Morgunblaðið - 20.01.1993, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993
0,3% hækkun
á húsaleigu
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að hækka húsaleigu í
borgarhúsnæði um 0,3% frá
og með 1. febrúar 1993.
í erindi félagsmálastjóra til
borgarráðs, kemur fram að
samkvæmt útreikningum Hag-
stofu íslands hækkaði verðbóta-
þáttur húsaleigu um 0,1% 1.
október 1992 og um 0,2% þann
1. janúar 1993.
Þá er lagt til að húsaleiga í
borgarhúsnæði hækki frá og
með 1. febrúar um 0,3% til sam-
ræmis en jafnframt munu
hækkanir sem hafa orðið á hita-
og rafmagni reiknast inn í húsa-
leigu þar sem við á.
Mikil sala
notaðra bíla
hjá Toyota
„ÞAÐ hefur verið mikil sala
- við erum búnir að selja 60
bíla af þeim hundrað sem
settir voru á útsölu og ákveð-
ið hefur verið að bæta við 50
til 60 bílum með afslætti,"
sagði Skúli Skúlason sölu-
sljóri hjá Toyota í samtali við
Morgunblaðið.
Toyota hóf að selja bíla á til-
boðsverði 16. janúar og mun
útsalan standa fram til 25. jan-
úar. Að sögn Skúla er veittur
allt að 200 þúsund króna af-
sláttur á einstökum bílum. Um
230 bílar voru til hjá fyrirtækinu
áður áður en útsalan hófst en
lítil hreyfing hefur verið í bíla-
sölu í vetur.
Sem dæmi um verðlækkunina
mætti nefna BMW 318i árgerð
'91, markaðsverð er 1.900 þús-
und kr., en bíllinn er seldur á
1.700 þúsund kr. Daihatsu
Rocky árgerð ’87 sem var á 850
þúsund kr. er seldur á 720 þús-
und kr. Af ódýrari bflum mætti
nefna Mazda 323 árgerð ’88.
Markaðsverð er 480 þúsund en
bfllinn seldur á 380 þúsund kr.
Þorsteinn
formaður
Kjaradóms
HÆSTIRÉTTUR hefur skip-
að tvo menn til setu í Kjara-
dómi og tvo varamenn. Rétt-
urinn ákvað að Þorsteinn Júl-
íusson hæstaréttarlögmaður
yrði formaður Kjaradóms og
Hólmfríður Árnadóttir við-
skiptafræðingur tæki þar
sæti.
Til vara skipaði Hæstiréttur
þau Garðar Garðarsson hæsta-
réttarlögmann og Huldu Krist-
insdóttur viðskiptafræðing. Al-
þingi kaus lögfræðingana
Magnús Óskarsson og Jón
Sveinsson til dómstarfanna en
fulltrúi fjármálaráðuneytis hef-
ur ekki verið valinn.
Reykjavík
Kosið um for-
mann í Alþýðu-
flokksfélaginu
Kosningar munu fara fram
um formennsku í Alþýðuflokks-
félagi Reykjavíkur á aðalfundi
félagsins sem haldinn verður
10. febrúar. Hefur Valgerður
Gunnarsdóttir sjúkraliði til-
kynnt að hún hyggist bjóða sig
fram gegn núverandi formanni
Þorláki Helgasyni. Marías Þ.
Guðmundsson, formaður upp-
stillinganefndar félagsins, stað-
festi þetta í samtali við blaðið
en nefndin kom saman á mánu-
dag vegna málsins.
Fargjöld Flugleiða til Evrópu-
borga 1992 og 1993
Flug til: 1992 1993 Breyting
Glasgow Kr. 15.900 Kr. 16.900 6,3%
Amsterdam 20.900 22.900 9,5%
Gautaborgar 20.900 22.900 9,5%
Kaupmannahafnar 20.900 22.900 9,5%
London 20.100 22.900 14,0%
Osló 20.900 22.900 9,5%
Lúxemborgar 22.900 24.900 8,7%
Frankfurt 24.900 26.900 8,0%
Munchen 24.900 26.900 8,0%
Vínar 24.900 26.900 8,0%
Zurich 24.900 26.900 8,0%
Sumarfargjöld Flugleiða
14% hækkun fargjalda
til Limdúnaborgar
Sumarleyfisfargjöld Flug-
leiða hækka allt að 14% frá síð-
asta ári. Mest er hækkunin á
fargjaldi til London en fargjöld
til Stokkhólms, Parísar og Ham-
borgar hækka ekki.
Þess ber að gæta Flugleiðir
bjóða hærri barnaafslátt af þess-
um fargjöldum nú en í fyrra.
Hækkar afslátturinn úr 20% í 33%.
Eftirfarandi tafla yfir hækkunina
á milli ára miðast við fargjöld sem
keypt eru fyrir 1. mars.
