Morgunblaðið - 13.12.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1992
B 7
DRAUMASTARF
JET BLACK JOE
Jet Blaek Joe, Jón Örn Arnarsson, Páll Rósinkrans, Gunnar Bjarni Ragnarsson, Starri
Sigurðarson og Hrafn Thoroddsen.
eftir Árno Matthíasson. Mynd Björg Sveinsdóttir
ENGIN hijómsveit hefur vakið viðlíka at-
hygli síðustu vikur og hafnfirska rokksveit-
in Jet Black Joe. Hún sendi frá sér sína
fyrstu breiðskífu fyrir stuttu sem er með
söluhæstu hljómplötum á jólamarkaðnum,
sem verður að teljast harla gott af hljóm-
sveit sem vart er hægt að kalla ársgamla.
Síðustu ár hefur upprunalegt rokk sótt
verulega í sig veðrið, sem eins konar
andsvar við fáguðu hátæknipoppi og
þungarokki sem farið var að snúast um akade-
mískar skalaæfmgar og of flóknar taktæfingar
til að hægt sé að tala um tónlist. Víða um
heim hafa sprottið upp hljómsveitir sem leika
einfalt rokk og ról og leita þá gjarna aftur til
sjöunda áratugarins að innblæstri. Ekki eru
þó allar slíkar hljómsveitir fastar í fortíðar-
fíkn, en það að þær hafí lagt stærðfræðireglur
og tölvutól til hliðar við lagasmíðar er nóg til
að fólk fínni samhljóm við fortíðina.
Jet Black Joe skipa þeir Páll Rósinkrans,
Gunnar Bjami Ragnarsson, Starri Sigurðar-
son, Jón Örn Amarsson og Hrafn Thoroddsen.
Hljómsveitin á sér upphaf í því að þeir Páll,
sem þá var nýhættur í hafnfírsku rokksveit-
inni Nirvana, og Gunni Bjarni, sem kom úr
þungarokksveitinni góðkunnu Bootlegs,
ákváðu að fara eitthvað að malla saman í tón-
list og byijuðu að semja saman. Þeir segja að
þó þeir hafi komið úr ólíkum áttum í tónlist
hafí þeir strax náð vel saman í því að vilja
spila flestar gerðir tónlistar. Þeir fóru og strax
að semja af krafti, en þegar lagabunkinn var
orðinn allnokkur fóru þeir að svipast um eftir
spilafélögum. Meðal annars sem þeir höfðu í
huga var að ná feitum rokkhljóm ogtil þess
að það mætti lukkast fengu þeir til liðs við
sig Hammondorgelleikara, auk hefðbundnari
rokkhljóðfæra, en líklega hafa Hammondorgel-
leikarar sjaldan eða aldrei verið fleiri hér á
landi en um þessar mundir.
Eftir aðlögunartíma ákváðu piltarnir að
leggja aðra iðkan en tónlistina á hilluna, þó
ekki segist þeir hafa fengið mikinn skilning
aðstandenda á þeirri ákvörðun.
Hljómsveitalífí fylgir óreglulegur vinnutími
og margar sveitir snúa nánast sólarhringnum
við. Það getur því verið erfítt fyrir venjulegan
launamann að ná tali af piltunum, því þeir
fara á kreik þegar langt er liðið á dag. Á
endanum var og ekki önnur leið fær til að ná
viðtali við sveitarmenn en að mæta á æfíngu
hjá þeir í skúr í Garðabæ, en æfíngin hefst
kl. 23 og stendur fram eftir nóttu, allt eftir
„fíling“ eins og þeir segja sjálfír.
HRAÐFERÐ Á TOPPINN
Jet Black Joe vakti fyrst athygli fyrir lög á
safnplötu sem kom út í sumar, en þau lög
nægðu til að koma sveitinni á allra varir. Þeir
félagar segja að ör velgengni hljómsveitarinnar
hafi komið þeim í opna skjöldu þó þeir hafi
alltaf verið vissir um að þeir væru að gera
góða hluti. Hver skýringin á skyndivinsældun-
um sé segjast þeir lítið vita um en kannski sé
skýringarinnar að leita í þreytu unglinga með
þá tónlist sem boðið hefur verið upp á síðustu
misseri. „Við ákváðum að fara aðrar leiðir en
þær hljómsveitir sem við sáum í kringum okk-
ur og skapa okkar eigin tónlist. Við þekkjum
það vel að vera „neðanjarðar" og ákváðum því
að fara einnig aðrar leiðir þar og byija strax
á að kynna það sem við vorum að gera sem
víðast og spila fýrir alla sem á annað borð
vildu hlusta.“
Þeir félagar segja að þrátt fyrir húllumhæið
í fjölmiðlum hafí þeir ekki orðið svo ýkja varir
við frægðina eða vinsældimar. „Sú tilfínning
sem við finnum helst fýrir er að ætlunarverk
okkar sé að takast og það er góð tilfinning,
en við göngum ekki um með þá grillu að við
séu eitthvað ofsalega frægir. Þessi plata var
gerð til að frumkynna okkur og sýna hvað við
gætum gert og við ætluðum líka að nota hana
til að auðvelda okkur að komast áfram úti.
