Morgunblaðið - 28.01.1993, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1993
t
Elskulegur faðir okkar,
KRISTJÁN PÁLL PÉTURSSON
skipstjóri,
Stýrimannastíg 7,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum miðvikudaginn 27. janúar.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Jóhanna Kristjánsdóttir,
Elísabet Kristjánsdóttir,
Pétur Kristjánsson.
t
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÁSGERÐUR ÞORVARÐARDÓTTIR
SKJALDBERG,
andaðist 19. janúar á Hrafnistu.
Útför hennar fór fram 27. janúar í kyrr-
þey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu
fyrir góða umönnun.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð.
Dóra Bergþórsdóttir,
Halldis Bergþórsdóttir, TómasTómasson,
Halla Bergþórsdóttir,
Bergþór Bergþórsson, Agnes Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Faðir minn og bróðir okkar,
KJARTAIM
BENEDIKTSSOIM,
lést 13. janúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ivar Már Kjartansson,
Rafn Benediktsson,
Atli Benediktsson,
Herborg Ólafsdóttir,
Anna Ólafsdóttir
og fjölskyldur.
Systir okkar, t
FANNÝ SIGRÍÐUR LÁRUSDÓTTIR
frá Skarði,
lést 18. janúar sl. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 30. janúar
kl. 14.00. Emelia Lárusdóttir, Guðmundur Lárusson, Klara Lárusdóttir.
t
Eiginmaður minn, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
ÓSKAR BERTELS MAGNÚSSON,
Hitaveituvegi 2,
er andaðist 22. janúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 29. janúar kl. 13.30.
Blómey Stefánsdóttir,
Sigriður Sívertsdóttir Hjelm, Bragi Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Bróðir minn,
GUÐJÓN MAGNÚSSON
kjötiönaðarmaður,
sem andaðist 21. þ.m. á Droplaugarstöðum, verður jarðsunginn
frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 2. febrúar kl. 15.00.
Magnea Guðrún Magnúsdóttir.
t
Móðurbróðir minn,
JAKOB ÞORSTEINSSON,
Austurgötu 34,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 29. janúar
kl. 13.30.
Fyrir hönd systkina,
Eyrún Hafsteinsdóttir.
Asta Krisijáns-
dóttir - Minning
Fædd 17. júlí 1914
Dáin 19. janúar 1993
Eitt af því sem móðir náttúra
úthlutar okkur börnum sínum í
misríkum mæli er hreysti og heil-
brigði. En þó er kannski munurinn
á viðbrögðum einstaklinga við
sjúkdómum og veikindum ennþá
meiri. Þetta kemur mér fyrst í hug
þegar ég sest niður til að festa á
blað fáein minningarorð um mág-
konu mína Ástu Kristjánsdóttur.
Engan hef ég þekkt sem bar ára-
tuga vanheilsu og veikindi með
þeim kjarki sem hún og lét aldrei
bugast.
Ásta fæddist að Amarbæli í
Grímsnesi 17. júlí 1914, dóttir
Guðrúnar Jónsdóttur og Kristjáns
Sigurðssonar, bónda þar. Hún var
næstyngst sex systkina sem öll
ólust upp í foreldrahúsum. Tvíbýli
var í Arnarbæli og systkinahópur-
inn í hinum bænum jafnstór og á
svipuðu reki. Mikill samgangur var
milli bæjanna og einstaklingar úr
hópnum bundust vináttuböndum
sem entust til æviloka. Oft var
glatt á hjalla þegar safnast var
saman til að spila, fara í leiki eða
eins og segir í ljóði Þorsteins Erl-
ingssonar — „til að kankast eitt-
hvað á eða til að hlæja“.
En tíminn líður. Fyrr en varði
tvístraðist þessi glaðværi hópur.
Flestir þurftu að leita atvinnu á
öðmm slóðum. Aðrir hurfu af sjón-
arsviði meðan sól var enn í hádeg-
isstað. Ásta fór ung að heiman, í
fyrstu til vetrardvalar hjá ættingj-
um og venslafólki, við heimilisstörf
eða annað sem til féll. Vann þó á
sumrin heima hjá foreldmm sínum
og síðar bróður.
Á ámnum um og eftir 1940 var
t
Hjartkær eiginkona mín og móðir,
SIGURMUNDA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Borgargötu 1,
Drangsnesi,
verður jarðsungin frá Drangsneskapellu laugardaginn 30. janúar
1993 kl. 11.00.
