Morgunblaðið - 28.01.1993, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993
31
Minning
Geir S. Bjömsson
fv. prentsmiðjustjóri
Fæddur 6. desember 1924
Dáinn 21. janúar 1993
í dag er til moldar borinn skóla-
bróðir okkar, Geir S. Bjömsson, en
hann lést eftir erfiðan sjúkdóm á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
aðfaranótt 21. janúar sl.
Geir var fæddur á Akureyri, son-
ur hins mæta manns Sigurðar 0.
Björnssonar prentsmiðjustjóra og
fyrri konu hans, Maríu Kristjáns-
dóttur. Geir missti móður sína að-
eins 7 ára gamall, og var það mik-
ið áfall svo ungum dreng. Síðar
ólst hann upp hjá föður sínum og
seinni konu hans, Kristínu Bjarna-
dóttur, og tókust kærleikar með
honum og Kristínu er árin liðu.
Geir eignaðist 6 hálfsystkini sem
eru Bjarni prentari, Akureyri, Sól-
veig sem er látin, Ingibjörg skóla-
stýra, búsett í Lúxemborg, Ragnar
augnlæknir Akureyri, Oddur jarð-
fræðingur, Reykjavík og Þór prent-
ari á Akureyri.
Ungur að árum fór Geir í sveit
á sumrum og var m.a. á Hofí í
Vatnsdal og voru hjónin þar, þau
Ingunn og Ágúst og dætur þeirra,
honum mjög kær.
Að barnaskólanámi loknu hóf
Geir nám í Menntaskólanum á Ak-
ureyri, og lauk þaðan stúdentsprófi
árið 1944. Jafnframt námi í MA
hóf Geir nám í prentiðn í POB.
Eftir stúdentspróf var Geir eitt ár
við enskunám i Háskóla íslands.
Árið 1946 lá leiðin til Ameríku til
framhaldsnáms í prentiðn við Roc-
hester Institute of Technology.
Hann fékk meistararéttindi í prent-
iðn þaðan 1949. Þá hóf hann störf
við hlið föður síns í POB og starf-
aði þar allt til ársins 1988, er hann
varð að hætta vegna veikinda. Auk
annasamra starfa við prentverkið
sá hann um bókaútgáfu Forlags
POB og ábyrgðarmaður tímaritsins
Heima er best frá 1975.
Hann lét félagsstörf mikið til sín
taka og sat í stjórnum margra fé-
laga.
Eftir að Geir hætti störfum í
prentverkinu settist hann ekki í
helgan stein. Hann hóf þá vinnu
við nafnaskráningu úr Heima er
best frá því ritið hóf göngu sína
um 1950. í nafnaskránni eru komin
vel yfir 30 þúsund nöfn. Þar er
getið um fæðingardag, búsetu og
dánardægur þeirra sem látnir eru.
Geir leitaði víða heimilda og var
umhugað um að allar upplýsingar
væru réttar, og vitum við að með
eljusemi og vandvirkni sinni fann
hann ýmsar skekkjur, t.d. í opinber-
um gögnum, sem hann kom réttum
inn í nafnaskrána. Draga má í efa
að fullkomnari nafnaskrá finnist
hér á landi og er leitt til þess að
vita að honum skyldi ekki endast
aldur til að ljúka þessu einstæða
verki, sem hann naut að vinna við.
í Rochester kynntist Geir eftirlif-
andi konu sinni Ánitu Floru, f. Saur,
hinni ágætustu konu og gengu þau
í hjónaband 26. apríl 1951. Anita
hefur tekið ástfóstri við ísland og
vill ekki annars staðar vera. Þau
eignuðust þrjú börn, sem eru Bar-
bara María hjúkrunarfræðingur,
Akureyri, gift Magnúsi Garðarssyni
tæknifræðingi, Gunnhildur fóstra,
búsett í Lundi í Svíþjóð og Sigurður
Oddur, Akureyri, sambýliskona
Kristbjörg Eiðsdóttir.
Geir var skólabróðir okkar frá
barnæsku og samstúdent. Betri og
tryggari vin höfum við ekki átt.
