Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 59
aeet saaMMsact .8 muoaouwum c-fiQAvianuoHOM MORGUNBIiAÐIÐ ÞRÍÐJUÐAGUft«. DESEMBER 1992- S//V7/ 32075 ÞAÐ VAR AÐEINS EINN BABE RUTH Hversu langt kemst munaöarlaus drengur á kreppuárunum á draumn- um einum saman? Ef hann er BABE RUTH þá kemst hann alla leið. STÓRQÓÐ MVtllD FYRIR AUA FJÖLSKYLDUNA ÞAR SEM FER SAMANfiAMSN00 ALVARA, ★** ai Mbi. Aéalhlutverk: John Goodman, Kelly McGillls, Trini Alvarado. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. SYND A RISATJALDII mf DOLBYSTERÍÖll „THE RABE" ER FRABÆR SKEMMTUN! - Pia Lindström, NBC-TV __ ÞRIÐJU- DAGS- TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR. MIÐAVERÐ KR. 350 TILBOÐ Á POPPKORNI OGCOCACOLA TÁLBEITAN SýndíB-sal kl.5,7,9 og 11. Bönnuðinnan16 ára. LIFANDI TENGDUR UR DAGBOK LÖGREGLUNIMAR í REYKJAVÍK: Skömmu fyrir kl. 20 á föstudag var tilkynnt um að bam hefði dottið í gegn- um þakglugga á útbygg- ingu húss við Bergstaða- stræti. Barnið, átta ára drengur, hafði klifrað upp á þakið og verið að príla eftir því þegar gluggi, sem hann steig á, gaf sig. Drengurinn var færður á slysadeild, en meiðsli hans reyndust minni háttar. Skömmu áður hafði ver- ið tilkynnt um eld í hús- næði Olís á Gelgjutanga. Þar logaði mikill eldur í verkstæðisbyggingu rétt utan við athafnasvæði fé- lagsins og magnaðist hann mjög ört. Ástæða þótti til að kalla út allt tiltækt lið slökkviliðsins því hætta var á að eldurinn bærist í nálæg hús. Grunur er um að um íkveikju eftir inn- brot hafi verið að ræða. 13 ökumenn, semstöðv- aðir vom í akstri um helg- ina, em grunaðir um að hafa verið undir áhrifum áfengis. Ekki er vitað til þess að aðrir ölvaðir öku- menn hafí lent í umferðar- óhöppum en sá er ók út af Vesturlandsvegi nálægt Þingvallavegi og hafnaði þar ofan í skurði um kvöld- matarleytið á föstudag. Alls var 6 sinnum til- kynnt um hnupl í verslun- um um helgina, flest í Kringlunni. Þar var kona staðin að því að reyna að hnupla hespum, önnur fyr- ir að reyna hnupla kokt- eilsósu, maður fyrir að reyna að hnupla „Hjá Bám“ og enn annar fyrir að reyna að hnupla geisla- disk. Á laugardag þurfti að hafa afskipti af konu er reyndi að koma undan vömm að verðmæti yfir 23.000 kr. Um kl. 4 aðfaranótt laugardags kom stúlka á lögreglustöðina og kærði 40-50 ára gamlan mann fyrir að hafa veist að henni, reynt að nauðga henni og skorið með hnífi þar sem hún var stödd á Klapparstíg við Grettis- götu. Stúlkunni tókst að komast undan manninum, en þrátt fyrir leit hafðist ekki upp á honum um nótt- ina. Lögð verður áhersla á að finna manninn þar sem mál sem þessi eru litin mjög alvarlegum augum. Skömmu eftir miðnætti á laugardag gengu fjórir piltar að læknisbifreið þar sem hún var stödd á horni Leifsgötu og Barónsstígs. Miðaði einn þeirra byssu að lækninum og heimtaði pillur. Eftir þóf hurfu þeir á braut, en voru handtekn- ir skömmu síðar. Reyndist þar vera um íjóra 16 ára drengi að ræða. í fyrstu neituðu þeir að hafa ógnað nokkrum með byssu, en þegar skammbyssa í líki kveikjara fannst á einum þeirra viðurkenndi hann að hafa gert þetta í fífla- gangi. Hann hafði ekki aðra afsökun en þá að um hefði verið að ræða ung- æðishátt og ölvun. Þrír piltanna virtust undir áhrifum áfengis. Þeir höfðu verið að koma úr fyllerígpartíi í nágrenninu. Á einum þeirra fannst plastflasta er virtist inni- halda brugg. Fíflagangur þessi getur haft nokkurn eftirmála fyrir piltana. Á laugardag var til- kynnt um þjófnað á timbri frá húsi við Elliðavatn. Lögreglunni tókst að rekja slóð timburræningjanna