Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
M
:i
—
Indland
Ekkert lát á óeirð-
unum og leiðtogar
hindúa handteknir
Tala látinna var komin í um 400 í gær
Bombay, Ayodya. Reuter.
HARTNÆR 400 manns hafa beðið bana í óeirðum á Indlandi frá
því herskáir hindúar rifu niður mosku í bænum Ayodhya í Uttar
Pradesh-ríki á sunnudag. Mannfall hafði í gær orðið í að minnsta
kosti 14 af 25 ríkjum Indlands. Rúmlega 40 manns féllu í valinn
í átökum milli múslima og hindúa í miðborg Bombay í gær. Nokkr-
ir af leiðtogum hindúa voru handteknir vegna niðurrifs moskunnar.
OEIRÐIRNAR A INDLANDI
Andstaða
við sérkröf-
ur Dana
Gjáin á milli Dana og annarra
Evrópubandalagsþjóða breikkar
stöðugt og bendir fátt til, að
fundin verði sú málamiðlun, sem
danskir kjósendur sætti sig við
í nýrri þjóðaratkvæðagreiðslu
um Maastricht-samninginn. Á
fundi utanríkisráðherra EB í
Brussel í gær féllust Bretar, sem
fara nú með forystu í bandalag-
inu, á að endurskoða fyrri tillög-
ur sínar um sérsamninga fyrir
Dani vegna þess, að hinum þjóð-
unum þóttu þær ganga of langt.
Danska b\a.ðiðJyllandsposten
segir að danskir ráðherrar ætli
sér að semja um dönsku skilmál-
ana hvort sem það verði í anda
samkomulagsins á þingi eða
ekki og séu tilbúnir að slást fyr-
ir því á þingi að loknum Edin-
borgarfundinum.
Aukið atvinnu-
leysi í EB
Atvinnulausir í ríkjum Evrópu-
bandalagsins voru 14,6 milljónir
í októbermánuði en voru 13,3
milljónir á sama tíma í fyrra,
samkvæmt tölum sem Hagstofa
EB-ríkjanna, Eurostat, gerði
opinberar í gær. Atvinnuleysi í
ríkjum bandalagsins hefur ekki
verið meira síðan í október 1988.
Eurostat segir að sérstaklega
hafí atvinnuleysi aukist á þessu
ári á Spáni, Bretlandi og austur-
hluta Þýskalands en í þeim ríkj-
um jókst fjöldi atvinnulausra um
1,04 milljónir. Meðaltalsat-
vinnuleysi í EB var 9,8% í októ-
ber, mest á Spáni eða 19,9% en
minnst í Lúxemborg 2,1%.
Heittrúar-
menn hand-
teknir
Egypskar öryggissveitir létu
í gær til skarar skríða gegn
múslímskum heittrúarmönnum
í fátæktarhverfi í Kaíró, sem
hefur verið eitt helsta vígi
þeirra. um 250 þeirra handtekn-
ir í þessari umfangsmestu lög-
regluaðgerð í borginni í langan
tíma. Rúmlega sjötíu manns, þar
af einn breskur ferðamaður,
hhfa verið myrtir af heittrúar-
mönnum það sem af er þessu
ári. Heittrúarmennirnir, sem
krefjast þess að teknir verði upp
íslamskir stjórnarhættir, hafa
ráðið lögum og lofum í stórum
hlutum Imbaba og lögreglu-
menn ekki þorað að halda þar
inn nema í stórum hópum.
Ráðherra hót-
ar afsögn
Carlo Ripa di Meana, um-
hverfismálaráðherra Ítalíu, hót-
aði því í gær að segja af sér,
ef stjórn landsins tæki ekki tillit
til sjónarmiða hafts, en hann
hefur miklar áhyggjur af um-
hverfísáhrifum efnahagsstefnu
hennar. Ripa di Meana, sem
hætti sem umsjónarmaður um-
hverfismála í framkvæmda-
stjórn EB til að taka sæti í ríkis-
stjórn Ítalíu í júlí, sagðist hafa
sérstakar áhyggjur af einka-
væðingaráformum stjómarinnar
og áformum um'ofurhraðalestir.
