Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR1993
47
ísland - Ítalía 21:18
Spectrumhöllin í Osló:
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 2:3, 4:4, 7:4,
9:7, 9:8, 13:10, 13:13, 15:15, 17:15, 17:16,
19:16, 19:17, 21:17, 21:18.
Mörk fslands: Geir Sveinsson 6, Guðjón
Ámason 4, Konráð Olavson 4/3, Gunnar
Beinteinsson 3, Alfreð Gíslason 2, Gústaf
Bjamason 1, Patrekur Jóhannesson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 8/1
(þaraf 2/1 til mðtherja)
Útan vallar: 6 mínútur.
ÍSLAND- ÍTALÍA.................21:18
RÚMENÍA- HOLLAND ..............25:23
NOREGUR- RÚSSLAND..............20:22
Fj. leikja u j T Mörk Stig
RÚSSLAND 5 5 0 0 124: 100 10
NOREGUR 5 4 0 1 107: 99 8
ÍSLAND 5 3 0 2 106: 103 6
RÚMENÍA 5 2 0 3 109: 115 4
ÍTALÍA 5 1 0 4 89: 103 2
HOLLAND 5 0 0 5 103: 118 0
Valur-Grótta...................14:20
Valsheimili:
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 6:6, 8:7, 8:11,
11:13, 11:17, 12:17, 12.20, 14:20.
Mörk Vals: Gerður Jóhannsdóttir 5/3, trína
Skorobogatyk 2, Eyvör Jóhannesdóttir 2,
Ama Garðarsdóttir 2, Sigurbjörg Kristjáns-
dóttir 1, Soffía Hreinsdóttir 1, Ásta Björk
Sveinsdóttir 1.
Varin skot: Amheiður Hreggviðsdóttir 15.
Mörk Gróttu: Laufey Sigvaldadóttir 7/1,
Sigríður Snorradóttir 5/1, Vala Pálsdóttir
2, Elisabet Þorgeirsdóttir 2, Brynhildur
Þorgeirsdóttir 2, Björk Brynjólfsdóttir 1,
Þuríður Reynisdóttir 1.
Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 15/1.
■ Valsstúikur án fimm lykilmanna mættu
vængbrotnar til leiks og eftir jafnan en
skelfilega lélegan fyrri hálfleik tóku Grótt-
ustúlkur írínu úr umferð og það dugði.
Stefán Stefánsson
Stjarnan - Selfoss.............21:14
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 7/4, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Sigrún
Másdóttir 3, Ingibjörg Andrésdóttir 3, Una
Steinsdóttir 2, Þórann Þórarinsdóttir 1,
Ingibjörg Jónsdóttir 1.
Mörk Selfoss: Auður Á. Hermannsdóttir
9/7, Hulda Bjarnadóttir 3, Heiða Erlings-
dóttir 1, Guðrún H. Hergeirsdóttir 1.
Víkingur- Fylkir...............24:20
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir 8,
Halla M. Helgadóttir 6, Elísabet Sveinsdótt-
ir 4, Hanna María 2, Svava Sigurðardóttir
2, Matthildur Hannesdóttir 2.
Mörk Fylkis: Anna G. Einarsdóttir 6, Rut
Baldursdóttir 6, Haila Bryjólfsdóttir 2, Arn-
heiður Bergsteinsdóttir 2, Eva Baldursdótt-
ir 2, Anna Halldórsdóttir 1, Guðný Þóris-
dóttir 1.
Körfuknattleikur
Snæfell - KR.................85:82
íþróttahúsið Stykkishólmi:
Gangur leiksins: 2:0, 12:2, 28:11, 41:38,
43:38, 48:49, 49:55, 61:61, 79:75, 85:82.
Stig Snæfells: Shawn Jamison 26, Bárður
Eyþórsson 21, ívar Ásgrímsson 17, Kristinn
Einarsson 10, Rúnar Guðjónsson 8, Sæþór
Þorbergsson 1.
Stig KR: Keith Neison 31, Hermann Hauks-
son 28, Óskar Kristjánsson 7, Friðrik Ragn-
arsson 6, Sigurður Jónsson 4, Láras Áma-
son 4, Guðni Guðnason 2.
Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og
Bergur Steingrímsson.
Áhorfendur: 320.
ÍBK-UMFG.......................86:60
Keflavík, undanúrslit í bikarkeppni kvenna.
Stig ÍBK: Kristin Blöndal 24, Olga Fær-
seth 19, Björg Hafsteinsdóttir 15, Hanna
Kjartansdóttir 12, Sigrún Skarphéðinsdóttir
8, Guðlaug Sveinsdóttir 4, Þórdís Ingólfs-
dóttir 2, Lóa Björg Gestsdóttir 2.
Stig UMFG: Hafdís Hafberg 19, Svanhild-
ur Káradóttir 16, Stefanía Jónsdóttir 12,
Guðrún Sigurðardóttir 4, Sigurrós Ragnars-
dóttir 4, Hanna Dis Sveinbjömsdóttir 3,
Anita Sveinsdóttir 2.
