Morgunblaðið - 28.01.1993, Side 16

Morgunblaðið - 28.01.1993, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANUAR 1993 eftir Rafn Ben. Rafnsson Eins og landsmenn hafa tekið eftir hafa hagsmunaaðilar staðið fyrir mikilli auglýsingaherferð til að efla vitund landsmanna á mikil- vægi þess að velja íslenskar vörur til að vinna gegn vaxandi atvinnu- leysi. í fyrsta skiptið upplifa marg- ir íslendingar hvemig það er að vera án atvinnu, reynslan sem skap- að hefur óbærileg vandamál fyrir nágrannaþjóðir okkar þar sem við- varandi atvinnuleysi hefur verið í langan tíma. Atvinnuleysi sem er vandamál allra hefur kennt þessum þjóðum mikilvægi þess að byggja upp sterkar samkeppnis- og útflutn- ingsgreinar. Því er einfaldlega þannig farið að framleiðslugrein- amar em undirstaða hagkerfisins, þar verða verðmætin til og hvert starf í iðnaði skapar störf í þjón- ustugreinum en ekki öfugt. Því er afar mikilvægt við uppbyggingu atvinnulífsins að þessum greinum séu sköpuð viðunandi rekstrarskil- yrði þannig að þær geti keppt við erlendar framleiðslugreinar. Þetta er einungis hægt með því að ís- lenskum iðnaði sé gert mögulgt að hagnast af sta.rfsemi sinni og auka eigið fé sitt,- íslendingar standa á tímamótum hvað þessi mál varða og því er afar mikilvægt að um- ræða um þessi mál sá málefnaleg, ekki byggð á þröngum sérhagsmun- um einstakra greina heldur hags- munum heildarinnar. Núverandi rekstraraðstæður atvinnulífsins vinna gegn þessum hagsmunum og því þurfa að koma til gjörbreyttar áherslur ef mönnum er alvara með því að útrýma atvinnuleysi og skapa hagvöxt á íslandi. Með því að velja íslenskt sköpum við íslensk störf og að sama skapi fækkum við innfluttum störfum. Þetta þýðir á hagfræðimáli að við stuðlum að innlendri verðmæta- sköpun með vali okkar. Þetta er hagfræði sem hefur skotið djúpum rótum í þjóðarvitund samkeppnis- þjóða okkar sem þekkja af eigin reynslu hörmungar þess fyrir ein- staklinga að vera án atvinnu og gera sér grein fyrir því að hér er um sameiginlega hagsmuni að ræða. Stjómendur þarlendra fyrir- tækja telja þessar aðstæður á sínum heimsmarkaði eina megin forsendu þess að hægt sé að starfrækja öflug samkeppnis- og útflutningsfyrir- tæki, sem með krafti sínum byggja upp öflugar þjónustugreinar og stuðla þannig að hagvexti og bætt- um lífskjörum í landinu. Markmið með auglýsingum sem þessum getur þó aldrei verið það að óska eftir því að landsmenn kaupi íslenskt eingöngu vegna þess að varan sé íslensk. Því hlýtur markmiðið að vera að byggja upp jákvæðan en um leið kröfuharðan heimamarkað þannig að íslensk fyr- irtæki fái nauðsynlegt aðhald til að standast samkeppni við erlend fyrir- tæki. Vegna smæðar okkar getur vöruúrval íslenskra fyrirtækja aldr- ei orðið mjög fjölbreytt nema til komi aðgangur að mun stærra markaðssvæði. Jákvæður og kröfu- harður heimamarkaður er forsenda fyrir öflugri nýhönnun og vöruþró- un sem er nauðsynleg ásamt sam- keppnishæfum rekstrarskilyrðum til þess að íslensk fyrirtæki geti nýtt sér möguleika sem samningur um Evrópskt efnahagssvæði skap- ar. Þeir helstu þættir sem hafa áhrif á samkeppnisstöðu iðnaðarins gagnvart erlendum framleiðslu- greinum eru verðlagning á íslensku krónunni, innlendur kostnaður, þar með talinn launakostnaður, raf- orkuverð, vextir og annar kostnað- ur sem fellur á fyrirtæki. Einnig skiptir hér verulegu máli skattlagn- ing fyrirtækja ásamt þeim lögum og reglum sem löggjafinn setur fyrirtækjum til að starfa eftir. Að sjálfsögðu skiptir einnig höfuðmáli að undirstöðuatvinnugreinamar hafí á að skipa vel menntuðu og dugmiklu fólki sem geti nýtt þau tækifæri sem þar er að finna. Gengisstefna íslendingar hafa farið þá leið að stjórnvöld hafa ákveðið