Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
—— ——■■ ■'■ i—-—»■ :■■■ -:—.— —i—
Sýningin Víkin og Viðey í listasalnum Nýhöfn
Vaxspjöld
frá 15. öld
tekinupp
Á Ingólfsgarði við afhendingu jólatrésins. Dr. Hans Ludwig Beth,
Jónas Elíasson, Hans Hermann Schliinz, Anna K. Jónsdóttir í hafnar-
stjórn, Hannes Valdimarsson, og Dr. Gottfried Pagenstert.
Kveikt á jólatrénu
frá Hamborgarbúum
REYKJAVÍKURHÖFN tók á
móti jólatré frá félagsskapnum
Wikingerrunde í Hamborg laug-
ardaginn 28. nóvember. Þetta er
í 26. skiptið sem þessi félagsskap-
ur blaðamanna í Þýskalandi fær-
ir Reykjavíkurhöfn jólatré að
gjöf. Jólatréð er staðsett við Ing-
ólfsgarð og blasir við skipum sem
koma inn til Reykjavíkurhafnar.
Það var í ágætisveðri á laugar-
dagseftirmiðdag sem formaður
Wikingerrunde, Hans Hermann
Schliinz, afhenti Hannesi Valdi-
marssyni hafnarstjóra jólatréð.
Sendiherra Þýskalands í Reykjavík,
Dr. Gottfried Pagenstert, var við-
staddur athöfnina.
Fulltrúar Hamborgarhafnar
komu einnig til að vera við afhend-
ingu jólatrés. Dr. Hans Ludwig
Beth, framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs Hamborgarhafnar, kom við
annan mann og notuðu þeir tæki-
færið til að kynnast starfsemi
Reykjavíkurhafnar og kynntu jafn-
framt starfsemi hafnarinnar í Ham-
borg.
Eins og undanfarin ár flutti Eim-
skip jólatréð endurgjaldslaust til
landsins og Flugleiðir styrktu för
félaga Wikingerrunde.
(Fréttatilkynning)
& M
m: •
Jólatréð Ijósum prýtt.
Margrét Hallgrímsdóttir
borgarminjavörður fór mjúk-
um höndum um vaxspjöld frá
15. öld þegar hún kom þeim
fyrir í listasalnum Nýhöfn á
föstudag. Vaxspjöldin eru
meðal muna, sem ekki höfðu
komið fyrir sjónir almennings,
en eru sýndir á sýningunni
Víkin og Viðey í Nýhöfn. Sýn-
ingin opnaði síðastliðinn laug-
ardag.
Margrét sagði að á sýningunni
væru munir sem fundist hefðu
við rannsóknir á vegum borgar-
innar í Kvosinni í Reykjavík og
Viðey. „Þar á meðal eru margar
minjar sem ekki hafa verið sýnd-
ar áður. Meðal þeirra eru þessi
vaxspjöld sem eru svo viðkvæm
að þau hafa ekki þolað að vera
til sýnis áður. Eftir að viðgerð
lauk þótti hins vegar viðeigandi
að sýna þau nú,“ sagði Margrét
og bætti við að ágæt skilyrði
væru til að sýna spjöldin í Ný-
höfn.
Vaxspjöldin fundust í Viðey
árið 1987 og hafa síðan verið
varðveitt í handritageymslu
Árnastofnunar. Á þeim er trúar-
legur texti á hollensku og latínu.
Margrét Hallgrímsdóttir kemur vaxtöflunum fyrir í Nýhöfn.
Bólusetning gegn parvosýkingu hefst í dag:
Grunur leikur á að tíu til
fímmtán hiuidar hafí sýkzt
Vitni vantar
Um kl. 17 föstudaginn 4. desem-
ber var keyrt utan í gulllitaðan
Subaru Legacy þar sem hann stóð
á bílastæði fyrir utan Kringluna,
Hvassaleitismegin. Mögulegt er
einnig að þetta hafi gerst á bíla-
stæði Heklu v/Suðurlandsbraut.