■ Keflavíkurstúlkur mæta stöllum sínum
i KR í úrslitum bikarkeppni kvenna í körfu-
knattleik eftir verðskuldaðan sigur gegn
Grindavík í gærkvöidi. UMFG veitti ÍBK
harða keppni til að byija með, en eftir hlé
dró í sundur með liðunum og góð liðsheild
ÍBK átti ekki í erfiðleikum.
Björn Biöndal
Blak
ÍS-KA.....................2:3
(15-8, 15-13, 11-15, 4-15, 12-15)
1. DEILD KARLA
KA-HK.....................1:3
Knattspyrna
Ítalía
8-Iiða úrslit í bikarnum, fyrri leikir:
Juventus - Parma..................2:1
(Gianluca Vialli 77., 84.) - (Tomas Brolin
80.). 5.636.
AC Milan - Internazionale.........0:0
Napoli - Roma.....................0:0
England
Aston Villa - Sheffield United....3:1
(McGrath 54., Saunders 58., Richardson
90.) - (Deane 74.). 20.266.
Man. United - Nott. Forest........2:0
(Ince 47., Hughes 68.) - . 36.085.
Norwich - Crystal Palace..........4:2
(Power 9., 89., Sutton 26., Joss 50.) - (Arm-
strong 2., Thomas 45.). 13.543.
QPR-Chelsea.........................
(Allen 88.) - (Spencer 47.). 15.806.
Tottcnham - Ipswich.............0:2
(Yáilop 47., Guentchev 80.). 23.738.
HANDKNATTLEIKUR
Þorbergur nokkuð ánægður
Einar Þorvarðarson, Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari og Geir Sveinsson fyrirliði fylgjast með gangi mála í lands-
leik. Þorbergur segir að markmið Noregsferðarinnar hafi ekki náðst nægilega vel, þó margt hafi verið í góðu lagi.
uooir
leikir
Gústafs
- ogþýð-
ingarmikil
mörk
5MÖRK 22:22 Portúgal
inn náði þriðja sæti
ÞAÐ var ekki burðugur hand-
knattleikur sem lið Islands og
Ítalíu léku í gærkvöldi. ísland
hafði þó betur, 21:18, og
tryggði sér þar með þriðja
sætið á Lotto-mótinu í Noregi.
að byrjaði ekki gæfulega hjá
íslenska liðinu því ítalir gerðu
fyrsta markið og skömmu eftir að
Patrekur hafði jafnað meiddist hann
og kom ekki meira inná. Patrekur
snéri sig á ökla og bjóst Þorbergur
Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, við
því að hann yrði fljótur að jafna sig.
ítalski markvörðurinn varði síðan
vítakast, það fyrsta af fjórum sem
hann varði í leiknum.
íslendingar léku 6-0 vörn lengst
af og komust ítalir lítið áleiðis. Þeir
héldu knettinum vel og lengi en
rússnesku dómararnir sáu ekki
ástæðu til að dæma töf á þá. „Þeir
fengu allt og langan tíma í sókn-
inni. Ein sóknin þeirra var í þrjár
mínútur!“, sagði Þorbergur.
ítalska vömin var þokkalega sterk
og var Sigurður tekinn úr umferð
lengst af. Sóknarleikur okkar manna
var löngum vandræðalegur en á
móti kom að strákamir voru fljótir
að nýta sér sóknarmistök ítalana og
gerðu sjö mörk úr hraðaupphlaup-
um. „Þetta var eiginlega dæmigerð-
ur leikur þar sem við mætum liði
sem á að vera slakara en okkar.
Við náðum ekki upp stemmningu
og fómm illa með dauðafæri," sagði
Þorbergur. Sóknarnýting liðsins var
46%.
Markvörður ítala varði vel og var
kosinn besti maður leiksins. Hann
varði þrjú vítaköst í fyrri hálfleik
og varamarkvörðurinn bætti einu í
safnið í síðari hálfleiknum.
Gunnar stóð sig vel í leiknum,
náði að stela boltanum af sóknar-
mönnum ítala nokkrum sinnum, og
Geir var sterkur á línunni og Guð-
jón, sem lék lengstum sem leik-
stjórnandi, átti ágætan leik.
Eins gott að hætta
- eins og vera með svona undirbúning fyrir mót, segir
Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari
að er alveg Ijóst að það þýðir
ekkert að fara á mót með
svona undirbúningi. Við áttum að
hefja undirbúning á mánudegi en
gátum ekki byrjað fyrr en á
fimmtudegi, og ég er ekki að tala
um deilu FH og Vals við HSÍ í
þessu sambandi. Svona lagað þýðir
ekki og það er alveg eins gott að
hætta þessu. Svona verður ekki
gert aftur á meðan ég er landsliðs-
þjálfari,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson landsliðsþjálfari þegar
hann var spurður um mótið í heild
og hvernig til hefði tekist.
