Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 Minning Hallgrímur G. Björns- son, Hafnarfirði Fæddur 26. október 1908 Dáinn 2. desember 1992 Við viljum með nokkrum orðum minnast afa okkar, Hallgríms Ge- orgs Bjömssonar, eða Halla afa eins og við kölluðum hann alltaf. Hann lést í St. Jósefsspítala í Hafn- arfírði 2. desember eftir nokkurra mánaða veikindi. Hann hafði þó getað eins og hann helst vildi verið að mestu heima hjá ömmu, sem annaðist hann af einstakri kost- gæfni og vék varla frá honum síð- ustu mánuðina. Það er með fyrstu bemskuminn- ingum okkar er við fengum að fara í afavinnu, sem var fískverkun við Flatahraun því það var stutt frá heimili okkar og ekki jrfír umferðar- götu að fara. Þetta þótti okkur mjög gaman, enda fengum við að hjálpa til við vinnuna og jafnvel að fara með í Rauð gamla, sem var Intemational vömbíll árgerð ’46. Þegar kom að kaffítíma fengum við kaffí úr brúsanum hans og mola með. Oft sendi hann okkur með saltfísk heim í poka og það var ekki laust við að okkur þætti það óþarflega oft. Húsið seldi hann árið 1977 Hafnarfjarðarbæ og gengur það nú undir nafninu Hallgrímshús. Alltaf var heimili afa og ömmu okkur sem annað heimili enda ekki langt að fara. Og eftir að þau hættu að vinna úti mátti ganga að þeim vísum, ömmu í eldhúsinu og afa niður í kjallara, úti á lóð eða í bíl- skúrnum að huga að bílnum sem hann vildi alltaf hafa í góðu lagi, hreinan og fínan. Oft fómm við með afa þegar hann var eitthvað að gera svo sem í beijamó upp í Urriðakotsland eða í veiði í Kleifarvatn, sem var hans aðal áhugamál síðustu sumrin. Afí hafði alltaf mikinn áhuga á því sem við vomm að gera og spurði fram á síðasta dag mikið um skáta- og íþróttastarf, bílamál okkar, íbúðar- kaup og húsbyggingu. Alltaf var hann reiðubúinn að hjálpa til og mætti hann þá jafnan með gömlu verkfærin sín þar á meðal hamarinn góða sem var alltaf sá sami þó svo að hann væri búinn að skipta nokkr- um sinnum um haus og enn oftar um skaft. Nýtni og sjálfsbjargarvið- leitni var alltaf mikil og gerði hann yfírleitt allt sjálfur sem hann hafði tök á og lagði alltaf mikið upp úr að hafa nóg fyrir stafni. Þegar við svo fómm að koma með bamabamabömin í heimsókn var það afa og ömmu mikið gleði- efni, léku þau þá á als oddi og afí blístraði fyrir bömin á sinn sérstaka hátt. Við viljum sérstaklega þakka starfsfólki St. Jósefsspítala og heimahjúkmn aldraðra í Hafnar- fírði mjög góða umönnun og hlýtt viðmót í veikindum afa. Elsku amma, við biðjum Guð að styrkja þig I sorg þinni og söknuði. Grétar, Halli, Leifur og fjölskyldur. í dag verður Hallgrímur Georg Bjömsson jarðsunginn frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði. Hanng fékk hægt andlát í St. Jósefsspítala aðfaramótt miðvikudagsins 2. des- ember sl. eftir allnokkra baráttu við erfíðan sjúkdóm. En það var friður yfír honum þegar að var komið, snemma morguns í spítalan- um, friður hins kærleiksríka guðs, sem kallað hafði til sín enn eitt af bömum sínum. Minningamar hrannast að. Það var á haustmánuðum árið 1949 að ég hitti hann fyrst. Ég og dóttir hans, sem fóstmð var norður á Siglufirði, vomm heitbundin og við leituðum suður, eftir atvinnu og menntun. Halli og Magga hýstu okkur fyrstu vikumar í Hafnarfírði þar sem þau bjuggu þá og alla tíð síðan. Þar sem hjartarýmið er nóg, þar er ávallt nóg pláss. Þarna hófst fjölskyldusamband sem aldrei hefír