Morgunblaðið - 20.01.1993, Page 44

Morgunblaðið - 20.01.1993, Page 44
Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVABIHALMENNAR EININGABREF 2 Eignarskattsfrjáls Raunávöxtun [2S| s/. / 2 mánuði 8% KAUPÞING HF Löggiff verðbrifafyrirttrki MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1993 VERÐ I LAUSASOLU 110 KR. Morgunblaðið/Kristinn Gæsimar miklir brauðhákar Rúmlega 200 kíló af brauði þarf á hverjum degi til að fæða fuglaskarann á Tjörninni þegar jarðbönn eru. Af þeim borða grágæsimar rúmlega 100 kíló. Ólafur K. Nielsen fuglafræðingur segir að grágæsahópurinn sé kom- inn af pari sem sett var á Tjömina árið 1953 og hafi um 500 gæsir verið í hópnum síðustu þijú ár. Dökk spá Þjóðhagsstofnunar Hagvöxtur fer ekki að glæðast fyrr en eftir 3 ár BÚAST má við að hagvöxtur á íslandi verði nánast enginn að jafnaði á árunum 1993 til 1995, en hann glæðist síðan í 2 til 3% á ári frá 1996 að því er segir í endurskoðaðri áætlun Þjóðhagsstofnunar um framvinduna í efnahagsmálum sem birt var í gær. „Atvinnuleysi verður meira en verið hefur á næstu 3 árum en minnkar síðan með auknum hagvexti," segir í frétt frá stofnuninni. Þjóðhagsstofnun telur að hægt verði að auka sókn í þorskstofninn að um það bil 3 árum liðnum og þá fyrst megi búast við að verð afurða stóriðju hækki í kjölfar auk- ins hagvaxtar í iðnríkjunum. Því er spáð að útflutningstekjur muni standa í stað á næstu 3 árum, en líkur séu á nokkrum vexti þeirra, e.t.v. um 4% á ári, upp frá því. 5% atvinnuleysi Þjóðhagsstofnun spáir 4% verð- bólgu á íslandi á þessu ári, 5% at- vinnuleysi og að landsframleiðsla verði 1,4% minni en á síðasta ári. Vafasamt sé að reikna með að raun- vextir lækki í bráð og að kaupmátt- ur ráðstöfunartekna á mann verði 5 lh% minni á þessu ári en í fyrra. Erlendar lántökur halda áfram og er því spáð að staða erlendra lána verði komin í 237 milljarða króna í lok ársins sem er ríflega 60% af landsframleiðslu. Sjá nánar á miðopnu Náttáruverndarráð Lögmæti gjaldtöku í Dyrhólaey kannað Náttúruverndarráð kannar nú hvort fyrirhuguð gjaldtaka landeigenda við Dyrhólaey af ferðamönnum sem um staðinn fara samrýmist lögum um friðlýst svæði. Lagst var gegn svipuð- um áformum í fyrra þar sem um friðlýst svæði var að ræða. Forsvarsmenn þeirra ferða- skrifstofa sem annast hópferðir erlendra ferðamanna hingað til lands, gagnrýna gjaldheimtuna harðlega. Um hana hefur hins vegar ekki verið fjallað í Ferða- málaráði. Þó má þess geta að ráðið hefur ávallt verið mótfallið gjaldheimtu af ferðamönnum í þessu formi. Málið hefur enn ekki komið til umræðu innan samgönguráðuneytisins. Gjaldtaka við Höfða Um nokkurra ára skeið hefur gjald verið innheimt af ferða- mönnum fyrir aðgang að Höfða í Mývatnssveit, en það svæði er í einkaeign og fellur ekki undir umsjá Náttúruvemdarráðs. Nú stendur gjaldið undir um helm- ingi þess kostnaðar sem hreppurinn hefur af Höfða. Helgi Jóhannsson hjá Sam- vinnuferðum-Landsýn segir að fyrirtæki hans hafi sneitt hjá Höfða í hópferðum með útlend- inga eftir að gjaldtakan hófst. Goði Sveinsson hjá Úrvali-Útsýn gagnrýnir tímasetninguna þar sem verðskrá lá fyrir í septem- ber og þá var ekki reiknað með þessum kostnaði. Sjá ennfremur: Af innlend- um vettvangi á miðopnu. Sjóvá-Almennar og dótturfyrirtækið Festing ásamt Nesskipum Eru fjórði stærsti eigandi Olíufélagsins með 5% hlut S J ÓV Á- Almennar og dótturfyrirtækið Fest- ing, ásamt Nesskipum, hafa að undanförnu eignast 5% hlut í Olíufélaginu hf., ESSO, og eiga nú sem svarar 128 milljónir króna, miðað við fimmfalt nafnverð bréfanna, eða 25,6 mil^- óna króna hlut á nafnverði. Samkvæmt upplýs- ■'TT^um Einars Sveinssonar, framkvæmdastjóra Sjóvá-Almennra, hefur félagið keypt hlut í ESSO á ahnennum markaði. Sjóvá-Almennar eiga nú ásamt dótturfyrirtækjunum Festingu og Nesskipum 5% hlut í ESSO og