Morgunblaðið - 21.10.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
21
Sjávarútvegsráðherrar EB
Erfiðlega gengur
að semja um
fækkun fiskiskipa
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
V
Námskeió i október yj
Prjóntækni 22. okt. - 19. nóv. V*
Kennari: Sunneva Hafsteinsdóttir.
Bútasaumur 27. ókt. - 1. des. "j"
Kennari: Bára Guðmundsdóttir.
Knipl 28. okt. - 16. des.
Kennari: Anna Sigurðardóttir.
Tauþrykk 28. okt. - 2. des.
Kennari: Guórún Marinósdóttir.
Skráning ferfram á skrifstofu
skólans í síma 17800.
Skrifstofan er opin mánud. - fimmtud. frá kl. 14-16.
Vinsamlegast hringið til að fá frekari upplýsingar.
A
)
Frá GEISSLER
Dragtir margar gerðir
m.a. með 80 cm síðum pilsum
(nýja lengdin).
Ullarkápur
síðar og stuttar.
GARDEUR-dömufatnaður
gaeðavara — tískuvara
Qhrntv
fataverzlun v/Nesveg, Seltjamamesi.
Opið dagiega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Sjávarútvegsráðherrar Evrópubandalagsins (EB) reyndu árang-
urslaust að ná samkomulagi um niðurskurð á fiskveiðiflota banda-
lagsins á fundi í Lúxemborg á mánudag. Samstaða varð um að
vísa málinu til embættismannanefndar, sem fjallaði um málið i gær
en án árangurs. Mikið ber á milli framkvæmdastjórnarinnar og
aðildarríkjanna í þessum efnum, framkvæmdastjórnin hefur lagt
til að flotinn verði að jafnaði skorinn niður um 20-30%. Ljóst er
að ráðherrarnir verða að taka afstöðu til tillagnanna á fundi í lok
nóvember. Hugmyndum framkvæmdastjórnarinnar um aðild henn-
ar að Alþjóða hvalveiðiráðinu var vísað til nánari skoðunar hjá
nefnd fastafulltrúa aðildarríkjanna í Brussel.
Samkvæmt heimildum í Brussel á eftirliti með veiðum og vinnslu
var lítill áhugi á hugmyndum fram-
kvæmdastjórnarinnar um fulla að-
ild hennar að Alþjóða hvalveiðiráð-
inu. Framkvæmdastjórnin hefur
lagt til að hún tæki þar sæti með
þeim sjö aðildarríkjum EB, sem eru
aðilar að ráðinu. Til þess að svo
geti orðið verður að breyta stofn-
skrá ráðsins. Heimildarmenn
Morgunblaðsins segja að Danir
hafi bent á að allar líkur væru á
því að hvalveiðiráðið leystist upp
ef endurskoða ætti stofnskrána,
en það verður ekki gert án sam-
hljóða samþykkis allra aðildarríkja
ráðsins.
Þrátt fyrir að aðildarríkin fallist
á að fiskveiðifloti bandalagsins sé
of stór er ekkert þeirra tilbúið til
að fallast á nauðsynlegan niður-
skurð á eigin flota. I þeim tillögum
sem liggja fyrir er gengið út frá
vélarstærð flotans í kílóvöttum.
Þannig er t.d. lagt til að Spánverj-
ar minnki flota sinn úr 1.910.145
kw miðað við 1. janúar á þessu ári
í 1.679.609 kw fyrir 31. desember
1996 eða um 12%. írum er upp á
lagt að minnka samanlagt vélarafl
írska flotans um 26,8% eða úr
201.905 kw 1. janúar 1992 í
147.700 kw 31. desember 1996.
Þessu hafa írar mótmælt harðlega
og vísað til að þeim hafi ekki tek-
ist að fullnýta kvóta sinn undanfar-
in ár. írska stjórnin ákvað nýlega
að kæra ákvarðanir EB um fækk-
un fiskiskipa fyrir yflrstandandi ár.
Á fundi sjávarútvegsráðherr-
anna var jafnframt fjallað um til-
lögur framkvæmdastjómarinnar
um endurskoðaða sjávarútvegs-
stefnu og því máli vísað til fasta-
fulltrúa aðildarríkjanna í Brussel.
