Morgunblaðið - 28.01.1993, Side 32

Morgunblaðið - 28.01.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993 Ásgerður Skjald- berg - Minning Fædd 31. maí 1894 Dáin 19. janúar 1993 Það að eiga góða ömmu er dýr- mæt gjöf. Amma mín, sem hér er kvödd, var svo sannarlega dýrmæt gjöf og fýrir það verð ég ævinlega þakklát. Það að geta litið um öxl og kallað fram minningar sem að- eins eru manni til gleði er það sem getur hjálpað hveijum manni til að líta björtum augum fram á veg. Amma mín var fædd á Leikskál- um í Dalasýslu 31. maí 1894 og var því 98 ára er hún lést. Þetta er hár aldur og amma var orðin þreytt. En í minningunni á ég mynd af mildri og góðri ömmu. Ömmu sem hafði lifað tímana tvenna, með öllum þeim breytingum í búskapar- háttum sem tæknivæðingin hafði í för með sér, ömmu sem stjórnaði stóru heimili hávaðalaust. Tilhlökk- unin gat ekki verið meiri en þegar ég, sem bam, mátti fara í heimsókn til ömmu og afa, sem þá bjuggu í Hveragerði. Þar var tekið á móti með opinn faðm. Dagamir liðu bara alltof fljótt, en eftir sitja bemsku- minningar baðaðar sólskini. Amma og afí fluttust til Reykjavíkur og bjuggu þar við Laugaveginn. Það var gott að eiga ömmu að á ungl- ingsámnum, gott að getað verið umvafín mildi og skilningi. Hún var vinur sem hægt var að treysta og sem treysti manni. Þegar haldið var af hennar fundi var lundin létt. Ef eitthvað hafði angrað mann var það horfíð, amma kunni ráð við því. Já, hún amma hafði alltaf tíma og það fannst mér á unglingsárunum alveg sjálfsagt, en með ámnum hef ég séð það betur og betur að þetta var ekkert sjálfsagt, heldur var ég bara svona einstaklega heppin. Og fyrir þetta allt, sólskinið, mildina og skilninginn þakka ég af alhug. Með ömmu er gengin góð kona og bið ég Guð að vera með henni. Ó, hve heitt ég unni þér - AÍIt hið besta í hjarta mér vaktir þú og vermdir þinni ást. Æskubjart um öll mín spor aftur glóði sói og vor, og traust þitt var það athvarf, sem mér aldrei brást. (Tómas Guðmundsson) Hallfríður Konráðsdóttir. Amma mín elskuleg sofnaði vært inn í eilífðina þriðjudaginn 19. jan- úar. Hún hefði orðið 99 ára í maí. Söknuðurinn er ekki síður sár þótt aldurinn sé hár. Samt veit ég að hvíldin var henni kærkomin. Um npkkurt skeið var það einungis sterkt hjarta sem sló taktfast í gömlum, lúnum líkama. Amma mín var síðasti tengiliður minn við aldamótakynslóðina, líf hennar og kjör. Við fráfall hennar fínnst mér verða kaflaskipti í tilver- unni. Hún verður aldrei söm. Amma mín er í mínum huga holdgerving „ömmunnar" sem böm nútimans koma aldrei til með að kynnast. Fallegt, þykkt, grátt hárið sem hún fléttaði í tvær fléttur og vafði í kórónu um höfuðið. Upphluturinn sem hún klæddist við hátíðleg tæki- færi. Hún lagði alla tíð mikið upp úr því að vera fín, puntuð og vel til höfð. Pijónarnir sem léku ótt, títt o g viðstöðulaust í höndum henn- ar. Hvílík fimi! Þeir em ótaldir sokk- amir og vettlingarnir sem héldu hita á höndum og fótum afkomenda hennar. Amma mín var sveitakona. Hún átti mörg böm, sá um stórt heim- ili, sinnti uppeldi og