Þeir sem kunna að hafa verið vitni
að atburðinum vinsamlegast snúi
sér til SRD lögreglunnar.
HUNDARÆKTARFÉLAG íslands hefur aflýst öllum námskeiðum með
hundaeigendum, þar sem hundar eru hafðir með á meðan ekki hefur
hafizt bólusetning og hundar hafa ekki náð að mynda ónæmi gegn
hinni bráðsmitandi smáveirusótt, sem grunur leikur á að komið hafi
upp á Arnarstöðum í Flóa. Fjórir veikir hundar eru og í Höfnum, sem
grunur leikur á að haldnir séu parvoveikinni og er einn þeirra til
meðhöndlunar á Dýraspítala Watsons í Víðidal. AIls leikur grunur á
að um 10-15 tilfelli sé að ræða, þrjú tilfelli m.a. á heimili í Reykjavík.
Tilfellum hefur ekki fjölgað frá því fyrir helgi og sagði Brynjólfur
Sandholt yfirdýralæknir að umræðan um þessa pest hafi eflaust valdið
því að fólk gætir nú hunda sinna betur. Bólusetning hefst í dag, en
um 3-4 vikur tekur fyrir hundinn að byggja upp mótefni.
Guðrún Ragnars Guðjohnsen, for- svo að hundaeigendur geti varizt
maður Hundaræktarfélags íslands sóttinni og myndi félagið dreifa leið-
sagði í samtali við Morgunblaðið, að beiningum til hundaeigenda og fjöl-
félagið myndi útbúa leiðbeiningar, miðla. Hún sagði að menn hefðu vit-
Hótel Island á fimm ára afmæli
Hundruð þúsunda
sótt staðinn heim
Mikil afmælishátíð haldin á laugardag
FIMM ára afmæli Hótels Islands verður haldið hátíðlegt á laugardag-
inn kemur. Þann dag verða liðin nákvæmlega 5 ár síðan fyrsti
mannfagnaðurinn var haldinn á skemmtistaðnum en það var 90 ára
afmæli Blaðamannafélags Islands. I tilefni afmælisins verður au-
kauppfærsla á sýningu Hljóma, auk þess sem hljómsveitirnar Sljórn-
in og Cuba libre með Shady Owens og Rúnari Júlíussyni leika fyr-
ir dansi. Sérstakt tilboðsverð er á aðgöngumiðum á afmælishátíðina
eða 1.950 krónur, og er þá matur innifalinn.
Ólafur Laufdal, eigandi Hótels
íslands, kvað hundruð þúsunda
gesta hafa sótt staðinn heim á
þessum fimm árum. Fjölmargir
erlendir listamenn hafa komið þar
fram, meðal þeirra eru Tom Jones,
Victor Borge, Yoko Ono, Kim Lar-
sen og fleiri.
„Nú stendur til að fá Roger
Whittaker, Brendu Lee, sem var
ótrúlega vinsæl á árum áður og
er enn, og svo kemur Kris Krist-
offerson 19. og 20. febrúar," sagði
Ólafur. „Eftir áramót verður sett
upp sýning með lögum Geirmundar
Valtýssonar. Þar flytur fjöldi
söngvara og hljómlistarmanna lög
Geirmundar."
Að sögn Ólafs er Hótel ísland
einna stærsta hús sinnar tegundar
á Norðurlöndum. ,)Húsið er notað
fyrir öll stærstu einkasamkvæmi,
ráðstefnur og þess háttar, sem
haldið er hér á landi. Ef þessa
húss nyti ekki við, yrði að fara
með slíkt í íþróttasali," sagði Ólaf-
ur.
