Morgunblaðið - 09.12.1992, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992
>,[>ú -feré enn. upp cLgangstétL L beygjum."
Bjáni! Þetta er ekki sumar-
tískan. Hún er ekki
klædd...
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reylqavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Þeir sem aldrei þekktu ráð,
þeir eiga að bjarga heiminum
Frá Frá Njáli Benediktssyni
Nú hefur utanríkisráðuneytið með
rugguhestinn Jón Baldvin Hannib-
alsson í ráðherrastóli tekið þá
ákvörðun að taka einkaleyfíssölu
á saltfíski af SÍF og gefa það allt
frjálst eftir áramót. Eg hugsa til
þess með hryllingi, SÍF hefur
hannað verulega gott sölukerfí
með gæðaeftirliti sem neysluþjóð-
irnar hafa kunnað vel að meta.
Nú á að eyðileggja þeirra störf sem
þeir hafa unnið að í 60 ár, já því-
líkir spekóar! Eru allir ^búnir að
gleyma kreppuárunum. Arið 1931
þegar saltfískurinn okkar féll í
verði um meira en helming á einu
ári. Astæðan fyrir þeirri verðlækk-
un var sú að það voru margir að
selja sama fískinn. Kaupendur
héldu að það væri svo mikill fískur
á íslandi og þeir biðu eftir lækk-
un. Á þessum árum var allur salt-
fiskur seldur sólþuirkaður til Port-
úgal, Spánar og Ítalíu. Það var
alltaf talað um skippund, það voru
329 pund í skippundi eða 160 kg.
Um sumarið árið 1931 varþetta
skippund selt á 72 kr. en um haust-
ið á sama ári var það komið í 32
kr. skippundið. Það er upp úr þess-
um jarðvegi sem Sölusamband ís-
lenskra fískframleiðenda var
stofnað árið 1932. Það voru synir
Thors Jensens ásamt fleiri heið-
ursmönnum sem stofnuðu SÍF,
þessir menn þekktu það manna
best hvaða voði það var, að marg-
ir voru að selja sama fískinn. Þess
vegna fór SIF fram á einkasölu á
saltfíski sem þeir og fengu og
hafa haft að mestu leyti í 60 ár.
Nú hafa nokkrir misvitrir menn
ákveðið að leggja þetta gamla
kerfí niður, sem flestir eru þó
ánægðir með. Hvað er til ráða,
hvað segja bankarnir, eru þeir til-
búnir að leyfa allskonar ævintýra-
mönnum að flytja út veðsettan
físk? Ég held ekki. Hvar eru Matt-
hías Bjamason eða Eyjólfur Kon-
ráð Jónsson, getur ekki Eyjólfur
Konráð talað við Davíð Oddsson
og hann fengið Jón Baldvin til að
hætta við þessi mistök, svo ekki
sé meira sagt. Ef Davíð frænda
tækist að sansa Jón Baldvin þá
mundi hann fá tvo silkiborða í
fallega hárið sitt frá Sigmund.
NJÁLL BENEDIKTSSON,
Garðbraut 84,
Garði.
HEILRÆÐI
Við jólabaksturinn og matseldina verður að gæta þess
vel að hrærivélin sé ekki í gangi, þurfi að bregða sér frá.
Börn geta sem best klifrað upp á eldhúskollinn og fest litl-
ar hendur í þessum heimilistækjum. Sýnið varkámi. Njótum
undirbúnings jólanna með slysalausum dögum.
RAUÐI
KROSS
ÍSLANDS
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkveiji skrifar
að fór ekkert á milli máia í
ofsarokinu og rigningunni í
henni Reykjavík í gærmorgun,
hversu mikla birtu íbúar suðvestur-
hornsins hafa fengið af snjófölinu
sem legið hefur yfír borginni að
undanfömu. Birtu sem hefur gert
skammdegið heldur bjartara en ella.
Þegar flestir settu höfuðið undir sig
í gærmorgun, og börðust gegn roki
og rigningu ýmist að bílum sínum
eða að næsta biðskýli strætisvagn-
anna var snjórinn allur á bak og
burt og myrkrið hreint ótrúlegt og
skammdegið í öllu sínu veldi. Það
er einkennilegt að hugsa til þess
að daginn á enn eftir að stytta í
11 daga áður en hann tekur að
lengja á ný. Víkveiji vonar að hlý-
indakastið frá í gær vari ekki lengi
og snjórinn lýsi upp skammdegið á
ný, þannig að landsmenn fái hvít'
jól en ekki rauð.
XXX
Skólar landsins, og þá einkum
grunnskólar hafa nú hafið
jólaundirbúninginn af fullum krafti.
Flest bömin taka svonefnd jólapróf
nú fyrir jólin, sem eru þá haustann-
arpróf og að þeim loknum verða
jólaskemmtanir, áður en ungviðið
er sent heim í jólafrí. Ýmsir skól-
anna gangast fyrir sameiginlegum
jólaföndurdegi annan sunnudag í
aðventu, þar sem börnin geta mætt
í skólana ásamt foreldrum sínum
og föndrað jólaskraut og fengið við
slíkt aðstoð kennaranna, því það
eru ekki bara bömin í mörgum til-
vikum sem þurfa á leiðbeiningum
að halda - oft era það ekki síður
foreldramir. Þetta er skemmtilegur
háttur og augljóslega vinsæll að
minnsta kosti í ákveðnum skólum.
Víkveiji getur þó ekki að sér gert
að gagnrýna einn þáttinn, en það
er verðlagning skólanna á föndur-
dótinu, sem er gjörsamlega úr öllu
samhengi við efniskostnað. Það á
ekki að gera svona starfsemi að
fjárplógsstarfsemi fyrir skólana,
eða félagslíf í skólunum. Nú veit
Víkveiji ekki hvemig þeim digru
sjóðum er varið, sem safnast með
þessum hætti, enda telur hann það
aukaatriði. Það er á engan hátt
hægt að verja það að pappírsræma
í litum, eldspýtustokkur og nokkur
bönd, séu verðlögð á 250 krónur,
eða að rauður pappi og hvítur,
ásamt einhveijum bómullarhnoðr-
um, þ.e.a.s. það hráefni sem ætlað
er í framleiðslu eins jólasveins, sé
selt á 350 krónur. Þetta er ekkert
annað en okur og þorri foreldra,
sem gjaman vill taka þátt í jólaund-
irbúningnum með bömum sínum á
þennan hátt hefur allt annað og
betra við peningana að gera í jóla-
mánuðinum, en að eyða stórum
fúlgum í pappírsdót og efnisræmur,
sem síðan verður svo hent strax
hinn 6. janúar næstkomandi. Þeir
sem standa fyrir slíkri starfsemi í
skólunum ættu að hafa það hug-
fast, að það er miklu vænlegra til
jákvæðs árangurs í samstarfí skól-
anna og heimilanna, að skólarnir
reyni nú ekki að nota foreldrana
sem aukatekjulind við tækifæri sem
þetta.