Ekkert athugavert við
viðbrögð slökkviliðsins
BRUNINN sem varð í Þernunesi 13, Garðabæ, 11. janúar sl. er
þriðji bruninn sem verður út frá kertum og kertaskreytingum
um þessi áramót. Hinir brunarnir voru á Egilsstöðum og á Sel-
tjarnarnesi. Ætla má að Ijón vegna brunanna sé ekki undir 40
milljónum króna, segir í frétt frá brunamálasljóra ríkisins.
Athugun á útkalli slökkviliðsins
í Hafnarfírði og fyrstu viðbrögð
þess vegna brunans í Þernunesi
13 leiðir í ljós að þau voru á allan
hátt eðlileg. Slökkvistarf gekk eft-
ir atvikum vel þrátt fyrir mjög
erfiðar aðstæður voru á brunastað
norðan 9-11 vindstig og frost.
Við slökkvistarf kom í ljós að af-
köst vatnsveitunnar a Arnarnesi
er ekki fullnægjandi. Ástæða hinn-
ar hröðu útbreiðslu brunans í hús-
inu var einkum notkun timbur-
klæðninga í þaki og á veggjum
svo og notkun plasts til einangrun-
ar.
Það olli nokkrum óþægindum
að fréttamenn hringdu í neyðar-
númer slökkviliðsins til að afla
frétta á meðan á brunanum stóð.
Æskilegt væri að fréttamenn not-
uðu almenna síma slökkviliðsins í
þessum tilgangi.
(Fréttatilkynning)
Heimild löglærðra
fulltrúa hjá KLR tíl
saksóknar vefengd
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Magnúsar Thor-
oddsens hrl, verjanda manns sem ákærður hefur verið fyrir tilraun
til íkveikju í Sportklúbbnum við Borgartún á síðasta ári, um að máli
gegn honum verði vísað frá dómi. Frávísunarkrafan byggist á því að
það eigi sér ekki skýra stoð í lögum að rannsóknarlögreglustjóri ríkis-
ins feli löglærðum fulltrúa sínum að flytja fyrir héraðsdómi þau mál
sem ríkissaksóknari felur rannsóknarlögreglusljóra að sækja. Úr-
skurðurinn hefur verið kærður til
Með nýjum lögum um meðferð
opinberra mála sem tóku gildi 1.
júlí á síðasta ári var ákvæði sem
hljóðar svo: Þá getur ríkissaksókn-
ari falið lögreglustjórum, þar á
meðal rannsóknarlögreglustjóra
ríkisins, flutning máls fyrir héraðs-
dómi. Lögreglustjórar geta falið
löglærðum starfsmönnum sínum að
flytja slík mál.“ Þegar hefur verið
kveðinn upp dómur í einu máli sem
löglærður starfsmaður rannsóknar-
lögreglustjóra flutti og annað slíkt
hefur verið dómtekið.
Hlutlægni rannsóknar vefengd
Frávísunartillagan var á því
byggð að þar sem ekki segði berum
orðum í lagagreininni að rannsókn-
arlögreglustjóra ríkisins væri heim-
ilt að fela löglærðum starfsmanni
sínum að flytja mál væri slíkt
óheimilt. Auk þess var talið að skort
hefði á hlutlægni við rannsókn
málsins sem sækjandi málsins, Jón
H. Snorrason, deiidarstjóri hjá RLR,
stýrði og ekki rannsökuð jöfnum
höndum atriði sem horfðu til sektar
og sýknu.
Sverrir Einarsson héraðsdómari
hafnaði frávísunarkröfunni og taldi
eðlilegast að skýra fyrrgreint laga-
ákvæði á þann veg að rannsóknar-
lögreglustjóra væri eins og öðrum
lögreglustjórum heimilt að fela lög-
lærðum starfsmönnum sínum sókn
mála. Þá rakti hann að í hinum
nýju réttarfarslögum væri ekki
greint með skýrum hætti á milli
Hæstaréttar.
ákæruvalds og lögreglu við rann-
sóknir mála og hvergi vikið að því
að það geti valdið vanhæfi sækj-
anda mála að hafa jafnframt stýrt
rannsókninni.
Aðfinnslum við framgang rann-
sóknarinnar var hafnað meðal ann-
ars á þeim forsendum að maðurinn
hefði haft skipaðan réttargæslu-
mann meðan á rannsókn stóð og
hefði honum verið í lófa lagið að
koma óskum og athugasemdum á
framfæri.
------»- ♦-+----
Sjávarútvegs-
ráðherra á Suð-
austurlandi
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra og Egill Jónsson
alþingismaður verða á fundum
á Höfn í dag, miðvikudaginn 20.
janúar kl. 20.30 í Sjálfstæðis-
húsinu og á Breiðdalsvík
fimmtudaginn 21. janúar.
