Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF
FIMMTUDAGUR 28. JANUAR 1993
-------------------------
Hádegisverðarhladborðið á Búmannsklukkunni.
Dagverður um
helgar á Búmannsklukkunni
VÍÐA erlendis tíðkast að hótel
og veitingastaðir bjóði dagverð
í hádeginu. Dagverður er það
sem kallast á ensku brunch, úr
orðunum breakfast og lunch.
Segja má að það sé sameiginleg-
ur morgun- og hádegisverður.
Þær stöllur sem reka saman
Búmannsklukkuna, Steinunn og
Anna, tóku nýlega upp á því að
bjóða gestum sínum upp á dagverð
frá kl. 11 til 15 laugard. og sunnud.
Á hlaðborðinu er heit súpa,
heimabakað brauð, brauðhringir,
þasta og túnfískssalöt, álegg, reykt-
ur lax, heit heimalöguð lifrarkæfa,
ostar, ferskir ávextir og kaka og
svokölluð muffíns með kaffinu. Af
heitum réttum geta dagverðargestir
valið um mismunandi eggjarétti og
amerískar pönnukökur með sírópi
eða berjamauki. Kaffí eða djús er
innifalið í verði sem er 950 kr. fyr-
ir fullorðna og helmingur fyrir böm
að 12 ára aldri.
Steinunn var beðin að gefa les-
endum uppskrifír af bláberjamuff-
ins' og gulrótartertu.
Blóberjamuffins
Steinunn tekur fram að helst þurfi
að nota amerísk bollamál í upp-
skriftina. Einn amerískur bolli
samsvarar um það bil 2.5 desílítr-
um..
2 bollar hveiti
2 tsk. lyftiduft
varlega samanvið þegar búið er að
velta þeim lauslega úr hveiti.
Deigið er sett í bréfform og ofan
í muffinsform sem fást í búsáhalda-
verslunum og eru fyrir 6-12 muff-
ins. Fyllt að %og bakað við 200
gráðu hita í 10-15 mínútur. Borðið
heitt með smjöri
Gulrótnrkaka
1 1/2 bolli matarolía
2 bollar sykur
4egg
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. kanill
1 1 /2 tsk. sódaduft
1 tsk. salt
2 bolli hveiti
2 bollar rifnar gulrætur (setja þétt
í bolla)
1 bolli kurlaður ananas sem búið
er að sigta vel
2 tsk. vanilludropar
1 bolli sykur
1 bolli blóber (fryst eða niðursoðin,
síuð og þeim velt úr hveiti)
1 /2 bolli appelsínudjús
1/2 bolli matarolía
2egg
Hveiti, lyftidufti og sykri blandað
í skál og er djúsi og matarolíu
bætt við. Síðast er blábeijum bætt
bolli saxaðar valhnetur
bolli saxaðar rúsínur
Hrærið saman olíu, sykri og einu
eggi í einu bætt út í. Þurrefnum
hrært samanvið og að síðustu gul-
rótum, ananas, valhnetum og rúsín-
um. Setjið í stórt eldfast form og
bakið í vel smurðu formi við 180
gráðu hita í 1 lóklukkustund.
Krem á kökuna
50 g rjómaostur
350 g flórsykur
sítrónusafi
Osti og flórsykri hrært saman
og bleytt í með sítrónusafa. Kremið
á að vera þykkt. Hjúpið kökuna
með kreminu og skreytið með val-
hnetum. ■
Oðruvísi
hamborgarar
VERÐKÖNNUN
VIKUNNAR
Hvað taka sérfræðingarnir fyrir skattframtalið?
Her er um viðmiðunarverð að ræða, það getur orðið ^ ^
hærra eða lægra eftir umfangi skýrslunnar. _ 5
. ^ 'Sb
Launþegi á íbúð, skuldar ekkert
Launþegi er að byggja,
húsbyggingarskýrsla, lánaskýrsla
Launþegi á (búð, skuldar lítið,
fær ökutækjastyrk
Launþegi selur íbúð og kaupir nýja
Launþegi á íbúð, með miklar
skuldir í vanskilum
Launþegi slítur hjúskap,
tvö framtöl, eignir og skuldir
færðar skv. skilnaðarsamningi
■fe’ -1 #| 15 1 X & I |í* III |fS§ II III IÍJ ■S l| !.# f? ííf #1 JtJ ^ ö (U .«o 1* ll ■Vl Ö
9.000 5.000 8.500 9.500 4.000 4.000 7.000
11.000 15.000 8.500 9.500 7.500 9.000 11.000
10.000 7.000 8.500 9.500 5.500 11.000 10.000
11.000 8.000 8.500 9.500 7.000 17.000 10.000
11.000 12.000 8.500 9.500 7.500 17.000 10.000
11.000 15.000 8.500 9.500 7.500 23.000 15.000
Lítil samkeppni
um gerð einstaklingsframtala
ÞÓTT flest þjónustufyrirtæki séu í samkeppni um viðskipta-
vini virðist ekki gegna sama máli um endurskoðunarskrif-
stofur þegar um er að ræða launafólk og skattframtöl þeirra.
Flestir endurskoðendur sem Daglegt líf ræddi við sögðust
að mestu leyti hafa fyrirtæki á sinni könnu. Þó væri alltaf
nokkuð um einstaklingsframtöl í tengslum við fyrirtækin
og fyrir vini og venslamenn. Sjaldnast vísuðu þeir einstakl-
ingum á dyr, en reyndu ekki sérstaklega að laða þá að.
