Morgunblaðið - 20.01.1993, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 20.01.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1993 19 Páll Halldórsson formaður BHMR BHMR-félögiun haldíð niðri Vilja fá hækkun án þess að gera kjarasamn- ing, segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra PÁLL Halldórsson, formaður BHMR, segir að stjórnvöld séu á kerfisbundinn hátt að halda aftur af eðlilegri launaþróun hjá félagsmönnum í aðildarfé- lögum BHMR. Fulltrúar BHMR sátu fund með formanni samn- inganefndar ríksins í gær og þar var erindi um að félagar í BHMR fengju sömu launabreyt- ingar og aðrir launamenn hafa fengið á árinu, hafnað af hálfu fjármálaráðuneytis. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir það vera vegna þess að BHMR hafi ekki viljað gera kja- rasamning við ríkið. Með kjarasamningum samflots- félaga BHMR og fjármálaráðherra frá maí 1989 var gerður samningur um miklar kjarabætur til félags- manna á fimm ára tímabili, segir í frétt frá BHMR. Þessar bætur voru afnumdar með bráðabirgðalögum 1990 sem áttu að tryggja að félags- menn fengju aðeins sömu launa- breytingar og aðrir launamenn. Miðlunartillagan ekki í boði brigðum er að BHMR vill fá hækk- unina án þess að gera við okkur kjarasamning. Það höfum við ekki gert fyrir önnur félög sem ósamið er við, og við getum ekki gert und- antekningu varðandi BHMR eins og þeir hljóta að skilja,“ sagði Frið- rik. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Telja að þeir hafi átt rétt á að taka upp línuna Fimm bátar frá Akranesi voru staðnir að meintum ólöglegum veiðum á norðanverðum Faxaflóa. Myndin er tekin í höfninni á Akranesi eftir að bátarnir komu þangað í gær. Staðnir að ólöglegum veiðum FIMM bátar frá Akranesi voru staðnir að meintum ólöglegum veiðum innan skyndilokunarsvæðis á norðanverðum Faxaflóa í fyrrakvöld. Það var varð- skipið Týr sem stöðvaði veiðar bátanna. Málið er nú til meðferðar hjá Sýslumannsembættinu á Akra- nesi. Skyndilokun nr. 12 um bann við veiðum með línu á norðanverðum Faxaflóa tók gildi klukkan 21.00 mánudaginn 18. janúar sl. Skip Landhelgisgæslunnar fann fyrsta bátinn á svæðinu klukkan 21.23 og síð- asta bátinn klukkan 23.32. Allir fimm bátarnir eru frá Akranesi og er því mál þeirra tekið fyrir hjá Sýslu- mannsembættinu þar. Bátarnir komu til hafnar á Akranesi í gærmorgun, og var lögregluskýrsla tekin af skipstjórum. Að sögn Svans Geirdals hjá lögreglunni á Akranesi var afli bátanna vigtaður og vigtarnótur teknar í vörslu lög- reglu. Að sögn Svans báðu nokkrir skipstjóranna um umhugsunartíma til þess að leita samráðs hjá lögfræð- ingi áður en Rannsóknarlögreglan tæki af þeim frek- ari skýrslu. Skipstjórarnir álíta að þeir hefðu átt rétt á því að draga upp línuna þar sem hún var lögð áður en svæðinu var lokað. Bátarnir sem voru teknir heita Dagný AK140, Sæþór AK7, Hrólfur AK29, Bresi AK101, og ísak AK67. Júní 5. Funi Gæðingakeppni Melgerðismelum 5. Hending Hestamót Búðartúni 5.-6. Andvari Gæðingakeppni Kjóavöllum 5.-6. Hörður Gæðingakeppni Varmárbökkum 5.-6. Máni Gæðingakeppni Mánagrund 5.-6. Sóti Gæðingakeppni Mýrarkoti 5. Smári íþróttamót Árnesi 5. Þytur Gæðingakeppni Króksstaðamelum 12. Svaði Félagsmót Hofsgerði 12. Þjálfi Firma-og bæjak. Einarsstaðavelli 12.-13. Suðurl.mót Hestaíþróttir Selfossi 12.-13. Geysir Félagsm. og Gaddstaðaflötum 13. Léttfeti kynb.sýn. Gæðingakeppni Sauðárkróki 17. Þytur Firmakeppni Hvammstanga 18.-19. Homfirðingur Hestamót Fomustekkum 18.-19. Sindri Hestamót Pétursey 19. Ljúfur/Háfeti Félagsmót Reylqakoti 19. Faxi Gæðingakeppni Faxaborg 19.-20. Sörli Opið íþróttamót Sörlavellir 19.-20. Feykir/Snæfaxi Félagsmót Ásbyrgi 19.-20. Neisti/Óðinn/Snarfari Hestamót Neistavöllum 25.-26. Glaður Hestamót Nesodda 26.-27. Freyfaxi Hestadagar Stekkhólma Júlí 1.-4. i^órðungsmót á Norðurlandi Vindheimamelum 9.-11. Úrtaka vegna HM í Hollandi Reykjavík eða nágr. 10. Dreyri Kappreiðar Ölveri 10. Kópur Hestamót Sólvöllum 10.-11. Logi Hestamót Hrísholti 15.-18. íslandsmót í hestaíþróttum Akureyri 16.-17. Stormur Félagsmót Söndum 17. Stígandi Félagsmót Vindheimamelum 17. Blakkur/Kinnskær Hestamót Heiðabæjarmelum 17.