Morgunblaðið - 20.01.1993, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 20.01.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993 35- TIMAMOT Listamað- urinn tafði vígsluna Það var fyrir þremur árum að Prenttækni flutti í nýtt eigin húsnæði á Kársnesbraut 108 í Kópa- vogi. Allt frá flutningsdegi stóð til að halda vígsluveislu í tilefni þessara tímamóta en ekkert varð af því fyrr en milli jóla og nýars að drifíð var í því. í máli eigandans Gunnars Magga Árnasonar kom reyndar fram skýr- ing á þessari töf. Sagði hann að list- málarinn Baltasar ætti mesta sökina því um hefði verið talað að hann málaði mynd sem prýða skyldi einn vegginn í anddyri prentsmiðjunnar og skyldi hún afhjúpuð í veislunni. Það var listamaðurinn sjálfur sem afhjúpaði myndina sem var gjöf hans til Prenttækni með þakklæti fyrir samstarfið á liðnum árum. Allar sýn- ingarskrár og bækur Baltasars hafa verið unnar í Prenttækni. Þegar svo myndin hafði verið af- hjúpuð kom í ljós gæðingurinn vængjaði Pegasus þar sem hann sté fæti sínum á bók eina mikla en Gunn- ar Maggi er mikill áhugamaður um hestamennsku. Prenttækni hefur verið starfrækt í átján ár en þar starfa nú 10 manns. Fyrirtækið er íjölskyldufyrirtæki rekið af þeim hjónum Gunnari Magga og Stefaníu Flosadóttur. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Baltasar ásamt aðaleigendum Prenttækni, hjónunum Stefaníu Flosa- dóttur og Gunnari Magga Arnasyni, við listaverkið. • SJálfstyrking * Námskeið þar sem á 30 stundum er unnið markvisst með nemendum að eftirtöldum markmiðum: • Kynnast betur eigin styrk og kostum • Koma sjálfum sér og eigin hugmyndum á framfæri • Læra að þola mótlæti og taka gagnrýni • Standa á rétti sínum og bregðast við yfirgangi • Laða það besta fram í sjálfum sér og öðrum • Læra að gefa af sér og gera eðlilegar kröfur • Móta eigin lífsstíl og persónuleika Leiðbeinandi er: Sœmundur Hafsteinsson sálfrœðingur Stiórntækniskóli íslands sími 67 14 66 • opið til kl. 22 OSÆTTI Fjöllyndur og ofbeldis- hneigður Þögn og fáskipti furstafólksins í Mónakó í garð yngsta dverg- ríkisarfans Stefaníu á þeim tíma- mótum að verða móðir, hefur vakið meira en litla athygli í röðum þeirra sem geta ekki látið athyglina hvarfla frá fræga fólkinu. Skýring- in mun þó vera fyrirliggjandi. Það hefur verið vitað frá byijun sambands Stefaníu og bamsföður- ins Daniels Ducruets, að Rainier fursti er lítt hrifinn af drengnum, sem er fyrrverandi lífvörður Stefan- íu. Ástæðan mun vera sú, að í jan- úar á síðasta ári upplifði Ducruet þá hamingju fyrsta sinni að verða faðir. En ekki með Stefaníu, heldur frönsku skrifstofublókinni Martine Malbouvier. Bam hans og Stefaníu, sem fæddist 26. nóvember er því annað barn hans, fætt á sama ári og frumburðurinn. Minna þarf til að valda hneyksli í röðum fínni fjöl- skyldna. Og ekki nóg með það, heldur þarf Ducruet þessi senn að mæta fyrir rétt í Nice þar sem hann hefur verið kærður fyrir að leggja hendur á og berja vegfarendur eftir deilur um rétt og réttleysi í umferðinni. Á hann yfír höfði sér allt að tveggja ára fangelsi, en trúlega sleppur hann þó með heriega sekt og skil- orðsbundinn dóm. ©) En gráu hárunum í kolli Rainiers myndi fjölga um þessar mundir ef þau væru ekki öll fyrir löngu orðin hvít, því fregnir herma að Stefanía ætli að bjóða fjölskyldu sinni byrg- inn með því að ganga í það heilaga með Ducruet sínum. Ekki hefur þó dagsetningin verið staðfest. ÁR ALDRAÐRA I EVRÓPU 1993 Öldrunarráð íslands Rádstefna um hamingju föstudaginn 22. janúar kl. 13.15 í Borgartúni 6. Ráðstefnustjóri: Svavar Gests. DAGSKRA Hamingjan í hjörtum okkar: Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík. Hamingja: Jón Björnsson, félagsmálastjóri á Akureyri. Árni Tryggvason skemmtir. Lengir hláturinn lífið?: Óttar Guðmundsson, læknir. Leikfélagið Snúður og snælda flytur kafla úr leikritinu Sólsetri. Hamingjan í hjörtum okkar: Söngfélag Félags eldri borgara í Reykjavík. Ráðstefnan er öllum opin. Ráðstefnugjald er kr. 1000. Stjórnin Daniel Ducruet og Stefanía. f Missið ekki af afburða sýningu! i S7RÆT1 LEIKDOMUM: A SMIÐAVERKSTÆÐINU „Ingvar E. Sigurösson var „alveg ýktur“ í lykilhlutverkinu sem skálkurinn Scullery, sleipur og ófyrirleitinn..." AUÐUR EYDAL (DV) „Þór Tulinius og Baltasar Kormákur eru feiknagóöir...“ „Leikur Halldóru Björnsdóttur og Eddu Heiörúnar Backmann er frábær...“ „Kristbjörg Kjeld og Róbert Arnfinnsson sýna stórgóöan leik.“ GERÐUR KRISTNY (Tíminn) „Hér gefur aö líta leiklist í hæsta gæðaflokki. Það sem Kristbjörg Kjeld gerir í þessari sýningu er magnaö, svo maður nefni þaö albesta. Maöur sér ekki betri leiklist á byggöu bóli“. LÁRUS ÝMIR ÓSKARSSON (Pressan) „Glæsilegt leikhúsverk, sem byggir á jöfnum afburöagóðum ieik og fagmennsku í hvívetna. Sýning, sem enginn, er á annaö borö hefur gaman af leikhúsi, ætti að láta fram hjá sér fara“ ARNÓR BENÓNÝSSON (Alþyöublaöiö) ...öll tjáning - látbragð og svipbrigöi - var nákvæmlega unnin... hverju smáatriöi var komið til skila ... og að þaö er virkilega þess virði aö sjá sýninguna, til aö njóta þess aö horfa á góöa leikara sýna list sína." SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR (Morgunblaöiö) Mið?Pc!£taan,r NÆSTU SYNINGAR: Laugard. 23 Si janúar kl. 20 Föstud. 5. febrúar kl. 20 Laugard. 6. febrúar kl. 20 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.