Morgunblaðið - 13.12.1992, Blaðsíða 3
B 3
aði aldrei bók nema rétt fyrir próf.
Ég sé alltaf eftir því að hafa hegð-
að mér þannig.
Ég var í máladeild, stelpubekk.
Félagslífið var ágætt og dansæf-
ingar á sal. Pálmi rektor sat yfir
svo allt færi sómasamlega fram.
Ef búið var að dimma ljósin kom
hann í gættina og skellti á fullum
ljósum. Annað var ekki hægt, það
voru svo merkir menn á veggjun-
um. Strákarnir voru nú eitthvað
að sulla í leynum, geymdu flöskurn-
ar bak við stytturnar. Það var mik-
ill agi á þessum árum og lífíð sner-
ist um það að koma ekki of seint.
Ef morgunsöngur var byijaður
fengu menn að dúsa úti, svo hleypti
Pálmi sjálfur þeim seinu inn og
skráði þá.“
Eftir stúdentspróf vann Guðrún
á teiknistofu Rafveitunnar, en fór
síðan til Noregs þar sem hún vann
við kortagerð hjá flugfélagi. Eftir
að hún kom heim vann hún í tíu ár
á teiknistofu Landssímans. „Þá var
ég búin að sitja í 15 ár í keng yfir
teikniborði. Ég fékk níu ára frí og
eignaðist ijóra stráka. Ástæðan
fyrir því að ég byijaði að bera út
póstinn var sú, að mér fannst ég
vera orðin mygluð af inniveru og
langaði út til að hreyfa mig.“
VILLTUSTU DRAUMAR
Einhver hafði sagt að danskir
bréfberar bæru virðingu fyrir starfi
sínu. Ég spyr hana hvort hún geri
það.
„Já, það geri ég. En ég held að
það sé litið niður á bréfbera, í það
minnsta vottar fyrir því hjá þeim
sem eru búnar að pota sér upp, sem
eru komnar í dragt og farnar að
sleikja frímerki. Það hafa komið
manneskjur í útburðinn sem
skömmuðust sín svo fyrir starfið
að þær báru póstinn í hekluðum
netum og gengu með veggjum.“
- Finnst þér fólk hafa breyst
síðustu tuttugu árin?
„Eiginlega ekki, en ég hef
breyst. Ég var þögul fram til fimm-
tugs, stillt og talfá. En svo bilaði
líklega öryggi, ég gjörbreyttist, fór
að brúka munn og segja skoðun
mína.“
- Einhvetja drauma mun nú
bréfberinn hafa. Dreymir þig eins
og alla íslendinga um að verða rík?
Bréfberinn ansar þessu ekki en
strunsar milli bréfalúga og það er
ekki fyrr en hún er orðin verulega
þreytt á suðinu að hún segir: „Hvað
er að vera ríkur?
Mesta ríkidæmið er að eiga góð
börn. Besti tími ævinnar er að vera
með þeim þegar þau eru ung. Mað-
ur staldrar svo stutt við í þessum
heimi og yfirleitt kann maður ekki
að lifa lífinu. Ég er sátt við mitt
viðburðasnauða líf.
Draumar? í mínum villtustu
draumum er ég einvaldur á íslandi
og hef að sjálfsögðu lausn á hveij-
um vanda.“
JÓLAPÓSTURINN í
GRAUTINN
Síðustu húsin eru á Lokastígnum
og það er eins gott að þessari
göngu fari að ljúka því hann kóln-
ar með hverri mínútu. Jólaljós eru
í flestum gluggum, en almættið
hefur ekki kveikt á peru hjá sér,
því varla má heita að bjart sé orð-
ið úti.
- Langar þig ekki til útlanda,
segi ég þjökuð af kulda og myrkri.
„Nei, mig langar ekkert út. Mér
finnst ekki gaman að versla. Þegar
ég fór til Parísar fyrir þremur árum
var sultukrukka það eina sem ég
kom með. Við lá að ég yrði látin
laxera í tollinum af því ég var ekki
með neitt. Mig langar kannski helst
til Ítalíu, þeir eru svo góðir hönnuð-
ir, ítalir.“
- Jæja, en nú verður jólapóstur-
inn þyngri með hvetjum degi?
