Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 20

Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Leigubíll, Kr.453 3 km rúntur 396 366 Pampers bleiur, 601pakka Kr. 1.637 !™S.Ín- Kr 70,51 * "*rl 65,47 66,481 (98oktan) Könnun á verði algengra neyzluvara í þrettán löndum Island langdýrast Tíu af 22 vörutegundum dýrastar á íslandi - fjórar næstdýrastar ÍSLAND er dýrasta landið í alþjóðlegri verðkönnun brezka fyrirtæk- isins International Information Service (IIS), sem sérhæfír sig í neytendakönnunum. Könnunin nær til þrettán landa víða um heim. Sett er saman innkaupakarfa ór 22 tegundum algengrar vöru og þjónustu. Karfan kostar á íslandi 7.737 krónur (miðað við verð i september), en þar sem hún er næstdýrust, í Belgíu, kostar hún 5.512 kr. (miðað við verð og gengi í september). Munurinn er 40,3%. Innkaupakarfan á íslandi er um 80% dýrari en í flestum Evrópu- bandalagslöndum I könnuninni. Niðurstöður könnunar IIS voru birt- ar opinberlega í Bretlandi í gær og er þeim slegið upp í helztu dagblöðum þar f landi. Könnun IIS var gerð í september og náði til 13 landa: íslands, Ástral- íu, Tékkóslóvakíu, Frakklands, Þýzkalands, Indlands, Ítalíu, Mex- íkó, Hollands, Spánar, Bretlands og Bandaríkjanna. Að sögn Marg- aret Rooke-Matthews, blaðafull- trúa IIS, var markmiðið méð vali landanna að fá sem mesta breidd í könnunina. „Við völdum ísland frekar en til dæmis Danmörku eða Svíþjóð af því að það er ekki oft með í aiþjóðlegum könnunum af þessu tagi,“ sagði Rooke-Matthews í samtali við Morgunblaðið. í innkaupakörfuna, sem lögð er til grundvallar í könnuninni, voru í upphafí valdar 25 algengar neyzluvörur eða þjónusta. Fulltrúar fyrirtækisins í hverju landi fengu fyrirmæli um að velja sömu vöru- merkin og nákvæmlega sama magn af vörunni. Fyndist ekki það vöru- merki, sem IIS vildi kanna verð á, var valin vara sem taldist sambæri- leg að gæðum. í þremur tilvikum þótti stjómendum könnunarinnar sem ekki hefði tekizt að fínna sam- bærilegar vörur í öllum löndunum og var þeim sleppt úr körfunni. f samanburði fyrirtækisins er því reiknað með 22 vörutegundum. Flestar vörurnar keyptar í Hagkaupi Að sögn Eric Biggs, sem vann að gerð könnunarinnar, voru vör- umar valdar með það í huga að sömu vörumerkin fengjust sem víð- ast í heiminum. Hann sagði í sam- tali við Morgunblaðið að fulltrúar fyrirtækisins hefðu fengið fyrir- mæli um að fara í „dæmigerðar" verzlanir, þar sem almenningur Sykur Bandaríkin verzlaði í miklum mæli. í Englandi hefði verzlunarkeðjan Tesco orðið fyrir valinu, en á íslandi hefðu flestar vörumar verið keyptar í Hagkaupi, fyrir utan áfengi, benz- ín, hamborgara og ýmsa þjónustu. „Öll hin löndin standa í skugga framfærslukostnaðar á íslandi," segir í fréttatiikynningu Mintel Int- emational Group, móðurfyrirtækis IIS, sem gefín var út í gær. Þar segir að „ógæfusamir" íslendingar þurfí að greiða hæsta verðið fyrir tíu vörutegundir af þeim 22, sem könnunin náði til. Þar er um að ræða Mars-súkkulaði, sem kostaði 55 krónur, dós af Coca-Cola á 69 kr., sex egg á 155 kr., kíló af ban-' önum á 118 kr., lítra af nýmjólk á 68 kr., pakka af Marlboro-sígarett- um á 229 kr., tvöfaldan hamborg- ara á 490 kr., hreinsun á jakkaföt- um á 1.010 kr., bjórdós á 160 