Morgunblaðið - 20.01.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1993
SKIÐI / HEIMSBIKARINN
MICHAEL von Gruningen frá Sviss sigraði óvænt í stórsvigi
heimsbikarsins í Veysonnaz f Sviss f gær. Alberto Tomba
varð enn einu sinni að sætta sig við annað sætið. Norðmaður-
inn Lasse Kjus varð þriðji.
Qriiningen, sem er 23 ára,
hafði aldrei áður komist á
efeta þrepið I heimsbikarmóti fyr-
ir stórsvigið í gær, sem fram fór
á gervisnjó við góðar aðstæður.
„Þið getið varla ímyndað ykkur
hve ánægður ég er,“ sagði Grtin-
ingen, sem hafði áður náð best
5. sæti í stórsvigi. „Ég gerði mér
vonir um að hreppa eitt af fímm
efstu sætunum. Það er frábært
að vinna fyrsta mótið á heima-
velli og það skemmir ekki að hafa
unnið Tomba á sama degi.“
Lífíð hefur ekki alltaf verið
dans á rósum hjá Grtiningen því
hann missti móður sína þegar
hann var aðeins sex ára gamall
og faðir hans lét lífið í bílslysi
Qórum árum síðar. Systir hans,
Christina, hefur verið ein fremsta
svigkona Svisslendinga síðustu tíu
árin en hefur aldrei náð að vinna
heimsbikarmót.
Marc Girardelli hélt áfram að
bæta stigum í safnið með því að
ná jgórða sætinu í gær. Hann
hefur nú 313 stiga forskot á
Tomba í stigakeppninni. „Ég er
mjög sáttur við fjórða sætið því
síðustu tvær vikur hafa verið
reglulega erfiðar," sagði Girar-
delli sem keppti í sjöunda mótinu
á aðeins 10 dögum.
Reuter
HANDKNATTLEIKUR
Markvarsla Sigmars
Þrastar réði úrslitum
FOLK
■ DERRICK Coleman skoraði
25 stig í fímmta sigurleik New
Jersey Nets í röð, 100:97 gegn
Indiana Pacers í fyrrinótt. Nets
hefur sigrað í níu af síðustu 12 leikj-
um í NBA-deildinni.
■ CHRIS Morris innsiglaði sigur
Nets, þegar hann tróð glæsilega
2,8 sek. fyrir leikslok.
■ PATRICK Ewing skoraði 35
stig — persónulegt met í vetur —
og var með 11 fráköst í 106:103
sigri New York Knicks gegn
Phoenix Suns. Þetta var þriðja tap
Suns í 21 leik.
■ EWING jafnaði 99:99 úr víta-
kasti, þegar 51 sek. vartil leiksloka
og þegar 22.2 sek. voru eftir kom
hann liði sínu yfír með þriggja stiga
körfu.
■ CHARLES Barkley skoraði 27
stig fyrir Suns og tók 15 fráköst.
Hann reyndi að jafna, þegar 11
sek. voru eftir en hitti ekki úr
þriggja stiga skottilraun.
■ JEFF Homacek skoraði sex
af 32 stigum sínum í framlengingu,
þegar Philadelphia vann Orlando
Magic 124:118. Þetta var fímmti
sigur 76ers í röð.
■ SHAQUILLE O’Neal skoraði
38 stig fyrir Orlando, sem er met
hjá nýliðanum. Auk þess var hann
með 16 fráköst og varði átta skot.
■ MICHAEL Jordan skoraði 29
stig og Scottie Pippen var með
24 stig í 103:93 sigri Chicago
Bulls gegn Boston Celtics. Þetta
var annað tap Celtics í síðustu 10
leikjum, en Reggie Lewis var
stigahæstur með 21 stig.
I VERNON Maxwell hitti úr sex
af átta þriggja stiga skottilraunum
sínum og skoraði alls 24 stig fyrir
Houston Rockets, sem vann
Lakers 110:90 í Los Angeles.
Hakeem Olajuwon var með 21
stig í þessum fimmta sigri Rockets
í röð.