Sömuleiðis fjölluðu ráðherramir
um tillögur að nýju fyrirkomulagi
innan bandalagsins, þeirri tillögu
var og vísað til frekari umfjöllunar
hjá fastafulltrúunum. Ráðherrarn-
ir samþykktu nokkrar breytingar
á reglum um fyrirkomulag mark-
aða og aðgerðir til að draga úr
höfrungadrápi við túnfisksveiðar
auk þess sem þeir samþykktu nýja
tilskipun um réttindi barnshafandi
kvenna innan EB.
Reuter
Tjaldbúðir fyrir fórnarlömb landskjálftans
Stjóm Egyptalands skýrði frá því í gær að landskjálftinn, sem reið yfir landið í síðustu viku, hefði kostað
552 menn lífíð, auk þess sem 9.929 hefðu særst, 5.000 hús eyðilagst og 3.000 fjölskyldur misst heimili
sín. Stjórnin hefur lofað að sjá þeim, sem misstu heimili sín, fyrir nýju húsnæði og látið reisa tjaldbúðir
handa þeim til bráðabirgða. Myndin er af tjaldbúðum í egypska héraðinu Qalyubiya.
Forystugreinar bresku dagblaðanna
Tiltrú ríldsstj ómar Johns
Majors í alvarlegri hættu
London. Reuter.
Leiðarahöfundar bresku dagblaðanna helltu sér í gær yfir John
Major, forsætisráðherra Bretlands, og ríkisstjórn hans vegna kola-
námumálsins. Er Major bæði skammaður fyrir að samþykkja lokun
námanna í síðustu viku og fyrir að fallast á afturköllun þeirrar
ákvörðunar að hluta í fyrradag.
ERLENT
Dagblaðið Financial Times birtir
forystugrein undir fyrirsögninni:
„Ríkisstjóm á flótta“. Þar segir
m.a. að hættan á því að stjómin
missi alla tiltrú manna sé alvarleg.
The Times segir að mánudagurinn
hafi verið dagurinn þegar leiðtog-
arnir þurftu að „éta allt ofan í sig“.
The Daily Mail styður við bakið
á Michael Heseltine iðnaðarráð-
herra sem ber höfuðábyrgð á kola-
námumálinu og segir að íhalds-
flokkurinn hafi ekki efni á munaði
eins og blóðhefndum að svo stöddu.
Blaðið bætir hins vegar við: „Sjald-
an í nútímastjómmálum hefur birst
jafn skelfilegt vanmat á viðhorfum
almennings.“
The Daily Telegraph segir að
afturköllunin frá því á mánudag
hafí verið eina færa leið stjómar-
innar. „Ríkisstjómin hefur valið
eina skynsamlega kostinn and-
spænis kolaáfallinu. Með því að
varpa virðingu og samkvæmni fyr-
ir róða hopaði hún nógu langt til
að hindra ósigur í neðri málstof-
unni á miðvikudag. í einkasam-
tölum viðurkenna ráðherrar að
þeir hafí verið virkir eða óvirkir
þátttakendur í skopleik. Hvað sem
líður hagfræðilegum rökum fyrir
lokun kolanámanna þá var óðs
manns æði að grípa til þessa með
svo harðneskjulegum hætti í miðri
efnahagslægð.“ Blaðið segir að
staða Majors sé nú mjög erfið,
hann hafi gert mörg mistök að
undanfömu og þau alvarlegustu
hafi verið að leggja allt undir varð-
andi samþykkt Maastricht-sam-
komulagsins á breska þinginu.
Samkomulagið sé ekki slíkt fagn-
aðarerindi að það sé skynsamlegt
að binda eigin örlög í stjórnmálum
við það. Á hinn bóginn komi það
sér vel fyrir Major að tveir hugsan-
legir arftakar hans innan íhalds-
flokksins hafi að undanfömu kom-
ið sjálfum sér í vandræði, Heseltine
með kolanámumálinu og Kenneth
Clarke innanríkisráðherra með því
að viðurkenna kæraleysislega að
hann hafi ekki lagt það á sig að
lesa Maastricht-samkomulagið.
Haust
vörur
Frá DIVINA
Munstraðar blússur '
Toppar
Pils
Jersey fatnaður