borið skugga á í rúma fjóra ára- tugi, enda Magga og Halli bæði mikilhæfar kosta manneskjur. Hallgrímur var fæddur að Skarf- hóli í Miðfirði, Húnavatnssýslu. Foreldrar hans vom Bjöm Jónsson fyrmrn bóndi á Kollufossi í Miðfírði og síðari eiginkona hans Guðríður Einarsdóttir ættuð af Akranesi. Hann aldist upp í Huppahlíð í Mið- fírði til 12 ára aldurs, en fór þá að Reykjum í Hrútafírði og fóstraðist þar fram undir tvítugt. Á þessum tímum hófst lífisbaráttan snemma hjá mjög mörgum og svo var einnig hjá Hallgrími. Enda þótt hann væri gæddur frjóum eðlisgáfum, þá vom engir kostir til lengri skólamennt- unar. Hann þurfti að vinna fyrir sér frá unga aldri. Fyrst vom það al- menn sveitastörf af ýmsu tagi, en siðar lá leið hans til Siglufjarðar, sem þá var í öram vexti. Atvinna var þar meiri en víðast annars staðar, enda þótt hún væri árstíðabundin. Augu manna víða af landinu beindust því til Siglu- fjarðar um langt árabil í von um þátttöku í síldarævintýrinu og þeim óvenjúlegu tekjumöguleikum sem það bauð upp á. Hann ílentist á Siglufírði, stund- aði ýmis störf, vann að vélplæging- um á Hólstúni, en það hafði hann lært af norskum framherja, var við sjóróðra á vetmm, stundum við þriðja mann á eigin trillu, og við síldarsöltun á sumram. Síðar varð hann viðurkenndur verkstjóri við síldarsöltun, bæði norðan og sunnan lands. Hann öðlaðist alhliða físk- matsréttindi. Á Siglufírði kynntist hann ungri og efnilegri stúlku, Herdísi Láms- dóttur, þau giftu sig og áttu saman tvö börn, Ósk Pálínu Önnu og Guð- bjöm. Hallgrímur og Herdís slitu sam- vistir að nokkmm ámm liðnum. Herdís er látin fyrir alllöngu og Anna lést 1990. Hallgrímur flutti suður og settist að í Hafnarfirði. Þetta var í miðri síðari heimsstyijöldinni og setuliðið á íslandi stóð fyrir umtalsverðum framkvæmdum á suðvesturhorni landsins. Hallgrímur hóf að aka vörabíl, en síðar varð hann leigubif- reiðastjóri ámm saman. 9. desem- ber árið 1945 var mikill heilla- og hamingjudagur í lífi hans, en þann dag gifti hann sig öðm sinni, í þetta sinn gáfu- og mannkostakonunni Margréti Þorvaldsdóttur frá Jám- gerðarstöðum í Grindavík. Þau hafa búið í Hafnarfirði allar götur síðan og var heimili þeirra víðkunnugt fyrir gestrisni og velvild. Margrét og Hallgrímur áttu sam- an einkasoninn Þorvald Stefán, framkvæmdastjóra hjá Hellu hf. Frá Hallgrími er nú kominn mikill ættbogi bamabarna og þeirra bama, sem sómi er að. Hallgrímur var mikill öðlings- maður og hann lagði á margt gjörva hönd, lengi stundaði hann og fjöl- skyldan fiskverkun í Hafnarfírði og var framleiðsla þeirra vönduð og eftirsótt. Hann var framsýnn um margt og var meðal annarra í for- ystu um fiskiræktartilraunir, heil- um aldarfjórðungi á undan þeim sem hófust á sl. áratug. Hann var traustur og áreiðanleg- ur og eitt handsal frá honum var öraggara en margir skrifaðir samn- ingar síðari tíma. Hann var vinur vina sinna og mátti hvergi vamm sitt vita. Eins og ljóst má vera af háum aldri, þá lifði hann byltingarkennd- ar breytingar á lífshögum þjóðar- innar, frá allsleysi til afkomuörygg- is, frá einhæfu og tækjalausu at- vinnulífi til óhófstækja atvinnuveg- anna í dag. Öllu tók hann með jafn- aðargeði, fylgdist með og gladdist þegar vel gekk. Hann bar ávallt í bijósti sterkar og hlýjar tilfinningar til átthaganna í Húnavatnssýslu, þar sem fyrstu sporin lágu, en einnig og ekki síður til Siglufjarðar