Morgunblaðið - 13.12.1992, Side 28
MORGUNBLARip MYWDASOGUR :sunn,uda(;l;k i^, desembbr 1992
■2*Lj£
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Auðvelt er að særa aðra
þegar ástin á hlut að máli,
og viðhorfin breytast ef
ástin kulnar. Reyndu að
bæta samskiptin.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffö
Ættingja gæti þótt þú ekki
sýna næga umhyggju.
Láttu ekki eigingirni bægja
öðrum frá þér. Réttu fram
hjálparhönd.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Margskonar skemmtanir
eru á boðstólum í dag. Ein-
hver gæti óverðskuldað
ásakað þig fyrir ístöðuleysi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) HI8
Einhver gæti kvartað yfir
eyðslusemi þinni, og pen-
ingamálin eru viðkvæmt
umræðuefni. Temdu þér
spamað.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn byijar vel og þú
ert í sólskinsskapi. Aðrir
vilja ráða ferðinni, og félagi
þarfnast athygli þinnar.
Meyja
(23. ágúst - 22. scptember)
Þróun peningamála er þér
hagstæð, en þér líkar ekki
hægagangur við lausn
verkefnis. Gerðu þitt bezta.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þótt úr mörgu sé að velja
á skemmtanamarkaðnum
er ekki víst að ástvinur vilji
deila þér með öðrum í
kvöld.
Sporðdreki
(23. okt. — 21. nóvember)
Þú færð frábæra hugmynd
varðandi vinnuna og þig
langar að hefjast strax
handa. En fjölskyldan kall-
ar einnig.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember)
Einhver gæti verið afund-
inn og gagnrýnt þig fyrir
seinagang. En kvöldið býð-
ur upp á fjölbreyttar
skemmtanir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þótt þú kunnir að meta
velgengni þína í starfi gæti
skortur á reiðifé hrjáð þig
í bili. Úr því rætist fljótlega.
Vatnsberi
(20. janúar — 18. febrúar) ðh
Þú hlakkar til einhvers sem
er í vændum, en varastu
að særa tilfinningar ann-
arra. Náin samvinna skilar
árangri.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) *£t
Þú gætir verið með allt of
margt á þinni könnu í dag
og þessvegna þurft að slá
á frest lausn einhverra
einkamála.
Stjörnuspána á ad lesa sem
dœgradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra staóreynda.
HVD A/^l rMC
UYKAuLtNb
UÓSKA
FERDINAND
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Millispilin í tígli gegna lykil-
hlutverki í vörninni gegn þremur
gröndum suðurs:
Vestur gefur; NS á hættu.
Vestur
♦ 9743
♦ 83
♦ KG108
♦ 762
Norður
♦ ÁK6
♦ 965
♦ Á4
♦ ÁDG93
il
Suður
♦ 1052
♦ DG2
♦ D752
♦ K104
Austur
♦ DG8
♦ ÁK1074
♦ 963
♦ 85
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 lauf 1 hjarta 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Úspil: hjartaátta.
Austur sér um leið og blindur
kemur upp að sagnhafi á níu
slagi ef hann fær einn á hjarta.
Eina vonin er því að finna makk-
er feitan fyrir í tígli. Austur
drepur þess vegna á hjartakóng
og spilar nákvæmt tígulsexu.
Ekki níunni, því hana þarf að
nota síðar, og ekki þristinum til
að gefa makker ekki falskar
upplýsingar um litinn.
Suður lætur lítinn tígul heima
og nú er röðin komin að vestri
að spila tíglinum rétt. Hann
verður að láta tíuna! — ekki átt-
una, því hún á að fara undir
níuna síðar.
Sagnhafi drepur á ásinn og
spilar hjarta. Austur drepur og
spilar nú tígulníu. Dúkki suður,
heldur austur innkomunni og
spilar aftur í gegnum drottning-
una.
Umsjón Margeir
Pétursson
Á helgarskákmótinu í Búðardal
um síðustu helgi kom þessi staða
upp í skák þeirra Helga Ólafsson-
ar (2495) stórmeistara, sem hafði
hvítt og átti leik, og Ásgeirs
Þórs Ámasonar (2.270). Svartur
er tveimur peðum yfir en hefur
boðið hættunni heim á kóngs-
væng.
31. Be6! (Þessi leikurer nauðsyn-
legur til að bijóta niður varnir
svarts. Sóknin eftir h-línunni dug-
ir ekki ein sér, eftir 31. Hhl —
Bf6 væri 32. Bg6! aftur nauðsyn-
legt) 31. - Bf8, 32. Dxg6+ -
Bg7, 33. Bh6 — fxe6, 34. Dxe8+
— Kh7, 35. Bcl! og svartur gafst
upp. Sævar Bjamason vann
óvæntan sigur á mótinu. Hann
vann mikla vamarsigra gegn
landsliðsmönnunum Helga og
Hann-
esi Hlífari. Þreytumerki sáust á
taflmennsku þeirra og Jóns L.
Ámasonar sem voru allir nýkomn-
ir af Evrópumeistaramóti lands-
liða í Ungveijalandi. Jóhann
Hjartarson sem deildi þar gull-
verðlaunum á fyrsta borði með
sjálfum Kasparov náði heldur ekki
sfnu besta um síðustu helgi á
geysifjölmennu atskákmóti í Ovi-
edo á Spáni. Jóhann varð í u.þ.b.
20. sæti af 500 keppendum, en
hinn þrautreyndi atskáksérfræð-
ingur Viktor Gavrikov frá Lithá-
en hafði sigur.