„Ég kvíði aldrei fyrir jólapóstin-
um, það er janúar sem er miklu
verri. Þá kemur áramótauppgjörið
og bankarnir senda út yfirlit eld-
gamalla bankabóka sem fólk er
löngu hætt að greiða inn á.
Janúa'r er líka kaldur og þung-
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992
..... .... ■ 1. ; i 1 1 1 ..
r/ V / Nicam Stereo* /
28" og 25" flatskjár Black Planigon - CTI mynd
skerpa - íslenskt textavarp - Valmyndir ofl.
A Viðóma sjónvarpstæki
A fyf 11 _ ■Verð frá kr. _
IMOKIA ^<§>HITACHI
Nicam Stereo
ASO Plus myndskerpa - Sjálfhreinsandi - Flöktalaus
kyrrmynd - Einföld stjórnun - Fjarstýring ofl.
Myndbandstæki mm £% 0% 0%
------------- Verðfrdkr. J* #
ur. Desember líður fljótt fyrir bréf-
berann og fólkið og jólaljósin lífga
upp á tilveruna. Jólapósturinn hef-
ur líka minnkað ár frá ári. Ætli
það sé ekki af því að flestir eru
fluttir til Reykjavíkur. Ég sendi
aldrei jólakort sjálf.
Áður fyrr báru bréfberar út jóla-
póst fram til klukkan sex á að-
fangadag. Þá voru ekki allir með
lúgur og því urðu bréfberar að
beita öllum brögðum við að koma
póstinum í hús. Einn bréfberi náði
að stinga honum inn um eldhús-
gluggann, en sá póstur fór víst
beint ofan í jólagrautinn sem var
á eldavélinni.“
Guðrún bendir mér á hús sem
hinir og þessir góðborgarar hafa
búið í og segist hafa meira gaman
af fortíðinni eftir því sem hún eldist.
„Það er mikilvægt að missa ekki
BRÉFIN FLJÚGA INN UM LÚGURNAR: Ef viö göngum í EB
œtla ég að leggjast í vímu. Ég gœti ekki tekið þvi að sjá allt þetta
fólk flœða yftr landið.
tengslin við fortíðina. Ef við gerum
það töpum við sérkennum okkar
sem þjóð og lendum í einhverri al-
þjóðlegri súpu. Ég vil halda í þjóð-
erni okkar, tungu og sérkenni.
Þegar ég var barn las ég ljóð og
sögur, einkum íslendingasögur og
hef ætíð verið undir áhrifum þeirra
síðan. Það á að lesa íslendingasög-
ur fyrir böm í barnaskólum, ekki
einhveijar ómerkilegar útlendar
barnasögur. Börn skilja meira en
maður heldur.
Ég hafði mestu mætur á Egils-
sögu. Egill var „töff“ náungi. Ætli
ég hafi ekki fundið til einhvers
skyldleika með honum.“
Síðasti pósturinn rennur inn um
litla lúgu og Guðrún D. Ágústsdótt-
ir bréfberi á einni elstu götu bæjar-
ins þakkar fyrir aðstoðina, sem
fólst aðallega í því að tefja hana.
RQNNING
OLAPAKKATILBQÐ
lrs\<5
„ * kr 119-900,-
, ■ or" siónvarp Nicam/txt ■ 49 900,-
ok,am VTF860 HiFi myndband k - 1QOr
£■ 169.800.'
lamtals
” TT36.700,-
kkatWbob
ólapa
Dæm\ \
Hitachi MD301 hijom_■_ _ kr 6g goo,-! Öll verð miðast við staðgreiðslu.
með 5-töldum geis a ^ 1 oo,-1 Tilboðin gilda meðan birgðir endast
Skápur LAV500 Rr 69.goO,-1
í Samtals
i Þú sparor: |
kr. 21.400^____________!
SUNDABORG 15
SÍMI ó8 58 68