gengis- skráninguna á hveijum tíma. Það hefur því verið í hendi stjómvalda að ákveða með gengisskráningu að hluta til verðlagningu á afurðum íslenskra útflutningsfyrirtækja ásamt því að hlutast til um sam- keppnisstöðu íslenskra samkeppn- isfyrirtækja. Raunhækkun á gengi skapast við þær aðstæður þegar verðhækkanir á íslandi eru hærri en í samkeppnis- löndum okkar án þess að til komi leiðrétting á gengi. Gengisstefna sem stjórnvöld hafa fylgt er í raun innflutningstefna þar sem þau hafa með langvarandi raunhækkun á gengi styrkt stöðu innflytjenda á kostnað fyrirtækja í samkeppnis- og útflutningsgreinum. Framleið- endur sem byggt hafa á íslensku hráefni hafa vegna gengisstefnu stjómvalda aldrei haft möguleika á að byggja upp útflutning eða stand- ast samkeppni við innflytjendur á heimamarkaði. Fyrirtæki í sam- keppnisiðnaði sem byggja á erlendu hráefni hafa þurft að aðlaga sig að þessari stefnu með því að flytja inn hráefni meira unnið í sína fram- leiðslu og þannig hefur störfum fækkað jafnt og þétt eins og ástand- ið ber glöggt vitni um. Eitt af stærstu vandamálum ís- lensku þjóðarinnar er gríðarleg skuldasöfnun við erlendar þjóðir. Þetta er afleiðing langvarandi við- skiptahalla við útlönd ásamt halla á rekstri ríkisins. Skuldasöfnun þessi hefur ekki farið í skynsamleg- ar fjárfestingar heldur til aðgerða sem að mestu leyti hafa mistekist og að stórum hluta til eigin neyslu Þannig höfum við með óráðsíu og röngum ákvörðunum skapað vanda fyrir afkomendur okkar og nú er svo komið að reynsla Færeyinga er ofarlega í huga margra íslend- inga. Þeir hafa nýverið í raun misst stjórn á fjármálum sínum í hendur Dana vegna erlendra skuldasöfn- unar. Þetta eru aðstæður sem hæg- lega geta orðið örlög íslendinga ef ekki næst samstaða um að taka á fjárfestingavanda íslensku þjóðar- innar af skynsemi og um leið skapa samkeppnis- og útflutningsgreinum viðunandi rekstrarskilyrði. Fjárfestingavandi okkar er að Rafn Ben. Rafnsson „Kjarni þessa máls er að ef ekki næst þjóðar- sátt um raunvexti og fjárfestingavanda þjóð- arinnar ásamt áherslu- breytingu í uppbygg- ingu atvinnulífsins þar sem undirstöðuatvinnu- greinunum verði sköp- uð skilyrði til að hagn- ast er allt tal um hag- vöxt eða bætt lífskjör á íslandi aðeins orðin tóm.“ mestu leyti tilkominn vegna íhlut- unar stjórnmálamanna af útlánum banka og sjóða og vegna þess að við útlán hefur fyrst og fremst ver- ið lánað ef lántaki hefur getað veð- sett vini og ættingja eða átt fast- eignir sem hann hefur getað sett fram sem veð fyrir skuldum sínum. Þannig hafa fjármálastofnanir ekki haft að leiðarljósi framleiðni fjár- magnsins, sem er undirstaða hag- vaxtar og nú er svo komið að þær eignir sem teknar hafa verið að veði eru í mörgum tilfellum verð- lausar. Ef engin starfsemi eða nýt- ing er á fastafjármunum er verð- mæti þeirra ekkert. Því er svo kom- ið víða um land að frystihús og vinnslustöðvar eru í raun verðlausar þar sem offjárfestingar og rekstrar- skilyrði eru með þeim hætti að eng- in grundvöllur er til nýtingar eða frekari reksturs. Offjárfesting og slæm nýting á fastafjármunum er vandamál íslensku þjóðarinnar og ef ekki næst skynsamleg lausn á þessum vanda endum við eins og Færeyingar með því að missa for- ræði yfir fjármálum okkar. Við pýmum til Allt að afsláttur : af smátækjum og búsáhöldum BRÆÐURNIR GRMSSONHF Lágmúla 8, simi 38820. Raunvaxtastig Breskir hagfræðingar hafa kom- ist að þeirri niðurstöðu að aldrei hafí hagvöxtur orðið í Bretlandi við raunvexti hærri en þijú til fjögur prósent. Því sé allt tal þar í landi um hagvöxt við hærri raunvaxta- stig aðeins orðin tóm. Á íslandi eru raunvextir af langtímalánum átta til tíu prósent og af skammtímalán- um