Morgunblaðið - 20.01.1993, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 20. JANÚAR 1993
41
Hver er maðurinn
á myndinni?
Málefni: Hver er maðurinn á
myndinni með Þórólfi Hanssyni
Beck? Svili minn, Þórólfur Beck,
Boðahlein 7,210 Garðabæ, en Þór-
ólfur Beck skipstjóri var fóstri hans,
hefur beðið mig að láta Morgun-
blaðið birta meðfylgjandi mynd af
Þórólfi Hanssyni Beck og ókunnum
ferðamanni, innlendum eða erlend-
um.
Þórólfur H. Beck var stýrimaður
á Gullfossi, skipstjóri á Sterling, og
að lokum skipstjóri á Esju 1923-
1929.
Þórólfur H. Beck skipstjóri fædd-
ist á Sómastöðum við Reyðarfjörð
16. febrúar 1883 og lést í Reykja-
vík 3. júní 1929.
Þeir sem kynnu að þekkja hinn
ókunna ferðamann á myndinni, vin-
samlegast hafi samband við: Þórólf
Beck, Boðahlein 7, 210 Garðabæ.
Sími: 91-54042.
Leifur Sveinsson.
VELVAKANDI
GOÐ ÞJONUSTA
HJÁ NINGS
Það kom mér mjög á óvart að
lesa það í Morgunblaðinu þriðju-
daginn 12. janúar sl. að einhver
hefði fengið lélega þjónustu hjá
Nings við Suðurlandsbraut. Eg
get nú varla kallað mig fasta-
kúnna, en hef þó komið þangað
nokkrum sinnum og fengið mat
sendan heim, en hef aldrei fengið
lélega þjónustu nema síður sér.
Það sem mér hefur fundist ein-
kenna Nings er góður matur á
góðu verði og einmitt góð þjón-
usta og á það einnig við um heim-
sendingarþjónustuna. Það er von
mín að Veitingahúsið Nings lifi
sem lengst því það er nauðsynleg
viðbót í veitingahúsaflóru Reykja-
víkur.
Amundi Sigurðsson.
KETTIR
Sölvi týndist frá Eskihlíð 22.
Fór að heiman á nýársdag og
hefur ekki sést síðan. Var með
svarta og gráa endurskinsól, mjög
mannelskur. Fólk er beðið að leita
í kjöllurum og bílskúrum í næsta
nágrenni. Upplýsingar í síma
23664.
*
Kettlingur fæst gefins. Upplýs-
ingar í síma 20267.
ÚR TAPAÐIST
Á sunnudag tapaðist vandað
karlmannsstálúr, Zenith, í Foss-
voginum. Finnandi hafi vinsam-
legast samband í síma 12287.
TAPAÐ-
FUNDIÐ
Tveir jakkar týndust í Casa-
blanca laugardagskvöldið 16. jan-
úar sl. Annar er brúnn rúskinn-
sjakki með bogamynstri á baki
og ermum. Hinn er gallajakki með
nafninu Stradivarius saumuðu á
bakið. Finnandi vinsamlega hringi
í síma 656062 eða 679494.
*
Rauðbrúnir loðfóðraðir kven-
hanskar týndust í innkaupakörfu
í Hagkaup laugardaginn 16. jan-
úar sl. Finnandandi vinsamlega
hringi í síma 13612.
*
Veski hvarf úr vasa í Háskól-
anum — Sá sem tók veskið úr
vasa mínum í VRI fyrir hádegi
sl. föstudag er beðinn senda mér
ökuskírteinið mitt og önnur skil-
ríki sem hann hefur engin not
fyrir. Heimilisfangið er að sjálf-
sögðu á skilríkjunum.
GÞG
*
Svart, gamalt sjal týndist í
Rósenberg-kjallaranum sl.
laugardagskvöld. Sjalið er erfiða-
gripur og hefur mikið tilfinninga-
legt gildi fyrir eigandann.
Finnandi geri svo vel að hafa sam-
band í síma 616928.
Voru Jón
og Gunna
brjáluð?
Frá Stefáni Steinssyni.
Undanfarið tungl hef ég hvað
eftir annað heyrt Selmu píanóleik-
ara og Sigrúnu fiðluleikara spila
Litlu Gunnu og litla Jón á diski í
útvarpinu. Þær leika óaðfinnanlega
enda sérmenntaðar á því sviði. Ut-
setningin mun ekki vera eftir þær
sjálfar, ég veit ekki eftir hvern hún
er en þykist viss um að hún er
ekki eftir Pál ísólfsson. Tæknilega
virðist útsetningin vera afbragð og
hefðu nítjándualdarmenn varla haft
meiri umsvif. Framan af er hún líka
viðkunnaleg en ekki líður á löngu
uns iðjusemin gerist svo stórkarla-
leg að mest minnir á Oscar Peter-
son skellikátan að störfum með
bensínknúna garðsláttuvél inni á
flísalögðu baðherbergi. Þá fer hlust-
andann að gruna að útsetjandinn
vilji meina að Jón og Gunna hafí
verið plöguð af ofsóknargeðklofa
og lagt heimili sitt í rúst endrum
og sinnum eins og hent getur slíka
sjúklinga. Annar möguleiki er að
hann telji að þau hafí verið drykkju-
sjúklingar og látið staflana af leir-
tauinu svífa um íbúðina þegar illa
lá á þeim og mölvað allt lauslegt.
