Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 4
mu nmmwa ^ huqaúumvgim aieiAianuonoK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Könnun sýnir miklar áhyggjm* af útflutningsgreinum Svartsýni um efnahag* en trú á nýja möguleika NÆRRI níu af hverjum tíu landsmönnum hafa vaxandi áhyggjur af versnandi afkomu útflutningsatvinnugreina ef marka má nýja könnun Félagsvisindastofnunar fyrir Útflutningsráð. Langflestir aðspurðra, 85%, telja að ekki sé hægt að halda óbreyttri neyslu með minni útflutningi og rúmur helmingur, 57%, telur eðlilegt að almenn- ingur taki nú á sig nokkra kjarskerðingu til að bæta stöðu gjaldeyr- isskapandi atvinnugreina. Til þess er þó verkafólk, sjómenn og bænd- ur mun tregara en stjórnendur. Sex af hveijum tíu segjast hlynntir hærri innflutningsgjöldum til að bæta afkomu gjaldeyrisgreina, fjór- ir af tíu eru meðmæltir kostnaðarlækkun, en gengisfelling og ríkis- styrkir eru óvinsælli leiðir. Útlendingar eiga að fá að leggja fé í íslenskan atvinnurekstur að áliti 66% aðspurðra, körlum líst betur á það en konum og alþýðuflokks- og sjálfstæðisfólk er langhressast með slíkar ráðstafanir. Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð gegnum síma í lok nóvem- ber og reynt var að ná til 1.500 manna á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu. Könnuðir náðu í 1.079 manns, 73% slembiúrtaksins. Af þeim telja 88,8% ástæðu til að hafa áhyggjur af versnandi afkomu greina sem afla gjaldeyris með út- VEÐUR flutningi, meirihlutinn miklar áhyggjur. Fæstir, rúm 15%, telja unnt að halda neyslu óbreyttri þótt útflutn- ingur minnki. En heimavinnandi fólk, verka- og afgreiðslufólk eru ijölmennast í hópnum sem þykir það hægft, sérfræðingar og atvinnu- rekendur fámennastir. Þeir síðast- nefndu telja flestir eðlilegt að al- menningur taki nú á sig nokkra kjaraskerðingu. Þeir eru í meiri- hluta, 56%, sem telja að efnahags- aðgerðir ríkisstjórnarinnar skili ekki árangri, en af hinum sem trúa að svo verði er skrifstofufólk og stjómendur fjölmennast. Raforka, hugvit og þekking er efst á blaði þeirra 74% sem telja íslendinga eiga aðra möguleika til að afla gjaldeyris en sjávarútveg, iðnað og ferðaþjónustu. Aðild að Evrópska efnahagssvæðinu mun stuðla að auknum útflutningi að áliti 59% aðspurðra og nefndu flest- ir iðnað, fiskvinnslu, verslun og þjónustu í því sambandi. Flestir telja þó að efnahagsástand hérlend- is á næsta ári verði svipað áfram, 54%, en allnokkrir halda að það versni, 34%, og einungis fáir, 11%, trúa að efnahagur batni. VEÐURHORFUR I DAG, 9. DESEMBER YFIRLIT: Skammt vestur af Bjargtöngum er 968 mb lægð sem hreyfist norð-norðaustur og mun fara að grynnast í nótt. SPÁ: Suðvestanátt um mestallt land, viðast' kaldi eða stinningskaldi en allhvass á stöku stað. Dálítil snjó- eða slydduél verða um vestanvert landið og austur með suðurströndinni en bjart veöur að mestu norðaust- anlands. Hiti víöast 1-4 stig, þó heldur kóinandi þegar líður á daginn. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt og éljagangur sunnanlands og vestan, en þurrt norðaustan tii. Hiti um eða rétt undir frostmarki. HORF- UR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Breytileg vindátt og éljagangur um mest allt land, síst þó austanlands. Frost 1-6 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.45, 16.30, 10.30, lO.Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600. & o Heiöskírt Léttskýjaö r r r * / * f f * f f f f f * f Rigning Slydda -a Hálfskýjað * * * ♦ * * * * Snjókoma Á Skýjað V ^ Skúrir Slydduél Alskýjað * V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstetnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig Súld = Þoka V 5«g-. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Fært er í nágrenni Reykjavfkur og um Suðurnes, eins er fært austur um Hellisheiði og Þrengsli. Fært er um Suðurland og með suðurströndinni til Austfjarða, en ófeert er um Fjarðarheiði, Breiðdalsheiði og Vatns- skarð eystra og þungfært er um Oddskarð. Fært er fyrir Hvalfjörð og um Snæfellsnes nema Fróðórheiði er ófær. Fært er í Dali en þungfært um Gilsfjörð. Fært er frá Patreksfirði til Tálknafjarðar en þungfært um Hálfdán til Bfldudals. Kleifaheiði er ófær. Fært er um Holtavörðuheiði ófærar. Fært er um Norðurland, til Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Akur- eyrar. Frá Akureyri er fært um Þingeyjarsýslur og með ströndinni til Vopnafjarðar. Frá Húsavík er fært til Mývatns. Möðrudaisöræfi eru ófær. Víða um land er mikil hálka á vegum. