Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.12.1992, Blaðsíða 48
Gæfan fylgi þér í umferðinni 'áIíM SJOVAOPALMENNAR EININGABRÉF 2 E ignarskattsfrjáls Raunávöxtun sl. 12 mánuði 8% ö KAUPÞING HF l/Sggftt verðbtfafyrirtatí MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTJ 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Fleiri skráð- ir í sambúð TILK YNNIN GUM til Hagstofu Islands um sambúð fólks hefur fjölgað mikið að undanförnu. Að sögn Hallgríms Snorrasonar hag- stofustjóra höfðu borist alls 1.800 tilkynningar í lok nóvember sam- anborið við um 1.400 á öllu síð- asta ári og um 900 árið 1990. Hallgrímur sagði að ástæður þess- arar aukningar væru nokkrar. Um mitt þetta ár hefði verið gerð breyt- ing á skráningu nýfæddra barna sem hefði valdið nokkurri aukningu sam- búðarskráninga en börn kvenna sem ekki eru giftar eða í skráðri sambúð eru kennd til mæðra sinna þar til feðrun hefur átt sér stað og er sam- búðarskráning því ein leið til að feðra börn. Hallgrímur sagði að einnig mætti gera ráð fyrir að umræðan að undanförnu um réttindi og skyld- ur einstæðra foreldra og sambúðar- fólks hefði ýtt við mörgum. Bömin á Ægisborg voru önnum kafin við fönd- ur, þegar Ijósmyndara bar þar að í gær. Þau Jólaföndur á Ægisborg máluðu stórar og fallegar myndir og hver veit | nema afi og amma fái þær í jólapakkanum. Á I Morgunblaðið/Kristinn myndinni eru Benjamín, Hildur Helga, Gunnar og Lena einbeitt við listsköpunina. Breytingar til hagræðingar gerðar á útgerð Hjálms hf. á Flateyri Gyllir með 1000 tonna kvóta seldur til Síldarvinnslunnar Hjálmur hefur þegar samið um kaup á 176 tonna línubát, Val frá Stöðvarfirði STJÓRN Hjálms hf. á Flateyri og Útgerðarfélags Flateyrar hf. hefur ákveðið að selja togarann Gylli frá staðnum, að sögn Gunn- iaugs Kristjánssonar stjórnarformanns. Gyllir er eini togarinn sem gerður er út frá Flateyri. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað kaupandi Gyllis, en ekki feng- ust í gærkveldi staðfestar upplýsingar um hvert kaupverðið er. Hjálmur hf. hefur samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins þegar samið um kaup á 176 lesta línubát, Val, af Gunnarstindi á Stöðvar- firði. Að sögn Einars Odds Kristjánssonar framkvæmdastjóra Hjálms er í athugun að breyta útgerðarháttum fyrirtækisins til að búa til hagstæðari rekstrareiningar, og er ætlunin að hefja vinnslu skelfisks og sagði hann að einnig væri verið að skoða möguleika á línuútgerð. Sagði Einar að þeir gripu til þessara ráða að eigin frumkvæði en ekki vegna utanaðkomandi þrýstings og að skuldastaða Hjálms væri ekki tiltakanlega slæm. ___Gunnlaugur sagði að það væri markmið samhliða breytingunum að ekki þyrfti að segja upp heima- mönnum sem störfuðu hjá fyrir- tækinu. Hins vegar þyrfti að fækka' aðkomumönnum en alls starfa milli 30 og 40 aðkomumenn við fisk- vinnslu hjá Hjálmi hf. Þórshamar með 4.0001 af sfld SÍLDARBÁTURINN Þórsham- ar GK hefur landað rúmlega ^0)00 tonnum af síld á vertíð- inni. Þórshamar kemur reglulega með hæfilegan skammt til sólar- hringsvinnslu. í frystihúsi Sfldar- vinnslunnar er byijað í sfldinni klukkan fjögur á morgnana og unnið til miðnættis á tveimur vöktum. f Sjá nánar í Úr verinu Helmingur af um 2.000 þorsk- ígildistonnum togarans verður eftir hjá fýrirtækinu við söluna. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur Hjálmur hf. þegar samið um kaup á vélbátnum Val frá Gunn- arstindi á Stöðvarfirði, sem er yfir- byggður 176 lesta línubátur. Ætl- un Hjálms hf. mun vera að hann ásamt þeim þremur línubátum sem fyrir eru á Flateyri sæki þau 1000 þorskígildistonn úr sjó, sem eftir verða hjá fyrirtækinu við sölu Gyll- is. Að auki mun Hjálmur gera út skelfiskskipið Æsu sem keypt var í sumar. Einar Oddur sagði að megin- atriði breytinganna væru að ein- ingar fyrirtækisins yrðu rekstrar- hæfar og að tryggja næga atvinnu á staðnum. Sagðist hann ekki eiga von á öðru en það tækist með þess- um aðgerðum. „Við erum síður en svo hættir að gera út og erum að velta fyrir okkur hvort við getum breytt rekstrinum og tryggt um leið næga atvinnu og ég trúi því að það sé framkvæmanlegt," sagði Einar. „Við stöndum ekki tiltakanlega illa skuldalega séð en hitt er annað mál að afkomumöguleikar sjáv- arútvegsins og afli hafa dregist saman og sjávarútvegsfyrirtæki eru í miklu þrengri stöðu en þau voru,“ sagði hann ennfremur en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið að svo stöddu. DAGAR TIL JÓLA * Islendingur skotfimastur LÖGREGLUMAÐUR úr sér- sveit lögreglunnar í Reykjavík, víkingasveitinni, bar sigur úr být- um í skotkeppni í Hollandi nýver- ið. í keppninni tóku þátt meðlimir víkingasveita hers og lögreglu víða að, m.a. víkingasveitarmenn nokk- urra höfuðborga í Evrópu og úr bandaríska herliðinu í Þýskalandi. 10 af 22 vörutegundum eru dýrastar á Islandi ÍSLAND er langdýrasta landið í könnun á verði algengra neyzluvara í þrettán löndum viða um heim, sem brezka fyrirtækið Inter- national Information Service (IIS) gerði í september síðastliðnum. Af 22 vörutegund- um, sem verð var kannað á, voru tíu dýrast- ar á íslandi og fjórar næstdýrastar. Aðeins tvær vörur voru undir meðalverði. IIS kannaði verð á vörum í níu Evrópulönd- um, Bandaríkjunum, Ástralíu, Indlandi og Mex- íkó. Könnunin náði til sömu vörumerkja og sama vörumagns. Innkaupakarfa með vörunum 22 reyndist langdýrust á íslandi. Karfan kostar hér 7.737 kr. (miðað við verð og gengi í septem- ber), er meira en 40% dýrari en í Belgíu, þar sem hún er næstdýrust, og í kringum 80% dýr- ari en í EB-löndunum Þýzkalandi, Frakklandi, Spáni, Hollandi, Ítalíu og Bretlandi. Þær vörur, sem eru dýrastar hér á landi, eru Mars-súkkulaði, egg, Coca-Cola, bananar, ný- mjólk, Marlboro-sígarettur, tvöfaldur hamborg- ari, bjór, Bacardi-romm og hreinsun á jakkaföt- um. í sumum tilvikum er verðmunurinn gífurleg- ur, til dæmis kostar tvöfaldur hamborgari hér 490 kr. en 205 kr. í Frakklandi, þar sem hann er næstdýrastur. Könnunin náði ekki til annarra Norðurlanda. Guðmundur Sigurðsson, yfíiyiðskiptafræðingur Verðlagsstofnunar, segir að íslendingar hafi oft verið með efstu þjóðum í samanburði við hin Norðurlöndin og komi þessi niðurstaða því ekki á óvart. í vor var borið saman verð 35 vöru- merkja á íslandi og í 8 Evrópulöndum, þar á meðal Norðurlöndunum, og var hæsta verðið í sextán tilvikum á íslandi í þeirri könnun. Sjá miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.