Morgunblaðið - 21.10.1992, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
FOLK
■ MARSEILLE leikur gegn Din-
amo Búkarest í Rúmeníu og sætt-
ir Bemard Tapie, eigandi félags-
ins, sig við ekkert annað en að
MarseiIIe komist í 8-liða úrslit
Evrópukeppni meistaraliða.
■ EFTIR að Marseille tapaði sín-
um öðrum deildarleik í röð í Frakk-
landi um sl. helgi - i fyrsta skipti
í meira en fjögur ár sem það ger-
ist, voru leikmenn félagsins læstir
inn í búningsklefa í níutíu mín. eft-
ir leikinn. Þjálfarinn, Fernandez,
ilélt þá tölu yfir leikmönnunum.
■ MANUEL Amaros, bakvörður
og fyrirliði franska landsliðsins,
hefur misst sæti sitt hjá Marseille,
þar sem hann hefur ekki leikið vel
að undanfömu.
■ RICHARD Gough, fyrirliði
Glasgow Rangers og skoska
landsliðsins, fær það hlutverk að
glíma við Frakkann Eric Cantona
hjá Leeds á Ibrox Park. Síðast
þegar þeir mættust var það í lands-
leik Frakklands og Skotlands
1989, en unnu Frakkar 3:0.
■ LEEDS teflir fram tveimur
Skotum - Gordon Strachan og
fyrirliðanum Gary McAllister, en
Glasgow Rangers tveimur Eng-
landingum, Trevor Steven og
Mark Hateley.
■ UPPSELT er á leikinn á Ibrox
Park, 40. þús. áhorfendur. Stuðn-
ingsmenn Leeds fengu enga miða
á leikinn, en þeir geta keypt miða
sem kostar 2.100 ISK á 105 þús.
krónur á svörtu.
■ RUUD Gullit mun ekki leika
með AC Milan gegn tékkneska
félaginu Slovan Bratislava og þá
hefur markvörðurinn Sebastiano
JRossi einnig verið settur út úr byij-
ifnarliðinu. Króatinn Zvonimir
Boban og Francesco Antonioli,
markvörður ítalska 21 árs lands-
liðsins, taka stöður þeirra.
■ EMILIO Butragueno, fyrirliði
Real Madrid, mun leika með liðinu
á ný eftir þriggja vikna fjarveru
vegna meiðsla, þegar Real mætir
Torpedo Moskvu.
■ CIRO Ferrara, fyrirliði
Napolí, og Svíinn Jónas Thern
leika ekki með félaginu gegn París
St. Germain, þar sem þeir eru
meiddir. George Weah, miðheiji
Parisarliðsins leikur með því á ný
eftir veikindi.
KARFA
Aðalsmót í
Stykkishólmi
Körfuknattleikssambandið og
Landssamtökin íþróttir fyrir
alla gangast fyrir Aðalsmóti í körfu-
knattleik í Stykkishólmi um helg-
ina. Keppa átti í Drottningadeild
stúlkna á öllum aldri, nema þær sem
leika í 1. deild kvenna. Óvíst er að
næg þátttaka fáist í þessum flokki.
í karlaflokki verður keppt í Lávarð-
árdeild fyrir 30 ára og eldri og
I Kóngadeild fyrir 40 ára og eldri.
Þeir sem leika í tveimur efstu
deildum íslandsmótsins mega ekki
j vera með í þessu móti. Þátttöku-
gjald er 12.000 fyrir lið en 2.000
1 fyrir einstaklinga. Ef áhugasamir
einstaklingar geta ekki fengið fé-
lagana til að mynda lið þá er bara
að hafa samband við skrifstofu KKI
og athuga hvort ekki vanti í ein-
hver lið.
Skráningu lýkur í dag í síma
<185949 og 38910.
í kvöld
1. deild kvenna:
Kaplakriki: FH-Fram ...20
Selfoss: Selfoss - Fylkir ...20
Seltj’nes: Grótta - Víkingur.. ...20
Strandgata: Haukar - Stjaman20
KNATTSPYRNA / HM I BANDARIKJUNUM 1994
Pontiac Sllverdome-íþróttahöliinl, þar sem fyrsti leikurinn innanhúss í sögu HM verður leikinn.
Þjóðveijar hefja
vömina í Chicago
HEIMSMEISTARARNIR frá
Þýskalandi hefja vörn sína í á
heimsmeistaratitlinum í
Bandaríkjunum - á Soldier
Field íChicago 17. júlí 1994,
en þar fer opnunarhátíðin
fram. Þjóðverjar leika í C-riðli,
en leikir riðilsins fara fram í
Chicago og Dallas.
Eins og áður taka 24 þjóðir þátt
í heimsmeistarakeppninni og
verður dregið í riðla í keppninni í
Las Vegas í desember 1993. í gær
var ákveðið hvar riðlarnir sex í
heimsmeistarakeppninni í knatt-
spymu í Bandaríkjunum verða
leiknir, en HM hefst 17. júní og
úrslitaleikurinn fer fram Rose Bowl
í Pasadena fyrir utan Los Angeles
mánuði síðar, 17. júlí. Bandaríkja-
menn leika í A-riðli, en leikir riðils-
ins fara fram í Detroit og Los Ang-
eles. Bandaríkjamenn leika sinn
fyrsta leik 18. júlí og fer leikurinn
fram í Pontiac Silverdome-íþrótta-
höllinni, sem er fyrir utan Detroit
og verður það fyrsti leikurinn sem
verður leikinn innanhúss í HM frá
upphafi.
Riðlamir sex verða leiknir í þess-
um borgum og nágreni þeirra:
A-REÐILL: Detroit og Los Angeles.
