Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992 29 Fíkniefnamálið við Kringluna Víkingasveitarmenn sáu um handtökuna Við húsleitir fundust fíkniefni og áhöld, svo og vöðvaaukandi sterar RANNSÓKN fíkniefnamálsins sem hófst með handtöku tveggja manna við Kringluna á föstudag, annar hverra reyndist ekki við málið riðinn, er lokið. Vikingasveitarmenn handtóku mennina þar sem lögreglunni höfðu, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, borist upplýsingar um að sá sem tekinn var með 20 grömm af amfet- amíni í fórum sínum hefði yfir byssu að ráða. Það skotvopn fannst hlaðið við húsleit á heimili hans, auk 59 skota til viðbótar, en alls voru' framkvæmdar þrjár húsleitir vegna rannsóknarinnar. Auk fíkni- efna fannst við eina þeirra lítilræði af anabólískum sterum, vöðvaauk- andi lyfjum. Við húsleitimar voru handteknir fjórir menn á aldrinum 17-20 ára og 24 ára gomul kona. Allt hefur fólkið, að þeim frátöldum sem hand- tekinn var við Kringluna og reynd- ist ekki vera við málið riðinn, kom- ið áður við sögu fíkniefnamála. Við húsleitimar þrjár fundust, auk skammbyssunnar, um það bil 7 grömm af hassi, lítilræði af of- skynjunarsveppum og kannabis- fræjum, loftbyssa og ein ampúla af anabólískum steram, vöðvaauk- Sveitarfélög Skerðingn jöfnunarsjóðs mótmælt EINHLIÐA ávörðun ríkisstjórn- arinnar um 110 milljón króna skerðingu á framlagi til jöfnun- arsjóðs sveitarfélaga var harð- lega mótmælt á fundi Sambands íslenskra sveitarfélaga í gær. Væri það afdrifarík breyting á fjármálalegum samskiptum ríkis og sveitarfélaga, að því er segir i ályktun fundarins. Skerðingin felur í sér að framlag jöfnunarsjóðsins til lánasjóðs sveit: arfélaga fellur niður á næsta ári. í ályktunninni er einnig bent á, að í nýgerðum samningum við ríkið sé gert ráð fyrir um 500 milljón króna greiðslu í Atvinnuleysistrygginga- sjóð á næsta ári. Auk þess hafí sveitarfélögin átt þátt í að móta reglur um hvernig mæta skuli nið- urfellingu aðstöðugjalds, og í þeim umræðum hafi komið fram að á næsta íjárlagaári væri ekki gert ráð fyrir öðram breytingum á fjárhags- legum samskiptum ríkis og sveitar- félaga. Aðventu- samkoma á Reykhólum Miðhúsum. SAMKÓR Reykhólahrepps hélt laugardaginn 5. desem- ber aðventusamkomu á Reykhólum. Kórinn byijaði á því að syngja fyrir heimilis- fólk í Dvalarheimilinu Barmahlíð. Kórinn söng létt jólalög og barnakór söng einnig nokkur lög undir stjóm Ragnars Jóns- sonar, skólastjóra Tónlistar- skólans og organista. Einnig las Ragnar nokkur ritningar- orð. Avarp flutti formaður skólanefndar, Vilborg Guðna- dóttir. Sóknarpresturinn, séra Bragi Benediktsson, þakkaði kór og gestum .fyrir komuna. Þrátt fyrir leiðinlegt veður var kirkjan þétt setin og era aðventusamkomur yfirleitt vel sóttar en þær virðast ætla að verða fastur liður í undirbún- ingi jólanna. - Sveinn. andi lyfjum sem íþróttamenn hafa verið staðnir að ólöglegri notkun á. Þá fundust áhöld til fíkniefna- neyslu, loftbyssa og ætlað þýfí, svo og falsaður tékki upp á 40 þúsund krónur. Engir gæsluvaðrhaldsúrskurðir vora kveðnir upp yfir fólkinu 'vegna rannsóknarinnar og er það allt laust úr haldi. Aðspurður sagði Björn Halldórsson lögreglufulltrúi að ekk- ert sérstakt benti til þess að maður sá sem var með amfetamínið í fór- um sínum hefði ætlað að dreifa því í Kringlunni. Fylgst hefði verið með Skammbyssan sein lagt var hald á við rannsókn málsins og hulstur sem henni tilheyrir. Hún er af hlaupvídd .22 og var hún hlaðin fjór- um skotum í skotgeymi, en einnig var i húsinu kassi með 59 skotum. ferðum mannsins áður en hann var handtekinn og stóð um það bil tug- ur lögreglumanna að handtökunni á bílaplaninu við Kringluna. MAZDA 626 Staðfesting a yfírburðum! Þaðlinnirekkiverðlaununum,semMAZDA626færútíhinumstóraheimi. Nú nýlega sigraði hann í samkeppni um „GULLNA STÝRIÐ", sem fer árlega fram á vegum þýska blaðsins „BILD AM SONNTAG", stærsta dagblaði sinnar tegundar í Evrópu. MAZDA 626 hlaut þessa eftirsóttu viðurkenningu í flokki stærri fólksbíla og er þetta enn ein staðfestingin á yfirburðum MAZDA! Fjögur efstu sætin skipuðu: 1. MAZDA 626 2. Renault Safrane 3. Alfa Romeo 155 4. Toyota Carina E Við bjóðum MAZDA 626 í 3 gerðum, sem allar eru með 4ra þrepa tölvustýrðri sjálfskiptingu, vökvastýri, álfelgum og öllum luxusbúnaði. Því ekki að kynnast MAZDA 626 af eigin raun? Við bjóðum ykkur að koma, skoða og reynsluaka þessum frábæra bíl, ásamt öðrum gerðum af MAZDA. Við eigum ennþá nokkra bíla á verði síðan fyrir gengisfellingu, eða frá kr. 1.640 þús: (Með ryóvörn og skráningu.) Opið laugardaga frá kl. 10 -14. —.-WMmnnMinnHnjj SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVÍK S.61 95 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.