og Siglfirðinga, sem hann þekkti marga og að góðu einu. Ósjaldan vom norðlenskir sumar- blíðudagar umræðuefni okkar og þá var blik í auga. Síðustu árin var það honum sérstakt ánægjuefni að fara með veiðistöngina sína í nálæg vötn og renna fyrir silung. Slíkar ferðir urðu óþijótandi uppspretta gleðiríkra endurminninga sem oft var tæpt á. Nú er þeim ferðum lokið sem og öðm veraldarvafstri. Þess í stað hefir hanril agt upp í þá ferð sem okkur öllum er búin, fyrr eða síðar, til fundar við almáttugan skapara okkar á himnum. Megi hann hljóta guðs blessun % Um eilífð alla. Um leið og ég þakka fyrir traust hans og trúnað, svo og fyrir dýr- mæta samfylgd hans í á fímmta áratug, þá kveð ég hann hinstu kveðju með virðingu og færi Mar- gréti og öðrum ástvinum hans hug- heilar og hlýjar samúðarkveðjur mínar, dætra minna og fjölskyldna þeirra. Guð blessi og styrki ykkur öll. Hreinn Sumarliðason. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfír mér. Alltaf er sorglegt þegar góður vinur hverfur héðan á braut, en aldrei þó eins og þegar hátíð er í nánd, þegar gleði á að ríkja í hvetju húsi og fjölskyldur hittast til að gleðjast saman, en enginn veit sinn ævidag og við verðum að taka því sem á okkur er lagt, hversu erfítt sem það er. Minn kæri vinur Hallgrímur var kallaður héðan á braut 2. þessa mánaðar eftir að hafa barist hetju- lega við þann sjúkdóm sem þó yfír- vann hann að lokum. Ég kynntist Hallgrími fyrir fjór- um ámm er ég kom inn á heimili þeirra hjóna, Margrétar og hans og var strax tekið eins og dóttur. Það er yndislegt að fínna slíka ástúð og hlýju frá ókunnugu fólki, en ég var ekki ókunnug lengi á því heim- ili því þau opnuðu hjarta sitt fyrir mér eins og sinni eigin fjöiskyldu. Það var oft glatt á hjalla hjá þeim, við gátum talað saman um allt milli himins og jarðar. Hallgrímur var fróður maður og þekkti marga og við gátum oft borið saman bækur okkar þótt aldursmunurinn hafí verið mikill. Það er þó huggun í harmi okkar sem syrgjum hann að við vitum að honum líður vel núna. Elsku Margrét mín, megi Guð styrkja þig og fjölskyldu þína í sorg ykkar. ' Ykkar vinkona Inga Guðmundsdóttir Sævar sigraði óvænt í Búðardal Skák Margeir Pétursson FERTUGASTA helgarskák- mótið fór fram í Búðardal um síðustu helgi og úrslitin á þess- um tímamótum urðu ein þau óvæntustu í sögu helgarmót- anna. Sigurvegari varð Sævar Bjarnason, alþjóðlegur meist- ara, sem skaut miklu stigahærri skákmönnum ref fyrir rass, þeim Jóni L. Árnasyni, Helga Olafssyni, Hannesi Hlífari Stef- ánssyni og Karli Þorsteins. Auk þess sem mótið í Búðardal var 40. helgarskákmótið sem Tíma- ritið Skák hefur gengist fyrir var það 50. mót þess úti á lands- byggðinni á síðustu tólf árum. Eftir að þessum mikla móta- fjölda hefur verið náð vaknar sú spuming hvort Jóhann Þórir Jóns- son, útgefandi og ristjóri Skákar, treysti sér til að bæta ennþá fleir- um við. Sævar Bjamason var víðsfjarri sínu besta á alþjóðamótinu á ísafírði í síðasta mánuði, mátti sætta sig við að deila neðsta sæt- inu. Fyrir mótið í Búðardal hafði Sævar á orði að nú væri að duga eða drepast, hann yrði að sýna að hann kynni að tefla. Það tókst honum heldur betur, tveir mikil- vægir vamarsigrar gegn landsliðs- mönnunum Hannesi Hlífari og Helga Ólafssyni gerðu gæfumun- inn. Fyrir næstsíðustu umferðina vora þeir Sævar og Jón L. Áma- son jafnir og gerðu þá stutt inn- byrðis jafntefli. Stórmeistaramir tveir, Helgi og Jón L. áttu síðan eftir að mætast innbyrðis og gerðu jafntefli í baráttuskák á_ meðan Sævar vann Ásgeir Þór Ámason ömgglega og tryggði sér sigurinn. Úrslit: 1. Sævar Bjarnason 6 v. af 7 mögulegum 2—4. Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stef- ánsson 5Vi fv. 5—6. MChess tölvuforrit keyrt á Silicon Valley 486 tölvu og Dan Hansson 5 v. 7. Karl Þorsteins 4‘A v. 8—15. Ásgeir Þór 'Arnason, Sturla Pétursson, Grétar Áss Sigurðsson, Einar K. Einarsson, Gísli Gunnlaugsson, Haraldur Baldursson, Leifur Jósteinsson og Friðrik Jónsson 4 v. Unglingaverðlaunin þijú hlutu Sævar Bjarnason þeir Einar K. Einarsson, sem hlaut 4 v., Kjartan Guðmundsson með 3 v. og Róbert Rúnarsson með 2 V2 v. Verðlaunum fyrir bestan árang- ur heimamanna hlutu þeir Gísli Gunnlaugsson og Friðrik Jónsson sem máttu vel við una gegn öflugu innrásarliði. Þeir hlutu 4 v. og sömuleiðis Leifur Jósteinsson, en í hans hlut komu verðlaun fyrir bestan árangur dreifbýlismanns. Kolbrún Jónsdóttir hlaut kvenna- verðlaunin. Ný útgáfa af tölvuforritinu „MChess" kom til landsins rétt fyrir mótið og máttu aðstandendur þess vel við vinningatöluna una. Sterkustu keppendumir á mótinu reyndust samt algerir ofjarlar þess, þótt Hannes Hlífar hafí leik- ið vinningsstöðu klaufalega niður í jafntefli gegn því. Þetta forrit virðist ekki vemleg endurbót frá því sem Kjami hf. hefur sýnt und- anfama mánuði. Sævar Bjamason er 39 ára gamall, sérþjálfaður starfsmaður á Sogni, nýrri stofnun sem vistar geðsjúka afbrotamenn. Hann varð alþjóðlegur skákmeistari árið 1985 og sigraði á opna sænska meist- aramótinu 1990. Þrautseigja Sæv- ars í erfiðum stöðum gegn þeim Helga og Hannesi Hlífari færði honum efsta sætið. Við skulum líta á það hvemig Helga varð fót- askortur í sókninni. Þessi staða kom upp eftir langt þóf í miðtafli. Helgi ákvað hér að láta til skarar skríða: Svart: Helgi Ólafsson 38. — c4!? 39. dxc4 — bxa3 40. Bal - Bb3 41. Bh3! - Hxc4? Síðasti leikur hvíts gegndi mikilvægu hlutverki í baráttunni um c línuna, en nú leikur Helgi af sér skiptamun. Rétt var 41. — Bxc4 42. Df3 - Ha8 43. Hdc2 - Bb5 44. Hxc7 — Bxc7 og í þess- ari tvísýnu stöðu ættu möguleik- amir að vega nokkurn veginn jafnt. 42. Hbl! — a4 43. Bxc8 — Hxc8 44. Da6 - Hb8 45. Hcl Eftir að hafa unnið skiptamun- inn teflir Sævar af þrótti og klúðr- ar ekki vinningnum eins og oft hefur þó hent hann við slík tæki- færi. [(, 45. - f6 46. Hc6 - Db4 47. Bc3 - Dxe4 48. Hxb6 - Hd8 49. Hd6 - Hb8 50. Hd7 - Df5 51. Da7 og svartur gafst upp. Skákklúbbamót TR Iðnskólaklúbburinn sigraði { sveitakeppni sem Taflfélag Reykjavíkur hélt í nóvember fyrir skákklúbba sem tefla í heimahús- um eða á vinnustöðum. Nítján klúbbar mættu til leiks og þátttak- endur vora alls tæplega eitthundr- að talsins. Ýmsir rótgrónir klúbbar gátu þó ekki stillt upp liði föstu- dagskvöldið sem mótið fór fram. Sigur Iðnskólamanna kom ekki á óvart, en í fjórðu umferð töpuðu þeir óvænt 0—4 fyrir ungri sveit, BDTR. Þá bitu þeir í skjaldarrend- ur og náðu hvorki meira né minna en 18 vinninga úr síðustu 20 skák- unum á meðan BDTR slakaði á klónni. Sveitirnar voru jafnar fyrir síðustu umferð en þá hélt „Graup- an“ óvænt jafntefli við BDTR. Tefldar voru níu umferðir og um- hugsunartíminn var tíu mínútur á skákina. Úrslit: 1. Iðnskólaklúbburinn (Ingvar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.