skepnum, gekk til allra starfa sem þurfti jafnt utan- húss sem innan. Hún var fyrst upp á morgnana og síðust í rúmið á kvöldin. Vinnudagurinn var langur og strangur. Þægindum var ekki fyrir að fara. í eyram velferðar- bamsins létu sögurnar af lífínu í sveitinni, sem hún var ósínk á, eins og óblíð veður sem leita yrði skjóls undan. Það átti amma bágt með að skilja. Að vísu hafði stundum verið dálítið erfítt, en ekkert til að tala um. Svona var lífíð í þá daga. Amma mín fluttist ásamt afa Bergþóri á mölina, til Reykjavíkur. Þaðan man ég fyrst eftir henni. Þær voru ófáar heimsóknirnar á Lauga- veginn í heitt súkkulaði, pönnsur og kleinur hjá ömmu og afa. Skemmtilegast þótti mér þegar amma tók upp harmónikkuna, þandi hana og kreisti og söng und- ir. Svo hló hún kæfðum hlátri og andlitið afskræmdist allt í stórri hlátursgrettu. Hún var hláturmild og með gott skopskyn. Amma mín dvaldist síðustu æviárin á Hrafnistu og undi dvöl- inni hið besta. Hún var afar félags- lynd og tók þátt í öllu sem í boði var á Hrafnistu. Hún var svo upp- tekin að oft þurfti maður frá að hverfa og koma aftur síðar þegar frí var frá spilamennsku, söngæf- ingu, föndri eða einhveiju öðra. Hún naut lífsins veralega þessi fyrstu ár á dvalarheimilinu. En árin fuku fram og smám saman tók lík- aminn að gefa sig. Fætumir, heym- in, sjónin, fíngumir sviku og gerðu henni að lokum ókleift að vera virk- ur þátttakandi í lífínu. Það hefur öragglega verið henni mikil þraut. Undir það síðasta sat hún næsta hreyfíngarlaus og aðgerðalítil í hjólastólnum sínum. Andlitið svo slétt og fallegt. Hárið stuttklippt og fagurgrátt, ávallt vel greitt. Hendurnar fíngerðar og beinaberar lágu aðgerðalausar í kjöltu hennar. Hún var orðin þreytt, uppgefin. Hún bara sat og beið. En hjartað sló, sterkt og taktfast. Nú er sá sláttur hljóðnaður. Að eilífu. Næstum ald- arlangri ævi er lokið. Við syrgjum hana öll, kjamakon- una hana ömmu, og þökkum henni fyrir allt það sem hún hefur gefið okkur. Megi amma mín elskuleg hvfla í friði. Jórunn Tómasdóttir. Hinn 19. janúar sl. andaðist Ás- gerður Skjaldberg Þorvarðardóttir í Dvalarheimili aldraðra Hrafnistu í Reylq'avík í hárri elli. Útför henn- ar hefur farið fram í kyrrþey að eindreginni ósk hinnar látnu. Ásgerður Skaldberg var fædd að Leikskálum í Haukadal í Dölum hinn 31. maí 1894, dóttir hjónanna Þorvarðar Bergþórssonar, bónda og hreppstjóra, sem lengi bjó við mikla rausn að Leikskálum, og síðari konu hans, Höllu Jóhannesdóttur. Ásgerður ólst upp í skjóli for- eldra sinna í stóram systkinahópi, og vandist hún eins og að líkum lætur allt frá æsku sveitastörfunum við búskaparhætti eins og þeir gerð- ust um og eftir aldamótin síðustu í sveitum þessa lands. Búskapurinn var þrotlaus vinna og strax og börn- in gátu farið að létta undir við störf, tóku þau virkan þátt í því marghátt- aða starfi, sem búskapnum fylgdi, bæði við útiverk og innanhússtörf. En margs þurfti búið við, ekki síst á svo mannmörgum heimilum og ávallt var að Leikskálum á æskuá- ram Ásgerðar. En unga fólkið gerði sér í þá daga, eins