sextán til átján prósent. Ekkert atvinnulíf getur staðið undir slikri vaxtabyrði og því hefur atvinnulífið ekki nema tvo valkosti við þessar aðstæður að leggja niður starfsemi og fjölga þeim sem nú þegar eru atvinnulausir eða færa lánaviðskipti sín til útlanda og skapa þar störf í þjónustugreinum. Báðar þessar leiðir eru vondar og stuðla enn frek- ar að því að veikja íslenskt atvinnu- líf. Það er skiljanlegt að við hagræð- ingu í bankakerfinu vilji stjórnendur taka tillit til starfsmanna bank- anna. En með því að hagræða á löngum tíma þurfa fyrirtækin og aðrir lántakendur að greiða hærra gjald fyrir þjónustuna. Þó að nú hafí opnast möguleikar fyrir ís- lenska lántakendur að nýta sér er- lenda bankaþjónustu er þetta fyrir marga ekki raunverulegur valkost- ur. Þetta er því gremjulegra þar sem aðilar reyna eftir öllum tiltæk- um ráðum að hagræða í eigin rekstri en tapa stórum hluta af þeirri vinnu til þess að standa straum af uppsöfnuðum fjárfest- ingavanda ásamt of miklum kostn- aði í rekstri banka og sjóða. Raun- vextir hljóta að þurfa að miðast við hagvöxt í landinu á hveijum tíma og getu undirstöðuatvinnugrein- anna til að greiða fyrir þessa þjón- ustu. Að öðrum kosti mun ekki verða neitt atvinnulíf til staðar fyr- ir bankana að þjóna og það mun því leiða til gjaldþrota í bankakerf- inu eins og annars staðar. Við íslenskar aðstæður á fy'ár- magnsmarkaðinum þar sem láns- fjárþörf ríkisins nemur nálægt öll- um sparnaði landsmanna og fá- keppni í fjármálaþjónustu gefur fyrirtækjum í raun ekkert val nema að greiða það gjald sem bankar og sjóðir setja upp þarf að koma til þjóðarsátt um raunvexti til að skapa forsendur fyrir auknum fjárfesting- um. Hækkun á raunvöxtum hefur margfalt meiri áhrif á fyrirtæki í landinu heldur en hækkun á laun- um. Það er til lítils að óska eftir þjóðarsátt um laun ef ekki tekst þjóðarsátt um lausn á fjárfestinga- vanda þjóðarinnar. Þeir aðilar sem stjórna verðlagningu á fjármagns- markaðinum verða að taka tillit til afkomu fyrirtækjanna í landinu í stað þess að stjómast af skamm- tíma sjónarmiðum um kröfu um hámarks arðsemi á því ijármagni sem þeir ráða yfir. Afstaða lífeyris- sjóðanna í landinu skiptir hér veru- lega miklu máli. Nýkjörnum forseta ASÍ er mikill vandi á höndum þeg- ar hann á sama tíma leiðir forystu launafólks um bætta afkomu og sem formaður SAL gerir kröfu um hámarks arðsemi á fjármagn lífeyr- issjóðanna. Þessi krafa veldur hækkun á raunvöxtum og þar með skerðingu á kjörum launafólks sem hann stendur í forsvari fyrir. Fjárfesting sem hlutfall af lands- framleiðslu var á liðnu ári sextán prósent og því spáð að fjárfestingar munu enn fara minnkandi. Á sama tíma opnast möguleikar fyrir ís- lendinga til þess að fjárfesta erlend- is, sem hlýtur að leiða til enn meiri samdráttar í innlendum fjárfesting- um. Við höfum um leið torveldað erlendum fjárfestum verulega með innlendri löggjöf að fjárfesta hér á landi. Til að viðhalda hagvexti þurfa fjárfestingar að vera á bilinu tutt- ugu til tuttugu og fimm prósent af landsframleiðslu. Kjarni þessa máls er að ef ekki næst þjóðarsátt um raunvexti og fjárfestingavanda þjóðarinnar ásamt áherslubreytingu í uppbygg- ingu atvinnulífsins þar sem undir- stöðuatvinnugreinunum verði sköp- uð skilyrði til að hagnast er allt tal um hagvöxt eða bætt lífskjör á Is- landi aðeins orðin tóm. Höfundur er formaður Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda. 2« - 50% AFSLATTUR AF TEPPUM OG MOTTUM Allar sérpantanir á sérstöku tilboðsverði á meðan á útsölunni stendur. TEPPAVERSLUN FRIÐRIKS BERTELSEN Fákafeni 9 Sími: 68 62 66 m\(K Þjóðarsátt um hag’vöxt I I I I f I \ t I I :

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.