Magnús Guðmundsson,
Ásbjörn Magnússon, Valgerður Magnúsdóttir,
Guðmundur Björgvin Magnússon, Guðrún Guðjónsdóttir,
Arinbjörn Bernharðsson, Sigriður Birna Magnúsdóttir,
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR SIGURJÓNSSON
trésmiður,
Suðurgötu 35,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 29. janúar
kl. 13.30.
Eygló Gísladóttir,
Brynjar Haraldsson, Unnur Jónsdóttir,
Þórir Haraldsson, María Þorbjörnsdóttir,
Guðrún S. Haraldsdóttir, Hilmar Örn Hilmarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
KRISTJANA ÞÓRÐARDÓTTIR
frá Ólafsvik,
til heimilis f Hvassaleiti 7,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 30. janúar
kl. 14.00. Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskirkju föstudag-
inn 29. janúar kl. 15.00.
Jenný Magnúsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir,
Höskuldur Magnússon,
Guðmundur Magnússon,
Edda Magnúsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HAFSTEINN BERGMANN
HALLDÓRSSON
járnsmiður,
Fálkagötu 34,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 29. janúar kl. 15.00.
Sævar Hafsteinsson,
Þóra Berglind Hafsteinsdóttir,
Heiðrún Hafsteinsdóttir,
Sigurvin Bergmann Hafsteinsson,
Henný Helga Hafsteinsdóttir,
tengdabörn og barnabörn.
talsvert unnið að framleiðslu fatn-
aðar á íslandi og þótti jafnvel líf-
vænleg atvinnugrein. Um þessar
mundir stofnuðu þær Katrín Árna-
dóttir og Ásta félagsskap um fram-
leiðslu fatnaðar. Við þau störf náði
hún þeirri færni í meðferð prjóna-
véla og fatagerðar að hún tókst á
hendur ferðalag til að kenna á
námskeiðum í þeirri grein. Fór hún
allvíða um landið og minntist þess
síðar hvað það hafði verið
skemmtilegur tími. Síðar tók hún
að sér að sjá um pijónastofu fyrir
verslunina Skemmuna í Hafnar-
firði. Vann hún þar í nokkur ár.
Megin hluta starfsævinnar vann
Ásta við afgreiðslu í fataverslun-
um. Nokkur ár í Guðrúnarbúð á
Klapparstíg og síðar í Verðlistan-
um. í þeim störfum sem öðrum
sýndi hún samviskusemi og
ábyrgð, enda naut hún sín vel í
þessu umhverfi. Hún var jafnan
vel snyrt, smekklega klædd og
bauð af sér góðan þokka. Auk
þess var hún örugg í fasi og glöð
í viðmóti svo að viðskiptavinir leit-
uðu til hennar öðrum fremur. Hún
var fljót að átta sig á því hvað
hveijum og einum hæfði og studd-
ist þar við meðfædda og þjálfaða
smekkvísi.
Ásta stofnaði ekki fjölskyldu og
var einhleyp til æviloka. En hún
átti létt með að samlagast þeim
sem hún umgekkst. í fjölmennum
frændgarði var hún heimilisvinur
og lét sig skipta heill og hagsæld
ættingja sinna, sem aftur virtu
hana og töldu sér ávinning af því
að halda sambandi við hana. Á
langri ævi eignaðist hún fjölda vina
og kunningja í starfi sínu, á ferða-
lögum og í búsetu. Og þar sem
hún var bæði mannfróð og minnug
hélt hún vináttu og kunningsskap
við ótrúlega marga samferðamenn
á lífsleiðinni.
Þegar ég rifja upp kynni mín
af Ástu eru minningamar fyrst og
fremst skemmtilegar. Hún var glöð
í hópi vina og hafði opið auga fyr-
ir spaugilegum atvikum. Sagði hún
líflega og skemmtilega frá ýmsum
smáævintýram, sem gjarnan urðu
á vegi hennar, þótt öðram sæist
yfír þau. Hygg ég að margir muni
minnast þessa í fari hennar.
Um leið og ég þakka Ástu góð
kynni og vináttu sendi ég Guðrúnu
systur hennar samúðarkveðjur, en
hún er nú ein eftir af þessum systk-
inahópi. Blessuð sé minning Ástu
Kristjánsdóttur.
Sigríður Árnadóttir.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
f E R L A n sími 620200
( Dlóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opið alla da^a frá kl. 9-22
Fákafeni 11
s. 68 91 20