„Við fórum bara með ijórtán
leikmenn út. og síðan urðu nokkir
leikmenn veikir og meiðsli settu
einnig strik í reikninginn. Það sem
við ætluðum okkur með þessari
ferð gekk ekki nægiiega vel upp,
af ýmsum ástæðum. Það er samt
ýmislegt gott við þetta mót þrátt
fyrir að hópurinn sé mikið breyttur
frá Ólympíuleikunum.
Hið jákvæða er að margir nýir
menn banka nú á dymar hjá landsl-
iðinu, en ég vil ekki gefa það upp
alveg strax hveijir það eru. Mark-
varslan var mjög góð hjá okkur og
eins varnarieikurinn. Sóknin var
einnig góð í þremur leikjum. Það
er Ijóst að við verðum að nota fyrstu
vikuna í lokaundirbúningnum fyrir
HM í Svíþjóð til að auka úthald
leikmanna og snerpu, en sá lo-
kakafli hefst 8. febrúar. Félagsliðin
hafa ekki tíma til slíks því það er
leikið svo ört,“ sagði Þorbergur.
KÖRFUKNATTLEIKUR / ÚRVALSDEILDIN
■Skoraði jöfnunarmarkið.
9MÖRK 27:27 Danmörk
■Skoraði jöfnunarmarkið.
6MÖRK 20:18 Rúmenfa
■ Skoraði síðasta markið oi
gulltryggði sigurinn.
Gústaf Bjarnason
Selfossi, 22 landsleikir
1
Geir valinn
íúrvalsliðið
Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska
landsliðsins, var valinn í úrvalslið
Lotto-keppninnar og var hann eini
íslendingurinn sem valinn var í lið-
ið. Heimamenn áttu þijá í liðinu,
ítalski markvörðurinn var valinn og
Licu hinn Rúmenski einnig enda
gerði hann 40 mörk og var marka-
hæstur. Rússar áttu aðeins eirm
mann í úrvalsliðinu og það vakti
athygli að stórskyttan Kudinov
komst ekki í liðið.
Rögnvaldog
Stefán dæmdu
úrslitaleikinn
Það voru íslensku dómaramir
Rögnvald Erlingsson og Stefán
Arnaldsson sem dæmdu úrslitaleik-
inn milli Norðmanna og Rússa í
gær. Þeir félagar dæmdu fjóra leiki
og á úrslitaleiknum voru 6.000
áhorfendur. Mikill heiður fyrir þá
félaga enda er það oftast besta
dómaraparið sem dæmir úrslitaleikr'
móta sem þessa.
■■■ ogdæmasvo
leik Wallau
og Barcelona
Jamison styrkir Snæféll
Snæfell bætti enn einum sigrinum
í safnið, þegar liðið vann KR
85:82 í gærkvöldi. Heimamenn tefldu
fram nýjum leik-
María manni, Bandaríkja-
Guðnadóttir manninum Shawn
skrifar Jamison, sem var
mjög sterkur, skoraði
m.a. 20 stig í fyrri hálfleik og skor-
aði fyrstu stig leiksins, en Nelson
jafnaði 2:2. Eftir það skildu leiðir.
Snæfellingar hreinlega stungu KR-
inga af og náðu 17 stiga mun, þegar
sjö mínútur voru liðnar af fyrri hálf-
leik. Þá tóku KR-ingar leikhlé og
Friðrik las yfír mönnum sínum. Eftir
það náðu gestirnir að saxa á forskot
heimamanna og minnkuðu muninn í
þtjú stig rétt fyrir lok hálfleiksins.
Mestu munaði þar um að KR-ingar
voru mun grimmari í fráköstum,
bæði í vörn og sókn.
Á áttundu mín. seinni hálfleiks
jafnaði Hermann, besti maður KR,
eftir að hafa tekið tvö sóknarfráköst
í röð. Eftir það var jafnræði með lið-
unum, en Snæfellingar voru sterkari
á lokasprettinum og munaði þar mest
um þátt Bárðar Eyþórssonar, sem
skoraði margar skemmtilegar körfur.
Jamison var bestur hjá Snæfelli
og kemur hann til með að styrkja
iiðið. Bárður átti góða spretti og ívar,
Kristinn og Rúnar voru góðir.
Hjá KR voru Nelson og Hermann
Hauksson yfirburðarmenn.
Þeir Rögnvald og Stefán dæma
undanúrslitaleik í Evrópukeppni
meistaraliða í karlaflokki í vetur,
eins og í fyrra. Þeir hafa fengið það
verkefni að dæma leik Wallau
Massenheim og Barcelona, sem fer
fram í Frankfurt á tímabilinu l‘&.'
til 19. apríl. Það er fyrri undanúr-
slitaleikur félaganna. Fram að þeim
tima verður reyndar nóg að gera
hjá Stefáni og Rögnvald; á næstu
dögum fara þeir til Frakklands og
dæma þar í fjögurra þjóða móti og
svo verða þeir einnig meðal dómara
á heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð
í mars.