Morgunblaðið - 20.01.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 20.01.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993 29 Minning Helga Sigurðardóttir frá Höfn, Homafirði Fædd 4. apríl 1895 Dáin 4. janúar 1993 hvarvetna virðingu, þar sem hann kom fram fyrir okkar hönd. Ingimar var forseti Kaldbaks 1987-1988, auk þess sem hann gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum innan klúbbsins af festu og virðu- leik, hann var stofnfélagi Kaldbaks 1968. í forsetatíð sinni hafði Ingimar forgöngu um þátttöku okkar í sam- starfi við Geðverndarfélag Akur- eyrar um að reisa sjúkum athvarf við Álfabyggð, en jafnan var hann boðinn og búinn að rétta þeim hjálp- andi hönd, sem af einhverjum ástæð- um voru minni máttar. I umræðum tók hann svari þeirra sem hallað var á, ákveðinn og rökfastur og ef dofn- aði yfir samverustundunum var hann fjjótur að grípa til kímninnar og létt frásögn hans hreif alla viðstadda, hann var einstakur. Menn fóru þá jafnan með bros á vör, þegar Ingi- mar leysti málefnafiækjurnar. Dugnaði Ingimars var viðbrugðið, sjaldan bar hann við tímaskorti ef til hans var leitað, þótt hann væri jafnan störfum hlaðinn, hann leysti verkin hvort heldur var að aka öldn- um til kirkju, taka þátt í söfnunum, koma á laggir söngkvartett innan klúbbsins okkar, en svo margt annað mætti nefna, sem við nú geymum í minningunni og í gögnum klúbbsins. Kærum vini og félaga er hér þökk- uð samfylgdin, hann var góður drengur í orðsins fyllstu merkingu. Geymi þig góður Guð. Við sendum Ástu og fjölskyldu okkar dýpstu samúðarkveðjur um leið og við heiðrum minningu vinar, sem var okkur svo kær. Kiwanisklúbburinn Kaldbakur. Þær systur, sorg og gleði hafa löngum átt samleið. Svo nánar eru þær að sú skoðun er ríkjandi, að enginn kynnist þeim nema báðum í einu. Enginn gleðjist af alhug nema þekkja sorgina og enginn syrgi held- ur nema hafa fyrst kynnst gleðinni. Þessar systur bönkuðu á dyr okkar, vina Ingimars Eydals, við fráfall hans. Eins og alltaf komu þær sam- an. Sorgin fór fyrir þeim systrum og sló okkur öll út af laginu, eins og henni er lagið, enda engin furða þar sem mesti gleðigjafi þjóðarinnar átti í hlut. Samkvæmt kenningunni áttum við, vinir Ingimars og aðdá- endur, í réttu hlutfalli við gleðina, sem hann gaf okkur, hreinlega að ærast af sorg. Það var þess vegna undarleg tilfinning, sem gerði vart við sig mánudagsmorguninn þann 11. janúar, þegar við tókum á móti sorginni, að gleðin skyldi koma með henni. Smám saman rann það upp fyrir okkur, að líklega hafði Ingimar Eydal rofíð enn einn múrinn á lífs- leiðinni. Svo algerlega og af svo mikilli einlægni hafði hann lagt gleð- inni lið að sterkasta tilfmningin við fráfall hans er ekki sorg, heldur gleð- in yfir að hafa kynnst honum. Ingimar Eydal rauf múra allt sitt líf. Kynslóðabilið var einn þeirra, fordómar og einstrengingsháttur innan starfsstéttarinnar annar. For- dómar gagnvart víni/vínleysi enn einn. Endalaust gat hann sætt það sem öðrum virtust ósættanlegar að- stæður. Það skipti engu máli hvort þú varst frægur eða óþekktur, ungur eða gamall, snillingur eða fúskari, glaður eða hryggur, stefnulaus eða hugsjónamaður, fullur eða fanatísk- ur. Állir áttu samleið emð Ingimar Eydal. Af sínu fullkomna fordóma- leysi gat hann tekið þátt í tilveru hvers og eins alltaf trúr þeirri hug- sjón, að hver sá sem frá honum fór fengi hamingjuskammt í veganesti. Gagnvart Ingimar Eydal fundu allir sem nálægt honum komu fyrir ein- stakri tilfinningu. Við að kynnast honum skiptist tilveran í „fyrir og eftir“. Enginn var neitt líkur Ingi- mar Eydal. Hans minning verður okkur sem kynntums honum án efa alla tíð án samanburðar. Það að ijúfa þann öðrum órjúfan- lega múr, að