Morgunblaðið - 09.12.1992, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
MIÐVIKUDAGUR ;9. DESEMBER 1992
FOLX
■ BERGLIND Pétursdóttir, Ásta
Isberg og Aslaug Oskarsdóttir,
alþjóðadómarar í fimleikum, tóku
dómarapróf í kvennagreinum _og
sóttu námskeið fyrir hönd FSÍ í
Frakklandi í síðasta mánuði. Nám-
skeiðið stóð yfir í 10 daga.
■ EFTIR hverja ólympíuleika
brytast skyiduæfingar í fímleikum
samkvæmt reglum Alþjóða fímleika-
sambandsins, FIG. Af þessum sökum
þurfa alþjóðadómarar að sækja
skyldunámskeið og gangast undir
pýtt próf fjórða hvert ár.
■ JÓNAS Tryggvason sækir
samskonar dómaranámskeið_ í
karlagreinunum á vegum FSÍ og
stendur það nú yfír í Englandi.
■ GEIR Sveinsson, fyrirliði hand-
knattleikslandsliðsins og leikmaður
með Val, hefur verið útnefndur
handknattleiksmaður ársins af HSÍ.
■ BRODDI Kristjánsson, badmin-
tonkappi úr TBR, hefur verið út-
nefndur badmintonmaður ársins af
stjórn BSÍ.
■ ÓLAFUR Jóhannesson hefur
verið ráðinn þjálfari 3. deildarliðs
Hauka í knattspyrnu, en Ólafur hóf
knattspymuferil sinn hjá félaginu.
Hann þjálfaði Þrótt R. sl. keppnis-
. t'mabil, en þar áður var hann þjálfari
FH.
■ ROBERTO Baggio, leikstjóm-
andi hjá Juventus, verður frá keppni
í þtjár vikur eftir að hann fékk högg
á rifbein. Baggio leikur ekki með
Juventus gegn Sigma í UEFA-
keppninni í kvöld.
■ KOMBOUARE, sem kom inná
sem varamaður hjá París St.
Germain, skoraði jöfnunarmark fé-
lagsins, 1:1, gegn Anderlecht í
Briissel með skalla og tryggði félaga
sínu rétt til að leika í 8-liða úrslitum.
H ANDREAS Brehme skoraði sig-
urmark Zaragoza gegn Dortmund,
2:1, eftir venjulegan leiktíma, en
markið dugði ekki til að senda landa
hans út úr UEFA-keppninni, þar sem
Dortmund vann fyrri leikinn, 3:1.
FELAGSLIF
Opið hús hjá GR
Golfklúbbur Reykjavíkur verður með opið
hús i golfskála sínum í Grafarholti á sunnu-
daginn milli kl. 13 og 18. Þar getur fólk
komið og fengið sér kaffisopa, föndrað fyr-
ir jólin og golfverslunin verður opinn.
Á morgun, fimmtudag, verður aðalfundur
GR haldinn í golkfskálanum og hefst hann
kl. 20.
Aðalfundur Hauka
Aðalfundur Hauka, sem vera átti í kvöld,
hefur verið frestað þar til annað kvöid kl.
20. Fundurinn verður í Haukahúsinu við
Flatahraun.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Hlíðarendi: Valur - Haukar.... ...kl. 20
Kaplakriki: FH-ÍBV ...,kl. 20
1. deild kvenna:
Strandg.: Haukar-Vík ,...kl. 20
Eyjar: IBV - Grótta ...,kl. 20
Garðabær. Stjaman - Valur... kl.20
2. deild karla:
Seltj’nes: Grótta - Ármann ,...kl. 20
HANDKNATTLEIKUR
Umma a^l,, 1M _ ■ jL Ul/
nðns fekur vio HK
Hans Guðmundsson, leikmaður
HK, hefur tekið við þjálfun
HK-liðsins af Eyjólfí Bragasyni,
sem hætti störfum eftir síðustu
umferð. „Ég mun stjóma liðinu í
næstu tveimur leikjum og ef vel
gengur er vel hugsanlegt að ég
verði áfram með liðið,“ sagði
Hans við Morgunblaðið.
Hans sagði að það legðist vel
í sig að taka við HK. En ætlar
hann að gera einhveijar breyting-
ar? „Já, það verða breytingar
bæði á leikskipulagi og byijunar-
liði. Við erum með góða einstak-
linga í öllum stöðum en þa_ð hefur
vantað meiri samæfingu. Ég ætla
að reyna að ná upp leikgleði hjá
leikmönnum inná vellinum og að
menn spili sem liðsheild en ekki
sem einstaklingar," sagði Hans.