og nú, ýmislegt til skemmtunar, þótt tómstundir væru færri, og eins og að líkum lætur hefur oft verið glatt á hjalla í stór- um barnahópnum á æskuheimili Ásgerðar, enda Leikskálar þá nán- ast eins og miðstöð sveitarinnar. Það var spilað og sungið og dansað og langt fram á fullorðinsár hafði Ásgerður mikið yndi af söng og hverskyns tónlist. Á fögram sumar- dögum, þegar annir leyfðu, var far- ið í útreiðartúra um sveitina og nágrenni, en í Haukadalnum er ein- staklega sumarfagurt og veðurblítt, áin og vatnið setja unaðsríkan svip á sveitina á lognkyrram sumar- kvöldum. Oft minntist Ásgerður slíkra un- aðastunda frá æskuáram sínum, og rifjaði upp atburði frá æskuheimili sínu og fram á efstu ár fylgdist hún með fólki því sem þá bjó á Leikskál- um og lét sér annt um velferð þess. Svo lengi sem nokkur möguleiki var fyrir hana átti hún reiðhesta, sem hún hafði mikið dálæti á, valdi þá af betri endanum, fór vel með þá og brá sér eins oft í reiðtúr og hún framast gat. En þegar hún yfírgaf sveitina og hætti búskap, þá varð hún að sjá á bak þessu tómstunda- gamni sínu, henni fannst að hestar ættu ekki heima á malbikinu, enda var hestamönnum í þá tíð ekki búin sú aðstaða sem þeir njóta nú til dags í þéttbýlinu. Á æskuáram Ásgerðar var hvers- kyns nám og skólaganga eigi svo auðsótt, sem nú er, sérstaklega ekki fyrir stúlkur, enda þótt hugur stæði til. Um tvítugsaldur tók Ás- gerður sig þó upp, hélt til Reykja- víkur og stundaði þar nám í sauma- skap og matreiðslu, jafnframt því sem hún vann fyrir sér. Auðvitað varð þetta henni góður skóli, hald- gott veganesti út í lífíð og veitti henni víðari sýn. Hinn 19. apríl 1923 giftist Ás- gerður Bergþóri Bergþórssyni, bóndasyni frá Ölvaldsstöðum í Borgarhreppi. Að honum stóðu merkar bændaættir af Mýranum, frá Hjörsey og Staumfirði. Það varð úr að þau settust að á föðurleifð Bergþórs og hófu búskap að Öl- valdsstöðum. Þar bjuggu þau bestu starfsár sín. Um nokkurt skeið ráku þau hjón þó hótel í Borgamesi. Um nokkurt árabil bjuggu þau svo að Þórastöðum í Ölfusi. Eftir að þau hjón hættu öllum búskap settust þau að í Hveragerði, reistu sér þar hús og bjuggu þar í nokkur ár, en fluttust loks til Reykjavíkur um 1950 og áttu þar heima síðan. Ég kynntist þeim hjónum ekki meðan þau bjuggu í sveit, en það þykist ég vita af kynnum við þau síðar, að gestrisni og hverskonar rausn hefur einkennt heimili þeirra, og þá ekki endilega í samræmi við efnahag á hveijum tíma. En Ás- gerður var einstaklega myndarleg húsmóðir, og það var með ólflrindum hvað hún gat töfrað fram af veiting- um, þegar gesti bar að garði, og hún hafði einstakt lag á að láta tekjumar endast án þess að spara í kosti. Sérstaklega var oft gest- kvæmt hjá þeim hjónum eftir að þau fluttust til Reykjavíkur, en þar bjuggu þau við Laugaveginn miðj- an, og aldrei var Ásgerður ánægð- ari og skemmtilegri en þegar sem flestir komu í kaffí til hennar. Þau hjónin tóku mér einstaklega vel sem verðandi tengdasyni, og á þá vináttu, sem við bundumst, bar aldrei skugga til hinsta dag þeirra. Fyrir það stend ég í