Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 2

Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 2
rú Guðrún er vel búin, í úlpu og silkifóðruð- um leður- buxum, og á fótum hefur hún svarta leðurskó. Önnur höndin er umbúð- um vafin því hún handleggsbrotn- aði fyrir nokkrum vikum þegar hún var að bera út póstinn og er reynd- ar nýkomin til starfa aftur eftir óhappið. Hún segir að draugur á lóð Guðjóns heitins Samúelssonar hafí brugðið fyrir sig fæti. Fær sér svo hálstöflu, kvartar yfír kvef- skratta sem hún hafí fengið aldrei þessu vant og drepur í sígarettu áður en útburðurinn hefst. - Er ekki slæmt að reykja þeg- ar fólk þarf að ganga svona mikið? spyr ég. „Eg reyki hálfan annan pakka á dag, Pall Mall fílterslausar og extra long; og drekk fímmtíu bolla af kaffi á dag. Ég á að vera dauð fyrir löngu,“ segir hún umbúða- laust. „Það er verst að þessi tegund fæst ekki nema í einni búð í bæn- um. Það er verið að tala um frelsi og engin versiunarhöft, en ég hef ekkert frelsi í þessum efnum. Það fyrsta sem hann Höskuldur í ÁTVR gerði þegar hann var orðinn einka- sölustjóri var að taka þessa tegund af markaðinum. Ég hringdi í hann og sagði að þetta væri svívirða. Ég skal sjá hvað ég get gert, sagði hann, sérpantaði svo þessar sígar- ettur fyrir mig, en setti þær aðeins í eina búð og bætti hvorki meira né minna en 50 krónum ofan á hvem pakka. Mér fínnst ég illa svikin." VIÐ TUGTHÚSIÐ „Langafí minn bjó hér, bærinn hét Miðbýli,“ segir hún og bendir á hornhúsið hægra megin, neðst á Skólavörðustíg. Segir mér svo að elta sig inn í bakgarð. Ég spyr hvort hún láti gönguna í vinmmni nægja, eða hvort hún hreyfi sig eitthvað í frístundum? „Ég geng ekki kauplaust," segir hún vinsamlega. Við göngum yfír götuna, förum úr einni verslun í aðra og alls stað- ar spyija verslunarmenn hvernig hún sé í hendinni, skoða hana jafn- vel og athuga, og Guðrún hvíslar afsakandi þegar út er komið: „Maður verður að ræða brotið í hveijum krók.“ í einni versluninni er hún boðin velkomin til vinnu á nýjan leik, samræður eru fjörugar og versl- unarkonan segir þá sögu af Guð- rúnu, að hún hafí komið einn daginn fyrir nokkrum árum, litið í kringum sig í versluninni og sagt: „Mikið voðalega er þetta ljótt hjá ykícur, ekki get ég skilið að nokkur maður vilji kaupa þetta.“ Versl- unarkonan segist ekkert hafa tekið þessi ummæli nærri sér og hlær hjartanlega þegar hún riíjar þau upp. Guðrún verður hins vegar undirleit og skipar mér að elta sig yfir í tugthúsið. Bréfín fara einkennilega leið inn í betrunarhúsið á Skólavörðustígn- um, hvorki í gegnum lúgu né inn um dyr, heldur opnar bréfberinn einn gluggann og paufast þar um stund með póstinn. „Skýr fyrir- mæli að setja þóstinn inn hér,“ segir hún ábúðamikil. „Það má ekki opna dymar, þeir gætu slopp- ið út.