Hinn heimskunni söngvari Tom
Jones er meðal þeirra fjöl-
mörgu listamanna sem skemmt
hafa á sviði Hótels íslands.
að af parvoveikinni í nágrannalönd-
unum og það hafí að sínu mati verið
spurning um það hvenær smit bærist
til landsins en ekki hvort. Hunda-
ræktarfélagið hefði lengi barist fyrir
því að hundar hérlendis yrðu bólu-
settir gegn sjúkdómum, sem gengju
í nágrannalöndunum, en ekki hafi
verið á það hlustað. Hins vegar ef
kæmi upp inflúensufaraldur í Asíu,
sem hijáði mannfólk, væri rokið upp
til handa og fóta. Ekkert væri hins
vegar aðhafzt í sambandi við dýra-
sjúkdóma, þótt vitað væri, að ekki
þyrfti dýr til þess að bera smitið.
Guðrún sagði, að hundaeigendur
ættu ekki að fara með hunda sína
út af lóð sinni og forðast samgang
við aðra hunda. Þá þyrftu menn að
hirða upp hundaskít og menn þyrftu
jafnframt að panta bólusetningu
strax, því að það tekur nokkrar vikur
fyrir hundinn að byggja upp mót-
efni. Þá gagnrýndi Guðrún opinbera
hundrahreinsun, sem væri lögboðin,
þar sem öllum hundum væri stefnt
á einn stað, en slíkt fornaldarfyrir-
komulag væri til hins mesta vanza.
Menn óttast mjög áhrif þessarar
sýkingar á íslenzka fjárhundastofn-
inn, sem verið hefur í ræktun undan-
farin ár. Nú eru til um 300 hundar
af íslenzka kyninu. Guðrún sagðist
vilja láta bólusetja hunda við fleiri
sjúkdómum en þessum, sem heija á
hunda erlendis.
Samkvæmt upplýsingum Helgu
Finnsdóttur dýralæknis, en það var
dýralæknastofa hennar, sem fyrst
fékk grun um parvoveirusýkinguna,
var það hundur, sem verið hafði í
gæzlu á Arnarstöðum í Flóa, sem
veiktist helgina 14. og 15. nóvember
og drapst fyrsti hundurinn 18. nóv-
ember. Hann var krufinn 23. nóvem-
ber og eftir krufninguna var strax
haft samband við Arnarstaði og
heimilishundamir þar settir í ein-
angrun, svo og einn aðkomuhundur.
Aðkomuhundurinn drapst síðan síð-
astliðinn fimmtudag og var krufinn
og komu sömu einkenni í ljós.
Á haustfundi Dýralæknafélags ís-
Iands 28. nóvember var skýrt frá
þessum grun og kom þá í ljós að um
einangruð tilfelli virtist vera að ræða,
því að dýralæknar höfðu ekki orðið
varir við sjúkdóminn. Síðan þá hafa
komið upp tilfelli suður með sjó og
em íjórir hundar í Höfnum veikir og
hefur einn þeirra verið til meðhöndl-
unar á Dýraspítala Watsons í Víði-
dal, að sögn Magnúsar Guðjónssonar
dýralæknis í Keflavík.
-----» ♦ »
Asmimdur
Stefánsson
ráðinn til Is-
landsbanka
Á FUNDI bankaráðs íslandsbanka
hf. í gær var ákveðið að ráða
Ásmund Stefánsson, fyrryerandi
forseta Alþýðusambands íslands,
til starfa í bankanum. Ásmundur
mun hefja störf 1. febrúar næst-
komandi og fyrst í stað sinna
ýmsum sérfræðistörfum og sér-
verkefnum.
í fréttatil-
kynningu frá
banka- og fram-
kvæmdastjóm
íslandsbanka
segir að Ás-
mundur hafi átt
sæti í bankaráði
íslandsbanka
frá upphafi og
hann þekki því
vel til starfsemi
bankans. „Hann
er þjóðkunnur af störfum sínum á
vettvangi Alþýðusambands íslands.
Telur bankaráðið það mikinn feng
fyrir bankann að fá hann til starfa,"
segir í fréttatilkynningunni.
Ásmundur
Stefánsson