Undanfarin ár höfum við farið í
daglegar gönguferðir okkur til mik-
illar ánægju og hressingar. í þess-
um gönguferðum bar margt á
góma. Auk þess að kunna skil á
mönnum og málefnum hafði Geir
mikinn áhuga á náttúrunni og
þekkti flestar plöntur og fugla hér-
lendis.
í sumar kom í ljós að hann gekk
með krabbamein, sem ekki var
hægt að meðhöndla vegna erfiðs
hjartasjúkdóms. Þá sýndi Geir hví-
líkt karlmenni hann var. Hann lét
aldrei deigan síga. Hann var jafnan
með gamanyrði á vör, þegar hann
sá áhyggjur og depurð hjá okkur.
Undir það síðasta hafði hann á
orði að gaman væri að koma með
okkur á göngutúr, en líkast til vekti
það helst til mikla athygli að þurfa
að draga súrefniskútinn á eftir sér.
Við ásamt konum okkar, Ólöfu
og Guðrúnu, þökkum ómetanlega
vináttu og vottum Anitu og börnun-
um einlæga samúð.
Baldur Jónsson,
Gunnar Steindórsson.
Atvikin höfuðu því svo, að leiðir
okkar Geirs Sigurðssonar Björnsson
lágu saman nær starfslokum hans.
Tók ég að mér að ritstýra tímarit-
inu Heima er bezt um nokkurt
skeið, en það kom út á vegum
Prentverks Odds Bjömssonar frá
árinu 1956, lengst af undir farsælli
ritstjóm Steindórs Steindórssonar
frá Hlöðum. Frá árinu 1975 var
Geir ábyrgðarmaður ritsins og því
var samstarf hans og ritstjóranna
náið.
Með þakklæti minnist ég kynna
af góðum dreng, sem gæddur var
hógværam virðuleik og rótgróinni
drenglund. Honum var síst af öllu
hugleikin hástig orða, hvort heldur
beitt var til lofs eða lasts, en næma
tilfinningu hafði hann fyrir snjöllum
texta og glöggt auga fyrir góðri
mynd. Við öll viðfangsefni lagði
hann alúð og á hljóðlátan hátt beitti
hann áhrifum sínum til menningar
og betra mannlífs. Er ekki ofsagt
að margir hafi notið góðs af þeli
hans.
Mér er full ljóst, að Geir hefði
ekki kunnað mér þakkir fyrir gá-
lauslega mælgi, þegar leiðir skilur.
Þó er ekki of sterkt að orði komist,
er ég fullyrði, að Norðurland sé
snauðara og margur hnípinn í Hóla-
stifti, þegar Geir S. Björnsson er
allur og fyrirtæki ættar hans,
Prentverk og bókaútgáfa Odds
Bjömssonar, horfið. Þaðan komu
flest rit, sem út hafa verið gefin
hér fyrir norðan á þessari öld. Það
er vert að íhuga nú, að merki þess
menningarþáttar þarf að endurreisa
og væri í anda þess góða drengs,
sem hér er kvaddur.
Guð gefi ástvinum Geirs Sigurðs-
sonar Björnsson styrk og huggun
i sorginni. Honum séu þakkir, sem
gefur oss sigurinn fyrir drottin vorn
og frelsara, Jesúm Krist.
Bolli Gústavsson,
Hólum.
Andlát Geirs S. Björnssonar kom
síður en svo á óvart. Þó vonaði ég
alltaf innst inni að þessi glaðværi
og hugrakki maður myndi rífa sig
upp úr meininu. En raunveruleikinn
í lífs-gangverkinu varð auðvitað
óskhyggjunni yfirsterkari.
Ég hef þekkt Geir frá því við
vorum strákar í Barnaskóla Akur-
eyrar, enda jafnaldrar.
En mest og best urðu kynnin
þegar ég gerðist starfsmaður POB
á öndverðu ári 1966, en þar var
Geir prentsmiðjustjórinn. Á þessum
POB-árum mínum varð ég trúnað-
armaður norðlenskra prentara
gagnvart Hinu ísl. prentarafélagi
og hafði því töluverð samskipti við
prentsmiðjustjórann út af ýmsum
þeim félagslegu vandamálum sem
alltaf kom upp þar sem margt fólk
vinnur.