gleðin, sem Ingimar helgaði alla sína krafta, skuli á sorg- arstundu yfirskyggja sjálfa sorgina, sýnir að þar fór enginn venjulegur maður, enda duldist það engum sem kynntist Ingimar Eydal að hann var algerlega einstakur. Fjölskyldu og félögum í Hljómsveit Ingimars Eydal sendum við samúðarkveðjur. Starfsfólk Hótel Selfoss, Heiðar Ragnarsson, Jón Bjarnason. Hinn 4. janúar síðastliðinn lést ástkær amma okkar, Helga Sigurð- ardóttir, á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Hún var jarð- sungin frá Kópavogskirkju, en at- höfnin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Amma fæddist í Holtaseli á Mýr- um árið 1895. Foreldrar hennar voru Sigurður Eiríksson og Auð- björg Eiríksdóttir. Þeim hjónum varð fimm bama auðið og var amma yngst í röðinni. Amma giftist afa okkar, Kjartani Halldórssyni, árið 1922 og bjuggu þau alla sína hjúskapartíð á Höfn Þó að maður sé farinn að átta sig á því með árunum að það að deyja sé hluti af eðlilegum gangi þessa lífs, var sárt að frétta af andláti Huldu frænku hinn 27. des- ember síðastliðinn. Andlát hennar bar skjótt að og þó það sé ánægju- legt að hún skuli hafa haldið þetta góðri heilsu og reisn þar til kallið kom, kom þetta á óvart og olli viss- um tómleika, trega og söknuði. Þar sem ég og fjölskylda mín getum ekki kvatt Huldu frænku hinstu kveðju heima á íslandi langar mig að minnast hennar hér í örfáum orðum. Hulda Gunnlaugsdóttir var alltaf kölluð Hulda frænka á mínu heim- ili og var óijúfanlegur hluti tilver- unnar allt frá blautu barnsbeini. Hún bjó á Ásvallagötunni ásamt ömmu minni, sem lést eftir langvinn veikindi en Hulda hafði hugsað um hana í þeim veikindum af mikilli kostgæfni og fómfýsi. Eftir að amma dó hefur Hulda alla tíð verið svolítil „amma“ okkar systkinanna, hún kom til okkar á jólum, í af- Hornarfirði. Þau eignuðust þijú börn, Hildi, Sigurð og Baldur. Barnabörnin em átta og bama- barnabömin em nú orðin 14. Þegar afí lést árið 1956 fluttist amma til foreldra okkar, Hildar og Óla, í Reykjavík og bjó þar í rúmlega 30 ár, en síðustu fímm árin dvaldi hún á Hjúkranarheimilinu Sunnuhlíð. Við systkinin vomm lánsöm að njóta nærvem ömmu öll okkar upp- vaxtarár. Hún var hæversk og prúð kona, ríkidæmi sitt taldi hún felast í börnum sínum og barnabömum sem hún fylgdist grannt með. Amma var sérstaklega ljóðelsk og kunni hún ógrynni af kveðskap. Þær eru ófáar stundimar sem hún hefur yljað okkur með sögum og mæli og til annarra mannamóta í fjölskyldunni og alltaf var einn af stærstu pökkunum frá Huldu frænku. Þá voru ekki svo ófáar stundir sem við eyddum á Ásvallagötunni sem maður nú minnist með gleði og ánægju í huga. Þá kunni maður að meta heitt súkkulaði og kökur sem sjaldan var borið fram af slík- um glæsileika sem á Ásvallagötunni og á þeim ámm var suðusúkkulaði frá Síríus sem geymt var í næst efstu skúffunni í eldhúsinu toppur- inn á tilverunni. Það hefur aldrei dulist mér að Hulda frænka var svolítið sérstök eða öllu heldur fremur sérlunduð kona sem líklega kom til af nokkuð svo sérstæðri ævi. Þannig helgaði Hulda miklum hluta ævi sinnar öðmm og aldrei giftist hún. Það skal einnig viðurkennt að á þeim árum sem maður var svo upp- tekinn af því að vera unglingur þótti manni lítið til koma um af- skipti hennar. Eftir því sem árin liðu og maður þroskaðist kunni frásögnum um gamla tíma. Manni leið alltaf vel í návist ömmu, svo yfírveguð og vel gerð kona sem hún var. maður hins vegar aftur mjög vel að meta þessa merkiskonu og það sem á unglingsárum þótti afskipta- semi hef ég alla tíð síðan skynjað sem umhyggjusemi aldraðrar frænku. Hulda frænka var alla tíð stolt af uppruna sínum, sveit sinni, enda Svarfdælingur og ekki laust við að hún smitaði mann af því