Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 21

Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 --j--:-rr?—■ ■■ ...........;---f-- Ekki leyft að flytja holdanaut til Yíkur Selfossi. TVEIMUR bændum í Mýrdal hefur verið synjað um flutn- inga á nautgripum af Galloway-holdastofni frá Gunnars- holti á Rangárvöllum. Sauðfjársjúkdómanefnd synjaði um flutningana þrátt fyrir að fyrir lægi álit héraðsdýra- læknanna á Hellu og á Skógum þar sem ekki var lagst gegn þeim. Yfirdýralæknir lagðist gegn flutningunum og það gerðu einnig búnaðarfélögin í Mýrdalnum og hreppsnefndin. Landbúnaðarnefnd hreppsins heimilaði flutningana að undangenginni blóðrannsókn og skoðun dýralækna. Hreppsnefndin breytti áliti landbúnaðar- nefndar og bætti við álit hennar að leyfa ætti flutning- ana ef þeir væru algjörlega öruggir. í kjölfar þessa sagði einn nefndarmaður landbúnaðarnefndar, Jóhannes Kristjánsson, bóndi á Höfðabrekku, sig úr nefndinni. „Ég sagði mig úr nefndinni vegna þess að ekki var málefna- lega unnið. Lít þannig á að heimanefndir eigi ekki að koma nærri svona málum. Þegar mað- ur svo verður var við að menn samþykkja eitthvað en meina ekkert með því þá sér maður engan tilgang í að eyða tíma í þetta,“ sagði Jóhannes Krist- jánsson. Mjög ósáttir Bændurnir, Þórir Gunnarsson á Giljum og Karl Pálmason í Kerlingadal, eru mjög ósáttir við bannið og telja mjög óeðlilegt að banna flutning þessara gripa í Mýrdalinn þar sem Galloway- gripir frá Gunnarsholti hafi farið um allt Iand og minna í því sam- bandi á að Sigurður Sigurðarson, sérfræðingur Sauðfjárveiki- varna, hafi gefið munnlegt leyfi fyrir þessum flutningum að Gilj- um í mars 1990. í áliti yfirdýralæknis eru helstu ástæður fyrir synjun beiðninnar þær að áður óþekktir smitsjúkdómar gætu borist í Mýrdal. Er þar helst átt við garnaveiki sem fundist hefur bæði á Rangárvöllum og í Holt- um en aldrei í Mýrdal. Þá mætti ætla að nautgripir í Mýrdal væru lausir við önnur smitefni vegna langrar einangrunar. Loks væri það þekkt að nautgripir hefðu ekki verið fluttir til Mýrdals í áratugi og sveitin því mikilvæg hvað varðar vai á gripum tii undaneldis með fyrirhugaðan innflutning á nýjum kynjum nautgripa til landsins í náinni framtíð. „Okkur fannst upplagt að fá þessa gripi sem fluttir hafa verið um allt land á sl. 2-3 árum. Við fengum að velja bestu gripina úr hjörðinni í Gunnarsholti og létum Grétar Haraldsson héraðs- dýralækni heilsuskoða þá en enn á ný var beiðni okkar hafnað og við misstum bestu kýrnar sem voru seldar á Hvammstanga. En þessir flutningar um allt land hafa farið fram með fullu sam- þykki Sauðfjárveikivarna og undantekningarlaust án nokk- urra afskipta nefnda eða heima- manna, nema hér í Mýrdalnum,“ sagði hann ennfremur. „Við létum blóðprófa gripina og gerðum eins og fyrir okkur var lagt af dýralæknunum á Hellu og á Skógum en þeir voru þessu ekki mótfallnir,“ sagði Kari Pálmason í Kerlingadal. Þeir Karl og Þórir eru mjög ósáttir við afgreiðslu hrepps- nefndarinnar. Þeir sögðu að þeg- ar heilsufarsvottorð lágu fyrir hefðu þeir félagarnir sent annað bréf og