Morgunblaðið - 28.01.1993, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993
Timman lifir
í voninni
JAN Timman, holienski skákmeist-
arinn, vann í gær 11. skák einvígis
þeirra Nigels Short frá Englandi
um réttinn til að skora á Garríj
Kasparov heimsmeistara. Þar með
aukast vonir hans á sigri en staðan
í einvíginu er nú 6-5 fyrir Short
þegar þrjár skákir eru ótefldar.
Short gafst upp í 85. leik í gær.
Dregur Koi-
visto sig í hlé?
MAUNO Koivisto gefur ekki kost
á sér til endurkjör við forsetakosn-
ingamar í Finnlandi á næsta ári
en hann hefur verið forseti frá
1982. Þetta kom fram í blaðinu
Turun Sanomat í gær og þar sagði
að Kalevi Sorsa seðlabankastjóri og
fyrrum forsætisráðherra yrði fram-
bjóðandi jafnaðarmanna.
Honecker komi
til baka
DÓMSTÓLL sem réttar í máli gegn
Erich Honecker fyrrum kommún-
listaleiðtoga í Austur-Þýskalandi
úrskurðaði í gær að honum bæri
að koma til baka til Þýskalands 8.
febrúar og vera viðstaddur lok rétt-
arhaldanna. 13. janúar var ákæru
á hendur honum aflétt en í millitíð-
inni var sú ákvörðun úrskurðuð
ógild og því hefur Honecker nú
verið skipað að snúa til baka frá
Chile.
Bretar á móti
stækkun örygg-
isráðsins
BRETAR lögðust í gær gegn hug-
myndum Bandaríkjamanna um
stækkun öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna og fjölgun fastafulltrúa.
Gagnrýndi Douglas Hurd utanríkis-
ráðherra Breta hugmyndir Warrens
Christophers, bandarísks starfs-
bróður síns, og minnti Bandaríkja-
menn á að þeim væri nær að huga
að fjárframlögum sínum til SÞ og
koma greiðslunum í skil.
Norðmenn og
Svíar aflýsa
stríðsvá
Kjarnorkukafbáturinn sem sökk undan norðurströnd Noregs
Michael Jackson mun í hálfleik skemmta áhorfendum
á úrslitaleik í deildarkeppni bandaríska fótboltans, sem
fram fer á sunnudag. Yfirmaður NFL-deildarinnar,
Neil Austrian, afhenti Jackson í gær sérstakan jakka
sem kenndur er við úrslitaleikinn, en hann er í Banda-
ríkjunum kallaður „Super Bowl“. NFL og fyrirtækið
Frito-Lay hafa gefið barnaverndarstofnun Jacksons
200 þúsund dala styrk.
Jackson fær jakka
Reuter.
Evrópuþingið vill afnema vsk á bækur í EB
Afnám bókaskatts hefði
engin áhrif innan EES
ÞINGMENN Evrópuþingsins í Strassborg hvöttu til þess
í síðustu viku að virðisaukaskattur yrði afnumin af bók-
um, dagblöðum og tímaritum innan Evrópubandalagsins
til að stuðla að auknum lestri. Þingið hefur ekki völd
til að taka ákvörðun um afnám virðisaukaskatts en beindi
málinu áfram til framkvæmdastjórnar EB sem semur
sameiginleg lög og reglur bandalagsins og þjóðþinga
aðildarríkjanna. Framkvæmdastjórninni er í sjálfsvald
sett hvort að hún tekur upp þessa tillögu þingsins.
Evrópuþingið samþykkti þessa
ályktun í kjölfar umræðna um
skýrslu sem fjallaði um hvemig
örva mætti lestur í bandalagsríkj-
unum. í skýrslunni kom m.a. fram
að í ríkjum í suðurhluta EB lesa
tveir íbúar af fímm ekki bækur
og einn íbúi af fimm í ríkjum í
norðurhlutanum.
Árni Páll Árnason, lögfræðingur
í utanríkisráðuneytinu, segir að ef
svo fari, að virðisaukaskattur verði
afnumin á lesefni í ríkjum Evrópu-
bandalagsins hafi það engin áhrif
hér á landi þrátt fyrir aðild að
Evrópska efnahagssvæðinu þar
sem skattamál eru ekki hluti af
samningnum. „I tengslum við
þessa umræðu hefur hins vegar
komið fram að mikill vilji virðist
vera til staðar innan EB um að
koma upp samstarfi við Austur-
Evrópuríkin og önnur samstarfs-
ríki varðandi þýðingar og aðgerðir
til að stuðla að aukinni bókanotk-
un,“ segir Árni Páll.
Stækkun EB
Dani í
forsvari
Brussel. Reuter.
Framkvæmdastjórn Evrópu-
bandalagsins, EB, hefur skipað
Danann Steffen Schmidt í emb-
ætti formanns vinnuhóps er sam-
ræma skal fyrir hönd EB viðræð-
ur við Austurríkismenn, Finna
og Svía um aðild að bandalaginu.
Síðar munu Norðmenn bætast í
hópinn er embættismenn EB verða
búnir að samþykkja að umsókn
þeirra fullnægi skilyrðum. Heimild-
armenn í Brussel álíta að með skip-
un Schmidts gefi framkvæmda-
stjórnin til kynna að vel verði tekið
í aðildarumsóknir Norðurlandaþjóð-
anna þriggja.
