Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 28

Morgunblaðið - 09.12.1992, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Vinnumiðlunarskrifstofan Tæplega 150 manns bæst við á atvinnu- leysisskrá á mánuði MUN FLEIRI voru á atvinnuleysisskrá á Akureyri um síðustu mánaða- mót en mánaðamótin þar á undan og hefur fjölgað á skránni um tæp- lega 150 manns. Það sem af er desembermánuði hafa nýskráningar verið töluverðar og eftir mætingu á Vinnumiðlunarskrifstofuna síðasta föstudag voru 412 nöfn á skránni. I lok nóvember voru 370 skráðir atvinnulausir á Akureyri, 232 karlar og 138 konur. Alls voru atvinnuleys- isdagar 6.511 í síðasta mánuði. At- vinnuleysisdagar í október voru 4.268 talsins, en í lok mánaðarins voru 224 á atvinnuleysisskrá, 113 karlar og 111 konur. í september og október var í gangi átaksverkefni í atvinnumálum og voru að jafnaði um 90 manns af atvinnuleysisskrá í vinnu við ýmis verkefni hjá bænum. Átaksverkefninu er nú lokið og hefur fólkið því aftur komið inn á atvinnu- leysisskrá. Á sama tíma á síðasta ári voru 203 skráðir atvinnulausir á Akur- eyri, 129 karlar og 74 konur. Stærsti hópur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá eru úr Verkalýðs- félaginu Einingu eða 151 samtals, þá eru 57 úr Félagi verslunar- og skrifstofufólks á skránni og 66 fé- lagsmenn úr Iðju, félagi iðnverka- fólks. Töluverð aukning hefur verið á milli mánaðamóta hvað iðnaðarmenn varðar, en í lok október voru t.d. 3 trésmiðir á atvinnuleysisskrá en eru nú 11, þá voru 10 sjómenn atvinnu- lausir í októberlok, en eru nú 22 og járniðnaðarmönnum hefur fjölgað úr 7 í 16 milli mánaðamóta. Hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni fengust þær upplýsingar að mikið hefði verið að gera við nýskráningar það sem af er þessum mánuði og voru 412 nöfn á skránni eftir mæt- ingu á skrifstofuna síðastliðinn föstudag. Hálfdán Kristjánsson bæjarstjóri í Ólafsfírði HÁLFDÁN Kristjánsson var ráðinn bæjarstjóri i Ólafsfirði á fundi bæjarstjómar Ólafsfjarðar í gær. Hann er viðskiptafræðingur, búsettur á Súðavík og rekur þar bókhaldsskrifstofu. Hálfdán hefur setið í hreppsnefnd Súðavíkurhrepps og verið þar sveitarstjóri og sparisjóðs- stjón. „Mér líst vel á að taka við störfum bæjarstjóra, þetta virðist spennandi verkefni og ég tel að sá ágreiningur sem þar hefur verið uppi hafi kristall- ast í einstaklingum sem ekki munu taka þátt í þessum málum lengur. Menn einbeita sér nú að þeim verk- efnum sem snúa að sveitarfélaginu Gítartónleikar í Akureyrarkirlgu í kvöld, miðvikudagskvöldið 9. desember kl. 20.30, heldur gítardeild Tónlistarskólans á Akureyri tónleika í Akureyrarkirkju. Markmið tónleik- anna er að kynna verk fyrir gítar eftir samtímatónskáld. Á tónleikun- um verður m.a. frumflutt verkið Haust eftir ungan nemenda deildar- innar, Magnús Torfa Magnússon. Það eru framhaldsnemendur gítar- deildar sem koma fram á tónleikun- um og er aðgangur að þeim ókeypis. (Fréttatilkynning) og um þau er eng- inn ágreiningur. Af viðræðum mínum við fólk í bænum, bæði úr meiri- og minnihluta, heyri ég ekki annað en fullur vilji sé fyrir því að vinna sam- an,“ sagði Hálfdán. Hálfdán sagðist Hálfdán hafa hrærst í sveit- Krlstjánsson arstjórnarmálum síðustu 15 ár.