kr. og 70 cl flösku af Bacardi-rommi á 2.400 kr. Aðeins tvær vömr voru undir meðallagi á íslandi; kíló af sykri (49 kr.) og svitalyktareyðir (182 kr.). Verð á Neskaffi, Ariel- þvottadufti, Basmati-hrísgijónum og Buitoni-spagettí var nálægt meðaltali hér á landi. Benzínverð var næsthæst hér á landi (63,30 kr.), nærri því jafnhátt og á Ítalíu, og leigubílar vom einnig næstdýr- astir hér, ásamt sólolíu og bleyjum. í fjórtán tilvikum varþví hæsta eða næsthæsta verðið á Islandi. Á heildina litið var ísland lang- dýrasta landið, miðað við innkaupa- körfu með 22 vörum á 7.737 krón- ur. Næst kom Belgía, sem er dýr- asta Evrópubandalagslandið í könnuninni. Þar kostaði karfan 5.512 kr. í hinum EB-löndunum í Venjuleg- arvörur varla miklu dýrari hér 7 segirJón Asbergsson „Ég treysti mér ekki til að gefa yfirlýsingar um þessa verðkönnun nema sjá verð hinna einstöku vöru- merkja og vægi þeirra," sagði Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa. Jón benti á að virðis- aukaskattur væri ýmist hærri eða lægri hér á landi en annarstaðar, og auk þess spilaði verð á áfengi og tóbaki án efa sterklega inní. „Eg hef enga sérstaka trú á því að þess- ar venjulegu vömr eins og Ariel og Lux séu neitt mjög mikið dýrari hér en einhverstaðar annarstaðar." Jón kvað útilokað að verð á al- gengari vömtegundum hérlendis væm hundmðum prósenta hærri en annarstaðar. Aftur á móti kynnu sérstakir vemdartollar á sælgæti, til að mynda, að hafa áhrif til hækkun- könnuninni, þ.e. Frakklandi, Ítalíu, Bretlandi, Hollandi, Þýzkalandi og Spáni, kostar matarkarfan rúmlega 4.000 krónur. I Bandaríkjunum er hún á 3.490 kr. og í Ástralíu á 3.114 kr. Ódýrastu löndin em Tékkóslóvakía, Indland og Mexíkó, þar sem karfan kostar aðeins rétt á þriðja þúsund króna. í könnun IIS er verð gefið upp í meðalgengi gjaldmiðla í september gagnvart pundi og í íslenzkum umreikningi Morgunblaðsins er miðað við með- algengi pundsins í september. Hamborgari og kók langdýrust á íslandi Þegar tekin ern dæmi af verði einstakra vara á íslandi og annars staðar, kemur í ljós að til dæmis tvöfaldur hamborgari er meira en tvöfalt dýrari á Islandi (490 kr.) en þar sem hann er næstdýrastur (205 kr.) í Frakklandi. Pakki með 60 Pampers-bleyjum kostar 1.169 kr. á íslandi, 1.636 kr. í Belgíu og 575 kr. í Bandaríkjunum. Dós af Coca-Cola kostar 69 kr. á íslandi en 36 kr. í Frakklandi, þar sem hún er næstdýmst. Gosdrykkurinn er þó framleiddur hér á landi en ekki innfluttur, eins og margar aðrar vömr í könnuninni. Sett upp verð sem markaðurinn þolir IIS er dótturfyrirtæki markaðs- rannsóknafyrirtækisins Mintel Group og sérhæfir sig í neytenda- könnunum. IIS er í fremstu röð fyrirtækja í þeirri grein og hefur starfsmenn í 130 ríkjum. Blöð í Bretlandi, til dæmis The Independ- ent og The Times slógu niðurstöð- um könnunar IIS upp í gær. í The Independent er haft eftir John Cunningham, aðalforstjóra Mintel, að gífurlegur verðmunur á hvers- dagslegum neyzluvörum, sem nán- ast allir noti, komi á óvart. „í sum- um tilfellum er hægt að skýra muninn með gengisbreytingum, stundum með mismunandi hráefn- um í hveiju landi, framleiðslu- og flutningskostnaði, og í einhveijum tilfellum er hægt að skýra muninn með sköttum," segir Cunningham. „Hins