þakkarskuld. En eins og nærri má geta var lífíð ekki ætíð leikur hjá Ásgerði. Það fólk sem var á besta starfs- aldri fram á miðja þessa öld, varð vissulega að leggja hart að sér til þess að hafa ofan í sig og fjölskyld- ur sínar. Og á mannmörgu heimili Jón Oddgeir Jóns son - Minning Vegna æskulýðsstarfs á borð við alþjóðlegu skátahreyfínguna bygg- ist að veralegu miklu leyti á því að þeir einstaklingar sem ganga til liðs við hreyfínguna á unga aldri nái slíkum þroska í starfínu að þeir fínni hjá sér þörf til að láta aðra njóta góðs af vera sinni og reynslu í fé- lagsskapnum. Þannig einstaklingur var Jón Oddgéir Jónsson. Ungur gekk hann til liðs við skátahreyfinguna og snemma valdist hann til foringja- starfa. Síðan tók hvert verkefnið við af öðra og framkvöðull var hann á ýmsum sviðum innan hreyfíngar- innar sem utan. Jón Oddgeir stóð m.a. að stofnun skátafélags Hafn- arfjarðar, Blóðgjafarsveitar skáta, og Hjálparsveitar skáta í Reykjavík, sem er elsta hjálparsveit skáta á landinu. Kynni hans og reynsla af skátastarfínu mörkuðu að mörgu leyti æviferil hans og starfsvett- vang þann er hann valdi sér. Slysa- vama- og björgunarstörf vora hon- um ávallt hugleikin og má segja að hann hafí lagt grunninn að þeirri þjálfun í hjálp í viðlögum sem skáta- hreyfíngin byggir enn á í dag. Bandalag íslenskra skáta þakkar Jóni Oddgeiri hér með framlag hans til uppgangs skátahreyfingarinnar og tryggð hans við hana alla tíð. Enn einn skátinn er farinn heim og sendir skátahreyfíngin eftirlif- andi eiginkonu hans, börnum, vin- um, vandamönnum og skátasystk- inum innilegar samúðarkveðjur. Með skátakveðju, f.h. Bandalags íslenskra skáta. Gunnar H. Eyjólfsson, skátahöfðingi. Fyrir rúmum sex áratugum starfaði öflugur hópur ungra hug- sjónamanna innan Skátafélagsins Væringja í Reykjavík. Þessi hópur vann merkilegt brautryðjendastarf á sviði björgunarmála. Leiðtogi þeirra var Jón Oddgeir Jónsson, sem nú er farinn heim. Aðstæður voru þá allt aðrar en nú, löggæslan fámennari, sam- göngukerfið ófullkomið, lítið um að almenningur ætti farartæki og bún- aður til ferðalaga af skornum skammti svo eitthvað sé nefnt. Oft var leitað til þessa skátahóps ef aðstoðar var þörf, t.d. þegar ein- hver týndist. Þá var skjótt bragðist við og allt gert til hjálpar sem mögulegt var. Skátunum varð fljót- lega ljóst að full þörf var fyrir hjálp- arþjónustu af þessu tagi. Það var síðan eftir Alþingishátíðina á Þing- völlum árið 1930, þar sem þeir önn- uðust mikilvægt hjálparstarf, að þeir ákváðu að koma á fót sér- stakri sveit skáta sem væri ávallt viðbúin að bregðast við í neyðartil- fellum. Þeir hófust þegar handa með undirbúning og tveimur árum síðar, árið 1932, varð fyrsta Hjálp- arsveit skáta til. Sveitin var síðar kennd við Reykjavík. Hugmyndin að sveitinni var alíslensk, enda hvergi annars staðar starfandi sér- stakar hjálparsveitir skáta. Hjálpar- sveit skáta átti því 60 ára afmæli á síðasta ári. Jón Oddgeir Jónsson var sjálf- kjörinn sveitarforingi hjálparsveit- arinnar í tvo áratugi. Hann var leið- toginn, hugsuðurinn