frá staðnum og yfir ísinn á vatninu þar sem tveir drengir voru í önnum við að byggja sér útikamar að sögn. Eftir viðræður og áminningu skiluðu þeir timbrinu á sinn stað. Um morguninn var til- kynnt um neyðarblys á lofti út af Gróttu. Við at- hugun sáust af og til hvít- ir blossar á lofti yfir Gróttu. Bátur var sendur frá Björgunarsveitinni Al- bert og Slysavamafélag- inu og þyrla Landhelgis- gæslunnar sveimaði yfir staðnum. Við nánari at- hugun virtust „blysin" koma frá landi. Eftir að aðilar höfðu leitað án þess að nokkuð athugavert kæmi í ljós var ályktað að um samslátt á rafmagnsl- ínum á svæðinu gæti hafa verið að ræða. Reyndist svo vera. Starfsmenn frá rafmagnsveitunni komu á staðinn og gerðu við lín- urnar. Á laugardagsnótt var nokkrum sinnum kvartað yfír hávaða og leiðinlegum hljóðum frá gamla KRON við Stakkahlíð. Töldu ná- grannamir að einhveijir hefðu komið þar upp skemmtistað þeim til mik- illar hrellingar. Þarna mun áttahagafélag hafa komið sér upp félagsaðstöðu án tilskilinna leyfa. Á sunnudag var óskað aðstoðar við leit að ungl- ingi á vélsleða er orðið hafði viðskila við foreldra sína á Eldborgarsvæðinu um hádegisbilið. Gerðar höfðu verið ráðstafanir til þess að kalla út SVFÍ þeg- ar tilkynning barst um að drengurinn hefði komið fram heilu og höldnu. REGNBOGINN SIMI: 19000 Arkitekta- nemar sýna í Hafnarborg OPNUÐ hefur verið í Sverrissal Hafnarborgar í Hafnarfirði sýning á verk- um 13 íslenskra og nor- skra nemenda í arkitektúr við Arkitektaháskólann í Osló. Þeir hafa stundað nám hér á landi í haust, og er afrakstur þeirrar vinnu á sýningunni, sem stendur til 22. desember. Á sýningunni gefur að líta verk nemenda, sem flestir era á síðari stigum náms. Fjölbreytni gætir í verk- efnavali, og má sjá allt frá rallýkross- og kvartmílu- braut til glasafijóvgunar- stöðvar og fæðingarheimilis. í vor lýstu nemendur í Arkitektaháskólanum í Osló áhuga sínum á námsönn á íslandi. Úr varð samvinnu- verkefni milli skólans, Arki- tektafélags Íslands og Hafn- arfjarðarbæjar um skipulag og framkvæmd annarinnar. Kennarar voru arkitektarnir Steve Christer og Valdís Bjarnadóttir. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR Stóra svið: • RONJA RÆNINGJADÓTTIR eftir sögu Astrid Lindgren. Tónlist: Sebastian. Frumsýning annan í jólum kl. 15 uppselt. Sun. 27. des. kl. 14 fáein sæti laus, þri. 29. des. kl. 14 fáein sæti laus, mið. 30. des. kl. 14 fáein sæti laus, lau. 2. jan., sun. 3. jan. kl. 14. Miðaverð kr. 1.100,- sama verð fyrir börn og fullorðna. Ronju-gjafakort tilvalin jólagjöf! OPIÐ HÚS - OPIÐ HÚS í Borgarleikhúsinu iaugardaginn 12. og sunnudaginn 13. des. kl. 13-18. Æfing á RONJU RÆNINGJADÓTTUR söngur, upplestur o.m.fl. ÓKEYPIS AÐGANGUR. Stóra svið kl. 20: • HEIMA HJÁ ÖMMU eftir Neil Simon Sun. 27. des. Litla svið: • SÖGUR ÚR SVEITINNI: PLATANOV eftir Anton Tsjékov Þri. 29. des., lau. 2. jan., fáar sýningar eftir. VANJA FRÆNDI eftir Anton Tsjékov Mið. 30. des., sun. 3. jan., fáar sýningar eftir. Verð á báðar sýningarnar saman aðcins kr. 2.400. Kortagestir ath. að panta þarf miöa á litia sviðið. Ekki er hægt að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning er hafln. Miöasalan er opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá ki. 13-17. Miðapantanir í síma 680680 alla virka daga frá kl. 10-12. Aögöngumiðar óskast sóttir þrem dögum fyrir sýningu. Faxnúmer 680383. - Greiðslukortaþjónusta. LEIKHÚSLÍNAN sími 99 1015 GJAFAKORT - GJAFAKORT Öðruvísi og skemmtileg jólagjöf!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.