Mér er ljúft að votta að öll sam-
skipti mín við Geir, og aðra ráða-
menn prentsmiðjunnar, einkennd-
ust af fyllsta drengskap þeirra.
Alltaf var reynt að leysa vandamál-
in áður en þau fóru í harðan hnút.
Enginn sem þekkir til fagmál-
efna í prentiðnaðinum dró í efa
hæfni og þekkingu Geirs á því sviði.
Honum nægði ekki að vera útskrif-
aður prentari frá hinni þekktu
prentsmiðju föður síns og afa, held-
ur hélt hann til Bandaríkjanna til
frekara náms í fræðunum eftir
stúdentspróf frá MA og háskóla-
próf hér heima. Rochester Institute
of Technologi hét háskólinn sem
hann nam prentfræðin við og út-
skrifaðist þaðan 1949 eftir nokk-
urra ára nám.
En ekki lét hann sér nægja að
koma heim aftur bara með hina
hefðbundnu og raunar alþjóðlegu
prenttækni í farteskinu, heldur fór
hann aftur til náms í Bandaríkjun-
um 1954 til Fairchild í New York
þar sem hann lærði prentmynda-
gerð á Scan-A-Grave elektróníska
prentmyndagerðarvél og kom heim
með fyrstu vél þeirrar tegundar til
Akureyrar. Þessi myndamótavél
var í rauninni alger bylting í prent-
iðnaðinum og leysti eiginlega alla
myndþörf bóka og tímarita, auk
ýmislegs annars sem POB prentaði
um áratugi, eða allt þangað til hin
nýja offset-prenttækni leysti hana
af hólmi.
Árið 1959 sótti Geir alþjóðlegt
námskeið fyrir bókaútgefendur í
London á vegum British Council.
Það er því alveg óhætt að full-
yrða að hinn ungi prentsmiðjustjóri
var vel menntaður í hinum faglegu
þáttum prentunar og bókaútgáfu.
Þessi ágæta og praktíska mennt-
un fann sér líka farveg í miklum
faglegum metnaði. Öll prentun,
hönnun og frágangur prentgripa
frá POB var landskunn. Og nafn
Geirs varð eins konar vörumerki
fyrir fyrsta flokks frágang á bókum
og öðrum prentgripum. Ég held ég
geti fullyrt að hann hafi aldrei lát-
ið neitt fara frá prentverkinu sem
ekki stóðst kröfur hans.
Eitt með öðru, sem má nefna í
sambandi við bókaútgáfuna, var
að Bókaforlag Odds Björnssonar
gaf aldrei svo út fræðibók að henni
fylgdi ekki ýtarleg nafnaskrá.
Þetta tel ég til einstakrar fyrir-
myndar og eykur stórlega verð-
mæti bókarinnar. Mér er kunnugt
um það að þetta framtak var fyrst
og fremst Geirs.
Þegar samvinna okkar Geirs
hófst við tímaritið Heima er best á
sínum tíma fann ég hversu mikill
smekkmaður hann var á mál og
stíl og ég hef haldið því fram að
hann hafi erft bókmennta-genið úr
föðurættinni. Aldrei skrifaði hann
þó neitt eða samdi bókmenntakyns
svo mér sé kunnugt. Þó mætti geta
þess að fyrir nokkrum árum tók
hann upp á þvi fyrir sjálfan sig að
búa til registur yfir öll mannanöfn
sem nefnd voru i hinum fjölbreyttu
greinum Heima er best. Hann var
kominn býsna langt með þetta ein-
stæða verk sitt sem mér er til efs
að finnist nokkurs staðar í veröld-
inni enda sennilega hvergi hægt
að gera nema á íslandi.
Geir S. Bjömsson var fæddur
6. desember 1924 á Akureyri og
því 68 ára gamall. Hann var sonur
Sigurðar 0. Björnssonar prent-
smiðjustjóra og fyrri konu hans
Maríu Kristjánsdóttur.