“ ÞRJÓSKOG ERFIÐ Ferill Guðrúnar sem bréfbera hófst fyrir tuttugu árum á Berg- staðastrætinu þar sem hún bar út í tíu ár. Þá tók hún að sér að bera út stjórnarráðspóstinn um tíma vegna forfalla starfsbróður, og í framhaldi af því fór hún að flokka póst inni á póstmiðstöð. , „Ég var flutt nauðungarflutn- ingum upp á póstmiðstöð því eng- inn annar gat tekið að sér flokkun á svipstundu. Þaðan var ég síðan rekin með skömm, vísað á dyr,“ segir- Guðrún. „Þetta var mikill póstur sem ég flokkaði, ein 100 kíló á dag og voru þama hillur undir stóran póst og lítinn og var ég orðin vön að flokka póstinn með þeirri vinnutilhögun sem fyrir var. En þá gerðist það í skjóli nætur að hillumar vom fjarlægðar og gamall flokkunarskápur settur í staðinn. Ég kom að þessu skrímsli um morguninn, varð mjög ósátt við þessar aðgerðir og spurði hvers vegna ég hefði ekki verið höfð með í ráðum. Sagði þá yfírmaðurinn að ef ég gerði ekki eins og mér væri sagt, gæti ég bara farið. Allt í lagi, sagði ég, vertu sæll og blessaður. Ég var fegin að losna þaðan, því loftið var vont og ekki fyrir hvítan mann að vinna þarna. í framhaldi af því flaug sú físki- saga að ég væri bæði þijósk og erfíð, og þurfti nefnd til að fjalla um hvort ég væri hæf sem bréf- beri. Síðan fór ég að bera út á Hverfísgötunni. Var þar um tíma en var þá klöguð af lögfræðingum sem skrifuðu póstmeistara og sögðu að þeir fengju aldrei póstinn fyrr en klukkan fímm. Það var haugalygi, það kom aðeins fyrir í einn dag því þá var ég með svo mikinn aukapóst. Ég heimtaði auð- vitað að sjá bréfið. Annars var ágætt að losna við Hverfísgötuna, hún er erfíð, bæði bílaumferð og skítur í loftinu. Síðan fór ég á Skólavörðustíginn og hef verið þar síðan. Það er skemmtilegasta gatan af þeim sem ég hef borið út á.“ - Er það rétt Guðrún, að þú hafír ekki viljað fara með eigin- manni þínum til Brussel þegar hann var sendur þangað til starfa, því þú vildir ekki skilja Skólavörðustíg- inn eftir í reiðileysi? „Það var nú kannski líka heimil- ið sem ég vildi ekki skilja eftir í reiðileysi," segir hún kímin og bendir niður á Vegamótastíginn þar sem hún er borin og bamfædd. Þar býr hún enn ásamt eiginmanni og móður sinni. „Ég hef aldrei farið úr föðurhúsum," segir hún. „En þetta er ekkert ómerkilegt hús, það er byggt árið 1905 og þama leigðu þeir báðir, Kjarval og Kiljan. Og hér á horninu þar sem Sparisjóður- inn er bjó Engeyjarættin. Pörupilt- ar mpluðu gjaman rófum úr garð- inum hjá henni á kvöldin." - Mér er sagt að þú sért stórefn- uð, eigir bæði íbúð og raðhús úti í bæ? Hún horfír mæðulega á mig: „Við komum okkur upp íbúð en íhaldssemin kom í veg fyrir að við yfírgæfum Vegamótastíginn. Það varð því hlutskipti drengjanna okk- ar fjögurra sem nú em uppkomnir að nýta íbúðina. Maður verður að hýsa bömin sín. En þeir borða heima hjá mér, þar fer fram öll þjónusta. Nú, raðhúsið byijuðum við að byggja fyrir tíu árum og enn vantar sex milljónir til að fullgera aÖ vera ríkur? það. En ég þijóskast við. En svo láta þeir mig borga 20 þúsund í aukaskatt á mánuði.“ - Hvað segirðu! Af hveiju? „Nú af því að ég er svo stórefn- uð eins og þú segir." - Hvað ertu annars með í laun á mánuði? „Tuttugu og níu þús- und.“ LYKTÁ SKÓLAVÖRÐUSTÍG Bréfberinn gengur áfram en stöðvar skyndi- lega og segir: Finnurðu lyktina? Maður getur ekki gengið um miðbæ- inn án þess að fínna lykt úr Kínabúllum. Á sunnu- dögum þegar ég ætla að anda að mér sjávarloftinu eins og í gamla daga fínn ég einungis þenn- an óþef.