og hugsjóna- maðurinn á bak við starfið. Fyrir það framlag Jóns era margir þakk- látir. Hjálparsveitin, sem upphaf- lega áttu engan búnað, er nú ein öflugasta björgunarsveit landsins. Hún á fullkomnasta björgunarbún- að sem völ er á og félagar hennar fá þjálfun sem hvergi gerist betri. Grandvöllinn að þessu starfí lagði Jón Oddgeir ásamt félögum sínum fyrir rúmum sex áratugum. Jón Oddgeir Jónsson var áhuga- maður um margt, en þó sérstaklega mannúðarmálefni. Fáir gera sér grein fyrir að trúlega var Jón sá Islendingur sem með störfum sínum hefur bjargað hvað flestum manns- lífum. Hann var ekki aðeins fram- kvöðull að störfum íslenskra björg- unarsveita, heldur hafði hann for- göngu um að fræða almenning um skyndihjálp, eða hjálp í viðlögum eins og Jón kaus að kalla fræðsl- una. Jón var sérfræðingur á þessu sviði. Hann hóf útgáfu kennslubóka fyrir almenning og var bókin „Hjálp við viðlögum" endurútgefín marg- oft með nauðsynlegum breytingum og nýjungum. Jón Oddgeir kenndi hjálp í viðlögum um árabil, bæði í skólum, stofnunum og á vegum félagasamtaka. Af mikilli elju hóf hann að kenna íslendingum lífgun úr dauðadái með blástursaðferð- inni. Með sanni má segja ða þetta framtak hans hafí tekist afar vel, því fjölmörgum mannslífum hefur verið bjargað með þessari aðferð. Síðar hóf hann að kynna hjarta- hnoð. Jón Oddgeir Jónsson var einstak- ur hugsjónamaður. Störf hans að félagsmálum og skyndihjálpar- fræðslu verða seint metin að fullu. Hann starfaði ekki aðeins fyrir skátahreyfínguna og hjálparsveit- ina, heldur einnig fyrir ýmis önnur félagasamtök. Má þar nefna Slysa- varnafélagið, Krabbameinsfélagið og Rauða krossinn. Þess má geta að forseti íslands sæmdi hann fálkaorðunni fyrir störf í þágu mannúðarmála. Félagar Hjálparsveitar skáta í Reykjavík minnast nú framheijans með sérstöku þakklæti. Við sendum eftirlifandi eiginkonu, syni, tengda- dóttur og barnabömum innilegar samúðarkveðjur. Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Þá er Væringinn Jón Oddgeir Jónsson „farinn heim“ eins og gjarnan er tekið til orða þegar skáti fellur frá. Líklega hafa fáir íslendingar lagt eins mikið til samfélagsins og Jón Oddgeir Jónsson. Hann gerðist skáti 1921 og var þá 16 ára. Það má með sanni segja að „Eitt sinn skáti ávallt skáti“ hafi átt við Jón Oddgeir. Hann starfaði ávallt í anda skátahugsjónarinnar og ævistarf hans var í raun byggt á þeirri grein skátalaganna sem segir: Skáti er hjálpsamur. Fyrir utan ómetanleg störf fyrir skátahreyfinguna, ferð- aðist hann um landið þvert og endi- langt og kenndi mönnum skyndi- hjálp og fræddi um slysavarnir. Hann skrifaði fy'ölda bóka og greina um þessi mál og ef nefna skal ein- hveija einstaklinga sem mestan þátt eiga í forvamarstarfi í slysa- vömum til lands og sjávar, þá hlýt- ur nafn Jóns Oddgeirs Jónssonar að vera nefnt. Hann var erindreki Slysavarnafélagsins og Rauða krossins, starfsmaður Krabba- meinsfélagsins og starfaði einnig hjá Umferðamefnd. Bækur hans Hjálp í viðlögum voru nær eina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.