Geir kvæntist bandarískri konu,
Anitu, fæddri Saur, og eignuðust
þau þrjú börn, tvær dætur og son,
og eru þau öll uppkomin.
Ég votta Anitu, börnunum og
öðrum venslamönnum mína dýpstu
hluttekningu.
Ég ætlaði ekki að hafa þetta
löng eftirmæli en fann hvöt hjá
mér til að kveðja þennan hæfileika-
ríka samferðamann og jafnaldra
hinstu kveðju með þakklæti fyrir
kynnin.
Ég sakna hans sárlega.
Eiríkur Eiríksson.
Minning mín um Geir S. Björns-
son prentsmiðjustjóra á Akureyri
er um traustan, metnaðarfullan
stjórnanda í gömlu og góðu fyrir-
tæki, Prentverki Odds Björnssonar
hf. á Akureyri. Við prentsmiðju-
stjórn tók Geir af föður sínum Sig-
urði 0. Björnsson, en hann var
sonur Odds Björnssonar, stofnanda
prentsmiðjunnar. Undir hand-
leiðslu þessara manna hefur Prent-
verk Odds Bjömssonar tekið
marga unga menn til iðnnáms og
lagt í það óvanalegan metnað, að
þeir geti borið fyrirtækinu gott
vitni. Metnaður sá sem ætíð hefur
verið lagður í gott handverk hefur
vissulega skilað árangri hjá þeim
sveinum sem í POB lærðu. Enn-
fremur sú áhersla sem ætíð var
lögð á snyrtilega umgengni, sem
leiddi til þess að vandvirkni varð
aðalsmerki þeirra sem í Prentverki
Odds Björnssonar störfuðu. Ég
minnist þess að hafa maldað í
móinn sem lærlingur, yfir því að
þurfa að sópa gólf og pússa fleyga
úr blýsetningarvélunum oftar en
ég taldi nauðsynlegt í þá daga, en
núna er ég þakklátur fyrir að hafa
fengið svo gott verklegt uppeldi,
sem Geir og Bjarni bróðir hans
stýrðu. Ég veit að svo er einnig
farið með aðra þá lærlinga sem
hlutu starfsmenntun sína í POB.
Geir S. Björnsson naut mikillar
virðingar og trausts meðal starfs-
manna sinna. Hann stjómaði fyrir-
tæki sínu með lagni og alla þá
daga sem ég vann undir hans
stjórn byijaði hann daginn með því
að ganga um prentsmiðjuna að
morgni og ræða við starfsfólk og
verkstjóra. Hann kunni að hlusta
á menn, sem er sjaldgæfur kostur.
Ég votta Anitu eiginkonu Geirs
innilega samúð mína, sem og böm-
um þeirra og fjölskyldum þeirra.
Megi hinn hæsti höfuðsmiður him-
ins og jarðar blessa þau og styrkja.
Guðbrandur Magnússon.
í dag er til moldar borinn norð-
ur á Akureyri vinur minn og sam-
stúdent, Geir S. Björnsson, prent-
smiðjustjóri, eftir snarpa glímu.
Við sátum saman í 3. bekk í
MA og var hann fyrsti innfæddi
Akureyringurinn sem ég kynntist.
Síðan höfum við verið vinir, þó að
oft liðu langir tímar milli funda,
en þegar við hittumst var sem ör-
skot væri síðan síðast. Við vorum
saman í Háskóla íslands veturinn
1944-45 í forspjallsvísindum og
fleira skemmtilegu og nutum þess
tíma vel en strax næsta vetur skildi
leiðir. Hann fór haustið 1946 vest-
ur um haf til Rochester í New
York-ríki, þar sem hann fór í fram-
haldsnám í list feðra sinna, prent-
listinni, enda hafði hann lokið
sveinsprófi í prenti mjög jafns-
nemma stúdentsprófinu.