stolti. Undir fremur alvarlegu yfírborði Huldu var glettni og húmor og í seinni tíð var auðvelt að slá á létta strengi við þessa frænku sem manni í eina tíð þótti alvarleikinn uppmál- aður. Þann alvarleika sé ég nú meir sem festu og vissa dyggð sem sú kynslóð sem hún tilheyrði tileink- aði sér og maður lærði síðar að meta. Það er ánægjulegt að við fjöl- Ömmu féll aldrei verk úr hendi og nutum við oft ósérhlífinna handa hennar. Við eigum margar góðar minningar um ömmu okkar, sem em samfléttaðar bemskuminning- um okkar. Það er víst að amma átti sí|jar bestu minningar frá Homafírði, og reikaði hugur hennar oft til æsku- stöðvanna. Henni þótti einkum mik- ið til náttúmfegurðar Homafjarðar koma, en þann stað taldi 'hún feg- urstan á landinu. Hún hafði mikla trú á ættjörðinni og brýndi oft fyr- ir okkur hversu lánsöm við væmm að fæðast íslendingar. Hún náði háum aldri og flest hennar samtíð- arfólk hefur nú kvatt þennan heim. Á síðari ámm minntist hún oft á að hún væri ekki kvíðin þeim um- skiptum sem bíða okkar allra. ^ Það var gæfa okkar að fá aO njóta ömmu í uppvextinum. Sárt er að horfa á eftir henni. Ávallt verður hennar minnst með kærleik. Farðu í friði, elsku amma, og hafðu þökk fyrir allt. skyldan skyldum hafa haft tæki- færi til þess síðasta sumar að koma heim til íslands og þá meðal annars að hitta Huldu frænku. Ég held það hafi einnig glatt hana að taka þátt í fermingu og skirn bama okkar. Þá var ánægjulegt að sitja með henni á Lækjarbrekku í sumar þar sem hún bauð okkur í heitt súkky- laði og kökur, sem í mínum hugá er núna sem táknræn kveðjuathöfn. Það er með söknuði og trega sem við kveðjum Huldu frænku en um leið þökkum við fyrir að hafa feng- ið að kynnast slíkri merkiskonu, sem ævinlega verður minnst með virðingu á heimili okkar Blessuð sé minning Huldu Gunn- laugsdóttur. Gunnlaugur Sigfússon og fjölskylda í Bandaríkjunum. t Eiginmaður minn, SVERRIR JÓNSSON, Sæbólsbraut 26, Kópavogi, lést í Stavanger sunnudaginn 17. janúar. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Baldursdóttir. t Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU KJARTANSDÓTTUR röntgenhjúkrunarkonu, Espigerði 4, Reykjavík, fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 21. janúar kl. 15.00. Bernharður Guðmundsson, Kjartan Jónsson, Guðrún Kristjánsdóttir og barnabörn. t Elskulegur afi okkar og bróðir, SIGURJÓN B. HELGASON, Yrsufelli 3, sem lést 11. janúar sl., veröur jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 21. janúar kl. 15.00. Maria Thejll, Rannveig I.Thejll, Kristin B. Sigurbjörnsdóttir, Gunnar Helgason, Bjarni Helgason, Alda Guðrún Helgadóttir, Áslaug Böðvarsdóttir. t Ástkær bróðir minn, SIGMAR KRISTJÁNSSON frá Eldjárnsstöðum, Langanesi, verður jarðsunginn frá Sauðaneskirkju laugardaginn 23. janúar kl. 14.00. Guðjón Kristjánsson. t Maðurnn minn og faðir okkar, KRISTJÁN SIGMUNDSSON, Heiðarbraut 15, Keflavík, lést 18. janúar. Kristín Guðmundsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Soffía Kristjánsdóttir, Ólafur Benóný Kristjánsson, Bragi Kristjánsson. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓNAS HALLGRÍMSSON, Bjarkarbraut1, Dalvík, verður jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju föstudaginn 22. janúar kl. 13.30. Nanna Jónasdóttir, Jónatan Sveinsson, Halla S. Jónasdóttir, Anton Angantýsson, Júlíus Jónasson, Mjöll Hólm og barnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SVEINJÓNS INGVARS RAGNARSSONAR, Unufelli 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 11 E á Landspítalan- um fyrir kærleiksríka umönnun. F.h. vandamanna, Valdis Hansdóttir. “ Kjartan, Helga og Oddný. Hulda Gunnlaugs dóttir - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.