■ JAMES Worthy skoraði 18 stig
fyrir Lakers, en A. C. Green var
með 14 stig og 11 fráköst. Þetta
var þriðja tap Lakers í síðustu fjór-
um leikjum.
■ CHRIS Mullin skoraði 27 stig
og Tim Hardaway var með 23
stig og 14 fráköst fyrir Golden
State Warriors, sem tapaði heima
111:107 fyrir Sacramento Kings,
fímmta tap Warriors í röð.
■ WALT Williams skoraði 24
stig og tók 11 fráköst fyrir Kings,
sem hefur aðeins sigrað í íjórum
af 16 útileikjum. Williams tryggði
sigurinn, þegar hann skoraði úr
vítaskoti 19,2 sek. fyrir leikslok.
■ GARY Payton skoraði 22 stig,
þar af sex á síðustu tveimur mínút-
unum, þegar Seattle vann Utah
106:96. Þetta var 13 sigur Seattle
í síðustu 16 leikjum, en þriðja tap
Utah í síðustu 13 leikjum.
■ JOHN WiIIiams hitti úr tveim-
ur vítaskotum, þegar 22.6 sek. voru
til leiksloka í Minneapolis, og
tryggði LA Clippers sigur, 94:93.
■ STANLEY Roberts setti per-
sónulegt stigamet í vetur, skoraði
20 stig og var með 14 fráköst fyrir
Clippers, sem fagnaði sigri í þriðja
smn eftir síðustu níu leiki. Tim-
berwolves hefur tapað sex af síð-
ustu sjö og 14 af síðustu 16 leikjum.
■ DOUG West og Michael Will-
iams skoruðu 20 stig hvor fyrir
heimamenn. Williams var að auki
með 16 fráköst, sem er persónulegt
met hjá honum á tímabilinu, og
„stal“ boltanum sjö sinnum.
FELAGSLIF
Þorrablót KR
Þorrablót KR verður haldið í Félagsmið-
atöðinni Frostaskjóli laugardaginn 23. jan-
úar. Miðasala hjá húsvörðum og við inn-
ganginn, en húsið opnar kl. 19,
Iþróttaskóli barnanna
íþróttaskóli bamanna verður starfræktur
í KR-heimilinu við Frostaskjól næstu 10
laugardagsmorgna. Þriggja og fjögurra ára
böm verða ki. 10 til 11, en fimm og sex
ára kl. 11 til 12. Skráning verður í KR-heim-
ilinu í dag, miövikudag, og á morgun kl.
16f30 til 18.30.
SIGMAR Þröstur Óskarsson,
markvörður og fyrirliði ÍBV, átti
stórleik er ÍBV sigraði Fram,
23:27, í 1. deild karla í Laugar-
dalshöll í gærkvöldi. Hann
varði alls 24 skot og það réði
öðru fremur úrslitum. Fátt virð-
ist nú geta bjargað Fram frá
falli í 2. deild.
Sigmar Þröstur var ánægður
eftir sigurinn, en sagðist hafa
verið mjög slæmur í bakinu í gær-
mmi morgunn og því orð-
Valur B. ið að spila með belti
Jónatansson til að hlífa bakinu
skrífar 0g það gafst SVO
sannarlega vel. „Ég
beið lengur fyrir bragðið er þeir
reyndu skot. Ætli ég mæti ekki
með beltið í næsta leik því þetta
gekk svo vel,“ sagði fyrirliðinn. „Ég
vona að þetta sé sama gamla sag-
an, að við spilum alltaf vel eftir
áramót. Þetta var fjögurra stiga
leikur og því mikilvægt að sigra.
Við reynum að halda okkar striki
eftir tvo sigurleiki í röð og færum
okkur upp töfluna."
Leikurinn var ekki góður en þess
meira tekist á því mikið var í húfí
fyrir bæði í liðin í botnbaráttunni.
Eyjamenn náðu vænlegri stöðu um
miðjan fyrri hálfleik og höfðu yfir
10:14 í hálfleik. Framarar voru
ekki á því að gefast upp, tóku tvo
Eyjamenn úr umferð, og náðu að
minnka muninn í þrívegis í eitt
mark í síðari hálfeik en náðu ekki
að jafna þrátt fyrir fjölmörg tæki-
færi til þess. Sigmar Þröstur sá
Slgmar Þröstur Óskarsson.
fyrir því með stórleik í markinu á
sama tíma og sóknarleikur IBV var
í molum. Undir lokin kom upp von-
leysi hjá Frömurum og Eyjamenn
gengu á lagið og gerðu út um leik-
inn með góðum lokakafla.
