Morgunblaðið - 21.10.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
&
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. april) IP*
Þótt þú fáir góð ráð er
samt réttast að íhuga betur
fyrirhuguð viðskipti eða
fjárfestingu áður en
ákvörðun er tekin.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gerðu þér grein fyrir þeirri
ástúð sem ríkir og láttu
ekki smámuni spilla fyrir
einlægu sambandi.
Tvtburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Framkoma þín og velvilji
falla í góðan jarðveg. Sam-
koma fellur þér vel í geð,
en þú þarft einnig að sinna
einkamálum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HI8
Rejmdu að vera ekki of
annars hugar við vinnuna
í dag. Þú ert með hugann
við ástina, ferðalög og
skemmtanir.
Ljón
(23. júlf - 22. ágúst)
Ekki vasast í of miklu í
einu. Njóttu heimilislífsins
og bjóddu góðum vinum í
heimsókn í stað þess að
leita annað.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentemherl <tí^‘
Leyfðu öðrum að njóta sín.
Þú þarft ekki að vera með
nein látalæti til að aðrir
kunni að meta kosti þína.
V°g ^
(23. sept. - 22. október)
Ekki standa í neinum inn-
kaupum ef þú hefur ekki
gert upp hug þinn. Þú eign-
ast nýja vini og þér opnast
nýjar leiðir.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú átt erfítt með að ein-
beita þér í vinnunni, en átt
ekki í neinum vandræðum
með að skemmta þér þegar
kvöldar.
Bogmaöur
(22. nóv. - 21. desember)
Þér fínnst þú þurfa tíma
til að ljúka skyldustörfum,
en tímanum er betur varið
í annað í dag. Slappaðu af.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þér hentar betur nú að fara
í heimsókn en að hafa
heimboð. Þeir sem óbundn-
ir eru gætu fundið nýjan
ástvin í kvöld.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ífh
Rökræður fá ekki aðra á
þitt band í dag, en vin-
gjamleg framkoma þín
kallar á sömu viðbrögð frá
öðrum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) -Xk
Nú er heppilegt að íhuga
ferðaáætlanir, en á þeim
eru margir lausir endar.
Rómantíkin er ofarlega í
huganum í kvöld.
Stjömuspána á að tesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DÝRAGLENS
EN þEGtOU NÚ. '
V/OEEUM
/U/SSA AF SVN/NGJ
/ þ/USNA FEþ BAUO/
[SOFJCUR/UN AFTU/e.f
SMÁFÓLK
Vantið virðist vera heitt í dag.
Það er nærri því of heitt, er það
ekki?
Nei, Kormákur, það kólnar ekki
þótt blásið sé á það.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Vandvirkur spilari reynir að
samnýta alla þá möguleika sem
hann hefur til vinnings.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ Á3
VK84
♦ 98653
♦ DG5
Suður
♦ K6
V ÁD73
♦ ÁG107
+ K72
Vestur Norður Austur Suður
— — — 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Utspil: spaðadrottning.
Hvernig er best að spila?
Fljótt á litið sýnist best að
taka fyrsta slaginn í blindum og
ráðast á tígulinn. Þá vinnst spil-
ið alltaf ef austur á drottningu
eða kóng í tígli, en á því eru
75% líkur að öðru jöfnu. Spilið
gæti að vísu unnist án þess að
fría tígulinn ef hjartað er 3-3.
Þá þarf aðeins að sækja tvo slagi
á lauf. En líkur á 3-3 legu eru
ekki miklar (um 35%), svo fyrri
leiðin virðist mun betri.
En best væri auðvitað að geta
prófað báðar.
Norður
♦ Á3
VK84
♦ 98653
♦ DG5
Vestur Austur
♦ DG1085 .. ^9742
♦ 962 ♦ G105
♦ KD4 ♦2
♦ 83 ♦Á10964
Suður
♦ K6
♦ ÁD73
♦ ÁG107
♦ K72
Sem er í sjálfu sér einfalt.
Sagnhafí tekur fyrsta slaginn
heima á kóng, spilar þrisvar
hjarta og endar í borðinu. Ef
liturinn fellur er hægt að sækja
tvo slagi á lauf. Annars er enn
tími til að tvísvína í tígli.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Bandaríski stórmeistarinn
Yasser Seirawan hefur furðulega
oft verið f hlutverki þolandans í
leikfléttunum hér í skákhominu.
Á útsláttarmótinu í Tilburg sem
nú stendur yfír fékk hann gott
tækifæri til að flétta sjálfur glæsi-
lega. Seirawan (2.605) hafði hvítt
og átti leik gegn pólska stórmeist-
aranum Wojtkiewicz (2.530).
Hvítur gat unnið glæsilega: 47.
Bxg6+! - Kxg6 (Eða 47. - fxg6,
48. f7) 48. Dg8+ - Kh5 (48. -
Kf5, 49. Dh7+ - Kf4, 50. Dh2+
- leiðir til sömu niðurstöðu) 49.
Dh7+ - Kg4, 50. Dh3+ - Kf4,
51. Dg3+ og svarta drottningin
fellur.
í staðinn Iék Seirawan 47. Da7?
að bragði. „Blinda hænan fínnur
lfka fræ“ segir þýskur málsháttur
og þrátt fyrir þessa yfírsjón marði
hann sigur í skákinni eftir mikið
tímahrak. Hann vann báðar skák-
irnar af Wojtkiewicz. Öðrum
bandarískum skákmönnum gekk
ekki sérlega vel í byrjun mótsins.
Larry Christiansen var t.d. sleginn
út af Kortsnoj.