Morgunblaðið - 09.12.1992, Side 1

Morgunblaðið - 09.12.1992, Side 1
72 SIÐUR B/C/D/E STOFNAÐ 1913 282. tbl. 80. árg. MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins * Arás hindúa á mosku á Indlandi skapar hættu á trúarstríði Ottast að óeirðir breiðist út í músl- imaheiminum MUSLIMAR í nágrannaríkjum Indlands hafa brugðist ókvæða við árás hindúa á mosku í indverska bænum Ayodhya á sunnudag og óttast er að óeirðir og íkveikjur breiðist út í ríkjum múslima. Reiðir múslimar gengu um götur ríkja músiima hið fyrsta. nokkurra borga Pakistans í gær og kveiktu í hrúgum af hjólbörðum. Að minnsta kosti 23 biðu bana í vesturhluta landsins, þeirra á meðal fimm hindúsk börn og kona sem urðu eldi að bráð á heimili þeirra. Pakistanska stjórnin hvatti til að boðað yrði til fundar hjá samtökum Scala-óperan Blístrað á sjálfan Pavarotti Mílanó. Reuter. CARLO Fontana, fram- kvæmdastjóri Scala-óperunn- ar í Mílanó, hótaði i gær að grípa til harðra aðgerða gegn uppivöðslusömum áhorfend- um eftir að gerð höfðu verið hróp að stórsöngvaranum Luciano Pavarotti á frumsýn- ingu óperunnar Don Carlos eftir Verdi á mánudag. Pavarotti fór þar með hlut- verk Don Carlosar í fyrsta skipti og áhorfendur létu óánægju sína í ljós með því að blístra þegar honum urðu á slæm mistök í öðrum þætti óperunnar. í fjórða þætti, eftir aríu þar sem Pava- rotti söng um tár á himnum, hrópaði einhver úr efstu og ódýrustu svölunum: „f kvöld er það Verdi sem grætur!" Gagnrýnendur ítalskra blaða rökkuðu sýninguna niður. „Scala-veislan er búin að vera,“ sagði til að mynda í forsíðufyrir- sögn dagblaðsins La Stampa. Múslimar í Bangladesh kveiktu í að minnsta kosti 30 hofum hindúa víðs vegar um landið, lögðu eld í heimili hindúa og létu greipar sópa um eigur þeirra. „Heiðingjarnir hafa troðið á trú okkar,“ sagði Rafiqul Islam Miah, leiðtogi Þjóðernisflokks Bangladesh sem fer með völdin í landinu. Að minnsta kosti sex manns hafa beðið bana í óeirðum í Bangladesh vegna atburðarins á Indlandi. Múslimar réðust einnig á nokkur hof hindúa í austurhluta Afganist- ans og aðstoðarutanríkisráðherra landsins afhenti sendifulltrúa Ind- lands í Kabul bréf þar sem árásinni á moskuna var mótmælt. Kveikt var í fjórum hofum hindúa í Bretlandi í gær og grunur leikur á að múslimar hafí þar verið að verki. Áætlað var í gærkvöldi að hart- nær 400 manns hefðu beðið bana í óeirðunum á Indlandi frá þvf á sunnudag. Sjá „Ekkert lát á óeirðun- um ...“ á bls. 23. Reuter. Mótmælendur barðir Pakistanskir óeirðarlögreglumenn lentu í hörðum stympingum í gær við múslíma, sem reyndu að komast að sendiráði Indlands í höfuðborg- inni Islamabad. Vildu þeir mótmæla því, að hindúar rifu niður mosku, í bænum Ayodhya á Indlandi, á sunnudag. Að minnsta kosti 23 létu lífið í átökum múslíma við hindúa og lögreglu víðs vegar um Pakistan í gær og um 400 hafa fallið í óeirðum á Indlandi frá því á sunnudag. Andstaða við GATT eykst í EB Bonn. Reuter, The Daily Telegraph. FIMMTÍU þúsund þýskir bændur mótmæltu landbúnaðarkafla GATT-samkomuIagsins í Bonn í gær. Óku margir þeirra um borg- ina á dráttarvélum og þeyttu flautur þeirra óspart. Heybölum var hent við inngang landbúnað- arráðuneytisins og kveikt í bandarískri bifreið og heyi fyrir utan bandaríska