vegar er verðmunur á sum- um vömm of mikill til þess að hægt sé að skýra hann með þessum þáttum. Menn hljóta að álykta sem svo að mörg fjölþjóðafyrirtæki setji Kemur ekki á óvart að við skulum vera efstir — segir Guðmund- ur Sigurðsson „Flestar fjölþjóðlegar kannanir sem gerðar hafa verið af eða í sam- vinnu við Verðlagsstofnun hafa bor- ið okkur saman við hin Norðurlöndin eða önnur dýr lönd,“ sagði Guð- mundur Sigurðsson, yfirviðskipta- fræðingur Verðlagsstofnunar. „Þar höfum við oft verið með efstu þjóð- um, svo það kemur mér ekki ýkja mikið á óvart að við skulum vera efstir af þeim þjóðum sem könnunin nær til.“ Guðmundur kvað rétt að hafa ýmsa fyrirvara um túlkun könnunar- innar. ísland skæri sig úr þessum hópi ríkja í áfengisverði, auk þess sem gæta beri að raunverulegri neyslusamsetningu. Aðspurður sagði Guðmundur verðlagssaman- burð við Evrópubandalagsríkin ekki hafa sýnt fram á nálægt 100% verð- mun, eins og fram kemur í innkaupa- körfu IlS-könnunarinnar. „Við höf- um ekki gert samanburð á matvör- Mexfkó Spánn Frakkland Ítalía Þýskaland Holland Bretland Bakaðar baunir Þýskaland Ítalía Spánn Tékkóslóvakía Mexíkó Frakkland Nescafé Ítalía Belgía Holland Þýskaland Spánn Frakkland Spaghetti Bandaríkin Spánn Þýskaland Holland Frakkland Bretland Ariel þvottaduft Tékkóslóvakia Holland Þýskaland Ítalía Belgía Hrísgrjón Ítalía Belgia Bandaríkin Frakkland Kattarmatur Tékkóslóvakía Ítalía Spánn Lux-sápa Belgia Spánn Bretland Bacardi-romm upp það verð, sem þau telja að markaðurinn þoli, fremur en að það sé á kostnaðargrunni." Bananar Egg Hamborgarí sagði Guðmundur. „En löndin sem hér er verið að bera saman eru ansi ólík, og ber að taka tillit til þess.“ Marlboro- Kókdós sígarettur Mars-stöng iSUND ÍSLAND ÍSLAND fSLAND ÍSLAND fSLAND fSLAND fSLAND fSLAND fSLAND fSLAND fSLAND ÍSLAND fSLAND ÍSLAND Tékkóslóvakía Belgía Bandaríkin Belgía Frakkland Spánn Frakkland Þýskaland Bretland ítalia Þýskaland Frakkland Frakkland Bretland Indland Ástralía Holland Bretland Ástralía Spánn Bretland Belgía Holland Belgía Bretland Frakkland Belgía Tékkóslóvakía Þýskaland Mexikó Indland Indland Ástralía Ítalía Bandaríkin Holland Þýskaland Frakkland Holland Spánn italia Holland italía Ítalía Frakkland Ástralía Tékkóslóvakía Mexikó Indland Tékkóslóvakía Holland Ástralia Þýskaland Bandarikin - Bretland italía Bandaríkln Belgía Spánn Bandaríkin Indland Indland Bretland Þýskaland Ástralía Mexíkó ítalia Tékkóslóvakía Frakkland Spánn Spánn Belgia Holland Ástralía m ■■■ m . Bretland Mexíkó Tékkóslóvakía Ástralia Bandaríkin Tékkóslóvakia Frakkland Belgía Holland Þýskaland Holland Frakkland Tékkóslóvakía voruvero boríð saman við hið íslenska. Verði í samanburðariöndum raðað, Mexikó Mexíkó Bretland Ástralía Indland Bandaríkin Mexikó ítalia Spánn Bandaríkin Mexikó Ástralía Þýskaland Tékkóslóvakía Mexikó Belgia Ástralía Mexikó Bandaríkin Bretland Mexíkó Bandaríkin Tékkóslóvakía Bretland Spánn Ástralía Þýskaland Spánn Ástralia Bandaríkin Tékkóslóvakía italia Belgia Þýskaland Holland efst er hæsta verðið, neðst er það lægsta Indland Ástralía Holland Indland Tékkóslóvakía Indland Ástralía Indland Mexíkó Indland Indland Mexíkó Bandaríkin Bretland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.