„Þau verkefni sem bíða mín eru af ann- arri stærðargráðu, en ég held það verði skemmtilegt að glíma við þau,“ sagði Hálfdán. Hann tekur við starfi bæjarstjóra í Ólafsfiði um áramót, en fram til þess tíma mun Kristinn Hreinsson bæjarritari gegna störfum bæjar- stjóra þar, en sem kunnugt er vék meirihluti bæjarstjórnar Bjarna Kr. Grímssyni frá störfum fyrir nokkru. Háldán er kvæntur Helgu Guð- jónsdóttur skólastjóra Grunnskólans í Súðavík og eiga þau þijú böm. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hekla Geirdal og Jóna Berta Jónsdóttir fulltrúar Mæðrastyrksnefndar tóku við hálfri milljón króna sem Lionsklúbburinn Hængur afhenti nefndinni í gær, en það gerðu þeir Gunnlaugur Björnsson, Guðjón H. Sigurðsson og Kristján Kristjánsson. Hængur afhendir Mæðrastyrksnefnd hálfa milljón króna Kemur sér vel því víða er þröngt í búi - segir Jóna Berta Jónsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar „VIÐ höfum aldrei áður fengið svo stóra gjöf, þetta er gullmoli og á eftir að koma sér ákaflega vel nú, því það er víða þröngt í búi,“ sagði Jóna Berta Jónsdóttir formaður-Mæðrastyrksnefndar, en Lionsklúbburinn Hængur á Akureyri afhenti nefndinni hálfa milljón króna í gær. Hængur sá um undirbúning og framkvæmd vegna þings Alþýðu- sambands íslands sem haldið var á Akureyri í lok nóvember og sagði Kristján Kristjánsson for- maður undirbúningsnefndar að í framhaldi af þeirri vinnu hefði verið ákveðið að afhenda Mæðra- styrksnefnd 500 þúsund krónur. „Áð okkar mati er málefnið gott, oft hefur verið þörf en nú er nauð- syn. Það leita margir til nefndar- innar og við vitum að þetta fé kemur sér í góðar þarfir," sagði Kristján. Jóna Berta sagði að nefndin gæfí matarpakka og eða fé til heimila, en á síðasta ári fékk Mæðrastyrksnefnd 58 beiðnir um aðstoð. „Ástandið var slæmt í fyrra, en ég held það sé mun verra nú, það kæmi mér ekki á óvart þó beiðnum fjölgaði um helming. Atvinnuleysi er mikið og margir með uppsagnarbréf upp á vas- ann.“ Mæðrastyrksnefnd hefur nú til umráða húsnæði við Gránufélags- götu 5 og þar verður opið frá kl. 16 til 19 fram undir jól, en fjöldi fólks og einnig fyrirtæki, m.a. fataverslanir í bænum, hafa gefið föt sem fólk getur fengið endur- gjaldslaust eða gréitt lága upp- hæð fyrir. „Viðbrögðin hafa verið mikil, síminn hefur varla þagnað," sagði Stella Jónsdóttir sem starfar með Jónu Bertu hjá Mæðrastyrks- nefnd. Hún sagði að margir ættu erfitt með að leita aðstoðar hjá nefndinni, en víða væru erfiðleik- amir svo miklir að fólk, sem áður hefði reynt að klóra í bakkann, hreinlega neyddist til að fá aðstoð nú fyrir jólin. „Umræðan hefur opnast, það er meiri skilningur fyrir hendi sem gerir að verkum að fólk lætur í sér heyra." Jóna Berta sagði að mest mæddi á bamafólki á þessum tíma, en annars væri um að ræða fólk á öllum