Morgunblaðið - 09.12.1992, Síða 17

Morgunblaðið - 09.12.1992, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 17 Er er er er og er er þegar og sem eftir Heimi Má Pétursson í blaða- og fréttamennsku verða stundum til tískuorð og frasar, sem ganga aftur í hverri fréttinni^á fætur annarri. Þessi tískuorð geta oft og tíðum verið hvimleið og geta jafnvel breyst í málfarsmengun nái þau að verða útbreidd. Ég er ekki einn af þeim sem næ ekki andanum yfir spillingu íslenskrar tungu. Tungu- máiið hlýtur að þróast og breytast ef það á annað borð á að lifa. Ég er heldur enginn íslenskuspekingur og málfarströll og hef oft verið stað- inn að því bæði að mæla og skrifa tómt bull. Engu að síður er einn draugur í tungutaki blaða- og frétta- manna sem fer óttalega í taugamar á mér, en það er vond notkun á orð- inu „er“. Maður heyrir æ oftar setningar eins og þessar í fréttum: „Er forsæt- isráðherra hélt stefnuræðu sína i gærkvöldi..." og „Slysið er við sögð- um frá í gær...“. Í fyrri setningunni hefði verið eðlilegt að nota orðið „þegar“ en í þeirri seinni „sem“. Starf blaða- og fréttamanna felst í því að segja fréttir á máli sem allir skilja. Frétt á að vera sögð á eins einfaldan hátt og mögulegt er. Við lendum oft í því að viðmælendur okkar em illskiljanlegir og stundum jafnvel óskiljanlegir. Þegar svo ber undir eigum við að komast að því hvað maðurinn vildi í raun og veru segja og skila því síðan til almenn- ings á skiljanlegu máli. Það sem meira er, við eigum að tala og skrifa sem líkast því sem fólk gerir í dag- legri umgengni sinni hvert við ann- að. Þegar sérfræðingur í peninga- málum þjóðarinnar segir okkur að „staðan sé svona og hinsegin miðað við verga þjóðarframleiðslu á föstu gengi ársins 1992“ eigum við að túlka mál hans yfir á daglegt mál. Það segir enginn: „Er ég kom f vinnuna í morgun hitti ég manninn er fann upp handsprengjuna." Fjöl- miðlamaður sem útbíar fréttir sínar með rangri notkun á þessu orði myndi ekki einu sinni taka svona til orða. En hvers vegna gerir hann það í fréttum? Það er ómögulegt að segja. Ein skýring gæti verið að honum finnist annars hversdagsleg setning að eðlilegast væri að allir gætu kom- ið sér ofan í jörðina látnir fyrir ekki neitt og að þessi óhjákvæmilegi þátt- ur mannssögunnar yrði þannig á kostnað allra. En það stríðir að sjálf- sögðu gegn frelsinu. Þess vegna verða svona gamaldagsjafnréttis- sjónarmið brátt úrelt hjá stjómvöld- um þó að meirihluti þjóðarinnar að- hyllist það sjónarmið eins og kunn- ugt er. Þar kemur að þeim samevr- ópska vanda að þjóðimar virðast ekki vera í takt við ríkisstjómimar eins og fréttamaðurinn komst að orði í spumingu sinni til ráðherrans þó að ég héldi áður að vandinn væri sá að ríkisstjómimar em ekki í takt við þjóðimar. Rökrétt framhald þessa máls væri svo að sjálfsögðu það að framboð og eftirspum réði verðlaginu á greftrunum; þannig lækkar verðið væntanlega þegar drepsóttir geysa en hækkar þegar heilsufarið batnar. Þessi vandamál mun Hannes Hólm- steinn vafalaust taka fyrir í ein- hverri útvarpshugvekju núna á jóla- föstunni fyrst hann er búinn með Jón