Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Fjölmiðlun vill 23 millj. frá Eignarhaldsfélagi FJÖLMIÐLUN sf. hefur ákveðið að hðfða mál á hendur Eignar- haldsfélagi Verslunarbankans og krefst 23 milljóna króna, með dráttarvöxtum frá 9. janúar 1990. Sú upphæð er munur á kaupverði Fjölmiðlunarmanna á hlutabréf- um í Stöð 2 og raunverulegu and- virði þeirra að mati dómkvaddra matsmanna. Fjölmiðlunarmenn keyptu hluta- bréf í íslenska útvarpsfélaginu, Stöð Hentu sér út áður en bíllinn fór út af „BÍLLINN stöðvaðist nokkrar sekúndur á brún vegarins og við náðum að henda okkur út áður en við sáum eftir honum tuttugu, þijátíu metra ofan skriðurnar. Maður var nú frekar strekktur á eftir og fer ábyggilega varlega á þessum slóðum á næstunni." Svona lýsir Víðir Björnsson á Hamri við Djúpavog atvikum gær- dagsins, en hann slapp naum- lega ásamt félaga sínum þeg- ar bfll þeirra rann í hálku og fauk út af veginum niður tals- verðan bratta. „Við fundum í Rauðu skrið- um, um sex kílómetrum sunnan Djúpavogs, hvemig bíllinn fór að renna aftur á bak niður brekku," segir Víðir. „Það var hálka og slagviðri og enginn kantur á veginum. Pallbíllinn sem við vorum á hefur verið of léttur, hann fauk niður snar- bratta skriðu." „Við fórum niður að honum og sýndist hann ekki vera mikið skemmdur. En líklega hefði bíll- inn oltið og gereyðilagst hefðum við verið í honum. Við sluppum þó heilir á húfí og þurftum ekki að bíða lengi eftir bíl sem við fengum far með.“ 2, fyrir 150 milljónir króna þann 9. janúar 1990. Fljótlega mótmæltu þeir þó kaupverðinu sem of háu, þar sem staða félagsins væri mun verri en Verslunarbankinn hefði veitt upp- lýsingar um. Dómkvaddir matsmenn skiluðu niðurstöðum sínum í lok maí í vor og töldu, að bréfin hefðu verið of- metin um 23 milljónir króna, því verðmæti þeirra hefði í raun verið 127 milljónir. Fjölmiðlun sf. hefur því ákveðið að höfða mál á hendur Eignarhaldsfélaginu, til að fá þenn- an mismun greiddan. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins verður stefnan birt í dag, en málið þingfest á þriðjudag, 15. desember. ------♦ -------- Eggjaverð er óbreytt VERÐ á eggjum hefur haldist óbreytt í stórmörkuðum síðan í lok nóvember. Var þá haft eftir Geir Gunnari Geirssyni, eggjabónda, að hann teldi að verðstríðið myndi standa stutt. Einkum vegna þess að verð á fóðri hefði hækkað um 6% strax eftir gengisfellingu. Ódýrustu eggin kosta 132 kr. kíló- ið í Bónus. Blaðamaður Morgunblaðsins kannaði kílóverð á eggjum í nokkrum stórmörkuðum í gær. Kom þá í ljós að verðið var hið sama og 26. nóvem- ber sl. Sama verð er á eggjum í Hagkaup og Fjarðarkaup, eða 198 kr. fyrir kílóið. Mikligarður býður egg á 149 kr. kílóið en Iægsta verðið er í Bón- us, 132 kr. fyrir hvert kíló af eggjum. Sjúkraliðafélag íslands samdi í anda þjóðarsáttar Morgunblaðið/Ámi Sæberg Samningar í höfn Gerð var grein fyrir nýgerðum kjarasamningi sjúkraliða og við- semjenda þeirra á fundi trúnaðar- mannaráðs sjúkraliða eftir að undirritun hans var frágengin í gær. Atkvæðagreiðsla um samn- inginn fer fram næstkomandi mánudag. Á innfelldu myndinni má sjá samningsaðila undirrita samninginn. Morgunblaðið/Sverrir Ágreiningi vísað til Félagsdóms SJÚKRALIÐAR fá 1,7% launahækkun og 8.000 kr. orlofsuppbót frá 1. október samkvæmt nýund- irrituðum kjarasamningi Sjúkraliðafélagsins og viðsemjenda. Gert er ráð fyrir að sjúkraliðar á landsbyggðinni, sem eru í starfsmannafélögum, haldi launahækkun frá því í vor og starfsfélagar þeirra á landsbyggðinni í Sjúkraliðafélaginu fái sömu hækkun frá sama tíma, þ.e. maí. Ný launatafla fyrir sjúkraliða á höfuðborgarsvæðinu tekur gildi samkvæmt samningnum og verður minni- háttar breyting á röðun í launaflokka. Kjarasamning- urinn gildir fram í mars á næsta ári. Kristín Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags- ins, sagði að komist hefði verið að samkomulagi varð- andi ágreining um eftirmála vegna vinnustöðvunar sjúkraliða. „Mér hefur verið stefnt í félagsdómi fyrir hönd félagsins. Ef niðurstaða dómsins verður sú að við höfum staðið í ólöglegum aðgerðum verður ekki dregið af sjúkraliðum í tvöfaldri yfirvinnu heldur varð samkomulag um að dagur kæmi á móti degi. Séu sjúkraliðar taldir í rétti verður ekkert dregið af launum þeirra,“ sagði Kristín. Eldur í húsi Landssamband íslenskra útvegsmanna víll að