Páll Þórólfsson var eini leikmaður
Fram sem spilaði vel og Sigtryggur
stóð fyrir sínu í markinu. Eins og
áður segir var Sigmar Þröstur best-
ur hjá IBV og eins átti Björgvin
Rúnarsson góðan síðari hálfleik en
þá gerði hann 7 glæsileg mörk.
1.DEILD KARLA
Fj. lelkja u j T Mörk Stig
STJARNAN 16 11 3 2 403: 378 25
VALUR 15 8 6 1 359: 322 22
FH 15 9 2 4 397: 362 20
HAUKAR 16 9 1 6 432: 393 19
SELFOSS 15 7 3 5 385: 370 17
VÍKINGUR 15 8 1 6 354: 343 17
KA 16 7 2 7 370: 374 16
/R 16 6 3 7 387: 391 15
ÞÓR 16 5 2 9 385: 423 12
ÍBV 16 4 3 9 373: 401 11
FRAM 16 3 1 12 390: 421 7
HK 16 3 1 12 368: 425 7
Michael von Griiningen.
ÚRSLIT
Skíði
Veysonnaz, Sviss:
Stórsvig karla:
Michael von Griinigen (Sviss)...2:29.51
(1:13.51/1:16.00)
Alberto Tomba (Ítalíu).........2:29.58
(1:13.75/1:15.83)
Laase Kjus (Noregi)............2:29.71
(1:13.75/1:15:96)
Marc Girardelli (Lúxemborg)....2:30.28
(1:14.22/1:16.06)
Hans Pieren (Sviss)............2:30.31
(1:14.59/1:15.72)
Kjetii-Andre Aamodt (Noregi)...2:30.63
(1:14.16/1:16.47)
Sergio Bergamelli (Italíu).....2:30.84
(1:14.57/1:16.27)
Rainer Salzgeber (Austurríki)..2:31.03
(1:14.49/1:16.54)
Staðan í stórsvigskeppninni (eftir 4 mót):
1. Girardelli......................262
2. Tomba...........................256
3. Aamodt..........................210
4. Kjus............................189
5. Von Grunigen....................182
Staðan í stigakeppninni:
1. Girardelli......................925
2. Tomba...........................612
3. Aamodt..........................525
4. Mader...........................448
5. Franz Heinzer (Sviss)...........436
6. Tomas Fogdoe (Svíþjóð)..........385
7. Jan EinarThorsen (Noregi).......343
8. Kjus (Noregi)...................326
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Föstudagur:
Boston - Orlando................ 94:113
New Jersey - Philadelphia.......110:105
■Eftir framlengingu.
Minnesota - Denver............. 99:89
Chicago - Golden State..........122:101
Dallas - New York............... 93:107
Indíana - Cleveland.............120:132
Phoenix - Miami.................107:99
LA Lakers - Portland............ 99:96
Seattle - LA Clippers...........123:104
Laugardagur:
Cleveland - Atlanta.............127:99
Philadelphia - Detroit..........123:108
W ashington - New Jersey........101:109
Chicago - Oriando...............124:128
Houston -NewYork.............. 104:102
Indiana-Golden State............117:116
San Antonio - Charlotte.........124:111
Denver - Dallas.................106:91
Milwaukee - Boston.............. 99:110
Utah - Sacramento............. 108:107
Sunnudagur:
Portland - Seattle..............109: 97
Mánudagur:
New York Knicks - Phoenix.......106:103
Philadelphia - Orlando..........124:118
■ Eftir framlengingu.
Chicago - Boston................103: 93
Los Angeles Lakers - Houston.....90:110
Golden State - Sacramento.......107:111
NewJersey-Indiana...............100: 97
Minnesota - Los Angeles Clippers.93: 94
Seattle-Utah Jazz...............105: 96