Velgengnin hefur gert það mögulegt og líka
verið nauðsynleg til að sanna fyrir aðstandend-
um okkar að það væri eitthvað vit í þessu hjá
okkur, að hætta að vinna aðra vinnu en að
vera í hljómsveit, og fólk er hætt að spyrja
okkur En hvað gerirðu? þegar við segjumst
vera í hljómsveit.“
ENGIN TÓNLIST ÚTILOKUÐ
Það er fyrir tónlistina sem Jet Black Joe
hefur slegið í gegn, en þeir segja að tónlistars-
mekkur sveitarmanna sé ólíkur að mestu. Þó
eigi þeir það sameiginlegt að útiloka enga
gerð tónlistar og þeir nái vel saman í tónlist
einmitt þeirrar gerðar sem sveitin er að fást
við. Margir hafa viljað stimpla tónlist Jet Black
Joe sem afturhvarf tíl sýrurokks og þunga-
rokks áttunda áratugarins; einkonar síðsýru.
Ekki taka þeir félagar greiðlega undir það;
segjast vera að semja og spila nýja tónlist, en
líklega villi um fyrir fólki að veigamikill þáttur
í tónlist sveitarinnar sé Hammondorgelið, en
þeir segja að skipti æ meiru í tónsmíðum.
„Það má halda því fram að tónlistin sem við
erum að spila sé að vissu leyti uppreisn gegn
tæknihyggjunni sem tröllríður öllu, því við forð-
umst að nota rafeindatól sem frekast við get-
um.“
Liðsmenn Jet Blaék Joe eru að vonum boru-
brattir þegar framtíðina ber á góma, enda
segjast þeir fyrirsjáanleg að næstu mánuðir
verði ekki síður erilsamir en þeir sem liðnir
eru síðan hljómsveitin varð til. Næst á dag-
skrá sé að endurbæta frumsmíðina til að nota
til kynningu ytra, því sveitin stefni að því að
leggja umheiminn að fótum sér. Þegar hefur
Jet Blaek Joe boðist samningur um plötuút-
gáfu í Danmörku, en sveitarmenn hyggja á
meiri landvinninga en svo. Hvaða leið verður
farin er þó ekki fullmótað, enda liggur ekki
mikið á að taka svo afdrifaríkar ákvarðanir.
Líklega muni þeir þó fara álíka leið og Deep
Jimi and the Zep Creams, sem fluttust einfald-
lega til New York á meðan þeir voru að kom-
ast á samning í Bandaríkjunum. Það kostar
mikla vinnu og mikið snap hjá hljómsveitinni,
en þeir víla ekki fyrir sér að legga þannig vinnu
á sig: „Við erum í draumastarfí hvers tónlistar-
manns; gerum ekkert annað en að spila og
semja tónlist og hvers er hægt að óska sér
frekar?"
■ ■
ér
■ ■
ONDVEGISHUSGOGN
Saeta - 3ja sæta sófi og tveir stólar, kr. 249.891stgr.
Georgia - 3ja sæta sófi og tveir stólar
kr. 260.214,- stgr. 3ja sæta sófi kr. 123.225,- stgr.
2ja sæta sófi kr. 113.925,- stgr. 5 ^ |
Chesterfield með handverkuðu antikleðri -
3ja sæta sófi og tveir stólar kr. 204.414,- stgr.
3ja sæta sófi kr. 91.884,- stgr. 2ja sæta sófi
kr. 75.330,- stgr. Hábaksstóll kr. 61.845,- stgr.
Síðumúla 20 - sími 688799.
Petworth - 3ja sæta sófi og tveir stólar
kr. 176.514,- '3ja sæta sófi kr. 87.792,- 2ja sæta
sófi kr. 78.306,- stgr. Hábaksstól kr. 45.477,- stgr.