HK leikur á morgun við Stjöm-
una og það verður prófraunin hjá
Hans. „Þetta verður erfíður leikur
eins og reyndar allir leikir í deild-
inni. Það eru enn 20 stig eftir í
pottinum og ég held að 17 eða
18 stig dugi til að komast i úrslita-
keppnina. Við erum með góða vél
en það hefur vantað smurolíuna
hingað til,“ sagði Hans.
• HK-menn ræddu við Viggó Sig-
urðsson um að hann tæki að sér
þjálfun liðsins eftir að Eyjólfur
hætti, en Viggó sagðist ekki hafa
áhuga á þjálfun í bili. HK er í
þriðja neðsta sæti með 7 stig úr
12 leikjum.
Hans Guðmundsson.
IÞROTTIR FATLAÐRA
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Elríksson var útnefndur íþróttamaður ársins hjá fötluðum.
KNATTSPYRNA / SVISS
50 millj. kr. tap
hjá Grasshopper
Komst ekki í úrslitakeppnina ítyrsta sinn
Sigurður Grétarsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, sat á bekknum hjá Grass-
hopper, þegar liðið tapaði 2:1 fyrir
Young Boys í svissnesku 1. deild-
inni. Þetta var síðasta umferðin, en
tapið gerði það að verkum að Grass-
hopper komst ekki í úrslitakeppnina
í fyrsta sinn. Átta efstu liðin leika
um titilinn, en Grasshopper varð í
níunda sæti og verður að sætts síg
við að leika um sæti í deildinni.
Þetta er mikið áfall fyrir félagið
og sagði Sigurður að það tapaði
um 50 milljónum ÍSK á því að kom-
ast ekki í úrslitakeppnina. „Við
höfum verið í bölvuðu basli og þetta
er árangurinn. Svo getur farið að
félagið neyðist til að selja einhveija
leikmenn og auk þess bitnar þetta
á svissneska' landsliðinu, því við
erum með marga landsliðsmenn."
Leikmenn Grasshopper fá frí til
30. desember, en þá hefst undirbún-
ingurinn fyrir keppnina í mars. Lið-
ið tekur m.a. þátt í þremur innan-
hússmótum eftir áramót og fer í nær
tveggja vikna æfíngabúðir til Dubai.
HANDKNATTLEIKUR
Þrír íslendingar í heims-
liðinu f París og Sarbriicken
Þrír landsliðsmenn íslands
leika með heimsliðinu í
handknattleik í París og Saar-
brúcken ( næstu viku. Það eru
félagamir úr Val - Valdimar
Grímsson, Geir Sveinsson og Júl-
íus Jónasson, sem leikur nú með
París St. Germain.
Júlíus var valinn (liðið þar sem
Svíinn Magnus Wislander get ekki
leikið. Heimsliðið leikur fyrst gegn
franska landsliðinu í París á
þriðjudag og rennur ágóði leiksins
til styrktar baráttu gegn alnæmi
í Frakklandi. Á miðvikudag verð-
ur leikið í Saarbrucken, en þar
er verið að vígja Jockim Deckarm-
íþróttahöllina.
Þá má geta þess að Geir, Valdi-
mar og Guðmundur Hrafnkelsson
hafa verið valdir í Evrópuúrvalið,
sem leikur gegn Austurríki ( Vín
3. janúar, en leikurinn fer fram í
tilefni þess að þar verður skrif-
stofa Evrópusambandsins tekin í
notkun.
Ólafur kjör-
inn bestur
ÓLAFUR Eirfksson, sundmaður
úr íþróttafélagi fatlaðra í
Reykjavík, var í gær tilnefndur
íþróttamaður ársins 1992 úr
röðum fatlaðra íþróttamanna.
^g er auðvitað í sjöunda himni,
sérstaklega þegar haft er í
huga árangur þroskaheftra og
hreyfíhamlaðra íþróttamanna á ár-
inu,“ sagði hinn nítján ára gamli
íþróttamaður fatlaðra við Morgun-
blaðið eftir útnefninguna.