“ - Þú ert þó ekki á móti útlend- ingum? „Nei, ég er alls ekki á móti út- lendingum. En ef við göngum í EB ætla ég að leggjast í vímu, ég gæti ekki tekið því að sjá allt þetta fólk flæða yfír landið. Eg geri eng- an greinarmun á EB og EES, ef við geram samning um Evrópskt efnahagssvæðí eram við komin langleiðina í EB. Við erum fáar hræður hér á móti sterkum fjár- málaöflum úti í heimi og hvað verð- um við annað en sorptunna fyrir það sem aðrar þjóðir þurfa að losna við? Þjóðinni er neitað um þjóðarat- kvæðagreiðslu í þessu mikilvæga máli. En það era ekki allir sáttir við að skammsýnir framagosar í pólitík ráði örlögum óborinnar kyn- slóðar. Nú stendur rófugarður En- geyjarættarinnar öllum opinn. Það verða stresstöskukarlar með kokk- teil í hendinni sem byggja hér verk- smiðjur og gera landið að sama drullupyttinum og Evrópa er orðin. Flytja svo inn ómenntaðan vinnu- kraft, sem við þurfum síðan að kosta upp á, menntunar- og heilsu- farslega séð. Flestir vilja vera góð- ir og umburðarlyndir, en hvað kem- ur á daginn þegar á reynir? Þegar einhver tekur krónur úr buddunni þinni? Er vandamál innflytjenda ekki orðið nógu stórt í Evrópu? Ég sé ekki fram á annað en að útlendingar geti keypt landið og það er alltaf til fólk sem vill vera lepþar.“ - En fáum við ekki vörar á betra verði ef við gerum samning um Evrópskt efnahagssvæði? „íslenskar landbúnaðarafurðir era þær bestu í heimi og þær eigum við að borða. Ég vil ekki sjá út- lenskan mat sem kemur úr þessum eitraða skítajarðvegi þarna úti.“ Bréfin fljúga inn um lúgurnar. „íslenskunni fer hrakandi. Skólafólk sem vinnur í fríum á póstinum skilur varla algengar ís- lenskar vendingar. Við erum fá, og við eigum að varðveita okkur sem sérstaka þjóð á Norðurlöndum. Allt tal um að varðveita það sem er íslenskt er þó aðeins orðið skrautyrði á hátíðastundum. Hvað ætlar frú Vigdís að tala um í ára- mótaræðunni þegar við eram búin að gera EES-samning? Og hvað ætlar forsætisráðherrann að segja fyrir framan styttuna af Jóni Sig- urðssyni? Annars get ég varla séð að þetta Evrópubandalag verði nokkum tíma að veruleika. Þeir geta aldrei setið á sárshöfði, Frakkar, Bretar og Þjóðveijar. Það nægir að benda á hrokann í Frökkum." - Ertu mjög íslensk í þér? „Ég er svartasta íhald.“ - En hvað eigum við þá að gera, Guðrún? „Hvað höfum við að selja? Fisk sem verður uppurinn eftir nokkur ár ef erlendur fískifloti fær að veiða hér. Við verðum bara að vera nógu fljót að stoppa upp þorskinn, því líklega fer fyrir honum eins og geirfuglinum. Þetta er svo lítið magn sem við veiðum, því getum við ekki selt það í austur og vestur eins og við höf- um gert? Við eigum að selja hvalinn til Japans og gömlu íslensku hrossin til annarra landa. Og hér verður slegist um raforkuna þegar fram í sækir. Það verður slegist um hreint land og hreint loft.