-----» ♦ ♦---
Frakkland
Umhverfis-
sinnum spáð
19% fylgi
París. Reuter.
FRANSKIR umhverfissinnar
virðast vera í mikilli sókn fyrir
þingkosningarnar í mars. í skoð-
anakönnun, sem tímaritið Paris-
Match birti í gær, er sameigin-
legu framboði tveggja umhverf-
isvemdarflokka spáð 19% fylgi
sem er fjórum prósentustigum
meira en í sambærilegri könnun
fyrir tveimur vikum.
Fylgi umhverfissinna fer því
brátt að nálgast fylgi Sósíalista-
flokksins, sem var stærsti flokkur-
inn í síðustu kosningum og fer nú
með stjórn Frakklands. Fylgi sósíal-
ista hefur hrunið á undanfömum
misserum og heldur sú þróun
áfram. Er þeim einungis spáð 19,5%
fýlgi í könnuninni.
Allt bendir til að hægriflokkarnir
tveir, UDF og RPR, muni vinna
öruggan sigur í þingkosningunum
þó að eitthvað hafi dregið úr stuðn-
ingi við þá. Þeim er spáð 39% fylgi
í könnun Paris-Match en voru með
41,5% í síðustu könnun.
ÞAR SEM ólíklegt þykir að Norð-
menn og Svíar heyi stríð sín á milli
ógiltu utanríkisráðherrar þjóðanna
í gær samning frá 1905 sem kvað
á um hlutlaust belti við landamæri
þeirra. Samningnum var ætlað að
draga úr spennu milli Noregs og
Svíþjóðar þegar ríkin bundu enda
á 91 árs samband sitt árið 1905.
Samningurinn bannaði ferðir her-
manna eða byggingu hernaðar-
mannvirkja á 15 km breiðu belti
beggja vegna landamæranna.
Margaretha af Ugglas, utanríkis-
ráðherra Svíþjóðar, og norski
starfsbróðir hennar, Thorvald Stolt-
enberg, ógiltu samninginn formlega
við sérstaka athöfn á fundi utanrík-
isráðherra Norðurlandanna.
Sementsblöndu dælt í bátínn
til að stöðva geislamengmn?
Ósló. Reuter.
NORSKT fyrirtæki bauðst í gær til að stöðva leka geisla-
virkra efna úr rússneska kjarnorkukafbátnum Komsomo-
lets, sem sökk undan norðurströnd Noregs í apríl 1989,
með því að dæla sérstakri sementsblöndu í bátinn. Þessi
tækni hefur stundum verið notuð við olíuvinnslu í Norð-
ursjó.
Rússnesk yfirvöld tilkynntu í vik- ið að hafna tillögum um að reynt
unni sem leið að ákveðið hefði ver- yrði að ná kafbátnum af hafsbotnin-
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
VIÐTALSTÍMAR ALÞINGISMANNA
Alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
verða með viðtalstíma á næstu dögum
í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Fimmtudaginn 28. janúar kl. 17.00-19.00:
Eyjólfur K. Jónsson, alþingismaður, og
Lára Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður.
um. Þau íhuga nú möguleikann á
að hylja tvö tundurskeyti og kjarna-
kljúf með sérstakri froðu er harðnar
í glerkennt efni sem myndi drekka
geislavirku efnin í sig. Enginn
tæknibúnaður er hins vegar fyrir
hendi til að koma froðunni í kafbát-
inn.
Sonsub, norskt systurfyrirtæki
Sonsub International í Bandaríkjun-
um, hefur kannað möguleikann á
að loka kafbátinn af með því að
dæla í hann sementi með sérstöku
aukaefni. „Efnið getur stöðvað leka
geislavirkra efna í sjóinn,“ sagði
Einar Ramstad, sem hefur stjórnað
rannsókninni. Hann vildi ekki upp-
lýsa hvaða efni þetta væri, sagði
það leyndarmál fyrirtækisins.
Sonsub áformar að beita tækni
sem notuð hefur verið við olíu-
vinnslu í Norðursjó til að dæla sem-
entsblöndunni í kafbátinn, sem er
1.685 m undir yfirborði sjávar.
Skip búið háþrýstidælum og fjar-
stýringartækjum myndi þá dæla
blöndunni í bátinn í gegnum leiðslur
úr hertu stáli.
Samkvæmt frumathugunum
myndu framkvæmdirnar kosta 40
milljónir norskra króna, 370 millj-
ónir ísl., sem er mun minna en
gert var ráð fyrir í þeim tillögum
sem lagðar hafa verið fram til
þessa.
Geislavarnir Noregs fengu
skýrslu um rannsóknina í gær en
Knut Gussgard, yfirmaður stofnun-
arinnar, neitaði að svara spurning-
um um hugmynd Sonsub vegna
skorts á upplýsingum. Hann gagn-
rýndi rússnesk yfirvöld fyrir að
hafa ekki veitt Norðmönnum nægi-
legar upplýsingar um kafbátinn og
vopnin sem voru í honum.
ERLENT