sendiráðið. Frakkar hafa verið harðastir í andstöðu við landbúnaðarkafla GATT og virðist stuðningur við sjónarmið þeirra fara vaxandi innan Evrópubandalagsins, sérstaklega meðal landbúnaðarráðherra EB- ríkjanna. Bendir nú flest til að ekki muni nást samkomulag um land- búnaðarmálin á leiðtogafundi EB í Edinborg í næstu viku. Nýjar kröfur Á fundi utanríkisráðherra og land- búnaðarráðherra EB í Brussel fengu Frakkar óvæntan stuðning frá ítölum, Spánveijum, Portúgöl- um, írum, Belgum og Grikkjum og var fundinum hastarlega slitið seint um kvöld. Krafðist Roland Dumas, utanríkisráðherra Frakklands, þess að Bandaríkjamenn myndu gera tilslakanir varðandi þjónustuvið- skipti áður en vinnu við landbúnað- arkaflann yrði lokið. Yfirmaður franska hersins vill hernaðaraðgerðir í Bosníu Ibúum Sarajevo leyft að fara frá borginni Fjárfestar hræðast öfgamenn Frankfurt. Reuter. HILMAR Kopper, æðsti sljórn- andi Deutsche Bank, stærsta banka Þýskalands, sagði i gær að hann yrði var við miklar áhyggjur erlendis vegna upp- gangs hægri öfgamanna í land- inu. Þýskir Ijölmiðlar hafa greint frá því að tveir bandarískir bankar hafi hætt við fjárfestingar í austur- hluta Þýskalands vegna árása þar á útlendinga og einnig munu fjár- festar frá Italíu og Þýskalandi hafa hrökklast frá áformum sínum. Sanyevo, Pale, Bosníu. Reuter. BOSNÍSKIR Serbar gáfu í gær- kvöld út yfirlýsingu um að öll- um sem vildu yrði heimilað að yfirgefa borgina Sarajevo. Yfir- lýsingin var birt af serbnesku fréttastofunni SRNA og sagði í henni að öryggi þeirra, sem i engin hús hefðu að venda, yrði tryggt og þeim séð fyrir mat og húsaskjóli í Sprska-lýðveld- inu, sem er það heiti er Bosníu- Serbar hafa gefið landssvæð- inu. Serbneskar sveitir hafa setið um Sarajevo í átta mánuði og hefur íbúum borgarinnar, sem telja um 380 þúsund, verið meinað að yfir- gefa hana. Hafa þeir þurft að reiða sig á matarsendingar frá Samein- uðu þjóðunum en þær sendingar hafa fallið niður á síðustu vikum vegna harðra bardaga í kringum borgina. Serbar héldu uppi stöðugum eldflaugaárásum á Sarajevo í allan gærdag og skriðdrekasveitir lok- Reuter. Félagar kvaddir Vélbyssuvopnaður maður stendur vörð á meðan tveir bosnískir Sarajevo-búar, sem féllu er þeir reyndu að verja borgina gegn árásum Serba, eru bornir til grafar. Rúmlega tuttugu íbúar Sarajevo hafa týnt lífi og um hundrað særst í átökum síðasta sólarhrings. uðu borgina algjörlega af frá um- heiminum. Átök síðustu daga hafa vakið upp á ný kröfur á alþjóða- vettvangi um að Vesturlönd skar- ist í leikinn. Jaqcues Lanxade, yfir- maður franska hersins, sagði í gær að hann teldi ljóst að grípa yrði til hernaðaraðgerða gegn Serbum til dæmis með því að framfylgja með afli flugbanni yfir Bosníu. Hann sagðist þó vona að ekki yrði að grípa til allsheijar árásar en bætti við að öfl innan Sameinuðu þjóðanna væru að missa þolin- mæðina. Malcolm Rifkind, varnar- málaráðherra Bretlands, sagði hins vegar að ekki kæmi til greina að nota hersveitir þó svo að SÞ myndi herða aðgerðir á öðrum sviðum. Talið er, að yfirlýsing Serba í gærkvöldi, um að íbúar Sarajevo mættu yfirgefa borgina, hafi einna helst verið gefin út til að slá á kröfur um að hervaldi yrði beitt gegn þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.