Þorláksson. Ég hef tekið eftir því að sumir hafa tekið þessari afstöðu Verslunar- ráðsins sem gríni; það er mikill mis- skilningur. Framkvæmdastjóri Verslunaráðsins er jafnframt alþing- ismaður, formaður þingmannanefnd- ar íslands í EFTA-málum. Hann veit því hvað hann syngur. Varamaður hans á Alþingi er Hjálmar Jónsson. Langalangafi Hjálmars var Bólu- Hjálmar sem kvað „grófin móti gap- ir köld“. Það mun nú breytast: Gröf- in móti gapir fijáls. hljóma betur ef hann setur „er“ í staðinn fyrir „þegar“ og „sem“. Fjöl- miðlamanninum kann að finnast setningin fyllri og merkilegri fyrir vikið. En þar er hann á villigötum. Orðið „er“ er eitt algengasta orðið í íslensku máli og gegnir þar mikil- vægu hlutverki, sbr.: Maðurinn er kominn, maðurinn er sekur og svo framvegis. Málfarsfróður maður segir mér að í sögu íslenskunnar sé það mjög sjaldgæft að nota „er“ á þann hátt sem nú er í tísku. Það sé helst að finna þessa notkun í biblíumáli eða Heimir-Már Pétursson í stólræðum presta sem gjaman vilja hljóma hátíðlega. Þessi ranga notkun á orðinu tilheyrir sömu uppskafning- unni í máli og þegar menn setja „þér“ og „yður“ inn í miðjan texta sem að öðru leyti er ekki skrifaður í þéring- um. Það er mun fallegra og eðlilegra mál að segja: „Þegar slysið varð“ en „Er slysið varð“. Það er mál sem almenningur villist ekki á og það er mál sem almenningur talar. I örfáum undantekningartilvikum getur verið réttlætanlegt að nota „er“ í fyrirsögn ef plássið leyfir ekki annað. En í langflestum tilvikum getur blaða- maðurinn breytt fyrirsögninni þannig að hún passi í það pláss sem honum er gefíð og lagað hana að venjulegu talmáli. Höfum hugfast að er er er þegar einhver eða eitthvað er, en ekki þeg- ar og sem. Höfundur er fréttamaður Stöðvar 2. Samtök dag- mæðra styðja formann sinn STJÓRN og nefndir, sem starfa fyrir Samtök Dagmæðra, hafa í fréttatilkynningu til Morgunblaðs- ins lýst yfír stuðningi við formann samtakanna, Selmu Júlíusdóttur og um leið harma þessir aðilar vinnu- brögð Höllu Hjálmarsdóttur dag- móður gegn formanninum. Lýsir stjómin og nefndimar því yfir að þau munu ekki eiga samstarf við Höllu og stuðningslið hennar. Súsanna Haraldsdóttir varafor- maður samtakanna ritar undir ályktunina fyrir hönd 22ja dag- mæra í stjóm og nefndum Samtaka dagmæðra í Reykjavík. EIGÖM PHILIPS MlMNnMGn NYTT HEIMSMET 95 SEKÚNDUR! Það er sá tími sem það tekur að spóla þriggja tíma myndbandsspólu til baka eftir upptöku- eða áhorf. Þetta þýðir að þú getur nýtt tíma þinn betur. Skemmri tími fer í það að spóla fram og tilbaka og leita að tilteknum þáttum á spólunni. Með nýju HiFi víðóms Matchline myndbandstækjunum fylgir mjög nákvæm fjarstýring. Á henni eru færri takkar en á öðrum sambærilegum fjarstýringum - þökk sé allri innbyggðu sjálfvirkninni í myndbandstækinu. Stafrænar upplýsingar í Iitlum glugga á fjarstýringunni gefa þér jafnóðum upplýsingar um stöðu upptökumála. PHIUPS Heimilistæki SÆTÚNI 8 • SÍMI: 69 15 15 • KRINGLUNNI • SÍMI: 69 15 20 PHILIPS þegar skerpan skiptir málil Höfundur er níundi þingmaður Reykvíkinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.