félagi Ámesinga og síðar í eigin
fyrirtæki, Trésmiðju Þorsteins og
Áma.
Hann sat í sveitarstjóm Selfoss-
hrepps 1954-1966 og gegndi á
þeim tíma íjölmörgum trúnaðar-
störfum fyrir sveitarfélagið, átti
meðal annars sæti í byggingamefnd
hreppsins frá stofnun hans 1947 til
ársins 1986. Auk þessa var hann
um árabil formaður Sjálfstæðisfé-
lagsins Óðins á Selfossi og átti
meðal annars sæti í kjördæmisráði
flokksins.
Þorsteinn Sigurðsson
Þorsteinn var kvæntur Guðrúnu
Valdimarsdóttur frá Teigi í Vopna-
fírði og lifír hún mann sinn. Þau
eignuðust 5 böm sem öll eru á lífi.
/ Sig. Jóns.