„í mínum augum er þetta næst
mesti heiður sem íþróttamanni getur
hlotnast, að vera kjörinn íþróttamað-
ur síns sérsambands. Mesti heiður-
inn er auðvitað að vera kjörinn
íþróttamaður ársins hjá íþrótta-
fréttamönnum. Auðvitað vonaðist ég
eftir því að vera tilnefndur og -er
sérstaklega ánægður með að verða
fyrir valinu þar sem Sigrún Huld
[Hrafnsdóttir] náði svo frábærum
árangri í sumar og eflaust hefðu
margir frekar kosið hana. Hún er
frábær íþróttamaður og heiðurinn því
enn meiri fyrir mig,“ sagði Ólafur.
Ólafur byijaði að æfa sund árið
1984 hjá Iþróttafélagi fatlaðra og
æfði þrisvar í viku fram til ársins
1987 að hann fór að æfa oftar. „Það
fer mikill tími í þetta og í fyrra varð
ég til dæmis að hætta að vinna til
að geta æft eins og ég vildi. Ég æfí
aldrei sjaldnar en sex sinnum í viku
og allt upp í fímmtán sinnum í viku.
Ég er að vonast til að ljúka stúdents-
prófi frá MR í vor en sundið hefur
farið ágætlega saman við námið.“
Á árinu sem er að Iíða tók Ólafur
þátt í fjölmörgum sundmótum hér á
landi sem erlendis og náði góðum
árangri. Bestum árangri náði hann
á Ólympíumóti fatlaðara í Barcelona
í september þar sem hann setti
heimsmet í 100 metra flugsundi
(1:04.56), ólympíumótsmet í 400
metra skriðsundi (4:41.07) auk þess
sem hann hlaut tvenn bronsverðlaun.
Ólafur fæddist með hnjálið og
mjaðmarlið hægri fótar samvaxna
upp í mjöðm. Hægri fótleggur nær
sem nemur niður að hné á vinstra
fæti hans og því hefur hann þurft
að nota gervifót frá rúmlega eins
árs aldri.
í hófí sem íþróttasamband fatl-
aðra hélt að Hótel Sögu í gær var
Sigrún Huld Hákonardóttir sérstak-
lega heiðruð fyrir árangur sinn á
árinu.
AGANEFND HSI
Jón Logason í
sex mánaða bann
Jón Logason, leikmaður hand-
knattleiksliðs ÍBV, var úrskurð-
aður í sex mánaða keppnisbann á
fundi aganefndar HSÍ í gær. Eins
og komið hefur fram gekk Jón í
skrokk á leikmönnum Vals eftir
leik liðanna í 1. deild karla 2. des;
ember síðastliðinn. Aganefnd HSÍ
telur hegðun Jóns mjög grófa og
óíþróttamannsléga gagnvart leik-
mönnum.
Valur kærði umrætt atvik til HSÍ
og fór jafnframt fram á að leikur
liðanna í 8-liða úrslitum bikar-
keppninnar á laugardaginn færi
fram á hlutlausum velli. Aganefnd
HSÍ ákvað hins vegar að leikurinn
færi fram í Vestmannaeyjum eins
og áður hafði verið ákveðið.
KNATTSPYRNA
Brasilíumenn kalla
á leikmenn heim
|ario Zagola, landsliðsþjálfari
Brasilíu, hefur kallað á stór-
an hóp leikmanna sem leika með
liðum í Evrópu, fyrir leik Brasilíu-
manna og Þjóðveija í Rió 16. des-
ember. Þá hefur hann einnig valið
gamla kappann Junior, 38 ára, í
landsliðshóp sinn, sem er þannig
skipaður:
Markverðir: Taffarel (Parma), Gilmar (Fla-
mengo).
Varnarmenn: Jorginho (Bayern Múnchen),
Luis Carlos Winck (Vasco da Gama), Aldair
(Roma), Celio Silva (Internacional/Porto
Álegre), Ricardo Gomes (París St. Germain),
Pauiao (Gremio), Branco (Genúa), Leonardo
(Valencia).
Miðvallarleikmenn: Dunga (Pescara), Mauro
Silva (Deportivo Coruna), Luis Henrique (Món-
akó), Junior (Flamengo), Silas (Intemaciona-
1/Porto Alegre), Zinho (Palmeiras).
Sóknarleikmenn: Edmundo (Vasco da
Gama), Renato (Cruzeiro), Careca (Napolí),
Romario (PSV Eindhoven), Bebeto (Deportivo
Coruna), Paulo Sergio (Corinthians).
i
Í
í
i
i
i