“ DRAUGAR OG KETTIR Það er nepja í loftinu en bréfberinn roðnar ekki einu sinni á nefbroddin- um. Við skjótumst með póst inn í eina verslunina og talið berst að hitateppum sem verslunardaman er að selja og dásamar og segir að sé hið besta svefnmeðal, Guðrún segist eiga svona teppi en hún noti það aldrei því hún sofi hvort eð er alltof mikið og þurfí það ekki því hún sé svo frísk. Það er að segja fyrir utan þetta kvef sem hún fær einu sinni á ári. Svo stingur hún upp í sig hálstöflu. Þegar við eram komnar út aftur spyr ég hana hvað hún borði eigin- lega til að viðhalda frískleikanum og hún segist helst borða sem minnst. „Ég fær mér hafragraut með sykri og ijóma á morgnana og það dugar mér oft yfír daginn ásamt þessum fimmtíu bollum af kaffí. Eg borða aldrei grænmeti, aldrei ávexti, drekk aldrei mjólk, en borða gjarnan kjöt og rúgbrauð með kæfu.“ Nú eram við komrtar að húsi Guðjóns heitins Samúelssonar húsameistara, þar sem draugurinn brá fæti fyrir Guðrúnu með þeim afleiðingum að hún brotnaði. „Arkitektafélagið átti þetta hús, en þeir seldu það. Ég er alveg hneyksluð á þessum arkitektum að halda ekki húsinu, eins og þeir era ríkir þegar þeir slá sarnan." - En hefurðu orðið vör við drauga héma á lóðunum? „Eg sagði nú við prestinn héma á þijátíu, að það væri eitthvað óhreint í hlaðvarpanum hjá honum. Ég fletti af fíngranum á mér þegar ég var að reyna að opna hliðið, enda er ég bara farin að sparka í það, og svo hrukku af mér gleraug- un á tröppunum. Nei, auðvitað era engir draugar hérna. Maður fjasar bara svona.“ - En hvað um kettina? Hjálp- arðu þeim inn í hús ef þeir mjálma fyrir utan? „Ég hringi helst bjöllunni til að láta eigenduma hirða þá. Ég er dauðhrædd við ketti og varð voða- — lega fegin þegar eitt fressið flutti | úr einu húsinu hérna. En þá tók nú ekki betra við, því félagið Kynja- kettir keypti húsið og það fylltist af þessum skepnum á nýjan leik.“ - Þekkirðu ekki alla í götunni? „Ekki lengur, en ég þekkti hér flesta þegar ég var barn. Það era svo margir fluttir. Það er merki- legt, en maður rekst örsjaldan á fólk þegar maður ber út póstinn. Það era flestir útivinnandi. Það er helst að maður lendi í hálkudansi. Eitt sinn kom ég stjórnlaust fljúg- andi í glerhálku og roki niður trað- imar á Bergstaðastræði og kloss- aði fýrir framan mann á gangstétt- inni. Hann fékk víst taugaáfall." - En um hvað hugsar bréfber- inn þegar hann gengur með póstinn hús úr húsi? „Um pólitík, aldrei um fólkið í götunni." MYGLUÐ AFINNIVERU Skólavörðuholtið blasir nú við og Guðrún segist vel muna eftir bröggunum og hermönnunum á stríðsáranum. „Ég man sérstak- lega eftir Skotunum. Þeir gengu hér fylktu liði í pilsum niður holtið á sunnudagsmorgnum og spiluðu á sekkjapípur. Þeir vora víst að fara til messu niður í Dómkirkju. Ég fór hér yfír holtið á leið í bamaskólann. Þá voru alltaf hrafn- ar hér í holtinu. í kringum gamlan mann sem hjó gijót frá morgni til kvölds.“ Og hún horfír á holtið og sér greinilega karlinn fyrir sér. Þegar Guðrún hafði lokið skyldunámi fór hún í Menntaskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan sem stúd- ent.„Það var enga vinnu að fá svo mér þótti ráðlegast að fara í skóla. Ég svaf þar í ein þijú ár og opn- wmmmmmmmmmmmmmmm I Ég vil ekki sjá útlenskan mat sem kemur úr þessum eitraÖa skítajarðvegi þarna úti Þegar ég fór til Parísar var sultukrukk'a það eina sem ég kom með. Við lá að égyrði látin laxera í tollinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.