B-RIÐILL: San Francisco og Los
Angeles.
C-RIÐILL: Chicago og Dallas.
D-RIÐILL: Boston og Dallas.
E-RIÐILL: New York og Washing-
ton DC.
HANDKNATTLEIKUR
ísland í fyrsta
styrkleikaflokki
- þegar dregið verður í íyrstu Evrópukeppni landsliða í Vín 27. október
ÍSLENSKA karlalandsliðið i'
handknattleik er í fyrsta styrk-
leikaflokki þegar dregið verð-
ur í fyrstu Evrópukeppni
landsliða í Vín í næstu viku,
27. október. íslenska kvenna-
landsliðið er f þriðja styrk-
leikaflokki.
Alls taka 34 þjóðir þátt í Evr-
ópukeppninni í karlaflokki, en
úrslitakeppnin fer fram í Portúgal
vorið 1994, en þar leika tólf þjóðir
til úrslita. Keppt verður í sjö riðlum
í undankeppninni og verða fimm
þjóðir í hveijum riðli. Þjóðirnar
leik heima og heiman í keppninni.
Sigurvegaramir í riðlunum komast
til Portúgal, en þjóðirnar sem verða
í öðru sæti leika síðan um fjögur
sæti. Portúgalir leika að sjálfsögðu
sem gestgjafar í lokakeppninni.
Landsliðinum var raðað þannig
niður í styrkleikaflokka:
1. FLOKKUR: Rússland, Svíþjóð,
Frakkland, fsland, Spánn, Rúmenía og
Ungveijaland.
2. FLOKKUR: Tékkóslóvakía,
Þýskaland, Noregur, Austurríki, Sviss,
Danmörk og Finnland.
3. FLOKKUR: Belgía, Hvíta Rúss-
land, Búlgaría, Króatía, Kýpur, Eist-
land, Færeyjar, Georgía, Grikkland,
Holland, ísrael, Ítalía, Lettland, Lithá-
en, Luxemborg, Moldavfa, Pólland, Sló-
venía, Tyrkland og Úkraína.
26 þjóðir taka þátt í kvenna-
keppninni.
FH-ingar leika
báða leikina heima
FH-ingar hafa náð samkomu-
lagi við Ystad í Svíþjóð um
að leika báða leikina í annarri
umferð Evrópukeppni meistara-
Iiða hér heima. Ifyrri leikurinn
verður laugardaginn 7. október
og sá síðari sunnudaginn 8. októ-
ber. Báðir leikimir hefjast kl. 17.
„Það er mjög gott fyrir okkur
að fá báða leikina hér heima. Við
vitum að sænsk félagslið eru mjög
sterk og því veitir öruggiega ekki
af að vera á heimavelli,“ sagði
Kristján Arason þjálfari og leik-
maður FH við Morgunblaðið í gær.
„Við ætlum að sjálfsögðu að
teyna okkar besta og vonum að
það dugi til að komast í þriðju
umferð. Við verðum að treysta á
að stuðningsmenn okkar Qölmenni
og fylli húsið, því það veitir ekki
af gegn Svíum," sagði Kristján.
Sterkustu menn Ystad eru
sænski landsliðsmaðurinn Per
Carlen, sem er einn besti iínumað-
ur í heimi, og skyttan Toni Hedin.
Kristján sagðist ekki enn hafa
séð til liðsins en hann væri að
vinna í því að fá spólu með því.
F-RIÐILL: Orland og New York.
Riðlakeppnin verður á tímabilinu
17.-30. júní.
Leikimir í 16-liða úrslitum verða
leiknir í þessum borgum: Chicago
og Washington (2. júlí), Los
Angeles og Dallas (3. júlí), San
Francisco og Orlando (4. júlí), Bos-
ton og New York (5. júlí).
Leikir í 8-liða úrslitum fara fram:
Boston og Dallas (9. júlí), San
Francisco og New York (10. júlí).
Undanúrslit fara fram 13. júlí
og verður leikið í Los Angeles og
New York.
Leikurinn um þriðja sætið fer
fram í Los Angeles 16. júlí og úr-
slitaleikurinn í sömu borg daginn
eftir, 17. júlí.
Þess má geta að leiktímar á leikj-
unum verða kl. 12:30, 16 og 19:30
að bandarískum tíma, eða kl. 16:30,
20 og 23:30 að íslenskum tíma.
Þeir 24 leikir af 52 leikjum sem
verða leiknir um helgar fara fram
á kvöldtímanum. Úrslitaleikurinn
fer fram kl. 15:30, eða kl. 19:30 á
íslenskum tíma.
KNATTSPYRNA
FIFA leyfir
bráða-
birgðapalla
SVISSNESKU meistararnir í
Sion hafa sett upp bráða-
birgðapalla til að koma fleiri
áhorfendum á Evrópuleik sinn
við Portó í kvöld.
Pallar sem þessir voru notaðir
á Korsíku í maí á bikarleik
Bastia og Marseille. Þá hrundu
pallarnir og 15 létust og 1.650 slös-
uðust. „Ég legg á það áherslu að
það er ekki búið að aflétta banninu
við bráðabirgðapöllum. Það bann
stendur enn,“ sagði Guido Tognoni
talsmaður FIFA í gær.
„Þetta er undantekning frá regl-
unni og við veittum leyfið eftir að
yfirvöld á staðnum höfðu tryggt
að undirstöðurnar væru tryggar
og staðist prófanir. Yfírvöld í Sion
verða að taka á sig alla ábyrgð
ef óhapp verður," sagði Tognoni
og bætti því við að undanþága
hefði einnig verið gefin fyrir svip-
uðum pöllum í Danmörku og Sin-
gapore.