Morgunblaðið - 28.01.1993, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993
Báknið burt!
eftir Gunnar
Birgisson
Fyrir um það bil 20 árum settu
ungri sjálfstæðismenn í HÍ undir
forystu Friðriks Sophussonar fram
kosningastefnu, sem bar heitið
„báknið burt“. Stefnan fólst í því
að leitast skyldi við að minnka
ríkisbáknið, sem mörgum finnst
ekki vanþörf á enn í dag.
A þeim árum, sem liðin eru síð-
an þessi orð voru töluð, hefur
báknið vaxið gríðarlega. Er það
nú orðið allt að því tvöfalt við
það, sem það var á tímum þeirra
ungu manna, sem meitluðu þetta
slagorð.
Það virðist í sögunni ekki hafa
skipt meginmáli, hvaða ríkis-
stjórnir hafa setið við völd frá
þessum tíma. Báknið hefur vaxið
jafnt og þétt og virðist enginn
geta stöðvað útþensluna. Ef ekki
á að fara illa í ríkisíjármálunum
er fyrirsjáanlegt að þessa þróun
verður að stöðva og snúa henni við.
Margir höfunda fyrmefndrar
stefnuskrár eru nú í forystusveit
íslenzkra stjómmála. Það er því
ef til vill við hæfí að dusta rykið
af þessu þarfa kjörorði því orðin
„báknið burt“ virðast ekki eiga
minna brýnt erindi við okkur nú en
þá.
Meira bákn — meiri
skuldasöfnun
Tvennt virðist fylgjast að í sögu
íslenzkrar efnahagssögu. Annars
vegar útþensla „báknsins" og hins
vegar skuldasöfnun ríkissjóðs. Það
skiptir engu máli hvort í landinu
er góðæri eða hallæri, þessi þróun
heldur áfram, nema ef vera skyldi
að hún sé heldur örari á þensjutím-
um. Séu hins vegar ekki greiddar
niður skuldir í góðæmm, era frek-
ar litlar líkur á að það takist í
verri áram.
Þessi stjómunarstíll virðist vera
mjög ráðandi á valdatímum Fram-
sóknarflokksins, frá Ólafí Jóhann-
essyni 1971 til Steingríms Her-
mannssonar 1991. En þessir ára-
tugir hafa verið við þann flokk
kenndir, þó ekki hafí hann einn
ráðið ferðinni allan tímann. Allir
aðrir flokkar bera hér ábyrgð.
í stjórnartíð Jóns Þorlákssonar
vora skuldir ríkisins lækkaðar um
helming með spamaði í rekstri og
útgjöldum. Þá virtust menn hafa
pólitískan kjark og ábyrgðartil-
fínningu til þess að spara.
Nú virðist þorri íslenzkra stjóm-
málamann neita að viðurkenna,
að stöðug skuldasöfnun leiðir fyrr
eða síðar til gjaldþrots, hvort sem
fyrirtæki, bæjarfélög eða þjóðfé-
lög eiga hlut að máli. Um þetta
era nýleg dæmi, sem ekki þarf að
rekja.
En hvað er til ráða?
Spamaður í rekstri ríkisbákns-
ins er eina svarið. Ríkið hefur sýnt
sig að því, að geta ekki sparað
fyrir sjálft sig. Það era svo marg-
ar ríkisstjómir búnar að spreyta
sig á þessu sama dæmi, að full-
reynt er. Ríkið er einfaldlega of
stór eining til þess að geta náð
þeirri yfírsýn sem til þarf. Eina
færa leiðin virðist því vera aukin
valddreifíng. Það verður að færa
stjórnun fjármunanna nær fólkinu
sem greiðir þá.
Einn þáttur framsóknar-
mennskunnar var stofnun ríkisfyr-
irtækja, þar sem réttum mönnum
er troðið í feit embætti til frambúð-
ar. Það tekur ávallt mun lengri
tíma að vinda ofan af svona ráðs-
mennsku en það tekur að koma
henni á, sbr. viðureign núverandi
ríkisstjórnar við Byggðastofnun
og sjóðakerfíð.
Valddreifing — fleiri verkefni
til sveitarfélaganna
Leiðin til þess að nýta fé skatt-
borgaranna betur er að færa verk-
efni frá ríkinu til sveitarfélaganna.
Benedikt Sveinsson, oddviti
sjálfstæðismanna í Garðabæ,
skrifar í síðsta tölublað Garða um
samanburð samneyslu hér á landi
og á Norðurlöndunum og skipting-
una á milli ríkis og sveitarfélaga.
í grein hans kemur glögglega í
ljós hversu algera sérstöðu ísland
hefur í því að ríkið sé yfírgnæf-
andi í samneyslunni.
Það er nauðsynlegt að breyta
þessu. Það hefur sýnt sig, að sveit-
arfélögin hafa yfírleitt mun betri
stjóm á fjármálum sínum en ríkið.
