Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANUAR 1993
19
Ekkert lát virðist á borgarastyrj oldinni í Angóla
Litlar líkur taldar á
friðarsamkomulagi
Luanda. Reuter.
SAMNINGAMENN stjórnarinnar og UNITA-hreyfingarinn-
ar í Angóla komu í gær til Addis Ababa til að freista þess
að semja um frið í landinu en ólíklegt er talið að það takist
í bráð. Að sögn fjölmiðla í Angóla var enn hart barist í
miðhluta landsins í fyrradag, einkum í grennd við borgina
Huambo, höfuðvígi UNITA.
í fjölmiðlum sagði að tvær mikil-
vægar brýr hefðu verið sprengdar í
loft upp í Cuanza Sul-héraði í vestur-
hiuta landsins, þar sem
UNITA-hreyfingin hefur náð tals-
verðum landsvæðum af stjórnar-
hemum að undanförnu.
Stjórnarerindrekar í Luanda sögð-
ust efast um að viðræðurnar í Addis
Ababa leiddu til friðar í Angóla í
bráð. Þetta er í fyrsta sinn sem hátt-
settir embættismenn stjórnarinnar
ræða við fulltrúa UNITA frá því
bardagarnir í landinu hófust fyrir
alvöru í byijun mánaðarins.
Stjórnarerindrekarnir sögðu að
Jonas Savimbi, leiðtogi UNITA, neit-
aði enn að sætta sig við úrslitin í
kosningunum í landinu í september.
Erlendir eftirlitsmenn segja að ekki
sé hæft í staðhæfingum Savimbis
um að stjórnin hafi tryggt sér sigur
í kosningunum með stórfelldu
svindli.
Búist er við að viðræðurnar standi
í tvo til þrjá daga og fjallað verði
um ýmis ágreiningsmál fylkinganna
um herinn og stjórnarhætti í land-
inu. Stjórnarerindrekarnir í Luanda
sögðu að stjórnin væri nú líklega
fúsari en áður til að friðmælast við
UNITA þar sem stjórnarherinn hefði
farið halloka í bardögunum að und-
anförnu. Hann beið meðal annars
ósigur í bardögum um olíuborgina
Soyo og honum tókst ekki að endur-
heimta Huambo þrátt fyrir rúmlega
tveggja vikna loft- og stórskotaárás-
ir. UNITA-hreyfingin hefur einnig
eyðilagt mannvirki vatnsveitu í
grennd við Luanda þannig að vatns-
laust hefur verið í höfuðborginni.
Bardagarnir í Angóla hafa kostað
þúsundir manna lífið og valdið miklu
tjóni í nokkrum borgum. Boutros-
Boutros Ghali, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hefur lagt til
að eftirlitsmenn samtakanna í land-
inu verði kallaðir heim ef ekki verð-
ur samið um vopnahlé fyrir 1. júní.
Sex metra hátt kerti
Sex metra háu kerti hefur verið komið fyrir í kirkju serbnesku rétttrún-
aðarkirkjunnar í Belgrad til minningar um öll börnin sem hafa beðið
bana í stríðinu í fyrrverandi lýðveldum Júgóslavíu undanfarin tvö ár.
Á myndinni virða kirkjugestir kertið fyrir sér.
-----■*--------
Slóvakía
Hvorugnr
náði for-
setakjöri
Bratislava. Reuter.
EKKI tókst að kjósa forseta Slóv-
akíu á þingi landsins í gær og
er þetta í annað sinn á tveimur
dögum sem frambjóðendur til
embættisins fá ekki tilskilinn
meirihluta.
Vladimir Meciar forsætisráð-
herra varð fyrir miklu áfalli þegar
frambjóðandinn, sem hann hafði
tilnefnt, Roman Kovac aðstoðarfor-
sætisráðherra, fékk aðeins 78 at-
kvæði í forsetakjörinu í gær, en
þurfti 90. Milan Ftachnik, fram-
bjóðandi fyrrverandi kommúnista,
fékk 31 atkvæði. Talið er að a.m.k.
tíu þingmenn Lýðræðishreyfmgar
Slóvakíu, flokks Meciars, hafi ekki
greitt atkvæði með Kovac, heldur
setið hjá.
Efnt verður til nýs forsetakjörs
15. og 16. febrúar og þá verða
nýir menn í framboði. Talið er að
frambjóðandi Lýðræðishreyfingar-
innar verði þá hagfræðingurinn
Michal Kovac, fyrrverandi forseti
þings Tékkóslóvakíu, sem leið undir
lok um áramótin og skiptist í tvö
ríki, Tékkneska lýðveldið og Slóv-
akíu.
ALMENNINGSVAGNAR
VIÐ HÖFUM ENDURSKOÐAÐ
LEIÐAKERFIÐ
Ný leiðabók tekur gildi
laugardaginn 30. janúar 1993
'm rW
Flýtt um 4 mínútur
Akstri á stofnleið kerfisins, leið
og öllum tengdum leiðum, hefur
verið flýtt um fjórar mínútur.
Þetta er gert til að ná betri tengingu á
Laugavegi við eftirtaldar leiðir SVR
sem fara í austurhluta borgarinnar:
Leið 4 um Sæbraut^v
(tengist atvinnusvæði Sundahafnar og Elliðavogs)
Leið 10 um Árbæ
Leið 12 um Breiðholt
Leið 15 um Höfðabakka og Grafarvog
Leiö 141 ekur nú um Listabraut og tengist
þannig Kringlunni.
Leiðum í Mosfellsbæ hefur verið breytt
þannig að virka daga á veturna ekur
innanbæjarvagn, sem tengist
leið 170 við Háholt. “
Leiö 142 ekur nú um Álfaskeið í Hafnarfirði og
um Dalveg í Kópavogi.
Innanbæjarleið í Garðabæ, leið 51, hefur verið
endurbætt og liggur nú um Hæðahverfi.
Til hamingju, ágætu farþegar!
Tilraunin með næturakstur, leið 149, hefur
tekist vonum framar og verður fram haldið.
DIOR VORLITIRNIR ’93 KOMNIR
Di
íor
Almenningsvagnar bs. hófu akstur í ágúst 1992.
Fargjöld hafa ekki hækkað frá upphafi.
Á sama tíma hefur bensínverð hækkað um 15 %.
Það borgar sig að taka strætó
- það er engin spurning
Nýja leiðabókin fæst á miðasölustöðum AV
Laugardaginn 30. janúar gefum við öllum
farþegum með AV leiðabók til kynningar
ALMENNINGSVAGNAR
-brú milli byggða
NÝR DAGUR..