Morgunblaðið - 21.10.1992, Page 34
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
■‘•iHi: HNIIOTMO .! iriDiWWBVtflM (jlG/n..lH.'iUi»IOK
VIÐURKENNING
Forsetinn fær gull-
merki Gigtarfélagsins
HREYFIMYNDAFELAGIÐ
Kjamsað á
kvikmyndum
Ilok síðasta mánaðar fóru fulltrúar Gigtarfélagsins
á fund forseta íslands, Vigdísar Finnbogadóttur,
og afhentu henni gullmerki félagsins, fimm tár, límd
á tinnu, en merkið var útbúið í tengslum við Nor-
ræna gigtarárið. Merkið var afhent í heiðurs- og
þakklætis skyni þar sem forsetinn er vemdari gigtar-
ársins hérlendis. Tárin eiga að tákna þrautir og þján-
ingar gigtveikra og þess að fímmti hver íslendingur
fær gigt. A myndinni em auk forseta f.v.: Frosti
F. Jóhannsson, framkvæmdastjóri Norræna gigtar-
ársins á íslandi, Ámi Jónsson, formaður Gigtarfé-
Iags íslands, og lengst t.h. er Jón Þorsteinsson,
læknir og varaformaður Gigtarfélagsins.
HEILDSOLU-BAKARI!
Údýri brauöa- og kðkumarkaöurinn, Suðurlandsbraut 32
Opinn mánudaga til föstudaga kl. 8.00-18.00
Seljum um það bil 50 tegundir af nýbökuðum
brauðum og kökum á heildsöluverði
eða án 25% smásöluálagningar.
Verðdæmi Smósöluverð Okkar verð Sparnaður
Formbrauð, hveiti og heilhveiti 116.00 83.80 23.86
Formbrauð, hveiti og heilhveiti, sneidd 126.00 93.68 33.80
Öll gróf sérbrauð 182.00 146.68 36.88
Öll gróf sérbrouð, sneidd 192.00 146.68 46.60
Jólokökur 286.00 228.60 57.80
Vínartertur 295.00 236.88 59.80
Brúntertur 308.00 246.68 62.00
Djöflatertur 668.00 S34.08 134.80
Dagsgömul brauð seld með 50% afslætti frá smásöluverði.
Komið og gerið verðsamanburð. Tökum greiðslukort.
Ódýri brauða- og kökumarkaöurinn,
Suðurlandsbraut 32 - kominn til að vera.
^ r
Hreyfimyndafélagið heita sam-
tðk sem áhugamenn um
kvikmyndalistina hafa stofnað.
Yfírlýst markmið þeirra er að sýna
háskólastúdentum og öllum þeim
sem tekið hafa ástfóstri við hvíta
tjaldið rjómann af ijóma kvik-
myndasögunnar. Fyrsta verkefni
félagsins var sýning á kínversku
kvikmyndinni Ju dou eftir Zhang
Yimou, en myndin hlaut tilnefn-
ingu til Óskarsverðlauna eins og
myndin Rauði lampinn eftir sama
höfund.
Kvikmyndaklúbbur íslands leið
undir lok á síðasta ári, þrátt fyrir
töluvert sterka spretti og fýlgi, og
um nokkra hríð hefur stofnun nýs
félags verið í burðarliðnum.
Áherslur eru þó nokkuð aðrar en
í Kvikmyndaklúbbnum sáluga.
„Ég held t.d. að fjölbreytnin verði
meiri hjá okkur,“ segir Skúli
Helgason, sem situr í stjóm félags-
ins, „Hreyfímyndafélagið verður
ekki klúbbur sem gerir þá kröfu
að menn séu sérmenntaðir í kvik-
myndafræðum, heldur reynir fyrst
og fremst að gera betur við kvik-
myndahúsagesti en gert hefur ver-
ið. Ástandið hefur eitthvað skánað
á síðustu árum, en samt er hvergi
að fínna stöðugan vettvang til
þess að sjá sígildar myndir á breið-
tjaldi, né þær myndir sem rata
sjaldan hingað af erlendum kvik-
myndahátíðum.“ Hyggst Hreyfí-
myndafélagið reyna að gefa þver-
skurð af verkum helstu meistara
kvikmyndanna og ákveðnum
stefnum sem hafa verið við lýði á
þessari öld, jafnframt því að kynna
eftir efnum og ástæðum kvik-
myndagerð sem sjaldan rekur upp
20% AFSLATTUR
ápermanenti
og strípum út október
. ^
Hárgreiöslustofan
^ffyena
Leirubakka 36 S 72053
á íslandsstrendur. Myndir úr kvik-
myndasöfnum og innlendar sem
erlendar stuttmyndir eru einnig
innan ramma félagsins. „Við von-
umst líka til þess að geta tekið á
móti erlendum gestum og fyrirles-
urum, og vonum að heimsóknir
geti orðið nokkuð reglulegar," seg-
ir Skúli. „Segja má að ekkert það
sem viðkemur gómsætum kvik-
myndum verði okkur óviðkom-
andi, og óspart kjamsað á þeim
sem sýndar verða.“
Ætla má að hinn fomfrægi
Fjalaköttur sem menntaði ófáa þá
kvikmyndagerðarmenn sem hafa
sig mest í frammi um þessar
mundir, hafi að nokkru leyti verið
hafður til hliðsjónar þegar stefna
félagsins var mörkuð, ekki form-
lega þó. Einn forvígismanna Fjal-
akattarins á sínum tíma var leik-
stjórinn Friðrik Þór Friðriksson,
og situr hann í stjóm Hreyfí-
myndafélagsins ásamt fulltrúum
stúdenta; Skúla Helgasyni, Guð-
brandi Emi Amarsyni og Einari
Loga Vignissyni, Friðbert Pálssyni
forstjóra Háskólabíós og Bjama
Ármannssyni markaðsstjóra
Kaupþings.
Næsta verkefni Hreyfímyndafé-
lagsins er kvikmyndahátíð sem
hefur að þessu sinni bandarískar,
franskar og fínnskar kvikmyndir
innan sinnan vébanda. „Þema há-
tíðarinnar er ódýrar kvikmyndir,
þ.e. kvikmyndir sem gerðar em í
raun fyrir sambærilegt fjármagn
og íslenskar bíómyndir." Fyrir at-
beina Friðriks Þórs og bandaríska
kvikmyndaframleiðandans Jim
Starks er verið að reyna að fá
nýjustu myndir eftir leikstjóra eins
og Jim Jaramusch, en sú ku ger-
ast í leigubílum í nokkram löndum,
Zombie and the Ghost Train eftir
fínnska leikstjórann Mika Kaur-
ismáki og La Vie de Boheme eftir
bróður hans Aki, sem hefur getið
sér frægðarorð víða um heim.
Einnig mynd eftír ungan kvenleik-
stjóra að nafni Clair Denis er kem-
ur frá Frakklandi. Frá Bandaríkj-
unum kemur leikstjórinn Gregg
Araki en mynd hans kallast The
Living End og var sýnd í Cannes
á þessu ári og á sjálfstæðri banda-
rískri kvikmyndahátíð í Hamborg
í síðasta mánuði, en hún fjallar
að einhveiju leyti um veröld sam-
kynhneigðra eins og flestar fyrri
myndir Araki. Fleiri leikstjórar og
verk þeirra eru innan seilingar,
og skýrast þau mál á næstu vik-
um. Enn fremur er frönsk kvik-
myndavika í sjónmáli í nóvember,
ef að líkum lætur.