Á þeim tíma, sem við vorum
sinn hvorum megin Atlantsála, iðk-
uðum við mjög bréfaskriftir, og
þó að ég sé ekki mikill hirðumaður
um bréf, geymi ég alltaf „Eitt lítið
lettersbréf“, sem hann reit mér á
Linotype-setjaravél, prentaði í
tveimur eintökum og myndskreytti
með gömlum litógrafíum og viðeig-
andi myndatextum, eitt kostulegt
tilskrif, þar sem hann gerði ótæpi-
legt grín að síðasta bréfi mínu.
Síðast hittumst við, er hann lá
um tíma á Landspítalanum sl.
haust, og enn var yfir honum, lögg-
iltu gamalmenninu, sama æðru-
leysið sem á unglingsárunum.
Hann lét mótlætið aldrei buga sig,
en hafði í heiðri fyrirmæli eða heil-
ræði Hávamála:
Glaðr ok reifr
skyli gumna hverr,
unz sinn bíðr bana.
Úr vesturvegi hafði Geir með
sér brúði sína Anítu, sem fljótlega
varð íslenzkari en margur landinn.
Við Katrín sendum henni, börnun-
um og barnabömunum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Geirs S.
Björnssonar.
Guðni Guðmundsson.
í dag, 28. janúar, er kvaddur
Geir bróðir minn. Þar sem ég kemst
ekki til að fylgja honum síðasta
spölinn, langar mig að senda smá
kveðju.
Geir var elstur í okkar systkina-
hópi en það er stórt skarðið sem
höggvið hefur verið í þann hóp á
stuttum tíma, því Sólveig systir
okkar féll frá fyrir einu og hálfu
ári, aðeins 54 ára gömul. Það eru
alltaf þáttaskil i lífi manns þegar
ástvinir hverfa og sárt er það.
Geir fæddist 6. desember 1924,
sonur Sigurðar 0. Björnssonar
prentsmiðjustjóra og fyrri konu
hans, Maríu Kristjánsdóttur. Móðir
hans dó þegar Geir var lítill dreng-
ur. Var hann í umsjón ömmu okk-
ar Ingibjargar og föðursystur
Ragnheiðar 0. Bjömsson þar til
foreldrar mínir giftust, þá tók
móðir mín við uppeldinu. Hefur það
vafalaust verið erfitt fyrst í stað.
Geir sagði mér að augu hans hefðu
ekki opnast fyrr en hann fór til
Reykjavíkur í háskólann, hvað
mamma var honum mikilvæg, og
ég veit að hann mat hana mikils.
Eftir að Geir var búinn með
prentnám sitt hjá pabba, fór hann
til Bandaríkjanna í framhaldsnám
og fannst mér mjög merkilegt að
eiga bróður í Ameríku, enda nutum
við yngri systkinin góðs af því;
allt mögulegt kom svífandi heim
sem hann hafði keypt handa okk-
ur. Meðal annars voru stórir
dúkkuvagnar, sem voru sjaldséðir
þá, sem við Dídí systir fengum og
voru það stoltar systur sem fóru
út í labbitúr með fínu dúkkuvagn-
ana sína frá Ameríku.
Þegar Geir kom alkominn heim
1950 kom hann með konuefni sitt
með sér, hana Anitu. Það var mik-
il eftirvænting að hitta hana. Hún
var bandarísk, og maður gat ekki
einu sinni talað við hana. En það
var fljótt að breytast. Það tók
Anitu ekki langan tíma að aðlag-
ast tungumálinu og íslenskum sið-
um. Anita og Geir giftu sig 26.
apríl 1951 og fyrsta barnið þeirra,
Barbara María, fæddist 23. janúar
1952. Önnur dóttir, Gunnhildur
Margrét, kom í heiminn 13. janúar
1954 og seinast sonurinn Sigurður
Oddur, 12. september 1957. Ég
sendi þeim öllum mínar einlægustu
kveðjur. Ég kveð nú bróður minn
í hinsta sinn. Hvíli hann í friði.
Inga.
Erfidnkkjur
Glæsileg kaffi-
lilaðborð íallegir
salirogmjög
góð þjómista.
Upplýsingai*
ísíma 22322
FLUCLEIDIR
HÍTÉL LOFTLEIBIK