Morgunblaðið - 08.12.1992, Blaðsíða 25
Æ
Doktorsvöm 1
Bandaríkj unum
HILMAR Þor Hilmarsson úr
Ytri-Njarðvík varði hinn 8. októ-
ber sl. doktorsritgerð á sviði
hagfræði hins opinbera við „The
American University" í Wash-
ington D.C.
Ritgerðin nefnist „The Effici-
ency of the Supply of Non-Market
Output; The Surplus-Maximizing
Bureaucrat Under No Versus
Perfect Price Discrimination."
Dómnefnd skipuðu dr. David H.
Koehler, dr. Howard E. McCurdy
og dr. Thomas A. Husted, allir
prófessorar við „The American
University“. Aðalleiðbeinandi var
dr. Laura I. Langbein.
Ritgerðin byggist á rannsóknum
Hilmars á kenningum dr. Williams
A. Niskanens, sem um tíma var
aðalefnahagsráðgjafi Reagans, um
útþenslu opinbera geirans í Banda-
ríkjunum. Niskanen hélt því fram
að það hvatakerfi (e. incentive
system) sem notað væri í opinber-
um stofnunum í Bandaríkjunum
(og víðar) leiddi bæði til óhag-
kvæmni og offramboðs á fram-
leiðslu hins opinbera miðað við
markaðsjafnvægi á fullkomnum
markaði (perfectly competitive
equilibrium). Kenningar Niskanens
hafa haft veruleg áhrif á stefnu-
mörkun stjórnvalda gagnvart út-
þenslu opinbera geirans víða um
heim, en þó sérstaklega í Bretlandi
í tíð Thatcher og í Bandaríkjunum
í tíð Reagans.
Dr. Hilmar sannar í ritgerð sinni
að miðað við forsendur Niskanens
geti aldrei orðið offramboð á fram-
leiðslu hins opinbera. Aðeins í til-
viki fullkominnar verðmismununar
(e. perfect price discrimination)
bæði gagnvart neytendum (skatt-
greiðendum) og frambjóðendum
framleiðsluþátta (e. factor suppli-
ers) getur framboðið magn opin-
berrar framleiðslu orðið jafnt því
sem frá fræðilegu sjónarmiði
myndi nást á fullkomnum mark-
aði. Hins vegar eru fjárframlög til
opinberrar framleiðslu frá sjónar-
miði tæknilegrar hagkvæmni (e.
Dr. Hilmar Þór Hilmarsson
technical efficiency) líkleg til þess
að fara fram úr þörf í framleiðslu-
greinum þar sem staðkvæmdarvör-
ur (e. substitutes) eru fáar eða
engar. Þetta virðist sérstaklega
eiga við um ýmsa starfsemi á veg-
um bandaríska hersins og leyni-
þjónustunnar, en miklu síður í
greinum þar sem samkeppni er til
staðar, svo sem í menntamálum,
heilbrigðismálum, póst- og síma-
málum og samgöngumálum.
Hilmar Þór Hilmarsson lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Suðurnesja 1983, cand. oecon prófi
í hagfræði frá Háskóla íslands
vorið 1987, MA-prófi í hagfræði
frá New York University haustið
1989 og sérfræðiprófi í alþjóða-
hagfræði og alþjóðaviðskiptum frá
sama skóla misseri síðar. Hann
hlaut ágætiseinkunn, 9,87, á dokt-
orsprófí. Hilmar hefur um skeið
starfað sem ráðgjafi í höfuðstöðv-
um Alþjóðabankans í Washington.
Foreldrar hans eru Hólmfríður
Snorradóttir og Hilmar Guðjóns-
son.
.....•
m
•♦
iö seljum vönduð og flott jólaföt á hressa krakka
Meðal annars: Jakka,buxur, kjóla, pils, peysur,
skyrtur, vesti og jakkapeysur. Hágæða vörur á
viðráðanlegu verði.
i a
TRÆT
• * R^kjavíJ^irvegi 62 Hafnarfirði Sígii: 65 Q6 80
Nýtt tilbob í ríkisbréf
mibvikudaginn 9. desember
Um er aö ræða 7. fl. 1992 í eftirfarandi verögildum:
Kr. 2.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 50.000.000
Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, með gjalddaga
28. maí 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisbréfanna.
Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti
að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóöum gefst
kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 2.000.000 að nafnvirði.
Athygli er vakin á því at> þann 11. desember nk. er
gjalddagi á 1. fl. ríkisbréfa sem gefinn var út 12. júní 1992.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins miðvikudaginn 9. desember fyrir
kl. 14. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.