beðið um endurskoðun en hreppsnefndin hafnaði þeirri beiðni meðal annars á þeirri for- sendu að búnaðarfélögin í hreppnum væru flutningunum andvíg. Á réttri leið „Við teljum okkur vera á réttri leið í þessum flutningum og að álit héraðsdýralæknanna sé rétt. En við erum ósáttir við að ekki skuli vera tekið tillit til afstöðu þeirra. Þessari beiðni okkar er hafnað á rökum sem ekki eiga rétt á sér. Það liggur ekkert fyr- ir um það að Mýrdalurinn sé eitt- hvað hreinna svæði en önnur á landinu," sagði Karl. „Það er alveg ljóst að fullyrð- ing yfirdýralæknis um að naut- gripir hafi ekki verið fluttir í Mýrdalinn í áratugi er röng því gripir voru fluttir inn á svæðið 1986, frá Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum í Rangárvallasýslu. Svo má líka benda á að túnþökur voru fluttar frá Gunnarsholti árið 1989 að Loftsölum í Mýrd- alnum með samþykki Sauðfjár- veikivarna. Það er því alveg ljóst að rök um einangrun svæðisins standast ekki enda út í hött að halda þessu svæði lokuðu. And- inn í þjóðfélaginu er á þá leið að faglega verði tekið á flutningi gripa en bændur og aðrir sem ekki hafa þekkingu á slíku verði látnir hætta afskiptum af vörn- um búfjár. Við teljum, eins og svo fjölmargir aðrir, að héraðs- dýralæknar eigi að fjalla alfarið um þessi mál,“ sagði Þórir. Valdið hjá yfirdýralækni „Málið er hjá yfirdýralækni, hann hefur ákvörðunarvaldið en ekki hreppsnefnd. Mér finnst vera gert of mikið úr áliti hrepps- nefndar í málinu. En vilji menn halda uppi sóttvörnum verða þær að gilda. Hreppsnefndin fjallaði um þetta samkvæmt beiðni Sig- urðar Sigurðssonar fyrir hönd Sauðfjárveikivarna," sagði Haf- steinn Jóhannesson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps. Guðmundur Guðmunds- son fyrrver- andi bóndi látinn Borg í Miklaholtshreppi. Guðmundur Guðmundsson, fyrrverandi bóndi í Dalsmynni í Eyjahreppi, lést 24. þessa mánaðar á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Hann var á 91. aldurs- ári, fæddur 15. september 1902. Guðmundur var mikill búmaður af guðs náð, fór vel með sinn bú- smala. Hann átti alltaf fallega og góða hesta og naut þess oft að fara á hestbak og oftast hafði hann sér við hlið barnabörn sín sem hann var að kenna að fara með hesta. Allar athafnir hans á jörð sinni bera vott um stórhug og farsæld í hans búskap. Eftiriifandi kona Guðmundar er Margrét Guðmarsdóttir, sveitar- skáld Snæfellinga. Þau eignuðust 11 börn sem öll eru á lífi, allt manndómsfólk í bestu merkingu þess orðs. - Páll. Morgunnðmskeið hefst 2. febrúar Kennt þriðjud. og fimmtud.kl. 8.30-10.00 Jógostödin Heimsljós, s. 679181 (kl. 17-19) allovirka daga. Höfóar til .fólks í öllum starfsgrcinum! Hafnfirdingar LUKKUMIÐI Meistaraflokkslið í karla- og fá ókeypis lukku 10 góðir vinninga Dagskráin hefst kl. 18:00 Óskum Knattspyrnufélaginu Haukum til hamingju með glæsilega aðstöðu á Ásvöllum iþ « H Aislurtoakki hf. Heimilistæki hf SPARISJOÐURINN SPARISJÓÐUR HAFNARFJARÐAR IOIÍSLEIFUR JÓNSSON HF. MEÐ ÞÉR i VEITUN VATNS % Balsam Danmark A/S VARMO SNJ OBRÆDSLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.