Hann segir forsætisráðherrann,
Guiliano Amato, sem er sósíal-
isti Iíkt og hann sjálfur, hingað
til einungis hafa svarað mótbár-
um sínum með þögn. Ætti þetta
til dæmis við uum þau áform
að selja óspilltar strandlengjur
í eigu ríkisins, sem notaðar hafa
verið fyrir heræfíngar, til fjár-
festa. „Á þessum svæðum birtist
arfleifð ítalskrar siðmenningar.
Þau mega ekki hverfa undir enn
eina öldu steypu og hryllings,"
sagði ráðherrann.
Múslimar og hindúar börðust
með bensínsprengjum og gijóti í
miðborg Bombay, en alls hafa um
125 manns beðið bana í borginni
og Maharashtra-ríki í óeirðunum
undanfarna tvo daga. Níu manns
féllu í valinn í einu af úthverfum
Bombay, Dharavi, sem er eitt
stærsta fátækrahverfi í Asíu, með
hálfa milljón íbúa. Lögreglan
reyndi að framfylgja útgöngu-
banni í hverfinu en kveikt var í
fjölda íbúðarkofa og óeirðaseggir
létu greipar sópa um smáverslanir.
Um 30.000 lögreglumenn voru
sendir til Ayodhya í gærmorgun
til að koma þaðan um 50.000
hindúum sem voru byijaðir að
reisa bráðabirgðahof á rústum
moskunnar sem var rifin á sunnu-
dag. Hindúarnir veittu ekki mót-
spyrnu og fóru úr bænum. „Hvers
vegna ættum við að vera um
kjurrt," sagði einn þeirra. „Við
höfum lokið því sem við ætluðum
okkur.“
Lögreglan í Nýju Delhí handtók
tvo af leiðtogum flokks hindúa,
Bharatiya Janata-flokksins (BJP),
sem studdi áform um að reisa hof
til dýrðar hindúaguðinum Rama á
sama stað og moskan var á.
„Handtökurnar eru liður í þeim
ásetningi stjórnarinnar að refsa
þeim sem eru sekir um helgispjöll-
in í Ayodhya," sagði embættis-
maður í Nýju Delhí. Bharatiya
Janata-flokkurinn, sem er sá
næststærsti á Indlandi, hvatti Ind-
veija til að efna til verkfalls í dag
vegna handtöku leiðtoganna.
Leiðtogar Vishwa Hindu Paris-
had (VHP eða Heimsráðs hindúa),
sem stóð fyrir herferðinni gegn
moskunni, voru einnig handteknir.
Ashok Singhal, framkvæmdastjóri
VHP, sagði við fréttaritara Reut-
ers skömmu áður en hann var tek-
inn höndum að samtökin hefðu
ákveðið á sunnudag að fresta
byggingu hofsins og beðið hindú-
ana að fara frá Ayodhya. Hins
vegar yrði hafist handa við að
reisa hofíð um leið og óeirðunum
annars staðar á Indlandi linnti.
Stjórn Indlands hefur lofað að
endurreisa moskuna í Ayodhya en
leiðtogi BJP-flokksins í Bihar-ríki,
sagði að herskáir hindúar myndu
þá rífa hana aftur niður.
Dagblað í Bombay sagði að
árásin á moskuna hefði verið þaul-
skipulögð og 500 hindúar hefðu
verið í æfingabúðum í tvær vikur
á leynilegum stað til að undirbúa
hana.
Rúmlega 2.500 manns hafa
beðið bana í átökum milli hindúa
og múslima á Indlandi á undan-
förnum þremur árum.
ASBJORN OLAFSSON HF.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
UMBOÐSAÐILi Á ÍSLANDI FYRIR
LiAVS
Teg. PALMAS
Litur: Svartur
Teg. MONSUN
Litur: Svartur
Teg. PALM
Litur: Svartur
og vínrauður
Teg. KUX
Litur: Svartur
og vínrauður
Nýkomin sending
afLLOYD skóm.
Aldrei meira úrval
- yfir 50 tegundir.
Teg. KURIER
Litun Svartur
og vínrauður
Vérð kr.
9.700,-*
STEINAR WAAGE
s
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN
4A
SKOVERSLUN
SÍMI 18519 SiMI 689212
*Verð með 5% staðgreiðsluafslætti er kr. 9.215,- Póstsendum samdægurs.
&