Síðasti skiladagur einstaklings-
framtala er 10. febr. og byijað
var að bera eyðublöð í hús um
helgina. Að sögn Skúla Eggerts
Þórðarsonar vararíkisskattstjóra
er stefnt að því að eftir 2-3 ár
verði búið að skrá upplýsingar um
laun, fasteignir og bifreiðar í við-
eigandi reiti áður en launþegi fær
eyðublöðin. Stuðst verður við öku-
tækjaskrá, fasteignamatsskrá og
ýmsar haldbærar upplýsingar um
eignir og skuldir. Fyrsta skrefíð
ereyðublað, sem 12 þús. einstakl-
ingar fá nú með framtölum til
þess að leiðrétta eignaprósentu í
fasteignamatsskrá.
ViðmlðunarverA
Daglegt líf kannaði hvað sér-
fróðir aðilar tækju fyrir einstakl-
ingsframtöl. Þeir sem gáfu upp
verð tóku allir skýrt fram að ein-
ungis væri hægt að gefa upp við-
miðunarverð, því gögnin væru
mismunandi vel búin í hendur
þeirra. Stundum kæmi fólk með
alla pappíra í megnustu óreiðu;
óflokkaða í plastpokum og kom-
móðuskúffum, og drægi síðan
hina og þessa reikninga, skælda
og krumpaða, upp úr vösum og
veskjum. Oft væru ýmis gögn
glötuð og þyrftu þeir að leggja á
sig mikla vinnu til að sannreyna
upplýsingar. Slík viðbótarvinna
væri yfirleitt verðlögð sérstaklega
og oftast miðuð við tímakaup.
Verðið á meðfýlgjandi töflu er því
miðað við að gögn og upplýsingar
liggi fyrir og allt sé nokkrun veg-
inn í röð og reglu. Jafnvel þá eru
ýmis frávik á verði því viðmælend-
ur sögðust oftar en ekki taka til-
lit til persónulegra aðstæðna fólks
og haga verðlagningu samkvæmt
því.
Ókeypis aðstoð
Samkvæmt 5. málsgrein 91.
gr. laga um tekju- og eignaskatt
geta þeir einir, sem vegna örorku,
fötlunar eða elli, eru ófærir um
að útfylla skýrslur sínar sjálfir,
fengið þá þjónustu ókeypis hjá
skattstofum í sínu byggðarlagi,
og einungis við gerð einföldustu
framtala. Aðrir einstaklingar geta
leitað til starfsfólks á skattstofum
um upplýsingar en verða sjálfir
að fylla út framtölin.
„Gerum ekki út á
þennanmarkað"
Endurskoðendur og viðskipta-
fræðingar taka yfirleitt ekki
aukaþóknun fyrir að reikna út
skatta, yfirfara álagningarseðla,
eða sækja um frest. Þeir töldu
flesta launþega vera með tiltölu-
lega einföld framtöl og þyrftu
ekki að veigra sér við að gera þau
sjálfír, enda fylgdu góðar leiðbein-
ingar með. Aftur á móti væri al-
menningi oft ókunnugt um ýmsa
frádráttarbæra liði. Til dæmis
gætu þeir sem yrðu fyrir miklum
útgjöldum vegna viðhalds íbúðar-
húsnæðis eða náms barna, at-
vinnulausir og sjúklingar sótt um
skattaívilnun á þar til gerðu eyðu-
blaði.
Margir endurskoðendur neit-
uðu alfarið að nefna verð og sögð-
ust einfaldlega ekki geta bætt við
sig meiri vinnu og ýmsir svöruðu
á þá leið að þeir „gerðu ekki út
á þennan markað, þetta væri tómt
vesen því fólk skilaði seint og illa,
stöðugt kvabb og ómögulegt að
gefa upp fast verð“.
Þeir sem þátt tóku í könnun-
inni„gera ekki endilega út á þenn-
an markað" en hafa þó framtöl
allmargra einstaklinga á sínum
snærum. Verðskrána hafa þeir til
hliðsjónar. ■
vþj
Hvað kostar að
bjóða gestum í mat?
tfVERNIG værí að breyta aðeins til og klæða buffið eða
hamborgarann í skrautlegan og næringarríkan búning?
Það sem þarf til er stór gulrót og blaðlaukur. Gulrót er skafin
með kartöfluskrælara og græni hluti blaðlauksins skorinn í í langar
mjóar ræmur. Þessu er fléttað saman eins og sést á myndinni og sett utan um buffið eða hamborgarann.
Ræmurnar verða meðfærilegri sé þeim stungið í soðið vatn smástund. Þegar búið er að klæða buffið er gott að
setja það í ofn í smátíma og láta yfír álpappír. ■
DÝRASTI liðurinn í matarinn-
kaupum þegar bjóða á gestum
heim er líklega kjötið eða fisk-
urinn. Það munar hinsvegar
miklu hvort bjóða á í svínalund-
ir eða ýsurétt því á meðan kíló-
ið af svínalundum kostar að
meðaltali um 1800 krónur kost-
ar kílóið af ýsuflökum um 450
krónur.
Við hringdum á nokkra staði og
fengum uppgefið verð á eftirtöldum
vöruliðum. Verðið hér að neðan er
fengið með því að taka meðaltal
af því verði sem okkur var gefið
upp á mismunandi stöðum. Það var
sláandi hversu mikill verðmunurinn
var oft, t.d. munaði á fjórða hundr-
að krónur á hæsta og lægsta verði
á svínalundum og nautasnitzeli.
Munurinn á ýsuflökum, rækjum og
rauðsprettu var hinsvegar ekki
nema um hundrað krónur.
1 kíló Kjúklingar.....620 krónur
1 kíló svínalundir...1800 krónur
1 kíló lambalæri......795 krónur
1 kíló nautasnitzel....l500 krónur
lkílóýsuflök.........449 krónur
1 kíló úrvalsrækja....860 krónur
1 kíló rauðspretta....460 krónur