Það er enda svo í þeim löndum,
sem við helst jöfnum okkur til, að
þar stjórna sveitarfélög um helm-
ing samneyslunnar meðan þau
stjórna minna en þriðjungi hennar
hérlendis. Vegna hins mikla mis-
vægis atkvæða við val okkar á
ríkisvaldi, er þetta enn brýnni
nauðsyn hér en annars staðar, eigi
sem virkast lýðræði að ríkja í ráð-
stöfun fjármuna fólksins.
Gunnar Birgisson
„Leiðin til þess að nýta
fé skattborgaranna bet-
ur er að færa verkefni
frá ríkinu til sveitarfé-
laganna.“
Verkefni, sem hugsa mætti sér
að flytja frá ríki til sveitarfélaga,
eru til dæmis skólamál. Nú sjá
sveitarfélögin um byggingu og
rekstur skólamannvirkja svo og
ákveðnar greiðslur til kennara,
sem eru ríkisstafsmenn. Ennfrem-
ur má nefna löggæsluna og meiri
þátttöku sveitarfélaga í rekstri
heilsugæslunnar.
Sveitarfélögin verða auðvitað
að fá tekjustofna til þess að mæta
þessum auknu verkefnum og ríkið
verður þar á móti að minnka sína
skattheimtu. Við þessar aðgerðir
væri hægt að draga úr vexti og
rekstri báknsins.
Athafna er þörf, ekki bara
orða
Eftir því sem samneyslan verður
meiri og hlutur ríkisins vex í öllum
málum, minnka Iíkurnar á bættum
hag þegnanna. Verðmætaglötun
fylgir ríkisrekstri í öllum myndum.
Er skemmst að minnast hvernig
ráðstjórnarfyrirkomulagið dugði
þegnunum austantjalds. Þar blasa
við þjóðargjaldþrot í flestum fyrri
löndum kommúnista og almenn-
ingur lifir á hungurmörkum með
þeirri skálmöld sem slíku fylgir.
I Bandaríkjunum beijast menn
við látlausan ríkissjóðshalla. Sem
dæmi má nefna, að framlög til
heilbrigðismála hafa aukist jafnt
og þétt um 12% á ári, mörg undan-
farin ár. Flestum þar vestra er
ljóst, að þetta gengur ekki lengur
og nú era gerðar áætlanir um nið-
urskurð í heilbrigðiskerfinu. Flest-
ir eru þessu sammála, því látlaus
skuldasöfnun hlýtur að leiða til
gjaldþrots. Þetta er lýðum ljóst
þar vestra, hvar í flokki sem menn
standa.
Hér á landi virðist ekki mega
hrófla við neinu því, sem einu sinni
er komið á. Þá ætlar allt vitlaust
að verða og kröfugerðum og
þrýstiaðgerðum rignir yfir.
Skuldir ríkisins virðast vera eitt-
hvert afstætt hugtak, sem almenn-
ingi kemur ekki beint við. En ef
við gerum okkur ljóst að ríkissjóð-
ur einn sér skuldar yfir 80 millj-
arða erlendis og að skuldirnar
vaxa ár hvert, munu flestir viður-
kenna, að eitthvað verði að gera,
en það má bara ekki snerta mig
og mína fjölskyldu, hugsum við.
Ef við göngum áfram á núver-
andi braut mun ekki þýða að
prenta peninga til að bjarga fjár-
hag ríkisins fremur en það þýddi
í austantjaldslöndum nú síðast.
Það verður að taka á vandanum
fyrr en seinna en ekki bara klóra
I ISALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA
Melkabuxur,
verð áður 6.995, - verð nú QE2S9
Barnaúlpur frá 2.995,-
Herrakuldajakkar frá 2.995,-
Herragallabuxur,
verð áður 2.995,- verð núBfiiÉB
Dömupeysur frá 989,-
Dömublússur frá 1.995,-
Dömuúlpur frá 2.595,-
Dömugallabuxur,
verð áður 3-295,- verð nú SES3B
Herrajakkaföt frá 9-995,-
Herraskyrtur frá 689,-
Dömufrakkar og kápur frá 4.995,-
Dömuskór frá 1.295,-
Dömukuldaskór frá 1.995,-
Barnaskór frá 989,-
Flauelsbuxur,
verð áður 1.895,-verð nú[gja£W
Barnaháskólabolir frá 689,-
Barnakuldaskór frá 889,-
Barnapeysur frá 689,-
Herrakuldaskór frá 1.595,-
Dömutöskur frá 689,-
Barnagallabuxur,
verð áður 1.895,-verð núj^gjj
Herraskór frá 1.295,-
Barnaskíðagallar frá 3-495,-
HAGKAUP
gœöi úrval þjónusta