En ekkert af þessu er hægt að lesa
úr kvæði Davíðs. Hjónin þjáðust
hins vegar af ófrjósemi, það segja
lokalínurnar okkur. Einnig var ástin
dauf og kannski samhengi þar á
milli. En engin tilraun er gerð til
að lýsa ófijóseminni í hinni nýju
útsetningu; tæpast verður því trúað
að þau hafí verið svo viti sínu fjær
af ófijósemi að allt ætlaði af göflun-
um að ganga. Nei, þarna er bara
dregin inn einhver ótímabær garð-
sláttuvél sem verður væmin við
þriðju áheym. Ástleysinu er lítill
gaumur gefinn.
Guðmundur Ingólfsson gaf litlu
hjónin út ósturluð á diski fyrir fjór-
um árum. Það er kannski ekki frum-
legt að segja það lengur en sá flutn-
ingur var snilld.
STEFÁN STEINSSON,
Búðardal.
Pennavinir
ENSKUR MAÐUR óskar eftir að
komast í kynni við frímerkjasafn-
ara. Heimilisfang hans er:
W.E. Cooper
Byeways
Dunheved Road
Launceston
Cornwall PL15 9JE
England
ENSKUR maður á þrítugsaldri sem
hefur verið búsettur í Sviss til
margra ára óskar eftir að komast
í bréfasamband við konur á aldrin-
um 20—30 ára. Hann hefur áhuga
á píanóleik og klassískri tónlist.
Heimilisfang hans er:
Nicholas Roddy
18 Avenue de Collonge
1820 TERRITET
Switzerland
Tvítugur Ghanapiltur með áhuga
á knattspyrnu, líkamsrækt, tónlist
o.fl.:
Geoffrey Quansah,
c/o Mr. J.E. Quansah,
State Housing Corporation,
Box A84,
Cape Coast,
Ghana.
Frá Indlandi skrifar 25 ára karl-
maður sem kveðst hrifinn af landi
og þjóð:
Jai Paul Sharma,
c/o Sharma Sweets,
Krishna Market,
Samana - 147101,
India.
Frá Ítalíu skrifar 27 ára kona
með margvísleg áhugamál sem vill
skrifast á við konur:
Rosita Appolloni,
Via Togliatti, 18/4 A,
20077 Melegnano (MI),
Italy.
Kynningarfundur
í kvöld að Sogavegi 69
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
STJÓRNUIXIARSKÓLIIMIM
Konráð Adolphsson. Einkaumboð fvrir Dale Carneqie námskeiðin"
Námskeiðið „Efling samskipta"
og fiölskyldulíf
Átta kvöld, sem geta hjálpað þér að ná árangri í sam-
skiptum við annað fólk, hvort sem er við vinnufélaga
þína, maka þinn eða þörnin þín.
Rannsóknir, sem bæði Carnegie stofnunin og háskól-
arnir Harvard og Stanford stóðu að, sýna að 85% af
velgengni okkar heima fyrir, á vinnustað og á öðrum
sviðum lífsins, fer eftir því hvernig við umgöngumst
annað fólk og hversu vel við þekkjum sjálf okkur. Að-
eins 15% velgengninnar er vegna starfskunnáttu! Efling
samskipta getur því komið þér til hjálpar!
Narhskeiðið „Efling samskipta" og fjölskyldulíf er byggt
á traustum grundvelli, kennslu, sem kemur úr Biblfunni
og mun hjálpa þér til að öðlast dýpri þekkingu á því
fólki, sem þú umgengst mest.
Næsta námskeið hefst í Holiday Inn mánudaginn
25. janúar, kl. 20.00.
Skráning í símum 682236 og 679406 eftir kl. 13:00.
EFLING SAMSKIPTA,
pósthólf 4058, 124 Reykjavík.
V____________________________________________________y
•'f/H"
SLYS A BORNUM
FORVARNIR
FYRSTA HJÁLP
SNÚUM VÖRN í SÓKN OG
FORÐUM BÖRNUM OKKAR
FRÁ SLYSUM
Rauði kross Islands gengst fyrir tveggja kvölda námskeiði um
algengustu slys á bömum, hvemig bregðast á við slysum og
hvemig koma má í veg fyrir þau.
Námskeiðið fer fram að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18,
Reykjavík dagana 26. og 27. janúar n.k. kl. 20:00 - 23:00.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu RKÍ
í síma 91-626722 fyrir kl. 17:00 mánudaginn 25. janúar.
FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ
RAUÐA KROSS ÍSLANDS
Rauöarárstíg 18 - Revkjavík - sími: 91 - 626722