-18. Smári/Sleipnir Hestamót Murneyri 24. Snæfellingur Hestamót Kaldármelum 24.-25. Léttir/Funi/Þráinn Hátíðisdagar Melgerðismelum 24.-25. Ágúst 31 .júl-1. ág. Þolreiðark. íslands Laxnes/Skógarhólar Stórmót Vestlendinga Kaldármelum 31.júl-l. ág. Léttf./Stígandi/Svaði Hestamót Skagfirðinga Vindheimamelum 7. Svaði Firma-og bæjakeppni Hofsgerði 7.-8. Stórmót sunnlenskra hestamanna Gaddstaðaflötum 7.-8. Þjálfi/Grani Félagsmót Einarsstaðavöllum 7.-8. Hringur Félagsmót Flötutungum 14. Þráinn Firma- og bæjakeppni Áshóli 14. Faxi Faxagleði Faxaborg 14. Dreyri Opið íþróttamót Æðarodda 14. Funi Bæjakeppni Melgerðismelum 14.-15. Þytur íþróttamót Króksstaðamelum 17.-22. Heimsmeistaramótið í Hollandi 28.-29. Bikarmót Norðurlands Flötutungum „Það virðist vera stefna ríkisins að launaþróun hjá félagsmönnum í samflotsfélögum BHMR sé lakari en almennt er í landinu," sagði Páll Halldórsson formaður BHMR, í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að engar ákvarðanir hefðu verið teknar á fundinum um aðgerð- ir enda væri það á verksviði aðildar- félaganna. „Þetta eru skilaboð sem menn hljóta að íhuga vandlega,“ sagði Páll. „Málið er það að þessum félögum hefur aldrei verið gefinn kostur á því að ganga að svokallaðri miðlun- artillögu. Það er ljóst að það er verið að halda þessum félögum kerfisbundið neðar en öðrum,“ sagði Páll. Hann sagði að samningaviðræð- ur hefðu verið stopular og honum var ekki kunnugt um að nokkur slíkur fundur hefði verið haldinn frá því að dómur Hæstaréttar féll, en með honum staðfesti Hæstiréttur að bráðabirgðalögin hafi brotið jafnræðisreglu stjórnarskrár en kvað þó ekki skýlaust upp úr um skyldu stjórnvalda að setja samn- inginn í gildi. Samningar standa til boða Friðrik Sophusson ijármálaráð- herra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi að félögum í BHMR stæði til boða að gera sams- konar kjarasamning og fjöldi stétt- arfélaga hefði verið að gera að undanfömu. „Ég vil taka fram að frá því að miðlunartillaga ríkissáttasemjara var samþykkt um mánaðamótin apríl/maí í fyrra hefur ríkið gert tugi samninga við ýmis stéttarfélög sem það gerir samninga við, og þeim hefur öllum staðið það til boða að ef þau geri kjarasamning þá fái þau 1,7% launahækkun og þá or- lofsuppbót sem um er að ræða. Það sem hins vegar veldur okkur von- verður í Clöru, í tilefni dagsins veitum við 10% afslátt af öllum YSL snyrtivörum og 30% af skartgripum Austurstræti 3 í dag Austurstræti 3 Héraðsdómur Reykjavíkur Brauðrist- in gerð upptæk í ríkissjóð FJÖRUTÍU og fimm ára gömul kona hefur verið dæmd í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi og til að þola upptöku á brauðrist sem hún hafði falið í tæplega tvö kíló af hassi. Konan, sem kom frá Lúxemborg, var handtekin 8. desember síðastliðinn. Dómur Iiggur fyrir í mál- inu 40 dögum eftir að kon- an var handtekin á Kefla- víkurflugvelli. Hún er bú- sett erlendis en hefur verið í farbanni frá því hún losn- aði úr gæsluvarðhaldi, fimm dögum eftir hand- tökuna. Konan játaði skýlaust þau brot sem henni voru gefin að sök og að hafa ætlað sér að selja efnið, sem hún faldi í brauðrist í farangri sínum, með hagnaði hér á landi. Pétur Guðgeirsson héraðs- dómari taldi hæfilega refs- ingu fyrir brot konunnar vera fangelsi í fjóra mánuði, auk þess sem fallist var á kröfu ákæruvaldsins um að hassið og brauðristin skyldu gerð upptæk. RÚV hækk- ar afnota- gjöld um 4 prósent AFNOTAGJÖLD Ríkisút- varpsins hækka um næstu mánaðamót um 4%. Afnota- gjöldin hækka úr 1.687 kr. í 1.754 kr. Hækkunin þýðir 53 miiyóna kr. tekjuauka fyrir Ríkisútvarpið á næstu ellefu mánuðum. Hörður Vilhjálmsson fjár- málastjóri Ríkisútvarpsins sagði að síðast hefðu afnota- gjöldin hækkað fyrir tveimur árum, þá einnig um 4%. 1,4% hækkunarinnar eru tilkomin vegna aukinna útgjalda Ríkis- útvarpsins vegna lífeyrissjóðs- skuldbindinga á árinu, eða um 20 milljónir kr. Hörður sagði að með hækk- uninni yrði ennfremur komist hjá því að dagskrá Sjónvarps- ins rýrnaði að gæðum. Hluti af hækkuninni er tilkomin vegna morgunsjónvarps fyrir yngstu áhorfendurna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.