aldri sem leitaði til nefndarinnar. „Við gleymum heldur ekki eldra fólki, í þeim hópi eru margir sem ekki biðja um aðstoð. Á síðasta ári færðum við eldra fólki örlítinn jólaglaðn- ing, kaffi og smákökur og það var afar þakklátt fyrir,“ sagði hún. Auk þess sem Hængur hefur fært nefndinni fé fær hún styrk frá ríki og bæ, fyrirtækjum og einstaklingum og þá má nefna að Orlofsnefnd húsmæðra hefur fært nefndinni fé, sem annars átti að nota til ferðalaga. „Þær hættu við að fara í ferðalagið og ákváðu að gefa peningana frekar til þessa málefnis vegna þess hvernig ástandið er,“ sagði Jóna Berta. „Við höfum ekki hugmynd um hversu margir munu leita til okk- ar fyrir þessi jól, en vonumst til að geta hjálpað öllum sem til okk- ar koma.“ Stjörnubíó Heimsforsýning á stórmynd STJÖRNUBÍÓ verður með heimsforsýningu stórmyndarinn- ar „A Few Good Men“ föstudag- inn 11. desember, en forsýning Aðventu- tónleikar á Akranesi HINIR árlegu aðventutónleikar Kirkjukórs Akraness verða haldn- ir á fimmtudag kl. 21 í Vinaminni. Gestur á tónleikunum verður Gunnar Kvaran sellóleikari. Ein- söngvari er Guðrún Ellertsdóttir og undirleik annast Fríða Lárusdóttir. verður samtímis í 30 löndum. Með aðalhlutverk fara Tom Cru- ise, Jack Nicholson, Demi Moore, Kevin Bacon og Kiefer Sutherland. „A Few Good Men“ er byggð á samnefndu leikriti Aarons Sorkins sem sýnt var við metaðsókn á Broadway í lengri tíma en dæmi eru til. Myndin segir frá tveimur, ungum sjólum sem ákærðir eru fyrir morð á félaga sínum. Sjóherinn tilnefnir ungan lögfræðing, J.G. Daniel sjó- liðsforingja, til að veija þá. Málið virðist liggja ljóst fyrir en ekki er þó allt sem sýnist. Málið verður æ dularfyllra og erfiðara viðfangs. Leikstjóri myndarinnar er Rob Einer (Misty, When Harry Met Sally og Stand By Me). Stórleikararnir Jack Nicholson og Tom Cruise leika saman í mynd- inni „A Few Good Men“. Kráartónlist í Gerðubergi ÚTGÁFUTÓNLEIKAR fyrir geisladiskinn sem inniheldur eingöngu frumsamda kráartónlist verður í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi fimmtudaginn 10. desember kl. 21. Þeir sem koma fram eru hljóm- Þessir aðilar gáfu út geisladiskinn Á sveitimar Papar, Sín, Snæfríður og kránni, sem kom út í haust. Stubbamir, Teningar og trúbadorinn (Fréttatíikynning) Guðmundur Rúnar Lúðvíksson. Jólafundur Slysavarna- deildar kvenna í Reykjavík JÓLAFUNDUR Slysavarnadeild- ar kvenna í Reykjavík verður haldinn fimmtudaginn 10. des- ember á Hótel íslandi og hefst kl. 20. Kaffiveitingar verða, skemmtiat- riði, söngur, jólahugvekja, happ- drætti, margir góðir munir og eru konur minntar á að koma með vinn- inga. Gestur fundarins verður forseti Slysavarnafélagsins, Einar Sig- uijónsson. Á fundinum verða seldir miðamir Gjöf á gjöf og ljós kvennadeildarinn- ar sem einnig verða til sölu í miðbæ Reykjavíkur þegar kveikt verður á jólatrénu á Austurvelli nk. sunnudag. Verð á ljósunum er 400 krónur. All- ur ágóði rennur til slysavarnamála. (Úr fréttatilkynningu.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.