Á fundunum verður sérstaklega
rætt um horfur í sjávarútvegi með
tilliti til Evrópska efnahagssvæðis-
ins. Fundirnir eru öllum opnir og
svara þeir Þorsteinn og Egill fyrir-
spumum eftir því sem tími og
aðstæður leyfa. Sömuleiðis munu
þeir heimsækja sjávarúvegsfyrir-
tæki á svæðinu.
Hestamenn huga að mótum næsta tímabils sem stendur frá 13. febrúar til 29. ágúst
HM í Hollandi og fjórð-
ungsmótið hápunktamir
_________Hestar___________
Valdimar Kristinsson
Landsamband hestamannafé-
laga og Hestaíþróttasamband ís-
lands hafa nú gengið frá sameig-
inlegu hestamótaalmanaki fyrir
árið 1993. Ber það merki um
mikla grósku í hestamennskunni.
Vetrarmótum virðist stöðugt
fjölga og greinilegt að hesta-
menn eru tilbúnir að bjóða veður-
guðunum birginn. Reyndar eru
þetta ekki umfangsmikil mót og
lítið mál að fresta þeim eða af-
lýsa með stuttum fyrirvara.
Keppnistímabilið byrjar 13. febr-
úar með vetrarmóti Gusts í Kópa-
vogi og lýkur 29. ágúst með bikar-
móti Norðurlands. En það eru fjórð-
ungsmót Norðurlands og Heims-
meistaramótið í Hollandi sem
standa upp úr að umfangi og
spennu, fjórðungsmótið verður
haldið 1. til 4. júlí en heimsmeist-
aramótið hefst 17. ágúst og lýkur
sunnudaginn 22. ágúst. Einnig
mætti geta íslandsmótsins í hesta-
íþróttum sem nú verður haldið á
Ákureyri um miðjan júlí.
Verða haldin allt upp í sjö til
átta mót sumar helgamar og mót
um hveija helgi frá apríl og út
ágúst. En niðurröðun hestamóta og
sýninga 1993 verður á þessa leið.
Febrúar 1. Geysir Firmakeppni Hvolsvelli
13. Gustur Vetrarleikar Giaðheimum 1. Glaður íþróttamót Búðardal
27. Hörður Vetrarmót Varmárbökkum 1. Smári Firmakeppni Amesi
27. Fákur Vetrarleikar Víðivöllum 1. Faxi íþróttamót Hvanneyri
Mars 2. Sörli Hrmakeppni Sörlavöllum
6.-7. Léttir Vetrarleikar Akureyri 2. Hörður Firmakeppni Varmárbökkum
13. Gustur Vetrarleikar Glaðheimar 8. Sleipnir Firmakeppni Selfossi
20. Sörli Opið mðt Sörlavöllum 8. Skuggi Iþróttamót Vindási
27. Andvari Vetrarleikar Kjóavellir 7.-9. Fákur Reykjavíkurmót Víðivöllum
27. Fákur Vetrarleikar Víðivöllum 8. Sóti Firmakeppni Mýrarkoti
Apríl 8.-9. Gustur íþróttamót Glaðheimum
3. Hörður Vormót Varmárbökkum 14.-15. Hörður íþróttamót Varmárbökkum
8. Sörli Skírdagskaffí 14.-15. Sörli íþróttamót Sörlavöllum
10. Gustur Vetrarleikar Glaðheimum 15. Ljúfur Firmakeppni Reykjakoti
10. Svaði ískappreiðar 15.-16. Máni íþróttamót Mánagrand
12. Gnýfari Firmakeppni Ólafsfirði 15.-16. Léttir íþróttamót Akureyri
17. Dreyri íþróttamót Æðarodda 16. Fákur Hlégarðsreið
17. Sörli Opið íþróttamót Sörlavellir 20. Hörður Gustsreið
18. Andvari Firmakeppni Kjóavöllum 20. Léttir Firmakeppni Breiðholtsvöllur
22. Fákur Firmakeppni Víðivöllum 21.-22. Sörli Gæðingakeppni Sörlavöllum
22. Funi íþróttamót Melgerðismelum 22. Skuggi Gæðingakeppni Vindási
22. Geysir Flrmakeppni Gaddstaðaflötum 22. Sleipnir íþróttamót Selfossi
22. Kópur Firmakeppni Kirkjubæjarklaustri 22. Dreyri Gæðingakeppni Æðarodda
24. Gustur Firmakeppni Glaðheimum 22.-23. Andvari íþróttamót Kjóavöllum
24. Máni Firmakeppni Mánagrund 22.-23. Gustur Gæðingakeppni Glaðheimum
24. Hörður Fáksreið 27.-31. Fákur Hvítasunnumót Víðivöllum
24. Dreyri Firmakeppni Æðarodda 29. Léttir Gæðingakeppni Hlíðarholtsvöllur
Maí 29. Gnýfari Innanfélagsmót Ólafsfirði
1. Snæfaxi Firmakeppni 31. Homfirðingur Firmakeppni Fomustekkum