eru þar með orðin fjórði stærsti hluthafinn í ESSO, á eftir Olíusamlagi Keflavíkur, KEA og Samvinnulíf- eyrissjóðnum. Einar Sveinsson sagði í samtali við Morgunblað- ið f gær að skipting eignarhlutar fyrirtækjanna þriggja í Olíufélaginu hf. væri sú að Sjóvá-Almenn- ar ættu 1%, Festing ætti 2% og Nesskip ættu 2%. „Við töldum einfaldlega að hér væri um góðan fjárfestingarkost að ræða, og völdum það að kaupa á almennum markaði, þegar hreyfing komst á stóran hluta þessarar eignar." Einar sagði jafnframt að eignasamsetning Sjóvá-Almennra væri þannig að meginhluti eigna félagsins væri í verðbréfum sem auðvelt væri að losa á markað, ef þörf krefði. „Þannig að hluti af okkar heildareignum sem fólginn er í hlutabréf- um er innan við 10%,“ sagði Einar. Keypt á 4,8 - 4,9 földu nafnverði Eins og kom fram í fréttum seint á síðastliðnu ári, ákvað stjóm ESSO að kaupa hlut Hamla, eign- arhaldsfélags Landsbankans um eigur Sambands íslenskra samvinnufélaga, sem var um 33% í félag- inu á 1.048 milljónir króna, sem var fimmfalt nafnverð, en skráð gangverð hlutabréfa í ESSO í byijun nóvembermánaðar 1992, þegar Lands- bankinn og ESSO gengu frá kaupunum, var þá 4,5 falt nafnverð. Gangverð hlutabréfa í ESSO hefur hækkað úr 4,5 til 4,6 falt nafnverð frá því í nóvemberbyijun í um fímmfalt nafnverð bréfanna, samkvæmt nýj- ustu skráningum. Morgunblaðið hefur upplýsingar um að Sjóvá-Almennar, ásamt Festingu og Nes- skipum hafi keypt megnið af hlut sínum í ESSO þegar gangverð bréfanna var skráð 4,6 falt nafn- verð, og þá keypt á verði heldur fyrir ofan gang- verð, eða 4,8 til 4,9 falt nafnverð. Framfærsluvísitalan frá jan ’92 til jan. ’93 Ferðir og flutningar (18,6) Húsnæði, rafmagn og hiti (18,5) Matvörur(17,1) Tómstundaiðkun og menntun (11,5) Húsgögn og heimilisbún. I Föt og skófatnaður (6,3) Drykkjarvörur og tóbak (4,3) Heiisuvemd (2,5) Aðrar vörur og þjónusta (14,3)[] 0,5% Vísitala vörn og þjónustu j 13,5% FRAMFÆRSLUVÍSITALAN H 2-4% Tðlur [ svigum vísa til vægis einstakra liða af 100. Framfærsluvísitalan Heilsuvemd hækkar mest HEILSUVERND hækkar mest allra liða sem mynda framfærslu- vísitölu, um 20,6% frá janúar í fyrra þar til í janúar í ár. Vísitala vöru og þjónustu hefur hækkað um 3,5% en framfærsluvísitala um 2,4%. Ferðir og flutningar hafa hækkað um 7,5% og drykkjarvör- ur og tóbak um 5,5%. Hús- næðisliðurinn í heild lækkar hins vegar um 2,8%. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar hefur matur hækkað um 1,3% síðastliðið ár, kartöflur og vör- ur úr þeim mest, en grænmeti og ávextir um 3,3% og því næst mjöl, gijón og bakstur um 2%. Hins vegar hefur verð á feitmeti og matarolíu lækkað um 4,2%. Áfengi og tóbak hefur hækkað um 9%, kostnaður við einkabíla hefur aukist um 8%, al- menn flutningstæki 4% og póst og síma 3,1%. Loks hefur kostnaður við skólagöngu hækkað um 11,8% frá ársbyijun í fyrra. Wagner- ópera sett upp hér? WOLFGANG Wagner, sonar- sonur hins þekkta tónskálds Richards Wagners, kemur hingað til lands ásamt Gud- runu Wagner, eiginkonu sinni, á sunnudag. Valgarður Egilsson, formaður framkvæmdanefndar Lista- hátíðar 1994, sagði að Wolfgang væri listrænn stjórnandi Bayre- uth-hátíðarinnar, árlegrar Wagner-tónlistarhátíðar í Þýskalandi. Hann kæmi hingað til lands til þess að kanna að- stæður og eiga viðræður við framkvæmdastjórn Listahátíðar um möguleika á að færa upp Wagner-óperu á íslandi á Lista- hátíð en ópera eftir tónskáldið hefði aldrei verið færð upp hér á landi. Reykvél rugl- aði kerfið Slökkviliðið í Reykjavík fór að Þjóðleikhúsinu eftir að viðvörun- arkerfi hafði farið í gang þar gærkvöldi. Þegar sex menn á slökkviliðsbíl og sjúkrabíl komu á staðinn varð ljóst að ekki var eldur þar heldur var verið að búa til reyk með sér- stakri vél vegna æfingar á sviðinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.