sjómenn taki þátt í þróunargjaldinu Sjómenn segjast hafna slíkri hugmynd alfarið í Fossvogi ELDUR kom upp í Iofti íbúðar- húss við Grundarland í Fossvogi í gærkvöldi. Slökkvilið var kvatt á staðinn en eldurinn slokknaði meðan það var á leiðinni þegar rafmagn sló út. íbúar hússins urðu varir við reyk úr lofti anddyris undir klukkan hálf níu og kölluðu strax á slökkvilið. En áður en það bar að var reykur- inn að mestu horfinn og þegar tekn- ar voru plötur úr vegg og lofti kom í ljós að rafleiðsla hafði leitt út og valdið eldi. Skemmdir urðu ekki teljandi. / dag Áhyggjur af útflutningi_______ Nærrí níu af hverjum tíu lands- mönnum hafa áhyggjur af versn- andi afkomu útflutningsgreina 4 Samsæriskenningar_____________ Óbirtar segulbandsupptökur gefa Bandaríkjamönnum tilefni til nýrra samsæriskenninga um Nixon 22 Brjóstkrabbamein Breytt meðferð kvenna með brjóst- krabbamein gæti aukið lífslíkur þeirra 25 Leiðari Vopnavald í þágu mannúðar 24 Sjávarútvegsráðherra segir stjóravöld ekki munu skipta sér af kjaramálum sjómanna KRISTJÁN Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna segir að verði þróunargjaldið sem stjórnvöld hyggjast leggja á útgerðina frá árinu 1996 ekki lagt á óskipt aflaverðmæti muni LIÚ verða að sækja málið með kröfum á hendur sjómönnum, í samningavið- ræðum við þá. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Farmanna- og fiski- mannasambandsins hafnar þessari hugmynd LÍÚ alfarið og segir út- gerðarmenn hafa undirbyggt það í allmörg ár með kvótaviðskiptum sínum, að hér yrði lagt á auðlindagjald. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi að stjórnvöld myndu engin afskipti hafa af kjaramálum sjómanna. Það yrðu útgerð- armenn og sjómenn að gera út um i frjálsum samningum sín á milli. Stjórn LÍÚ kom saman til fundar í fyrradag og ályktaði um efna- hagsráðstafanir ríkisstjómarinnar: í ályktun LÍÚ segir m.a.: „Stjóm Bækur ► Ódysseifur eftir James Jo- yce. Bréf Jóhanns Jónssonar. Tröllakirkja Ólafs Gunnarsson- ar. Sæfari Þorsteins frá Hamri. Skáldsaga Singers. LÍÚ mótmælir harðlega áformum ríkisstjórnarinnar um sértækar að- gerðir, sem miða að því að stofna enn einn sjóðinn. Hlutverk þessa r Ur verinu ► Bátar enn að veiðum þó kvót- inn hafi verið seldur af þeim - Aflaverðmæti 7 vannýttra teg- unda gæti orðið 3,5 milljarðar Fiskpaté úr vannýttu hráefni svokallaða Þróunarsjóðs er að inn- heimta sérstakt veiðileyfagjald af sjávarútveginum, sem er jafn órétt- látur skattur og aðstöðugjaldið, sem nú er ákveðið að fella af fyrir- tækjum í landinu ...“ í lok ályktunarinnar segir: „Verði þetta gjald lagt á telur stjóm LÍÚ eðlilegt að gjald þetta verði tekið af óskiptu aflaverðmæti, þar sem launakjör sjómanna era byggð á hlutaskiptum, sem ákvarða tekjur þeirra og aflaverðmæti.“ Krislján sagði í gær, þegar Morgunblaðið spurði hann hvort Myndosögur ► Drátthagi blýanturinn — Jóla- gjafir — Leyndarmálið — Myndir ungra listamanna — Pennavinir — Leikir—Þrautir LÍÚ teldi raunhæft að gera kröfu til þess að sjómenn tækju á sig slíka kjaraskerðingu, sem fælist í því að lokaorðum ályktunar LÍÚ yrði hrint í framkvæmd: „Að sjálf- sögðu er það raunhæft. Ef ríkis- valdið ætlar að setja þetta á veið- amar sem slíkar og láta veiðamar standa undir þessu, þá era sjó- mennirnir hluti af veiðunum.“ „Ef það verður ekki, þá verðum við bara að koma fram með kröfur við sjómennina og semja um þetta," sagði Kristján þegar hann var spurður hvort hann teldi að stjórn- völd yrðu fáanleg til þess að semja reglugerð um Þróunarsjóð sjávar- útvegsins, sem tæki tillit til þessara óska LÍÚ. „Við höfnum þessari kröfu LÍÚ alfarið," sagði Guðjón A. Kristjáns- son, formaður LÍU, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Þeir eru bún- ir að eiga þessi kvótaviðskipti sín nú í nokkur ár og þeir era búnir að undirbyggja þetta auðlindagjald. Þeir geta átt þessi viðskipti sín, alveg sjálfír. Það hefur enginn séð um að koma þeim á nema LÍÚ.“ Sjávarútvegsráðherra var spurð- ur hvort hugsanlegt væri að stjóm- völd tækju tillit til framangreindrar ályktunar LÍÚ, þegar reglugerð um Þróunarsjóð sjávarútvegsins verður samin: „Stjórnvöld munu ekki hafa nein afskipti af kjaramálum sjó- manna. Það verða útgerðarmenn og sjómenn að gera út um í frjáls- um samningum sín á milli,“ sagði Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.