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti 2 s veöur alskýjað rigning á sfð.klst. Bergen i Sfö skýjað Helsinkl +1 alskýjað Kaupmannahöfn 4 rígning Narssarssuaq Z skafrenningur Nuuk vantar Osló 2 alskýjað Stokkhólmur 2 alskýjað Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 16 skýjað Amsterdam 6 þoka Barcelona 12 léttskýjað Berlín 3 þokumóða Chicago 3 alskýjað Feneyjar 7 rigning Frankfurt vantar Glasgow 1 reykur Hamborg vantar London 7 léttskýjað LosAngeles 12 heiðskírt Lúxemborg 5 þokumóða Madrfd 10 léttskýjað Malaga 14 léttskýjað Mallorce 13 rigning Montreal +12 léttskýjað NewYork 1 lóttskýjað Ortando 18 þokumóða París 6 þokumóða Madeira 19 skýjað Róm 13 rígnlng Vín 2 rígning Washington 3 alskýjað Winnipeg +14 alskýjað Morgunblaðið/Rax Braggi á sviðið í Lindarbæ Nemendur á fjórða ári Leiklistarskólans eru að æfa „Bensínstöðina", eftir Gilda Bourdet um þessar mundir og er ætlunin að frumsýna verk- ið, sem er franskt nútíma gamanleikrit um miðjan janúar næstkomandi. Grétar Reynisson sér um sviðsmyndina og er þar meðal annars gert ráð fyrir Citroén bragga. Var tekin rúða úr í anddyrinu og lögð braut inn í húsið og bflnum ekið inn á svið. Leikstjóm er í höndum Þórhalls Sig- urðssonar og Helga Stefánsdóttir sér um búninga. Fjárlagaumræðan Dregið úr niður- skurði til SÁÁ Heilbrigðisráðherra mun leggja til minnkun fyrirhugaðrar skerðing- ar fjárveitinga til SÁÁ á næsta fjárlagaári, að sögn Theodórs Halldórs- sonar, framkvæmdaslj óra samtakanna. Um tíma virtíst sem starfsemi eftirmeðferðarstaðar SÁÁ á Staðarfelli í Dölum væri í hættu vegna 35 milljóna króna niðurskurðar er ráð var gert fyrir f fjárlagafrum- varpi. Það hefði þýtt að um 400 meðferðarpláss á ári hyrfu. Theodór sagði að ráðherra hefði í ár en árið 1991, og var niðurskurði lýst þvi yfir á fundi með forráða- mönnum SÁÁ í gær að hann myndi leggja til leiðréttingu á málum sam- takanna við aðra umræðu fjárlaga. „Við tökum á okkur ákveðinn niður- skurð, en með þessari breytingu náum við að halda meðferðinni gang- andi næsta ár. Þótt eitthvað kunni að vanta uppá, treystum við því að það gangi með góðra manna hjálp.“ Framlög til SÁÁ voru 15% lægri mætt með hagræðingu. Ný 15% skerðing, sem átti að koma til fram-. kvæmda á næsta ári, hefði valdið óyfirstíganlegum erfíðleikum í rekstri meðferðarstöðvanna, að sögn Theodórs. Lýsir hann ánægju sam- takanna með málamiðlun ráðherra. „Það má segja að við höfum mæst á miðri leið, án þess að nefna nokkra krónutölu, og við vonumst til að upp úr þessu geti þróast framtíðarlausn." Nýjar bækur Kvæði og ritgerðir Jóhannesar úr Kötlum ÚT ER komin bókin Jóhannes úr Kötlum - Úrval kvæða og rit- gerða. í kynningu útgefanda segir: „í bókinni eru 125 ljóð og 17 ritgerðir eftir Jóhannes. Ljóðin spanna ein- stakan feril hans frá því hann gaf út fyrstu bók sína, Bí, bí og blaka, árið 1926 til síðustu bókar hans, Ný og nið, þar sem hann hefur umbylt ljóðformi sínu. Ættjarðarást, eld- móður, einlægni og samúð með lítil- magnanum, allt þetta einkennir Ijóð Jóhannesar sem eru lofgjörð til landsins og íslenskrar alþýðu og end- urspegla tvenna tíma í lífi þjóðarinn- ar. Ritgerðirnar eru úr bókinni Vin- arspegill sem lengi hefur verið ófáan- leg og fjalla m.a. um skáldskap og sjálfstæðismál." Útgefandi er Mál og menning. Bókin er 579 bls. og kostar 2.980 krónur. Jóhannes úr Kötlum Kaupmenn ánægðir með helgarverslunina KAUPMENN við Laugaveg og í Kringlunni eru ánægðir með jóla- verslunina um siðustu helgi. Á fimmtudag, 10. desember, hefst nýtt kortatímabil. Að sögn Einars Inga Halldórsson- ar framkvæmdastjóra Kringlunnar var verslað meira á laugardag en sunnudag. „Það er talsvert um það að fólk er að skoða og er sjálfsagt að bíða eftir nýju kortatímabili sí byijar á fimmtudaginn,“ sagði har Jón Siguijónsson formað Laugavegssamtakanna, sagði jólainnkaupin væru greinilega heQast. „Það eru alltaf vissar ver anir eins og bamafataverslanir, þ sem salan hefst fyrr og ég heyri kaupmenn láta vel af sölunni. Reyri ar mun betur miðað við sama tírr bil undanfarinna ára,“ sagði ham

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.